Morgunblaðið - 17.12.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
33
V opnasölumálið:
CIA veitir írökum upp-
lýsingar um varnir Irana
Washington, AP.
BANDARÍSKA leyniþjónustan
CIA hefur veitt írökum upplýs-
ingar um varnir írana á laun
og áttu þessi viðskipti sér m.a.
stað á meðan stjórnin í Teheran
keypti vopn af Bandarikja-
mönnum, að því er haft er eftir
tveimur embættismönnum í
Hvíta húsinu.
Hér er meðal annars um upp-
lýsingar frá gervihnöttum að
ræða, segja embættismennimir.
Gervihnattamyndimar koma sér
vel fyrir íraska sprengjuflugmenn
í loftárásum á írönsk athafna-
svæði, t.d. olíuhafnir og borpalla.
í raun hafa Bandaríkjamenn
aðstoðað hvora tveggju í Persa-
flóastríðinu, sem nú hefur staðið
í sex ár, og um leið haldið fram
hlutleysi sínu og afskiptaleysi.
Embættismennimir sögðu báð-
ir að talið hefði verið skynsamlegt
að láta Iraka hafa upplýsingar,
sem aflað hefði verið gegnum
gervihnetti, til að koma í veg fyr-
ir að íranir neyttu liðsmunar og
legðu undir sig írak.
„Líta má á þessa aðstoð sem
svo að Bandaríkjamenn vilji ekki
að íranir nái yfirhöndinni í
stríðinu," sagði annar embættis-
mannanna. „Ef það gerðist myndu
íranir ekki taka í mál að semja
um frið á grundvelli jafnræðis.“
í dagblaðinu The Washington
Post sagði á mánudag að William
J. Casey, yfírmaður CLA, hefði
tvisvar hitt háttsetta fulltrúa ír-
aka til að fullvissa sig um að
upplýsingar kæmust klakklaust
til skila og hvetja íraka til harð-
ari árása á írönsk mannvirki.
Fundir þessir hefðu verið haldnir
í október og nóvember.
Embættismennimir vildu ekki
staðfesta þennan hluta frásagnar
blaðsins og sagði annar þeirra að
fréttin væri ýkt.
Arabískir heimildamenn segja
að viðskipti íraka og CLA hafi
verið á hvers manns vömm í lönd-
unum við Persaflóa í rúmt ár.
Þess vegna hafi írösk stjómvöld
þagað þrátt fyrir gremju yfir
vopnasölumálinu.
Carlucci hyggst breyta til
hjá Þjóðaröryggisráðinu
Washingfton, AP.
FRANK Carlucci, hinn nýskip-
aði öryggismálaráðgjafi
Bandaríkjaforseta, hefur
hafizt handa um að undirbúa
mannabreytingar hjá Þjóðarör-
yggisráðinu og verður breyt-
ingunum hrint í framkvæmd
þegar hann tekur formlega við
starfi um áramótin.
Carlucci er sagður hafa orðið
mjög hneykslaður þegar hann fór
að kynna sér innviði stofnunarinn-
ar. Fannst honum sem meðal-
mennska væri í fyrirrúmi og að
skortur væri á faglegum vinnu-
brögðum. Hyggst hann skipta um
nær alla æðstu embættismenn hjá
ráðinu, um 50 talsins. Er þar um
að ræða sérfræðinga og ráðu-
nauta, sem sagðir em hafa fengið
starf sitt vegna stjómmálaskoð-
ana en ekki vegna sérþekkingar
á utanríkismálum.
Aðstoðarmenn Carluccis segja
að ein skýring á því að faglegum
vinnubrögðum hafí hnignað hjá
Þjóðaröryggisráðinu sé hlutfalls-
legt reynsluleysi öryggisráðgjafa
Ronalds Reagan, forseta. Forver-
ar Carluccis em Richard V. Allen,
William P. Clark, Robert McFarl-
ane og John Poindexter. Sá
síðastnefndi hrökklaðist úr starfi
vegna vopnasölunnar til írans.
Enginn þeirra var úr hópi helztu
sérfræðinga Bandaríkjanna í ut-
anríkismálum en McFarlane hafði
þó áður verið starfsmaður ráðsins.
Þá hafi verið tilhneiging hjá
stofnuninni til að endurtaka
vinnu, sem unnin væri innan ut-
anríkis- og vamarmálaráðuney-
tanna og á vegum lejmiþjón-
ustunnar. Þessar stofnanir réðu
þó jrfír margfalt fjölmennara
starfsliði en Þjóðaröryggisráðið.
