Morgunblaðið - 17.12.1986, Side 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
Zurbriggen enn
í efsta sæti
• Pirmin Zurbriggen er nú efstur f heimsbikarnum f alpagreinum.
Hann er líklegur til að verða meistari því hann er jafnvígur á allar
fjórar greinarnar, brun, risastórsvig, stórsvig og svig.
MIKIL spenna er nú á toppnum
f kalraflokki heimsbikarsins í
alpagreinum. Keppt var tvívegis
í stórsvigi um sfðustu helgi og f
gœr var keppt f svigi. Zurbriggen
er nú efstur með 105 stig en fast
á hæla honum koma Markus
Wasmaeier og ný ftölsk stjarna,
Richard Pramotton, með 93 stig.
Ingemar Stenmark er f fjórða
sæti með 67 stig.
í svigkeppninni sem fram fór í
Madonna di Campiglio á Ítalíu í
gær sigraði áður óþekktur ítali,
Ivano Edalini, í fyrsta sinn í heims-
bikarnum. Ingemar Stenmark,
Svíþjóð, var annar 0,19 sekúndum
á eftir. Joel Gaspoz, sem sigraði í
stórsviginu sem fram fór á sama
staða á sunnudaginn, varð þriðji.
Zurbriggen nældi sér í dýrmæt
stig með því að ná 8. sæti. Svig-
brautirnar voru mjög erfiðar og
féllu margir úr keppni.
I stórsviginu á sunnudaginn
sigraði Svisslendingurinn, Joel
Gaspoz. Pramotton frá Ítalíu, sem
komið hefur mjög á óvart í vetur,
varð annar og Markhus Wasmaier,
V-Þýskalandi, þriðji. Zurbriggen
varð fjórði og Ingemar Stenmark
í sjoundi.
ítalir urðu í þremur efstu sætun-
um í stórsviginu á sama stað á
laugardaginn. Pramotton varð
fyrstur, Alberto Tomba í öðru og
Oswald Toetsch í þriðja sæti.
Ingemar Stenmark náði besta
brautartímanum í seinni ferð og
varð fjórði.
Staðan í heimsbikarnum er nú
þessi:
Pirmin Zurbriggen, Sviss 105
Markus Wasmaier, V-Þýskalandi 93
Richard Pramotton, italíu 93
Ingemar Stenmark, Svíþjóð 67
Joel Gaspoz, Sviss 63
PeterMUIIer, Sviss 62
Pranz Heinzer, Sviss 51
Leonard Stock, Austurriki 43
Robert Eriacher, italfu 42
Hubert Strolz, Austurríki 39
Næsta mót verður stórsvig sem
fram fer í Kranjska Gora í Júgó-
slavíu á föstudaginn.
Skíði:
Svissneskar
í sérflokki
- Walliser með afgerandi forystu
MARIA Walliser, Sviss, hefur
tekið afgerandi forystu i heims-
bikarnum f kvennaflokki alpa-
greina. Hún hefur nú 85 stig, en
síðan kemur landa hennar,
Schneider, með 61 stig. Sviss-
nesku skíðakonurnar hafa verið
í nokkrum sórflokki það sem af
er vetri.
Walliser sigraði í fyrsta risa-
stórsvigi vetrarins sem fram fór í
Vald D'lsere í Frakklandi á sunnu-
daginn. Catherine Quittet, Frakkl-
andi, varð önnur og síðan komu
tvær svissneskar stúikur, Vreni
Schneider og Michela Figini.
Laurie Graham frá Kanada sigr-
aði nokkuð óvænt í bruni á sama
stað á laugardaginn. Hún fór
brautina á 1.26,42 mínútum. María
Wailiser varð önnur á 1.27,14 og
Gatherine Quittet þriðja á 1.27,45
mínútum.
Staðan í heimsbikarnum í
kvennafiokki er nú þessi:
Maria Walliser, Sviss 85
Vreni Schneider, Sviss 61
Erika Hess, Sviss 51
Catherine Quittet, Frakklandi 51
Michela Figini,Sviss 49
Michaela Gerg, V-Þýskalandi 47
Lauríe Graham, Kanada 36
Tamara Makinney, Bandarfkjunum 36
Mateja Svet, Júgóslavfu 36
Corinne Schmidhauser, Sviss 33
Konurnar keppa í svigi á Ítalíu í
dag. Ekki er búist við að Maria
Walliser, sem hefur forystu í
heimsbikarnum, verði með þar.
Hennar sérgreinar eru brun, risa-
stórsvig og stórsvig.
Sund:
Mörg met slegin
MÖRG met voru setgin f sundinu
á innanfélagsmóti Aspar og Ægis
sem fram fór í Sundhöllinni fyrir
skömmu. Þrjú íslandsmet og tvö
unglingamet voru sett á þessu'
móti
Sigrún Huld Rafnsdóttir setti
íslandsmet í 100 metra bringu-
sundi er hún synti á 1:36.3 mín
og einnig í 100 metra skriðsundi
en þar synti hún á 1:22.3 mínútum.
