Morgunblaðið - 17.12.1986, Blaðsíða 72
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Dagsbrún vill viðræður
STJÓRN og trúnaðarráð Dagsbrúnar samþykkti á fundi í gær-
kvðldi að leita eftir viðræðum við Vinnuveitendasamband íslands
um nýjan aðalsamning þar sem aðaláherslan verði lögð á ýmsar
lagfæringar á samningum félagsins og að nýtt taxtakerfi hafi
tekið gildi fyrir lok samningstímabilsins. Þröstur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar sagði í samtali við Morgunblaðið að
ekkert hefði verið tímasett hvenær óskað yrði eftir viðræðunum
og ekkert hefði verið kveðið nánar á um í samþykktum eftir
hvaða Iagfæringum yrði leitað. Myndin var tekin á Dagsbrúnar-
fundinum í gærkvöldi og er Þröstur í ræðustól, en við hlið
hans situr Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar.
Gjaldskrá Landsvirkjunar
hækkar um 7,5% í janúar
Forstjóri fyrirtækisins gagnrýnir umsögn Þjóðhagsstofnunar um hækkunarbeiðnina
VERÐ á rafmagni frá Landsvirkjun til almenningsrafveitna hækkar
um 7,5% um næstu áramót, en það svarar til um 4,5% hækkunar á
smásöluverði. Ákvörðun þessa efnis var tekin á fundi stjórnar fyrir-
tækisins í gær.
í frétt frá Landsvirkjun segir,
að rekstraráætlun og gjaldskrá fyr-
irtækisins fyrir árið 1987 hafí verið
endurskoðaðar með hliðsjón af ný-
gerðum kjarasamningum og þeim
verðbóiguspám, sem gerðar hafi
verið í kjölfar þeirra. Sé við það
miðað, að verðbólga verði ekki
meiri en 7-8% á árinu og gengi
krónunnar verði stöðugt.
í fréttinni segir ennfremur, að
viðbótarhækkun gjaldskrárinnar sé
æskileg vegna meiri lækkunar
hennar að raungildi á árinu 1986
en stefnt hafi verið að fyrr á árinu.
Stjóm Landsvirkjunar sé þeirrar
skoðunar, að með því að takmarka
hækkunina við 7,5% sé henni stillt
eins mikið í hóf og unnt er, enda
myndi minni hækkun óhjákvæmi-
lega leiða til erlendrar skuldasöfn-
unar umfram forsendur lánsflár-
áætlunar ríkisins.
Fyrr í þessum mánuði lagðist
Þjóðhagsstofnun eindregið gegn
hugmyndum Landsvirkjunar um
gjaldskrárhækkun á bilinu
10-16,4%. í Morgunbiaðinu í dag
kemur fram, að forstjóri Lands-
virkjunar telur umsögn Þjóðhags-
stofnunar um hækkunarbeiðni
fyrirtækisins m.a. fela í sér sjónar-
mið, er gangi þvert á lánsijáráætiun
ríkisstjómarinnar. Auk þess séu í
umsögninni viðhorf, er sýni ábyrgð-
arleysi, og þar sé horft fram hjá
mikilvægum upplýsingum, sem
stofnuninni vom látnar í té. Þá tel-
ur löggiltur endurskoðandi, sem
Landsvirkjun bað um álit á umsögn
Þjóðhagsstofnunar, að hún sé „al-
veg dæmalaus". Þar sé að finna
atriði er lýsi vanþekkingu og skiln-
ingssleysi.
Sjá á miðopnu: „Tillögur Þjóð-
hagsstofnunar eru í andstöðu
við s<jómarstefnuna.“
Félagsmálaráðherra á Alþingi:
12,2 millj. endurgreidd-
ar um 8.000 lánþegum
ALEXANDER Stefánsson, fé-
lagsmálaráðherra, sagði á
Aiþingi í gær, að Húsnæðis-
stofnun ríkisins hefði ekki
framfylgt ákvörðun ríkis-
stjómarinnar í ágúst 1983 að
verðtrygging á lániim stofnun-
arinnar í september sama ár
skyldi vera 5,1% I stað 8,1%.
Hann átaldi stofnunina fyrir
þessi vinnubrögð og skýrði frá
því að hann hefði fyrirskipað
endurgreiðslu mismunarins.
Væri þar um að ræða 12,2 millj-
ónir á núgildandi verðlagi fyrir
tímabilið 1983-1986. Samtals
væri um að ræða tæpar 64 millj-
ónir króna fram til ársins 2010.
Endurgreiðsluna kvað hann ná
til tæplega 8.000 lánþega.
Þingmenn stjómarandstöðunn-
ar minntu á, að fyrir skömmu
hefði ráðherrann fullyrt opinber-
lega að Húsnæðisstofnunin hefði
þegar orðið við tilmælum ríkis-
stjómarinnar. Létu þeir í ljós
undrun á skoðanaskiptum hans í
þessu efni. Jafnframt gagnrýndu
margir þingmenn ráðherrann
harðlega fyrir, að varpa ábyrgð á
framkvæmd samþykktar ríkis-
stjómarinnar á herðar embættis-
manna, eins og komist var að orði.
Sjá þingsiðu bls. 41
Framsalsmálið
Svíar
yfirheyra
manninn
hérlendis
MENN FRÁ rannsóknarlögreglu
og ákæruvaldi í Svíþjóð komu
hingað til lands í gær til að yfir-
heyra manninn sem setið hefur
i gæsluvarðhaldi á hóteli í
Reykjavík.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um Morgunblaðsins gerðu sænsk
yfírvöld þá kröfu að maðurinn yrði
framseldur til Svíþjóðar vegna
ákæru um fjármálamisferli þar í
landi. Gæsluvarðhaldsúrskurður
mannsins er nú ranninn út og var
hann úrskurðaður í farbann til 26.
þessa mánaðar. Hæstiréttur hefur
ekki enn úrskurðað um það hvort
skilyrði séu til framsals. Þegar full-
trúar sænskra yfirvalda hafa
yfirheyrt manninn verður tekin af-
staða til þess hvort beiðni um
framsal verður afturkölluð.
Hólmadrang-
ur strandaði
á sandrifi
við ísafjörð
ísafírði.
FRY STITOG ARINN Hólma-
drangur strandaði á sandrifi í
sundinu fyrir utan ísafjörð
milli klukkan 22 og 22.30 í
gærkvöldi. Þegar Morgun-
blaðið fór í prentun í nótt var
verið að gera ráðstafanir til
að ná togaranum á flot og voru
skip og áhöfn ekki talin vera
í neinni hættu.
Norðaustan stormur var á
ísafirði í gærkvöldi en lítill sjór.
Helst var talið að vindhviða úr fjall-
inu hefði borið Hólmadrang upp á
sandrifið. Enginn hafnsögumaður
var um borð þó hafnsöguskylda sé
á þessu svæði.
Togarinn Júlíus Geirmundsson
frá ísafirði var að leggjast við akk-
eri yst í sundinu um miðnættið í
nótt og lóðsbáturinn var kominn
af staðtil að koma línu á milli togar-
anna. Átti Júlíus Geirmundsson að
frei sta þessa að draga Hólmadrang
af rifínu á flóðinu um eittleytið.
Úlfar