Morgunblaðið - 17.12.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
&t\/inn& — 'i/mi -)■ „. * ia * itx/inna — , atwinr
CJ 1 lr If II IC2 VII It ic* ml\r tf if 'ct mmmm < 4 1 VIIII ici “ alVlflii r "" rp \ivinna
Starf bæjarritara hjá Ólafsvíkurkaupstað er
laust til umsóknar. Mjög góð laun eru í boði.
Umsóknarfrestur er til 30. desember nk.
Allar nánari uppl. veitir bæjarstjóri í síma
93-6153.
Umsóknir um starfið sendist í skrifstofu Ól-
afsvíkurbæjar á Ólafsbraut 34,355 Ólafsvík.
Bæjarstjórí.
Laus staða
Staða varðstjóra í lögregluliðinu á Patreks-
firði er laus til umsóknar.
Launakjör eru samkvæmt launakerfi ríkisins.
Upplýsingar um stöðuna veitir undirritaður.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 11. janúar
1987.
Sýslumaður Barðastrandasýslu,
11. desember 1986.
Framkvæmdastjóri
Stéttarfélag óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra. Starfið er mjög fjölbreytt og
krefst ábyrgðar og sjálfstæðis.
Starf framkvæmdastjóra er m.a. fólgið í:
— að annast rekstur skrifstofu félagsins
— að undirbúa fundi í félaginu
— að undirbúa og vinna að kjarasamningum
félagsins
— að koma fram fyrir hönd félagsins
— að vinna að útgáfumálum félagsins
Góð menntun og starfsreynsla er áskilin.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem allra fyrst.
Umsóknir er tilgreini menntun og starfs-
reynslu óskast sendar auglýsingadeild
Morgunblaðsins fyrir 23. desember nk.
merktar: „Framkvæmdastjóri — 1040“.
Öllum umsóknum verður svarað og fullum
trúnaði er heitið.
Dýralæknir
Hjá Sauðfjárveikivörnum á tilraunastöðinni á
Keldum er laus til umsóknar staða dýralæknis.
Starfssvið eru greiningar og rannsóknir á
búfjársjúkdómum.
Umsækjandi skal láta fylgja umsókn sinni
ítarlegar upplýsingar um námsferil og störf.
Umsókn skal skila til Sauðfjárveikivama land-
búnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli, 150
Reykjavík fyrir 15. janúar 1987.
Matreiðslumaður
Hótel Borg óskar að ráða matreiðslumann
til starfa. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veittar í síma 11440 í dag og
næstu daga.
HAFNARBUÐIR
Starfsfólk
Óskum eftir starfsfólki.
Ein staða laus við ræstingar, 65% vinna.
Vistlegt umhverfi, góður starfsandi.
Upplýsingar veittar í Hafnarbúðum,
sími 29466.
Reykjavík, 17.12 1986.
Aðstoðarfólk á
röntgendeild
Röntgendeild Landakotsspítala vantar að-
stoðarfólk nú þegar eða eftir samkomulagi.
Dagvinna og einstaka bakvaktir.
Upplýsingar veitir deildarstjóri röntgendeildar
milli kl. 9.00-14.00 í síma 19600-330.
Reykjavík 15.12. 1986.
Dagheimilið
Vesturás
óskar eftir að ráða fóstru í fullt starf frá
1. febrúar.
Upplýsingar í síma 688816.
Forstöðumaður.
Löglærður fulltrúi
Staða löglærðs fulltrúa við embættið er laus
til umsóknar. Laun eru samkvæmt launa-
kerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu minnar
eigi síðar en 8. janúar 1987.
8. desember 1986.
Bæjarfógetinn á ísafirði,
sýslumaðurínn í ísafjarðarsýslu,
PéturKr. Hafstein.
Kjötiðnaðarmenn —
Framtíð!
Stórmarkaður á stór-Reykjavíkursvæðinu
óskar eftir kjötiðnaðarmanni til framtíðar-
starfa. Þarf að geta hafið störf 1. febrúar.
Góð aðstaða og góð tæki. Starfið fellst bæði
í framleiðslu og borðvinnu. Góð laun í boði
fyrir réttan mann.
Umsóknir merktar: „K — 2008“ sendist aug-
lýsingadeild Mbl. fyrir 23. des.
Fóstrur athugið
Fóstrur óskast til starfa á dagheimilisdeild
Sólbrekku og á leikskóladeild Selbrekku
hálfan eða allan daginn.
Einnig vantar starfskraft í afleysingar.
Upplýsingar í síma 611961 og 611975.
Forstööumaður.
REYKJALUNDUR
Endurhæfingar-
miðstöð
Starfsmaður óskast til að annast áreynslu-
próf og tengd störf. Tækjabúnaður og
starfsaðstaða. Æskileg er nokkur starfs-
reynsla og menntun á sviði meinatækni,
lífeðlisfræði eða líffræði.
Upplýsingar veitir Magnús B. Einarsson
læknir, sími 666200.
Sendill
óskast allan daginn.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
sími22280.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Q! ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd byggingadeildar óskar eftir tilboðum í
stálsmíði og uppsetningu á grindargólfi og
göngubrúm í Borgarleikhús við Listabraut.
Magntala (stál) 24 tonn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
Fríkirkjuvegi 3 gegn kr. 10.000.- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 8. janúar 1987 kl. 11.00.
INNKAUPASTOrNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirk|iiveg» 3 Sími 25800
Qj ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd byggingadeildar óskar eftir tilboðum í
jarðvinnu vegna Vesturbæjarskóla. Helstu
magntölur eru: Gröftur á lausum jarðvegi
6500 rúmmetrar, fylling í grunn 4000 rúm-
metrar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
Fríkirkjuvegi 3 gegn kr. 5.000.- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 30. desember nk. kl. 15.00.
INNKAUPASTOFNUIM REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
húsnæöi í boöi
Verslunar-, skrifstofu-
og lagerhúsnæði
á tveim hæðum til sölu að grunnfleti 500 fm
hvor. Auk þess mjög góður 270 fm kjallari
og 840 fm lagerhúsnæði á jarðhæð.
Nánari upplýsingar aðeins á skrifstofu.
Fasteignasalan Hraunhamar,
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.
XJöfðar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!