Sigrún er í Ösp.
Sveit Ægis setti íslandsmet í
Handknattleikur:
Leika Víkingar báða
leikina íHöllinni?
MIKLAR líkur er nú á þvf að
Víkingur leiki báða leiki sina gegn
pólska liðinu Gdansk f Evrópu-
keppni meistaraliða hér á landi.
Vfkingar hafa gert Gdansk tilboð
um að leika hér 9. og 11. janúar
og hafa Pólverjarnir tekið vel í
það.
Víkingar eiga von á endanlegu
svari frá forráðamönnum Gdansk
í dag eða á morgun. Hallur Halls-
son, formanns handknattleiks-
deildar Víkings, sagði að hann
væri mjög vongóður um að fá leik-
ina hingað heim. ,
„Við eigum að sjálfsögðu meiri
möguleika á að komast áfram
gegn þessu sterka liöi ef við leikum
báða leikina hér heima. íslensk lið
hafa sýnt það í gegnum árin að
þau eru erfið heim að sækja,"
sagði Hallur.
4x50 metra flugsundi en sveitin
synti á 1:55.7 mínútum. Sveitina
skipuðu Ólafur Einarsson, Halldór
Cristiansen, Þórir Sigurðsson og
Hafliði Halldórsson.
Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir úr
Ægi bætti meyjamet Ingibjargar
Arnardóttur í 100 metra flugsundi
um 3 sekúndur, synti á 1:14.7
mínútum.
Karl Pálmason setti drengjamet
í 50 metra skriðsundi er hann synti
á 26.1 sekúndu.
Keila:
Halldórvann
Svalabikarinn
HALLDÓR R. Halldórsson varð
um helgina hlutskarpastur í keilu-
móti sem kallast Svala mótið og
fram fór í Keilusalnum. Þetta er
í annað sinn sem mót þetta er
haldið og sigraði Halldór einnig
í fyrra.
í öðru sæti varð Hjálmtýr Inga-
son og faðir Halldórs sigurvegara,
Halldór Halldórsson, varð í þriðja
sæti á þessu móti.
• Halldór með hinn veglega
Svalabikar sem hann vann f fyrra
og aftur í ár.
Keila:
1X2 «o 1 2 C D 03 O 5 > o Tíminn c c 1* 3 '£* Dagur «0 '§ I M 8 fiC c (D 1 m Sunday People Sunday Mirror Sunday Express Sunday Telegraph News of the World SAMTALS
1 X 2
Arsenal — Luton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 — 11 0 0
Charlton — Liverpool 2 2 X 2 2 2 X X X 2 2 - 0 4 7
Chelsea — Tottenham 2 2 X 2 2 2 2 2 2 2 X - 0 2 9
Coventry — Man. City 1 1 X X 1 1 1 - - - - - 5 2 0
Everton — Wimbledon 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 — 11 0 0
Man. United — Lelcester 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 i - 11 0 0
Nott. Forest — Southampto 1 1 1 1 1 1 1 X 1 i 1 1 — 10 1 0
Oxford — Aston Vllla 2 2 1 X 1 X X i 1 1 1 - 6 3 2
Sheffield Wed. - NewcastU 1 1 X 1 1 i 1 — — — — — 6 1 0
West Ham — QPR 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Derby — Grímsby 1 1 X 1 1 1 X — — ' — — — 5 2 0
Huddersfield — Cr. Palace 2 2 2 2 X 1 2 X 1 1 X - 3 3 5
Bikarkeppnin í
fullum gangi
KEILARAR hafa nú lokið fyrstu
umferð í bikarkeppni sinni og
verður dregið i aðra umferð þann
15. janúar. í annari umferð verða
alls 16 lið sem keppa en í fyrstu
umferð kepptu 24 lið.
Mikil gróska er nú í keilunni og
sífelit fjölgar þeim sem þátt taka
í mótum á vegum keilufélagsins
og ekki vantar frumlegheitin þegar
sveitunum eru gefin nöfn. Hér á
eftir eru sveitirnar sem komust í
aðra umferð tíundaðar. Fellibylur,
Toppsveitin, Þröstur, Keilubanar,
Mánaskin s.f., Kakkalakkar,
Víkingasveitin, Stormsveitin, Kakt-
us, Keiluvinir, Stórskotaliðið,
Gandaflokkurinn, Dúkpjötlur, KK
6, JP Kast og Gúmmíkappar.
Skólamót
NÚ fer að liða að hinu árlega
skólamóti í blaki sem Blaksam-
bandið gengst fyrir. Keppt verður
í þremur flokkum að þessu sinni,
grunnskólaflokki, framhalds-
skólaflokki og háskólaflokki.
Þeir sem hug hafa á að vera
með í mótinu geta haft samband
við skrifstofu BLÍ í síma 686895
fram til 25. desember