Morgunblaðið - 17.12.1986, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
67
Að láta aðra borga
skemmtunina fyrir sig
Einkaframtaksmaður skrifar
Ég minnist þess tíma er áhuga-
mannahópur geystist um ritvelli
blaðanna og talaði mikið um menn-
ingu, mannsæmandi líf, að komast
út úr moldarkofunum og annað
þess háttar, en tilgangurinn var að
tiltölulega fámennur hópur sértrú-
arfólks um tónlist vildi fá sinfoníu-
tónleikana sína á ríkisframfæri.
Þetta fólk vildi að ég og þú greidd-
um fyrir það skemmtunina, og þá
í nafni einhverrar menningar.
Mér fannst þetta dálítið frekt en
þetta hafðist hjá fólkinu og síðan
höfum við skattgrgreiðendur mátt
greiða öllu starfsliði hljómsveitar-
innar föst laun. Því má spyija, hvers
vegna greiðir ríkið ekki meðlimum
karlakóranna og jafnvel popp-
hljómsveitanna, sem virðast vera
mun vinsælli en umtöluð hljóm-
sveit, laun? Mér finnst mál til komið
að hreinsað verði til hjá ríkisjötu-
fólkinu og þeir borgi sem eiga að
borga, ekki hinir.
Nú er annar hópur komin á stjá,
hópur sem vill láta okkur, mig og
þig, borga skemmtunina fyrir sig.
Þessi áhugamannahópur vill koma
óperunni í Gamla bíói á ríkisfram-
færi. Hvað skyldi koma næst?
Borgarleikhúsið á án efa eftir að
verða ríkisbaggi, ef af líkum lætur,
og er því full ástæða fyrir ráða-
menn þessarar þjóðar að skoða
Þessir hringdu . . .
it 'W*
Kvörtun vegna
Andrésar
Anna María Sigurðardóttir
hringdi:
Ég gerðist áskrifandi að Andrési
Önd og félögum fyrir dóttur mína
fyrir nokkru og fínnst mér það
bagalegt að engin íslensk heimilis-
föng eru í blöðunum. Ég hef skrifað
út og kvartað yfir þessu en ekki
fengið neitt svar enn. Gott væri að
fá svar við því og einnig af hverju
fylgihlutir fýlgja ekki alltaf með þó
því sé lofað.
Vinningsnúmer
Þroskahjálpar
Valgeir hringdi:
Ég keypti fyrir nokkru 10 alman-
ök frá Þroskahjálp, sem eiga
jafnframt að gilda sem happdrætt-
ismiðar, en hef hvergi séð vinnings-
númerin auglýst. Eg skora því á
Þroskahjálp að birta númerin. Mér
er nokkuð sama um vinningana en
vil samt fylgjast með
þessi mál vel áður en lengra er
gengið. Ekki svo að skilja að ég sé
óánægður með óperuna, þvert á
móti á hún lof skilið og það fólk
sem að henni stendur. Hitt er svo
annað mál, að ríkið getur ekki tek-
ið alla áhugamannahópa landsins
upp á arma sína, nóg er nú samt.
Mér skilst að erlendis sé miklu
algengara að áhugamenn greiði
fyrir sínar skemmtanir og standi
undir kostnaði ef um halla er að
JGB skrifar
Velvakandi góður.
Forsvarsmenn ferðamála hafa
lýst áhyggjum sínum af því að
mjög hafi dregið úr framlögum til
ríkisins til ferðamála og telja að
þetta sé mjög ómaklegt þar sem
ferðamannastraumur á ári hefur
aldrei verið meiri en einmitt nú,
og sé því nauðsynlegt að leggja
meira til ferðamála en gert er.
Frá leikmanns sjónarmiði virðist
nú málið horfa öðurvísi við. Það
Tapaði gullarm-
bandi
Ragnhildur Pálsdóttir hringdi:
Ég varð fyrir því óhappi aðfara-
nótt laugardags að tapa gullarm-
bandi á leiðinni frá Bugðulæk og
inn að Broadway. Armbandið er
með litlum hlekkjum en þeir eru
ekki opnir eins og algengt er á arm-
böndum sem seld eru hérlendis.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
73766
Hvar er
búðin sem var
á Grensásvegi?
