Morgunblaðið - 17.12.1986, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö.
Steinullarverksmiðjan
á Sauðárkróki
Forstjóri Lands vir kj unar í bréfi til stjórnar fyrirtæki
Tillögur Þjóðhagsst
í andstöðu við stjóri
Löggiltur endurskoðandi telur atriði
í umsögn Þjóðhagsstofnunar röng og
sýna skilningsleysi á reikningsskilum
Landsvirkjunar
Frá því að Steinullarverk-
smiðjan á Sauðárkróki
tók til starfa á síðasta ári
hafa ýmsir erfiðleikar steðjað
að rekstrinum. Ofn verk-
smiðjunnar reyndist ekki eins
og framleiðendur hans höfðu
lofað og skaðabæturnar
vegna þessa urðu ekki eins
miklar og forráðamenn
Steinullarverksmiðjunnar
höfðu vonað. Og þrátt fyrir
að verksmiðjunni hafi tekist
vel upp í sölu, í raun betur
en áætlað var, og hlotið lof
fyrir góða framleiðslu, hefur
ekki tekist að renna styrkum
stoðum undir reksturinn.
Um nokkum tíma hefur
verið þrýstingur á ríkisvaldið,
sem á 40% af hlutafé, að
leggja fram aukið fjármagn
til verksmiðjunnar. Iðnaðar-
ráðherra hefur nú tekið af
skarið og lýst því yfir að
hann muni beita sér fyrir því
að ríkissjóður leggi fram 24
milljónir króna í aukið hluta-
fé, að ákveðnum skilyrðum
fullnægðum. Aðrir stærstu
hluthafar munu þegar hafa
samþykkt að auka hlutafé.
Spumingin er sú hvort
Steinullarverksmiðjunni tak-
ist að uppfylla þau skilyrði
sem ráðherra hefur sett.
Miklar skuldir hvíla á verk-
smiðrjunni og verða forráða-
menn hennar að ná
nauðungarsamningum við
helstu lánardrottnana, og þar
er Helsinkibanki stærstur.
Hvort þetta tekst á tíminn
eftir að leiða í ljós, en á því
getur framtíð verksmiðjunn-
ar ráðist.
Vegna þessara erfíðleika
hljóta menn að leiða hugann
að því hvernig staðið var að
ákvörðun um að reisa stein-
ullarverksmiðju á Sauðár-
króki. Þar réðu fremur
pólitísk sjónarmið en arðsemi
og hagkvæmni. Á sínum tíma
vöruðu margir, sem vel
þekktu til, við því að steinull-
arverksmiðja yrði reist á
Sauðárkróki — þeir töldu það
boma von að slík fjárfesting
skilaði arði. Það var ekki síst
staðsetningin sem þar skipti
máli.
Það voru pólitískar for-
sendur en ekki mat á arðsemi
sem réðu úrslitum og það
ekki í fyrsta skipti og því
miður líklega ekki í það
síðasta. Morgunblaðið er
þeirrar skoðunar að ríkis-
valdið eigi ekki að taka þátt
í atvinnurekstri, sem betur
er kominn í höndum einstakl-
inga og félagasamtaka
þeirra. Dæmin um afleiðing-
ar þess, þegar misvitrir
stjómmálamenn skipta sér
af atvinnulífinu, eru of mörg.
Atvinnulífið á Sauðárkróki
á mikið undir Steinullarverk-
smiðjunni og vonandi leysast
þau vandamál sem verk-
smiðjan á við að glíma. Af
fréttum að dæma er ljóst að
Sauðárkróksbær á við veru-
legan fjárhagsvanda að
stríða. Svo kann að fara að
Steinullarverksmiðjan verði
þungur baggi á bæjarfélag-
inu í stað þess að vera því
sú lyftistöng sem vonir stóðu
til.
Á það hefur verið bent að
of snemmt sé að dæma Stein-
ullarverksmiðjuna. Fram-
leiðsla hófst þar á síðasta ári
og eðlilegt sé að fyrirtæki
sem þetta þurfi nokkur ár til
þess að unnt sé að dæma um,
hvort það geti staðið á eigin
fótum.
Á síðustu misserum hafa
orðið stórkostlegar breyting-
ar á innlendum fjármagns-
markaði í kjölfar aukins
fijálsræðis. Þessar breyttu
aðstæður hafa knúið menn í
atvinnulífinu til að taka upp
önnur vinnubrögð. Skilyrði
iðnaðarráðherra fyrir auknu
hlutafé bendir til þess að
menn séu famir að átta sig
á því að það dugar ekki leng-
ur að setja æ meira fé í
rekstur fyrirtækja, sem
standa höllum fæti, án þess
að aðrar ráðstafanir séu jafn-
framt gerðar. Vonandi tekst
það í þetta sinn, en óneitan-
lega vakna vissar efasemdir
þegar slíkir erfiðleikar koma
upp svo skömmu eftir að
rekstur hefst.
FORSTJÓRI Landsvirkjunar tel-
ur að Þjóðhagsstofnun hafi í
umsögn sinni um hækkunarþörf
fyrirtækisins komið fram með
tillögur, sem séu í þversögn við
þá stefnu, er fram komi í frum-
varpi ríkisstjórnarinnar til
lánsfjárlaga. Þá hefur löggiltur
endurskoðandi, sem Landsvirkj-
un leitaði til vegna umsagnar
Þjóðhagsstofnunar, lýst sumum
atriðum hennar sem röngum og
villandi og til marks um að hag-
fræðingar fái ekki nægilega
menntun í reikningshaldi.