Loks er því haldið fram að áhrif
hersins hafi aukizt hjá ráðinu,
einkum í tíð McFarlanes, sem var
foringi í landgönguliðinu, og í tíð
Poindexters, sem er enn í her-
þjónustu.
Starfsmenn Þjóðaröryggisráðs-
ins hafa að öðm lejrti borið sig
illa síðustu daga og haldið því
fram að starfsemi stofnunarinnar
ráðherra ísraels, segir að
íranir hafi átt frumkvæðið að
vopnaviðskiptum við Banda-
ríkjamenn og þeir hafi beðið
Bandaríkjamenn að selja sér
vopn. Þetta kom fram í sam-
ræðum, sem japanskir frétta-
ritarar áttu við Shamir á
mánudag.
„Til að sanna að þeir íhuguðu
fyrir alvöm að byggja upp sam-
skipti við Bandaríkjamenn fóm
hafi verið meira og minna lömuð,
annars vegar vegna óvissu um
framtíðina og hins vegar vegna
þess að flest skjöl og gögn stofn-
unarinnar hafa verið gerð upptæk
vegna rannsóknar á vopnasölunni
til írans og peningagreiðslum í
því sambandi til Contra-skæmliða
í Nicaragua.
Blaðið Jerusalem Post hélt því
fram í gær að Howard Teicher,
jrfirmaður þeirrar deildar Þjóða-
röryggisráðsins sem fjallar um
her- og stjómmál, hefði sagt af
sér um helgina vegna vopnasölu-
málsins. Hann er sagður hafa
farið með McFarlane og Oliver
North, aðstoðarmanni Poindext-
ers, til Teheran í maí sl.
íranir fram á vopnaviðskipti,"
sagði í blaðinu Tokyo Daily.
I blaðinu Sankei Daily stóð:
„íranir vildu koma á sambandi
við Bandaríkjamenn að nýju og
með vissu má segja að þeir hafi
beðið Bandaríkjamenn að selja sér
vogn.“
I blöðunum Tokyo Daily og
Nihon Keizai var haft eftir Sham-
ir að ísraelar hefðu fiutt vopn til
írans að ósk Bandaríkjamanna og
ekki að eigin fmmkvæði.
*
Iranir áttu frumkvæðið
Tókýó, Reuter.
YITZHAK Shamir, forsætis-
Shultz utanríkisráðherra:
Stefna Bandaríkjanna gegn
hryðjuverkum er óbreytt
GEORGE Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna sagði á
blaðamannafundi, sem fram fór
um gervihnött í gær, að stefna
Bandaríkjanna væri nú sem
endranær sú að beijast gegn
hryðjuverkastarfsemi, sama
hver ætti í hlut og að það ætti
einnig við um Iran. Þá sagði
Shultz að Atlanthafsbandalagið
væri grundvöllur varna og ör-
yggis Bandarikjanna. „Sú hefur
verið raunin, svo er, og þannig
mun það verða.“
Spumingar fréttamanna beind-
ust einkum að vopnasölunni til írans
og afleiðingum hennar. Shultz sagði
að stefna Bandaríkjanna væri
óbrejrtt. Ekki yrði samið við hryðju-
verkamenn og að stefnt væri að
því að binda enda á Persaflóastríðið.
Shultz ítrekaði yfirlýsingar
Bandaríkjaforseta um að vopnasal-
an til írans hefði verið ætluð til
þess að gefa þarlendum stjórnvöld-
um vísbendingu um að samskipti
ríkjanna gætu orðið liðugri. Þá var
hann spurður hvort að fullyrðingar
um vilja Bandaríkjastjómar til frið-
ar milli írans og Iraks væm ekki
fals eitt, þegar litið væri til þess
að íraksstjóm hefði fengið f hendur
upplýsingar frá Bandaríkjunum um
skotmörk í íran. Shultz sagði að
hann væri ekki í aðstöðu til þess
að ræða trúnaðarmál, en að Banda-
ríkjastjóm vildi raunhæfa friðar-
samninga. „Við viljum ekki að
annar hvor aðilinn verði sigurveg-
ari stríðsins, enda verður ekki af
neinum samningum meðan annar
hvor hefur yfirhöndina. — Hitt er
alveg á hreinu að ekki verða fleiri
vopn seld til írans."
ítalskur blaðamaður varpaði
fram þeirri spumingu hvort að
vopnasölumálið gæti ekki haft
margvísleg áhrif í for með sér, þar
sem forsetinn væri ekki með eins
styrka stöðu og þyrfti að treysta
meira á þingið. Shultz sagðist ekki
óttast það mjög, að sjálfsögðu ætti
forsetinn að fara að vilja þingsins,
en hann benti á að Reagan forseti
hefði reynst sérlega lunkinn við að
fá þingið til liðs við sig.
