Morgunblaðið - 17.12.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
39
i_ -
í
Jólavaka við kertaljós
í Hafnarfjarðarkirkju
JÓLAVAKA við kertaljós verður
haldin í Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudagskvöldið 18. desember
og hefst hún kl. 20.30 en Jóla-
vöku varð að aflýsa vegna veðurs
sl. sunnudag.
Ræðumaður verður Guðrún
Helgadóttir alþingismaður og flytj-
endur tónlistar ungir og upprenn-
andi listamenn, þau Guðný
Ámadóttir altsöngkona, Gunnar
Guðbjömsson tenórsöngvari og
Bjöm Davíð Kristjánsson flautu-
leikari og svo Kór Hafnarfjarðar-
kirkju undir stjóm Helga
Bragasonar, organista.
Við lok vökunnar verður kveikt
af altarisljósum á kertum þeim sem
viðstaddir hafa fengið í hendur og
gengur þá loginn frá einum til ann-
ars til merkis um að sú ljóssins
hátíð sem framundan er vill öllum
lýsa, skapa samkennd og vinarþel.
Gunnþór Ingason, sóknarprestur.
Séra Sigurður Helgi Guðmundsson veitir tölvunni viðtöku og sagði þá undirbúning tölvuvæðingar heimil-
isins hafinn. Væri ætlunin að tölvuvæða sjúkraskrár og nota tölvur í tengslum við lyfjagjöf. Ámóta
kerfi væri notað í heilsugæslustöðinni við Armúla og hefði gefið þar góða raun.
Gj'síí J Johnsen
Skjól fær lyfjabúr og tölvu
í TENGSLUM við fjáröflunina
nú fyrir jólin, Átak til skjóls,
kallaði Almar Grímsson lyfsali
forráðamenn Skjóls á sinn fund
f Hafnarfjarðarapótek og af-
henti þeim bréf þar sem hann
heitir að gefa allar sérhannaðar
innréttingar til geymslu iyfja f
lyfjabúri Skjóls, umönnunar- og
hjúkrunarheimilisins fyrir aldr-
aða sem nú rís á Laugarási.
Þá afhenti Gunnar Ólafsson
framkvæmdastjóri Gísla J. Johnsen
sf. hjúkrunar- og umönnunarheimil-
inu Skjóli tölvu af ERGO gerð en
þær eru samsettar hjá fyrirtækinu
og seldar af því. Með í gjöf þessari
fylgir prentari og öll nauðsynleg
forrit, t.d. svokölluð STOÐ-sería.
Báðir gefendur sögðust vilja
styðja byggingu umönnunar- og
hjúkrunarheimilisins Skjóls, þar
sem þeir teldu þörfina fyrir slíkt
öldrunarheimili mjög brýna.
Almar Grímsson lyfsali afhendir séra Sigurði Helga Guðmundssyni
gjafabréfið fyrir innréttingunum.
RITFANGADEILDIN BRETTIR UM SVIP
OG VERÐUR ALLSHERJAR JÓLAMARKAÐUR
Jólakortin eru komin á sinn stað
og jólaskrautið þekur borð og hillur.
Kertamarkaðurinn hefur fest sig í sessi. Kertin
eru í hundraðatali, af öllum gerðum
og stærðum.
VANTIÞIG HUGMYND AÐ GÓÐRIGJÖF
ÞÁ FÆRÐU HANA HÉR
Við nefnum sem dæmi: Vasatölvur, penna og
pennasett, skjalatöskur, undirlegg úr leðri
og statífá skrifborðið, hnattlíkön, margs konar
þrautir og spil, Ijósálfa og töfl.
GALLERÍ EYMUNDSSON
er alveg sérstök deild. Þar finnurþú glæsilegt
úrval gallerímynda í vönduðum álrömmum í
stærðunum 60x80 og 50x60. Takmarkað
upplag af hverri einstakri mynd. Einnig eigum
við geysilegt úrval mynda í smellirömmum
á ótrúlegu verði.
Auðvitað geturþú líka valið staka mynd og við
römmum hana síðan inn fyrir þig á staðnum.
NYR TIME MANAGER!
Við höfum öll ný gögn í hið frábæra Time
Manager sett. Ómissandi eign fyrir allt
athafnafólk. Time Manager er til í leðri og er
hreint tilvalinn fyrirþá sem vilja taka sig saman
um veglega jólagjöf.
OG KÓRÓNAN Á ALLT SAMAN:
Sjálfur jólapappírinn, merkispjöldin og
slaufurnar frá okkur standast að sjálfsögðu
allan samanburð nú sem endranær. Ekki mega
blessaðir jólapakkarnir vera sviplausir.
EYMUNDSSON
KOMINN MEÐ JOLASVIPINN
Austurstræti 18
-i-w If? rI"T A M PC
J