Svo sem fram kemur í frétt ann-
ars staðar í blaðinu í dag ákvað
stjórn Landsvirkjunar í gær, að
hækka verð á rafmagni frá Lands-
virkjun til almenningsrafveitna um
7,5% frá og með næstu áramótum,
en það samsvarar 4,5% hækkun á
smásöluverði rafmagns. I fréttatil-
kynningu frá Landsvirkjun segir,
að rekstraráætlun og gjaldskrá fyr-
irtækisins hafí verið endurskoðaðar
með hliðsjón af nýgerðum kjara-
samningum og þeim verðlagsspám,
sem gerðar hafi verið í kjölfar
þeirra. Við það sé miðað, að verð-
bólga verði ekki meiri en 7-8% á
næsta ári og gengi krónunnar verði
stöðugt.
í lok október s.l. sendi Halldór
Jónatansson, forstjóri Landsvirkj-
unar, Jóni Sigurðssyni, forstjóra
Þjóðhagsstofnunar, bréf, þar sem
farið er fram á umsögn stofnunar-
innar um þörf Landsvirkjunar fyrir
hækkun á gjaldskránni til almenn-
ingsrafveitna. í bréfi Halldórs kom
fram, að stjóm Landsvirkjunar taldi
gjaldskrána þurfa að hækka um
10-16,4% í byijun næsta árs. Fyrri
talan gekk út á það, að ná rekstrar-
jöfnuði á næsti ári. Hún var miðuð
við 14% verðbólgu á þessu ári, 5%
verðbólgu á næsta ári og að gengi
hækkaði um 2,3% skv. viðskipta-
vog, 2,6% miðað við SDR og 3,7%
miðað við ECU. Síðari talan var
hins vegar byggð á því, að Lands-
virkjun næði ekki aðeins rekstrar-
jöfnuði heldur einnig greiðslujöfn-
uði á árinu 1987.
Hinn 3. desember s.l. barst
Landsvirkjun umsögn Þjóðhags-
stofnunar. Hún var undirrituð af
Bolla Þór Bollasyni, aðstoðarfor-
stjóri. Þar er að finna þijár athuga-
semdir við rekstraráætlun
fyrirtækisins og forsendur hennar.
Niðurstaða Þjóðhagsstofnunar er
sú, að áætluð rekstrarafkoma
Landsvirkjunar gefi aðeins tilefni
til óverulegrar hækkunar á gjald-
Morgunblaðið/Júlíus
Geir Freysson afhjúpar bijóstmynd af afa sínum Geir Hallgrímssyni, fyrrverandi borgarsljóra.
Davið Oddsson, borgarstjóri, fylgist með.
Reykjavíkurborg:
Brjóstmynd af Geir
Hallgrímssyni afhjúpuð
BRJÓSTMYND af Geir
Hallgrímssyni, fyrrum borgar-
stjóra í Reykjavík , var í gær
afhjúpuð í húsakynnum borg-
arstjórnar við Pósthússtræti.
Myndin er eftir Helga Gíslason,
myndhöggvara. Það var ungur
dóttursonur Geirs, Geir Freys-
son, sem afhjúpaði brjóstmynd-
ina, en venja er að borgarstjórn
láti gera slíkar myndir af fyrr-
verandi borgarstjórum.
Bijóstmyndin af Geir Hall-
gn'mssyni var afhjúpuð að við-
stöddum gestum, flestum
tengdum borginni og borgar-
stjórn. Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, bauð gesti velkomna og
flutti stutt ávarp fyrir athöfnina.
Hann sagði meðal annars, að
Geir hefði verið mjög virtur og
afkastamikill sem borgarstjóri og
hefði hann fylgzt betur með borg-
armálunum, en flestir hefðu talið
að unnt væri. Hann hefði meðal
annars átt mestan heiður af því
að gera Reykjavík að borg, sem
bæri nafn með rentu. Reykjavík
hefði reyndar verið gerð að borg
samkyæmt lögum árið 1962, en
án framtaks Geirs hefði hún tæp-
lega risið undir því nafni. Sem
dæmi um þá virðingu,. sem Geir
naut sem borgarstjóri, gat Davíð
Oddsson þess, að enginn annar
hefði fengið jafnmikinn hluta at-
kvæða í prófkjöri og Geir, er hann
var í framboði í borgarstjómartíð
sinm.
Eftir að bijóstmyndin hafði
verið afhjúpuð, þakkaði Geir
Hallgrímsson þá virðingu, sem
honum væri sýnd með þessu. Þá
gat Geir þess, að frá borgarstjóra-
tíð sinni ætti hann margar góðar
og ánægjulegar minningar. Hann
teldi borgarráð ætíð hafa unnið
mikið og happasælt starf og þar
hefðu samheijar og mótheijar
lagt hart að sér til að finna beztu
lausnina á viðfangsefnunum. Geir
sagði, að koma sín í þetta hús-
næði vekti með sér mjög góðar
minningar og gaman væri að end-
umýja kynni sín við listaverkin á
staðnum, en á bak við þau sum
hver lægju skemmtilegar sögur.