Morgunblaðið - 11.01.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
21
43307
641400
Símatími kl. 1-3
Æsufell — 2ja
Góð íb. á 3. hæð ásamt bílskúr.
Ekkert á ákv. V. 2,2 millj.
Álfhólsvegur — 2ja
Falleg nýl. 2ja-3ja herb. íb. á
2. hæð. V. 2,5 millj.
Langholtsvegur — 3ja
Góð 80 fm íb. á 2. hæð ásamt
2 herb. í risi. V. 2,7 m.
Brávallagata — 4ra
100 fm íb. á 1. hæð. V. 3 m.
Vesturbær Kóp. — 4ra
4ra herb. íb. ásamt 30 fm bílsk.
Víkurbakki — raðhús
Vandað og fallegt 190 fm ásamt
25 fm bílsk.
Stórihjalli — raðh.
Fallegt hús á tveimur hæðum,
ásamt innb. bílsk.
Grundarás — raðhús
210 fm ásamt tvöf. bílsk.
Gljúfrasel — einb.
Glæsil. hús á 2 hæðum alls 250
fm. Ýmsir mögul.
Hlíðarhvammur — einb.
120 fm hús á tveimur hæðum
ásamt ca 24 fm bílsk. V. 4,4 m.
Þinghólsbraut — einb.
160 fm á tveimur hæðum.
Mögul. skipti á minni eign.
Kópavogsbr. — einb.
Fallegt hús á tveimur hæðum
ásamt bílsk. Frábært útsýni.
Atvinnuhúsnæði
við Ártúnshöfða, Álfhólsveg,
Hafnarbraut og Smiðjuveg.
KJÖRBÝLI
FASTEIG N ASALA
Nýbýlaveg 14, 3. hæð.
Sölum.: Smárl Qunnlaugsson.
Rafn H. Skúlason, lögfr.
sem út komu fyrir síðustu jól.
Enn hafa þau átta félög, sem
sendu merki á þennan markað í
fyrra, haldið áfram útgáfu sinni.
Hefur þess vegna ekki gætt frek-
ari samdráttar á þessum vett-
vangi. Eins og venja hefur verið,
er merkjunum raðað hér eftir aldri
félaganna. Thorvaldsensfélagið
verður þá fyrst, en síðan kemur
Kvenfélagið Framtíðin á Akur-
eyri. Eru þessi félög langelzt á
þessu sviði. Lionsklúbbur Siglu-
fjarðar kemur þar á eftir og síðan
þessi félög í röð: Rotaryklúbbur
Hafnarfjarðar, Oddfellow-reglan,
Rotaryklúbbur Kópavogs og Li-
onsklúbburinn Þór, sem rekur
Tjaldanesheimilið. Fyrir nokkrum
árum hóf Lionsklúbburinn Bjarmi
í V-Húnavatnssýslu að gefa út
líknarmerki og sótti myndefni sitt
til kirkna í sýslunni. Að þessu
sinni gaf klúbburinn út örk með
myndum allra kirknanna, einnig
þeirra, sem áður voru komnar á
merki. Mun þetta hafa verið gert
af því að klúbburinn hættir síðan
útgáfu líknarmerkja, að því er ég
hef fregnað.
Frímerki 1987
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Orfáum vikum fyrir jól sendi
Póst- og símamálastofnunin loks
út tilkynningu um þau frímerki,
sem hún hyggst gefa út á þessu
ári. Því miður er enn of mikill
seinagangur hjá henni í þessum
efnum og í reynd allt of mikill.
Þessi útgáfuáætlun lá sem sé til-
búin svo snemma á liðnu ári, að
þessi dráttur er óveijandi. Von-
andi taka starfsmenn póststjórn-
arinnar hér smám saman upp
önnur og skynsamlegri vinnu-
brögð en tíðkazt hafa of lengi.