Guðrún hringdi:
Hvert hefur búðin, sem var á Grens-
ásvegi og seldi notaðar skíðavörur
flutt. Ef einhver getur upplýst
Guðrúnu um það er hann vinsam-
legast beðinn um að hafa samband
við Velvakanda.
„Hleyptu svo öll-
um frítt inn“
Unglingur hringdi:
Ég fór á tónleika Bonnie Tyler
og borgaði 1000 krónur fyrir. En
þegar að því kom að söngkonan
skyldi koma fram þá tók ég eftir
því að fjölda unglinga, sem staðið
höfðu fyrir utan, var hleypt frítt
inn. Þetta finnst mér ekki rétt,
ef allir hefðu nú beðið fyrir utan
ræða, annars væri áhuginn varla
umtalsverður. Þessir menningar
áhugamannahópar verða að borga
fyrir skemmtanir sínar sjálfir, málið
er ekki flóknara en svo að mínu
mati.
Þá vekur það athyglí að hitaveit-
ur landsins eru á haúsnum, ríkið
getur ekki látið aka börnum í skól-
ana o.s.frv., en svo réttir ríkissjóður
kvikmyndaklúbbi 75 milljónir,
hvorki meira né minna.
er að því minna sem ríkið veitir
til ferðamála þá beinlínis eykst
ferðamannastraumurinn, og virð-
ist því sem leiðin til að drepa þessa
þjónustugrein væri að veita meira
fé til hennar, og hefur samgöngu-
málaráðherra lýst yfír vilja sínum
til að auka íjárveitingar til þessara
mála. Já einu sinni var spurt: „Er
þetta hægt Matthías". Sem sagt,
því minni fjárveiting - þvi meiri
ferðamannastraumur. Vitanlega
er þetta alveg forkastanlegt, þegar
stefnan er að sem mestu skuli eytt.
og enginn borgað sig inn, hvað
þá? En er ekki einmitt verið að
hvetja til slíkrar framkomu með
þessu?
Seikoúr
tapaðist í
Evrópu
Ása Einarsdóttir hringdi:
Ég tapaði Seikoúri síðasta laug-
ardagskvöld í Evrópu. Úrið er gyllt
með brúnni leðuról. Skífan er ljós
og engir tölustafír á henni. Finnandi
er beðinn um að hringja í síma
79316. Fundarlaunum heitið.
Fréttin ekki
frá mér komin
Sigurður Magnússon, skipstjóri,
hringdi:
Nýlega birtist frétt héðan af
Eskifírði sem Sigurður Magnússon
er skrifaður fyrir. Mér hefur verið
bendlað við þessar greinar og vil
því koma því á framfæri að þessar
greinar eru ekki frá mér komnar.
Hanna hringdi:
Innilegar þakkir og kveðjur til
Sigurðar Einarssonar fyrir alveg
frábæran þátt, Samhljóma, hvað
varðar tónlist og flytjendur s.l.
föstudagsmorgun. Haldið áfram á
sömu braut.
Vínrauð prjóna-
húfatapaðist
Arndís hringdi:
Vínrauð pijónahúfa úr mohair-
gami tapaðist, trúlega í Vesturbæ,
8.-10. desember. Ef einhver hefur
rekist á hana er hann vinsamlegast
beðinn um að hringja í síma 21868.
Auglýsing-
ar í miðjum
þáttum
Hallgrímur hringdi:
Það stakk mig illilega að Stöð 2
er farin að stinga inn auglýsingum
í miðja þætti. Þetta er hvimleiður
siður og miður ef þetta kemst á.
HEILRÆÐI
Á heimilunum eru slys á bömum algengust. Unnt hefði verið að
komast hjá mörgum þessara slysa með meiri fyrirhyggju og aðgát.
Við jólabaksturinn og matseldina verður að gæta þess vel að hræri-
vélin sé ekki í gangi og heldur ekki hakkavélin, þurfí að bregða sér
frá. Lítil hnáta og lítill hnokki geta sem best klifrað upp á eld-
húskollinn og fest litlar hendur í þessum heimilistækjum.
Njótum undirbúnings jólanna með slysalausum dögum.
Nauðsynlegt að leggja
meira til ferðamála
HERRAFÖTí
ÚRVALI
hatUonÍjká
Þ&Ö’
Austurstræti 14, s: 12345. Opiðf dag til kl. 16.00