Morgunblaðið - 11.01.1987, Side 1
96 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
8. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflóastríðið:
Þúsundir manna
falla í sókn Irana
Nicosíu, Kypur, AP.
HERSVEITIR írana sóttu á ný yfir Shatt-al Arab-vatnasvæðið í
gper. IRNA, hin opinbera fréttastofa írana, sagði að barist væri af
hörku og- að írönum hefði tekist að ná landsvæði vestan megin
Shatt-al Arab á sitt vald. írakar kváðust hafa hrundið sókninni og
fellt þúsundir íranskra hermann
Sérfræðingur, sem starfar á veg-
um bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins, sagði í gær að 15.000
íranskir hermenn hefðu fallið í átök-
um yfir jólahátíðina. Kvað hann
líklegt að íranir hefðu goldið álíka
afhroð í sókn þeirra síðustu tvo
daga. Ýmislegt þykir benda til þess
að írönum gangi nú í fyrsta skipti
erfiðlega að fá unga menn til að
ganga til liðs við hinar svonefndu
Basiij-herdeildir, sem eru jafnan í
fylkingarbijósti árásarliðs þeirra.
íranir sögðu í gær að hermenn
þeirra hefðu fellt eða sært 7.500
íraka og náð nokkrum herstöðvum
þeirra vestan Shatt-al Arab á sitt
vald. írakar kváðust á hinn bóginn
hafa gereytt ijórum herdeildum
íranskra byltingarvarða en 10.000
menn eru yfirleitt í hverri deild. Þá
skutu írakar flugskeytum á sex
íranskar borgir í hefndarskyni við
stórskotaliðsárásir írana á borgina
Bashra, skammt frá Shatt-al Arab.
Fréttir þessar hafa ekki fengist
staðfestar þar eð vestrænum frétta-
mönnum er að öllu jöfnu ekki leyft
að fylgjast með átökum ríkjanna,
sem nú hafa staðið í rúm sex ár.
Spánn:
Verk Picassos send
aftur til Frakklands
Madnd, Reuter.
SPÁNVERJAR hyggjast skila aftur 61 listaverki, sem fengið var
að láni frá Frakklandi, til sýningar á listasafni í Madrid. Forstöðu-
maður safnsins segir hins vegar að Jacqueline Picasso, ekkja Pablos
Picasso, hafi viljað að verkin yrðu framvegis geymd á Spáni.
Aurelito Torrente, forstöðumað-
ur Nýlistasafnsins í Madrid, segir
að Jaqueline Picasso hafi oftlega
tjáð honum að hún óskaði þess að
verkin yrðu framvegis geymd á
Spáni. Að hans sögn hringdi Jacqu-
eline í hann kvöldið áður en hún
lést og sagði að hún hygðist gefa
safninu verkin^ sem voru úr einka-
safni hennar. Á meðal j. ei'-ra verka
sem nú eru sýnd í Madr u , mörg
sem Picasso hafði sérstavar mætur
á og vildi ekki fyrir nokkurn mun
selja.
Talsmaður spænska menningar-
málaráðuneytisins segir að hinsta
ósk Jacqueline Picasso sé hvergi til
skjalfest og því muni verkunum
verða skilað aftur til Frakklands.
Sýningunni í Madrid lýkur í dag,
sunnudag. Rúmlega 200.000
manns hafa séð hana og voru lista-
verkin tryggð fyrir rúmar 960
milljónir ísl. kr.
Suður-Afríka:
Ættbálkar beij-
ast í gullnámu
Jóhannesarborg, Reuter.
ÁTTA MENN létust og 53 særð-
ust er átök blossuðu upp í
gullnámu í Orange-ríki aðfara-
Lestarslys
í Svíþjóð
Stokkhólmi, AP.
EINN maður lét lífið og ellefu
slösuðust er farþegalest rakst á
eimreið tæpa 40 kflómetra vestur
af Sundsvall í gærmorgun. Talið
er að stjórntæki skiptispors hafi
frosið föst og því hafi járnbraut-
irnar lent á sama spori.
Annar lestarstjóranna lét lífið í
árekstrinum og ellefu farþegar slös-
uðust. Farþegalestin var á leið frá
Gautaborg til Sundsvall og lenti af
einhveijum orsökum á sama spori
og eimreiðin.
nótt laugardags. Svo virðist sem
komið hafi til deilna milli ætt-
bálka en á siðasta ári létu
hundruð manna lífið í átökum
verkamanna í gullnámum Suð-
ur-Afríku.
Að sögn talsmanns námafélags-
ins var allt með kyrrum kjörum í
námunni í gær. Spenna var þó í
loftinu og voru öryggisverðir við
öllu búnir.
Stjórnin í Pretoríu bannaði í gær
fundahöld á vegum samtaka sem
vilja endurskoða námsefni í skólum
landsins með tilliti til sögu og menn-
ingar hinna svörtu íbúa landsins.
Talsmenn samtakanna fullyrða að
menntakerfið mismuni blökku-
mönnum og hafa hvatt kennara til
að fræða skólabörn um sögu kyn-
þáttastefnunnar og baráttu blökku-
manna gegn henni. Fyrir hálfum
mánuði var sett bann við kennslu
námsefnis sem ekki hefur hlotið
samþykki stjómarinnar.
Nicaragua:
^ Morgunbladið/Bára
Iviðjum vetrar
Akvæði nýrrar stjóm-
arskrár gerð ógild
Managua, AP.
DANIEL Ortega, forseti Nic-
aragua, skrifaði á föstudag undir
nýja stjórnarskrá. Nokkrum
klukkustundum síðar gaf hann
út tilskipun um neyðarlög, sem
gilda eiga í eitt ár. Þar með hafa
mörg ákvæði stjórnarskrárinnar
misst vægi sitt.
Ortega skrifaði undir neyðarlögin
við athöfn, sem mörg þúsund manns
sóttu. Þar sagði forsetinn að ekki
hefði verið hjá því komist að setja
neyðarlögin vegna stefnu Banda-
ríkjamanna í málum Nicaragua og
einkum og sér f~lagi stuðnings
þeirra við skæruliða, sem berjast
gegn stjóm sandinista.
Gagnrýnendur sögðu’að stjórnar-
skráin væri einskis vert skjal, sem
nota ætti í áróðursskyni til að
tryggja áframhaldandi vinstri stjórn
í landinu.
Nokkrum klukkustundum eftir
að neyðarlögin vom sett sagði í
ríkisútvarpinu í Nicaragua að neyð-
arlög hefðu verið sett fyrir allt
landið og væri það í samræmi við
ákvæði stjórnarskrárinnar. Við
undirritun hennar var neyðarlögun-
um, sem sett voru árið 1982, aflétt.
Samkvæmt nýju neyðarlögunum
hafa menn ekki rétt til að mót-
mæla, fara í verkfall eða ferðast
um landið að vild. Lögregla getur
handtekið fólk án handtökuskipun-
ar. Sömu ákvæði vom í gömlu
neyðarlögunum.
Erick Ramirez, formaður stjóm-
arandstöðuflokks kristilegra, sagði
að ríkisstjómin hefði enn einu sinni
sýnt að hún myndi ekki fara lýðræð-
islegar leiðir til að leysa úr vanda-
málum Nicaragua.
Phyllis Oakley, talsmaður Banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði
í gær að nýja stjórnarskráin væri
einungis gríma alræðisafla í Nic-
aragua: „Eins flokks stjórn hefur
verið tryggð með lögum og þar með
alræði í Nicaragua."