Spurt var hvert gildi Atlantshafs-
bandalagsins væri fyrir Bandaríkin,
sértstaklega í ljósi tillagna Reagans
á Reykjavíkurfundinum um eyði-
leggingu langdrægra kjamorkueld-
flauga. Shultz sagði að Bandaríkin
myndu aldrei hvika frá skuldbind-
ingum sínum við bandamenn sína
í Evrópu. „Okkar hlutverk innan
bandalagsins er að tiyggja kjam-
orkufælingarmátt þess, stjrkja
vamir bandalagsins í Evrópu og að
vera fremstir meðal jafningja í
stefnumótun þess, en styrkur
bandalagsins felst m.a. í sveigjan-
leika þess. Þegar ný vandamál
koma upp em þau rædd og lausnir
fundnar."
Daglegt líf í Nablus
Gamall maður ekur hjólbörum framhjá ísraelskum hermanni vopnuð-
um vélbyssu. A börunum er tunna, sem notuð hafði verið sem
vegartálmi í Balata-flóttamannabúðunum i útjaðri bæjarins Nablus
á vesturbakka Jórdanfljóts í mótælaaðgerðum, sem þar áttu sér stað
fjrrir nokkrum dögum.
Efnahagsspá fyrir næsta ár:
Hægur hagvöxtur
og gengissig dollara
Washington, AP.
í SKÝRSLU Alþjóðafjármála-
stofnunarinnar, sem heyrir undir
stórbanka víða um heim, er því
spáð að gengi Bandaríkjadollara
muni lækka á næsta ári og hag-
vöxtur verði hægur í Banda-
ríkjunum og öðrum vestrænum
iðnríkjum.
í skýrslunni er talið að hagvöxtur
í vestrænum iðnríkjum verði um 2,6
prósent samanlagt á þessu ári og
2,3 prósent árið 1987. Heildar-
hagvöxtur var 2,8 prósent árið
1985.
„Mikil verðlækkun á olíu frá lok-
um ársins 1985 hefur ekki haft í
för með sér þá aukningu sem búist
var við í framleiðslu iðnríkja," sagði
í útdrætti úr skýrslunni.
„Þess í stað hefur dregið úr eftir-
spum, neytendur hafa sparað meira
og framleiðendur fjárfest minna.“
í skýrslunni segir að gengi dollar-
ans gæti lækkað um 16 prósent á
þessu ári, sjö prósent á næsta ári
og muni þetta gengissig halda
áfram árið 1988.
Spáð er aukinni eftirspum eftir
innflutningsvömm bæði í Japan og
Bandaríkjunum, en í skýrslunni er
talið að eftirspurn eftir innfluttum
vömm minnki í Vestur-Evrópu á
næsta ári.
Belfast:
Öflug sprenging
í lögreglustöð
Belfast, Reuter. AP.
LÖGREGLU STÖÐ í Belfast
stórlaskaðist er gífurlega öflug
sprengja sprakk f jrrir utan bygg-
inguna í gærmorgun. Sex manns
slösuðust lítillega, þ. á m. einn
lögregluþjónn.
Sérfræðingar áætla að 450 kfló
af sprengiefni hafi verið í sprengj-
unni. Er það ein stærsta sprengja,
sem hryðjuverkamenn hins ólöglega
lýðveldishers (IRA) hafa sprengt.
Sprengjunni hafði verið komið fyrir
í skólabíl, sem skilin var eftir fyrir
utan lögreglustöðina. Hertóku
hryðjuverkamenn IRA bifreiðina og
neyddu bílstjórann til að aka
sprengjunni að lögreglustöðinni
meðan þeir héldu fjölskyldu hans í
gíslingu. Lét hann lögregluna viþa
hvers kyns var þegar hann yfirgaf
bifreiðina og sprakk sprengjan með-
an verið var að flytja fólk úr
nærliggjandi húsum. Fjölskyldu
bílstjórans slepptu IRA-mennimir
þegar hann hafði yfirgefið skóla-
bílinn.
Aðeins 12 stundum fyrir spreng-
inguna gaf lögreglan út almenna
viðvömn þar sem varað var við
sprengjuherferð, sem talið var að
IRA efndi til síðustu dagana fyrir
jól.
Irski lýðveldisherinn hefur jafnan
efnt til sprengjuherferðar rétt fyrir
jól til þess að vekja á sér athygli.
Herinn skipa kaþólikkar, sem vilja
að Norður-írland losni undan jrfir-
ráðum brezku stjómarinnar.