Morgunblaðið - 17.12.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
37
sins:
ofnunar eru
larstefnuna
skrá til almenningsrafveitna. í
fyrstu athugasemd Þjóðhagsstofn-
unar við áætlun Landsvirkjunar
segir, að gert sé ráð fyrir 50 milljón-
um króna til að mæta ófyrirséðum
olíukostnaði, ef bilun verði á ra-
forkukerfi hennar. Þessi liður valdi
hækkun rekstrar- og viðhaldskostn-
aðar um 20%, en án hans væri
hækkunin 12%. Telur Þjóðhags-
stofnun eðlilegra, að þessi þáttur
valdi ekki hækkun raforkuverðs
fyrr en kostnaður fellur til. Að te-
knu tilliti til þessa þurfi gjaldskrá
ekki að hækka nema um innan við
1% til að ná rekstraijöfnuði.
Önnur athugasemd Þjóðhags-
stofnunar varðar greiðslujöfnuðinn.
Þar segir, að áætlun Landsvirkjun-
ar geri ráð fyrir því, að reksturinn
standi undir eridurgreiðslu á 5% af
skuldum fyrirtækisins. í því felist
að Landsvirkjun hyggist greiða
langtímalán sín á 20 árum, sem sé
mun skemmri tími en líklegur end-
ingartími þeirra eigna, sem fjár-
magnaðar hafi verið með þessum
lánum. Þessi gjaldskrárstefna bæti
eiginfjárstöðu fyrirtækisins veru-
lega á komandi árum. Til marks
um áhrif þessa á hækkunarþörf
Landsvirkjunar megi nefna, að unnt
sé að ná greiðslujöfnuði á árinu
1987, án hækkunar á gjaldskrá,
með því að fresta nálægt 300 millj-
óna króna afborgomum af lánum
frá því sem gert sé ráð fyrir í áætl-
unum fyrirtækisins. Þrátt fyrir
þetta stæði reksturinn undir endur-
greiðslu á tæplega 4% af skuldum
fyrirtækisins, sem þýddi að endur-
greiðslutími langtímalána yrði 26
ár. Þjóðhagsstofnun telji rétt að
vekja athygli á þessu atriði, þar sem
það hljóti að koma til álita þegar
hækkunarþörfin sé metin hverju
sinni.
Loks er í umsögn Þjóðhagsstofn-
unar gerð athugasemd við gjald-
færslu afskrifta og vaxta í áætlun
Landsvirkjunar, en þessir rekstrar-
liðir nema nálægt 80% af heildar-
gjöldum í áætluninni fyrir árið
1987.
Umsögn Þjóðhagsstofnunar var
lögð fyrir stjóm Landsvirkjunar
hinn 4. desember s.l. Jafnframt var
lagt fyrir stjórnina bréf frá Halld-
óri Jónatanssyni, forstjóra, þar sem
ýmsar athugasemdir eru gerðar við
umsögnina. Um fýrstu athugasemd
Þjóðhagsstofnunar segir Halldór,
að umræddar 50 milljónir króna séu
ekki eingöngu vegna ófyrirséðs
olíukostnaðar, heldur aðeins helm-
ingurinn af þeirri fjárhæð. Að öðru
leyti sé um að ræða fjárhæð vegna
alls annars ófyrirséðs kostnaðar.
Umræddar 50 millj. kr. nemi ekki
nema 1,5% af öllum rekstrargjöld-
um Landsvirkjunar og upphæðin sé
ekki hærri en í fyrri áætlunum fyrir-
tækisins. Telur forstjórinn, að það
væri hreint ábyrgðarleysi að fylgja
ráði Þjóðhagsstofnunar og taka
ófyrirséðan kostnað ekki með í
áætlunina fyrr en hann er orðinn
að veruleika.
Um aðra athugasemd Þjóðhags-
stofnunar segir Halldór Jónatans-
son, að það sé hægara sagt en gert
að fresta afborgunum á næsta ári
um 300 millj. kr. Hér sé í fyrsta
lagi um að ræða hugmyndir er
gangi gegn stefnu stjórnar Lands-
virkjunar um endurgreiðslu langtí-
malána og feli þær í sér hvatningu
um aukningu erlendra lántaka um
300 millj. kr. á næsta ári. Orðrétt
segir forstjórinn: „Erfitt er að
hugsa sé að fara með umræddan
endurgreiðslutíma úr 20 árum í 26,
þar sem það mundi auka mjög á
lánabyrði LV [Landsvirkjunar] til
lengri tíma litið og vera í bága við
lagaákvæði um að lántökur vegna
framkvæmda eigi ekki að vera
meiri en góðu hófi gegni og taka
eigi mið af því sjónarmiði við ák-
vörðun á rafmagnsverði LV, sem
Þjóðhagsstofnun ber lögum sam-
kvæmt að hafa að leiðarljósi í
umsögn sinni um hækkunárþörfina.