Ég hef oft gagnrýnt þetta sein-
læti póststjómarinnar í þáttum
mínum, en það virðist við ramman
reip að draga, þar sem íslenzka
póststjómin er. Er lítt skiljanlegt,
að hún skuli ekki koma hér til
móts við réttmætar kröfur safn-
ara og annarra viðskiptavina
sinna, því að þetta veldur margs
konar óhagræði. En nú liggur sem
sagt áætlunin fyrir. Enda þótt hún
hafi birzt í blöðum fyrir jól, er
sjálfsagt að taka hana hér upp
orðrétta.
Tekin hefur verið ákvörðun um
eftirtaldar frímerkjaútgáfur:
1. Frímerki í einu verðgildi, 50
krónur, í tilefni þess, að 24.
mars 1987 verða 300 ár liðin
frá því gefin var út tilskipun
um að vera skyldi verslunar-
staður í Olafsvík. Utgáfudagur
24. mars 1987.
2. Frímerki í einu verðgildi í til-
efni af opnun nýrrar flugstöðv-
ar á Keflavíkurflugvelli.
Útgáfudagur ekki ákveðinn.
3. Evrópufrímerki í tveimur verð-
gildum. Hið sameiginlega
þema þeirra er að þessu sinni
nútímalist með sérstakri
áherslu á byggingum. Mynd-
efni íslensku Evrópufrímerkj-
anna er sótt í glerlistaverk,
glugga eftir listamanninn Leif
Breiðfjörð, sem er í Fossvog-
skapellu í Reykjavík. Útgáfu-
dagur 4. maí 1987.
4. Frímerki helgað íslenskri
tungu og málvemd með mynd
af Rasmusi Kristjáni Rask,
1787—1832. Útgáfudagur 10.
júní 1987.
5. Frímerki með íslenskum fugl-
um, samtals fjögur verðgildi,
skógarþröstur, brandugla,
Þannig hljóðar tilkynning póst-
stjómarinnar, og nú er vonandi,
að tilkynning um hveija útgáfu
komi út með meiri fyrirvara en
oft hefur verið raunin á á liðnum
árum.
Jóla- og líknar-
merki 1987
Enn sem fyrr hefur Bolli Dav-
íðsson í Frímerkjahúsinu sent
þættinum til birtingar eintök af
þeim jóla- og líknarfrímerkjum,'
tjaldur, stokkönd. Útgáfudag-
ur 16. september 1987.
6. Frímerki í einu verðgildi
helgað tannvernd. Útgáfudag-
ur 9. október 1987.
7. Smáörk (blokk) á degi frímerk-
isins 9. október 1987.
8. Jólafrímerki í tveimur verð-
gildum. Þau teikna að þessu
sinni Þórður Hall. Útgáfudag-
ur 11. nóvember 1987.
Auk þess er í undirbúningi að
gefa út í hefti frímerki með hinum
fjórum íslensku landvættum að
myndefni.
VIÐ BJÓÐUM YKKUR VELKOMIN A
Frumsýning 16.-17. janúar nk.
" i émftm niiii—f
Þórskabarett allar helgar
Borðapantanir hjá
veitingastjóra í síma 23335
Stórkostleg skemmtun
og veisla
sem munað verður eftir
Stórkostlegur þríréttaður kvöldverður, meiri-
háttar kabarettskemmtun með þátttöku margra
af okkar þekktustu skemmtikröftum svo sem:
Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson, Þuríður
Sigurðardóttir, Hermann Gunnarsson auk hins
frábæra Tommy Hunt, sem er lykillinn að ógley-
manlegri kvöldstund.
★ Hinn frábæri söngvari Tommy
Hunt skemmtir
★ Raggi Bjarna og Þuríður Sigurð-
ardóttir syngja nokkur lög
★ Ómar Ragnarsson aldrei betri
en nú
★ Hemmi Gunn mætir til leiks
Santos-sexettinn leikur
Brautarholti 20, símar 23333, 23334, 23335