Morgunblaðið - 17.12.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.12.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986 Konur og komandi alþingiskosningar eftir Kristínu Einars- dóttur Nú er lokið að mestu að ákveða hvemig listar flokkanna verða við næstu alþingiskosningar og því ekki úr vegi að velta fyrir sér hvort lfklegt sé að fleiri konur muni sitja á næsta þingi en nú er. Það sem vekur athygli er að fleiri konur ení ofarlega á listunum en áður var, en einnig er eftirtektarvert að þær eru oft í svokölluðum baráttusætum eða neðar en það. Hvemig skyldi standa á því? Prófkjörsslagur Það sem mér finnst á vissan hátt aðdáunarvert í þeim prófkjörs- slag sem átt hefur sér stað undan- farið er hve margar konur gáfu kost á sér í þennan líka fáránlega slag þar sem sk. samheijar berast nánast á banaspjót og talað er um aftökur eins og sjálfsagðan hlut. Konur eiga miklu erfiðara upp- dráttar í kerfi eins og því sem prófkjörin em með þeim auglýsing- um og peningaflóði sem því fylgir, þó að nógu erfitt hafl það nú verið fyrir. Kona gegn konu? Ef kona býður sig fram heyrist allt of oft að hún sé að bjóða sig fram gegn einhverri annarri konu. Hún er ekki að bjóða sig fram sem sjálfstæður einstaklingur. Þannig er reynt að etja konum saman, kona gegn konu en ekki að konur vinni saman. Við Kvennalistakonur emm van- ar að heyra slíkan áróður og látum hann ekki tmfla okkur þó að við hlustum og undmmst að karlamir skuli ekki láta sér detta neitt frum- legra í hug til að reyna að koma í veg fyrir framboð kvenna. Hver í fyrsta sæti? Að sjálfsögðu telja karlamir sig oftast sjálfskipaða í hin sk. ömggu sæti listanna. Sjálfur forsætisráð- herrann telur konur í hans flokki mega vel við una að eiga jafnvel von á því að verða varaþingmenn, í besta falli, eftir næstu kosningar. Konur verði að átta sig á því að erfítt er að komast í sæti sem setið er fyrir. Einstaka kona getur þó átt von á því að starfa á alþingi næsta kjörtímabil ef fylgi þeirra flokka, sem þær bjóða sig fram fyrir, eykst í næstu kosningum. Ekki stendur á áróðrinum Ef Kvennalistinn býður fram t.d. á Austurlandi eða á Norðurlandi eystra er það ekki til að auka þátt kvenna í pólitíkinni — nei nú ætla þær víst að bjóða fram gegn konu enn einu sinni. Engar raddir heyr- ast um það að sérframboð karla á Norðurlandi eystra sé gegn konum né að Alþýðuflokks BJ-karlinn á Austurlandi sé að reyna að vinna gegn konum með framboði þar. i þessu sameinast allir gegn Kvenna- listanum, ekki gegn þeirri pólitík sem við rekum, heldur gegn okkur af því við emm konur. Miðað við þau framboð sem nú þegar er búið að ákveða er ekki líklegt að konum §ölgi neitt vemlega á alþingi á næsta kjörtímabili. Það er alveg ótrúlegt hvað karlamir em hræddir við að konum fjölgi á hinu háa al- þingi- Sérframboð kvenna Konur hafa löngum verið óánægðar með sinn hlut innan valdastofliana þjóðfélagsins. Karlar hafa þar verið allsráðandi. Ekki hefur verið tekið tillit til sjónarmiða kvenna jafnt og karla og er því aðallega um að kenna að konur hafa ekki komið þar nærri nema að mjög takmörkuðu leyti. Þessu vildu konur reyna að breyta með sérframboði þar sem lagðar em til hliðar hugmyndir um jafnrétti sem fela í sér rétt kvenna til að vera eins og karlar. Lagt er til gmndvall- ar að reynsluheimur kvenna og karla er ekki sá sami og þess vegna hafa konur aðra sýn til mála en karlar. Oll mál eru kvennamál Öll mál þurfa að skoðast út frá sjónarhóli kvenna ekki síður en Kristín Einarsdóttir „Miðað við þau framboð sem nú þegar er búið að ákveða er ekki líklegt að konum fjölgi neitt verulega á alþingi á næsta kjörtímabili. Það er alveg ótrúlegt hvað karlarnir eru hræddir við að konum fjölgi á hinu háa al- þingi.