Þá eru auknar láritökur á næsta ári
í þversögn við þá stefnu ríkisstjórn-
arinnar sem kemur fram í láns-
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1987,
þar sem lántökuheimild LV vegna
virkjunarframkvæmda 1987 er
skorin niður úr 550 m. kr. í 400
m.kr. eða um 150 m.kr., sem LV
er gert að mæta með fé úr rekstri.
Er ekkert vikið að þessum viðhorf-
um í umsögn Þjóðhagsstofnunar,
heldur látið eins og þetta vandamál
sé ekki fyrir hendi, þótt á það hafí
verið bent í bréfi LV til stofnunar-
innar frá 30. október s.l.“
Síðan segir fortjóri Landsvirkjun-
ar í bréfinu: „Miðað við áætlað
verðlag á næsta ári og að viðbætt-
um kostnaði við kerfiráð eru
umræddar 150 m.kr. alls 185 m.kr.
Þá er greiðsluhallinn án gjaldskrár-
hækkunar áætlaður 345 m.kr. en
ekki 300 m. kr. og er því alls um
530 m.kr. að ræða sem fjármagna
þyrfti með lántökum á næsta ári
umfram lántökuheimildir sam-
kvæmt lánsfjárlagafrumvarpinu
og/eða með fé úr rekstri 1987 að
viðbættri sjóðseign í lok 1986.“
Loks gagnrýnir forstjórinn tillög-
ur Þjóðhagsstofnunar um nýjar
reikningsskilaaðferðir. Telur hann
þær fara í bága við lög um Lands-
virkjun og venjur, sem fram að
þessu hafí ekki verið véfengdar af
ábyrgum aðilum.
í lok bréfsins leggur Halldór Jón-
atansson til að gjaldskrá Lands-
virkjunar verði hækkuð um 10% frá
áramótum. „í mínum huga breytir
umsögn Þjóðhagsstofnunar hér
engu um,“ segir hann, „en með
hliðsjón af því hve hækkunarþörfin
fær þar dræmar undirtektir og hve
mikil hækkun er af þjóðfélagsá-
stæðum óhenpileg eins og á stendur
leyfí ég mér aö 'eggja til að stað-
næmst verði við 10% gjaldskrár-
hækkun." Halldór segir, að um
lágmarkshækkun sé að ræða, sem
geri lítið meira en vega upp á móti
óhagstæðri verðlags- og gengis- „
þróun á þessu ári miðað við þær
forsendur sem gefnar voru er gjald-
skrá Landsvirkjunar var lækkuð um
10% 1. mars s.l.
Loks er þess að geta, að Lands-
virkjun leitaði eftir áliti Stefáns
Svavarssonar, löggilts endurskoð-
anda, á umsögn Þjóðhagsstofnunar.
í bréfí sem hann ritaði Landsvirkjun
hinn 5. desember s.l. segir hann
m.a., að umsögn stofnunarinnar um
afskriftir, vexti og eiginíjáraukn-
ingu Landsvirkjunar sé „alveg
dæmalaus". Hann segir, að bæði
sé umræða um afskriftir í sam-
bandi við greiðsluafkomu fyrirtæk-
isins röng og eins hitt, að
samanburður stofnunarinnar á
breytingum á eigin fé Landsvirkjun-
ar s.l. 15 ár og afkomu hennar á
sama tímabili, lýsi miklu skilnings-
leysi á reikningsskilum fyrirtækis-
ins.
í lok álitsgerðarinnar segir Stef-
án: „Eftir lestur þessarar umsagnar
[Þjóðhagsstofnunar] er ég sann-
færðari en áður um það, að hinn
þekkti hagfræðingur Kenneth E.
Boulding hafði rétt fyrir sér þegar
hann hélt því fram í gagnmerkri
grein ..., að hagfræðingar fengju
ekki nægilega menntun í reiknings-
haldi og það taldi hann „deplorable"
[harmsefni]... Mér virðist að honum
hafi láðst að taka fram, að það
gæti líka verið hættulegt."
Ragnar Kjartansson fyrrv. stjórnarformaður Hafskips:
íhugar að óska eftir opin-
berri rannsókn á rann-
sókn Hafskipsmálsins
Hefur sent saksóknara ríkisins 180 blaðsíðna skýrslu
RAGNAR Kjartansson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Hafskips
lif., og lögmenn eru með í athug-
un, hvort óska eigi eftir opin-
berri rannsókn á rannsókn
Hafskipsmálsins, en í fréttatil-
kynningu sem Ragnar sendi frá
sér í gær segir hann rannsóknina
einkennast af óskiljanlegum
keðjuverkandi mistökum rann-
sóknaraðila:
Hér fer á eftir fréttatilkynningin,
sem Ragnar Kjartansson sendi frá
sér í gær:
„Lögmaður Ragnars Kjartans-
sonar, fyrrv. stjómarformanns
Hafskips hf., hefír afhent saksókn-
ara ríkisins 180 blaðsíðna skýrslu
sem Ragnar hefur tekið saman um
rannsóknarmeðferð Hafskipsmáls-
ins og gagnrýnisverða þætti í henni.
Með skýrslunni fylgja marghátt-
uð fylgiskjöl til skýringar á u.þ.b.
200 blaðsíðum, auk greinargerða
og bóka, þar með talin bókin „Ship’s
Value“ eftir Kaj Pineus, þekktan,
erlendan sérfræðing á sviði skipa-
mata, en verðmætamat á skipum
Hafskips er einmitt meðal þess sem
tekist hefur verið á um í rannsókn-
armeðferð málsins. Meðal fylgi-
skjala með skýrslunni eru
minnisblöð vegna upplýsingaviðtala
við 17 af fyrrverandi samstarfs-
mönnum hjá Hafskip hf., sem allir
gegndu ábyrgðarstöðum hjá félag-
inu, hérlendis eða erlendis. Rann-
sóknarskýrslur voru ekki teknar af
9 þessara 17 yfirmanna hjá félaginu
og óverulegar skýrslur voru teknar
af 4 þeirra. Athygli vekur hvemig
staðið var að vali starfsmanna Haf-
skips hf. til skýrslutöku í þessu
yfírgripsmikla máli.
Meginkaflar skýrslunnar eru 12
talsins og tekið er á meintum ávirð-
ingum og sakargiftum málsins og
fjallað er mun ítarlegar en í fyrri
skýrslu Ragnars Kjartanssonar, frá
30. september 1986, um einstök
rannsóknarmistök skiptaráðend-
anna í Reykjavík, ráðgjafa þeirra
hjá N. Manscher hf. og Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
Dregin eru saman í lok hvers
kafla helstu atriði sem talin eru
ámælisverð í rannsóknarmeðferð-
inni. Þau em nær 200 talsins. Svo
virðist sem mörg þeirra atriða geti
brotið í bága við fyrirmæli í lögum
um meðferð opinberra mála þar sem
rannsóknaraðilum er uppálagt að
rannsaka jöfnum höndum atriði sem
benda til sektar og sakleysis.
Til viðbótar þessari skýrslu er
nú hafínn undirbúningur að ítar-
legri úttekt á umfjöllun íjölmiðla
um Hafskipsmálið og áhrifum henn-
SAUÐFJÁRBÆNDUR eiga rétt
á dráttarvöxtum frá sláturleyfis-
höfum vegna greiðsludráttar á
innlögðum sauðfjárafurðum í
haust, að áliti lögfræðinga sem
alþingismenn leituðu til við setn-
ingu búvörulaganna vorið 1985.
Lokagreiðsla fyrir innlagðar
sauðfjárafurðir átti að fara fram
í fyrradag, en bændur hafa enn
ekki fengið peninga sína.
í áliti lögfræðinganna, Jóns Þor-
steinssonar, Benedikts Blöndals og
Gauks Jörundssonar, segir að ef
afurðastöð inni ekki iögmæltar
greiðslur af hendi á réttum gjald-
daga, beri henni að greiða framleið-
ar á rannsóknarmeðferð þess.
Ennfremur verður umfjöllun Al-
þingis um málið athuguð með
hliðstæðum hætti, m.a. með hliðsjón
af meintum pólitískum áhrifum á
framgang málsins í Skiptarétti
Reykjavíkur og hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Sérfræðingar á sviði
fjölmiðlunar og réttarfars verða
fengnir til að leggja mat á þessi
atriði.
Skýrsluhöfundur og lögmenn
hafa nú til athugunar hvort ekki
verði óskað eftir opinberri rannsókn
á rannsóknarmeðferð Hafskips-
málsins, m.a. á grundvelli skýrsl-
unnar, en talið er að rannsóknarfer-
ill málsins einkennist af
óskiljanlegum keðjuverkandi mis-
tökum rannsóknaraðila.“
anda dráttarvexti með sama hætti
og tíðkast í verslunarviðskiptum.