“ karla. Þar er ekkert undanskilið, efnahagsmál, landbúnaðarmál, sjávarútvegsmál, heilbrigðismál, svo eitthvað sé nefnt en sum mál brenna þó heitar á konum en önn- ur. Það em mál sem oft hafa verið nefnd kvennamál þó þar sé um að ræða mál sem svo sannarlega varða okkur öll bæði í nútíð og ekki síður í framtíð. Það em mál sem varða ekki síst þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Auðvitað hafa margar konur viljað hafna því að nokkur munur sé á konum og körlum og telja jafnvel að ekkert sé til sem heitir kvennapólitík. Ég hef t.d. lúmskan gmn um að breski forsæt- isráðherrann átti sig ekki á hvað kvennapólitík er. Konur í íslenskri pólitík Spumingin er um konur í íslenskri pólitík. Á hvaða forsendum taka þær sæti á listum flokkanna. Vonandi á sínum eigin forsendum, forsendum kvenna en ekki karla. Við Kvennalistakonur töldum og teljum enn að til þess að koma kvennamenningunni inn í umræð- una á þeim stöðum þar sem ráðum er ráðið þurfl konur enn að bjóða fram sérlista kvenna til alþingis og sveitarstjóma. Við viljum skoða og skilgreina heiminn út frá okkar eig- in forsendum. Gömlu karlaflokk- amir em allt of staðnaðir til að kvennasjónarmið hafí þar einhvem hljómgmnn. Tökum höndum saman Ég skora á allar konur að hlusta ekki á þá firru að ef kona býður sig fram þá sé hún að bjóða sig fram gegn annarri konu. Tökum höndum saman um að byggja upp samfélag þar sem allir, konur, karl- ar og böm era jafnvirtir og jafnrétt- háir. Höfundur er lífeðlisfrœðingur og lektor við Háskóia íslands. Opið bréf til með- lima fulltrúaráðsins eftirAuðun Svavar Sigurðsson Kæri fulltrúaráðsmeðlimur! Stjóm Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík og aðalfund- ur Fulltrúaráðsins hafa að undanfömu með óvenjulegum hætti tengst nokkuð hávæm deilumáli um framtíðar eignarhald og stjómun Borgarspítalans. Þetta deilumál er sérstætt að mörgu leti en þó einkum að því er varðar hinn almenna sjálf- stæðismann sem ekki hefur haft tækifæri innanflokks til að tjá hug sinn um málið á öðmm vettvangi en á aðalfundi Fulltrúaráðsins 10. des. sl. Þar náðu sjálfstæðismenn saman um ákveðið gmndvallarat- riði: að tryggja sjálfstæði Borg- arspítalans. Á fundinum var víðtæk samstaða um málið; flutningsmenn komu úr ólíkum áttum, fáir andæfðu neðan- greindri tillögu og hún samþykkt nær mótatkvæðalaust. Tillagan var svohljóðandi: Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík hald- inn 10. desember 1986 á Hótel Sögu skorar á borgarstjóra, heil- brigðisráðherra og fjármálaráð- herra að tryggja með ömggum hætti að Borgarspítalinn verði ekki undir nokkmm kringumstæðum settur undir stjóm Ríkisspítalanna heldur tryggð sjálfstjóm hver sem eignaraðildin er. Auðun Svavar Sigurðsaon læknir, Vilhjálmur Egilggon form. SUS. Sigurbjðrn Magnússon, 1. varaform. SUS Árdfg Þórðardóttir framkv.gtj. Anna K. Jónsdóttir varab.fulltr. Ingólfur S. Sveinsson varab.fulitr. Hannes H. Gissurarson lektor, Páll Gislason borgarfulltr., Guðrún Zoega varaborg.fuUtr., Vilhjáimur Þ. Vilhjálmsson borgarfuUtr., Helga Jóhannsdóttir varab.fuUtr., Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar, Steingrimur Sigurgeirsson framkv.stj. SUS, Sveinn Andri Sveinsson HeimdalU, Ólafur Þ. Stephensen varaform. Heimdallar, Árni Sigurðsson nemandi, Sólveig Pétursdóttir lögfræðingur, Júlfus Hafstein varaborg.fulltr., Hannes Pétursson yfirlæknir. Áskomnin er fyrst og fremst um það að Borgarspítalinn verði áfram sér stjómunar- og rekstrarleg ein- ing en ekki undir nokkmm kring- umstæðum steypt saman við Ríkisspítalana. Rök okkar gegn þeim hugmyndum má draga saman í eftirfarandi: 1. Það er óráð að auka frekar á þá miðstýringu sem fyrir er í heilbrigðisþjónustunni með því að steypa saman tveimur stærstu sjúkrahúsum landsins. 2. Það em engin rekstrarleg rök fyrir því að stækka Ríkisspítal- ana umfram þá stærð sem þeir hafa nú þegar náð. Þvert á móti er það mat sérfræðinga í sjúkrahúsrekstri að sjúkrahús allt að 1100 rúma á sömu lóð séu rekstrarlega hagkvæm, en stækkun umfram það sé ekki hægt að rökstyðja með rekstrar- legum sjónarmiðum. Ríkisspítal- amir em þegar með um 1200 rúm sem dreift er um 3 kjör- dæmi og því engin ástæða til að bæta 500 rúmum Borgarspít- alans við það bákn sem fyrir er. 3. Það er skoðun okkar að smærri rekstrareiningar í heilbrigðri faglegri samkeppni sem em í sífelldri tilraunastarfsemi muni skila betur því verkefni að veita sjúklingum ömgga og góða sjúkrahúslæknisþjónustu en eitt miðstýrt ríkisrekið bákn. 4. Vamarorð tæplega hundrað lækna á Reykjavíkursvæðinu og áskomn til formanns flokksins er byggt á reynslu annarra þjóða sem nú em í óða önn að draga úr miðstýringu og færa verkeftii í heilbrigðismálum til sveitarfé- laganna. Áskomnin var svo- hljóðandi: i Við undirritaðir læknar á Reykjavíkursvæðinu, sem höfum verið stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins, skoram á formann flokksins, Þorstein Pálsson, að beita sér fyrir lausn á deilu um framtíð- areignarhald og rekstrarform Borgarspítalans, í anda sjálfstæðis- stefnunnar. Við vömm alvarlega við þeirri hugmynd að steypa saman tveimur stærstu sjúkrahúsum heilbrigðis- þjónustunnar og mynda úr henni eina stóra ríkisstofnun. Þetta mun þýða í raun að ríkinu sé færð einok- unaraðstaða á sjúkrahúsrekstri í landinu. Meginrök okkar em þau að með ríkisrekstri sjúkrahúsþjónustunnar náist ekki sú rekstrarlega hagræð- ing sem til stendur og þegar til lengri tíma er litið muni þetta koma niður á þjónustunni við sjúklingana. Við vísum í þessu sambandi til reynslu annarra þjóða sem við höf- um kynnst af eigin raun með störfum okkar erlendis. 5. Stefna Sjálfstæðisflokksins hef- ur verið sú hingað til að draga úr miðstýringu, færa verkefni til sveitarfélaga ásamt tekju- stofnum og færa sjálfseignar- stofnunum og einkaaðilum meira hlutverk í heilbrigðisþjón- ustunni. Sú stefna að selja spítalann ríkinu og koma þannig á ríkiseinokun í raun á allri sjúkrahúslæknisþjónustu er í hróplegu ósamræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Ágæti meðlimur í Fulltrúaráðinu. Því er ég að senda þér þetta bréf að ég tel afar biýnt að deilan um Borgarspítalann fái farsælan endi. Það mun hún ekki fá nema forystu- menn okkar í heilbrigðismálum gangi ekki gegn þeirri sáttargjörð Auðun Svavar Sigurðsson. sem felst í áskomn okkar á aðal- fundi Fulltrúaráðsins. Því skora ég á þig að fylgjast vel með niðurstöðu þessa máls og fylgja vel eftir áskor- un okkar. Engum stjómmálaflokki er gerður greiði með því að lýðræð- islegum hefðum sé vikið til hliðar þegar forystumönnum hentar! Höfundur er læknir. Kór Lang- holtskirkju í náttsöng KÓR Langholtskirkju syngur í Hallgrímskirkju í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 21.00. Stjórn- andi er Jón Stefánsson organisti. Kórinn flytur m.a. jólalög í út- setningu Ánders Örwalls með undirleik nokkurra hljóðfæraleik- ara. Einnig verður að vanda flutt tíðagjörð. Náttsöngur hefur unnið sér hefð í Hallgrímskirkju og nú á aðvent- unni er hann fluttur í hinum tignarlega helgidómi þar sem tón- list hljómar svo vel. Hingað til hefur verið fjölsótt enda veitist mönnum í náttsöng kærkomið tækifæri til að búa sig undir jólahátíðina. (Fréttatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.