Jóhannes Kristjánsson á Höfða-
brekku, formaður Landsamtaka
sauðfjárbænda, sagði að þessi
dráttur á greiðslum kæmi sauð-
fjárbændum afar illa. Menn treystu
á greiðslurnar 15. desember og
miðuðu ijárhagsskuldbindingar
sínar við þær. Nú fengju þeir drátt-
arvexti á skuldir sínar og teldu sig
eiga bakkröfur á sláturleyfíshafana
vegna vanskila þeirra. Ýmsar
ástæður væru fyrir því að greiðsl-
umar hefðu dregist en ekki væri
hægt að hafa bændur fyrir blóra-
böggul í því efni.
Sauðfjárbændur eiga
rétt á dráttarvöxtum
- segja lögfræðingar sem alþingis-
menn leituðu til
Heilbrigði fyrir
alla árið 2000
Opið bréf til ríkisstjórnar og al-
þingismanna um heilsuvernd og
nauðsyn á að draga úr heildar-
neyslu áfengis
Heilsuvemd, sem byggir á holl-
um lífsvenjum, er grundvöllur
heilbrigðis og langlífís. Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin hefur lagt
fram stefnuskrá þar sem bent er
á markmið og leiðir til þess að
stuðla að heilbrigði fyrir alla árið
2000. Ríkisstjórn Íslands hefur
samþykkt þessa stefnuskrá. Með-
al þeirra markmiða, sem stofnunin
telur nauðsynlegt að ná, er að
fyrir þann tíma hafí allar þjóðir
minnkað heildaráfengisneyslu
sína um a.m.k. fjórðung.
Ástæða þessa er sú að öll
vandamál, sem tengjast áfengi,
vaxa margfalt með aukinni heild-
ameyslu. Áfengissýkin er aðeins
einn þáttur þessara vandamála.
Aðrir sjúkdómar fólks á starfs-
aldri eiga að verulegu leyti rót
sina að rekja til ofnotkunar áfeng-
is. Sama er að segja um slys.
Hvort tveggja veldur þjáningu og
örorku, auknum kostnaði við heil-
brigðisþjónustu og meiri dánarlík-
um. Lítill vafí er á að aukin
áfengisneysla á sinn þátt í vax-
andi kostnaði við heilbrigðisþjón-
ustu á undanförnum aldarfjórð-
ungi.
I umræðum um ólögleg vímu-
efni gleymist alltof oft að leggja
áherslu á, að áfengisnotkun er
jafnan samfara notkun þeirra.
Áfengisneysla er og í flestum til-
vikum undanfari annarrar vímu-
efnanotkunar.
Félagslegar afleiðingar ofnotk-
unar áfengis em ekki síður
uggvænlegar og aukast einnig
margfalt með vaxandi heildar-
neyslu. Hér má minna á vinnutap
og heimilisböl ýmis konar, s.s.
hjónaskilnaði, ofbeldi á heimilum,
andlegar og líkamlegar misþyrm-
ingar á maka og börnum. Enn-
fremur ber að minna á hættuna,
sem stafar af ölvunarakstri og
ýmissi annarri óábyrgri hegðun,
sem leiðir af því að áfengi slævir
dómgreind manna. Annað og oft
óviðkomandi fólk getur þannig
verið í verulegri hættu.
Sérstök ástæða er til þess að
minna á, að samfara ölvun er tíðni
tilviljunarkenndra eða óráðgerðra
kynmaka mun meiri en ella. Af
þessu kunna að hljótast alvarlegir
sjúkdómar, sem geta verið ban-
vænir.
Með hliðsjón af framansögðu
viljum við undirritaðir hér með
skora á ráðherra og aðra alþingis-
menn að gera það sem í þeirra
valdi stendur til að draga úr fram-
boði áfengis og eftirspum eftir
því þannig að heildamotkun þess
minnki hér á landi í samræmi við
markmið Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar.
Með mikilli virðingu,
Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri,
Asmundur Brekkan,
forseti jæknadeildar HÍ,
Björn Önundarson,
tryggingayfirlæknir,
Gunnlaugur Geirsson,
prófessor í réttarlæknis-
fræði,
Hrafn Tulinius,
prófessor í heilbrigðisfræði,
Þórður Harðarson,
prófessor í lyflæknisfræði,
Ólafur Ólafsson,
Iandlæknir,
Haukur Þórðarson,
formaður Læknafélags ís-
lands,
Gunnar Þór Jónsson,
prófessor í slysalækningum,
Hjalti Þórarinsson,
prófessorí handlæknisfræði,
Tómas Helgason,
prófessor í geðlæknisfræði,
Þorkell Jóhannesson,
prófessor í lyfjafræði.