Morgunblaðið - 11.01.1987, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
38
Kaupstaður og höfnin í Vestmannaeyjum í kringum 1910.
Vesimanneyjar
Kaupstadur höfnin
Vesfcraanneyjar
Frá Vestmannaeyjahöfn í byijun aldarinnar.
Jósef (Valdason) Jónsson,
skipstjóri, Vestmannaeyjum
£
l
í
t-
eftir Ólaf ísleifsson
Á morgun, 12. janúar 1987, er
rétt öld liðin frá því að Jósef Valda-
son, skipstjóri, langafi minn, fórst
í fiskiróðri við Vestmannaeyjar. Mér
þykir hlýða að minnast hans á
hundruðustu ártíð hans, enda var
hann minnisverður maður. Hann
var dugandi og aflasæll skipstjóri.
Guðjón Ármann Eyjólfsson, skóla-
stjóri Stýrimannaskólans, telur
hann meðal frumkvöðla í kennslu
sjómannafræða hér á landi. Séra
Jes A. Gíslason í Vestmannaeyjum
sagði hann hafa skarað fram úr
samtíðarmönnum sínum fyrir vits-
muna sakir.
Hundraðasta ártíð langafa míns
gefur jafnframt kærkomið tækifæri
til að varpa ljósi á, hver hinn eigin-
legi faðir hans var, því að Jósef var
ekki sonur þess manns er hann var
kenndur við. Þegar að var gáð,
reyndust kirkjubækur hafa að
geyma mikilsverðar upplýsingar um
það efni, eins og vikið verður að í
þessari grein.
Um Jósef er til mikilsverð heim-
ild, sem er kafli eftir Jóhann Þ.
Jósefsson í bókinni Faðir minn.
Margt af því sem segir hér á eftir
er frá afa mínum komið.
II
Um miðja síðustu öld tók að vora
á ný á íslandi eftir aldalangan vet-
ur. Alþingi var edurreist árið 1845,
og Islendingar tóku sókn til forræð-
is í eigin málum.
Jósef fæddist að vorlagi 1848,
hinn 6. maí, á prestssetrinu í Holti
undir Eyjafjöllum. Móðir hans hét
Þorgerður Guðmundsdóttir og var
vinnukona á heimili prestsins, séra
Þorvarðar Jónssonar. Skammt var
milli lífs og dauða á prestssetrinu
þetta vor. Því að þremur vikum
áður hafði húsfreyjan, Anna Skúla-
dóttir, andast.
Ástæður, sem síðar verður greint
frá, leyfðu ekki að sveinninn fædd-
ist upp hjá móður sinni. Honum var
komið í fóstur í Indriðakoti undir
Eyjafjöllum hjá Jóni Jónssyni bónda
þar og Amdísi Þorsteinsdóttur frá
Sólheimum í Mýrdal. Meðal barna
þeirra hjóna var merkiskonan
Þuríður í Hvammi.
Jósef ólst upp hjá góðu fólki. Um
æsku Þuríðar í Hvammi segir Þórð-
ur Tómasson í bókaflokki sínum,
Eyfellskum sögnum, að foreldrar
hennar hafi verið fátæklingar, sem
búið hafí í hrörlegum híbýlum og
hafí oftast átt minna en til hnífs
og skeiðar. En ekki er öll sagan
sögð með því. Jóhann Þ. Jósefsson
segir í bókarkaflanum um föður
sinn: „Mitt í allri fátækt sinni af
veraldlegum gæðum voru þau þess
umkomin að miðla fóstursyninum,
sem var enn fátækari, því andans
vegamesti og trúaröryggi, er entist
honum svo vel til æviloka, að hann
gat hughreyst bátsfélaga sína, að
sögn þeirra er af komust er hann
drukknaði, þegar hann horfðist
sjálfur í augu við dauðann í álnum
sunnan við Bjarnarey."
Snemma kom í ljós að Jósef var
gæddur óvenjumiklum hæfileikum.
Þórður Tómasson segir hann hafa
verið mikinn gáfupilt, drekknæman
og skilningsgóðan. Jóhann Þ. Jós-
efsson segir: „Faðir minn virðist
hafa verið mjög hneigður fyrir
stærðfræði og lék að sögn kunn-
ugra allt í höndum hans á því sviði.
Móðir mín sagði mér, að hann hefði
í tómstundum sínum jafnan leikið
sér að tölum, reiknað dæmi sér til
skemmtunar. Tekið spjald og griffíl
til tómstundareiknings eins og
menn taka sér bók í hönd til tóm-
stundalesturs.“
III
Ungur maður fluttist Jósef til
Vestmannaeyja, líkt og Eyfellingar
hafa gert fyrr og síðar. Þar voru
atvinnu- og afkomuhorfur góðar
framsæknum og dugmiklum mönn-
um. í Eyjum staðfesti hann ráð sitt
og kvæntist Guðrúnu Þorkelsdóttur
(f. 10. jan. 1844, d. 14. okt. 1919),
sem var í móðurætt ættuð úr Eyj-
um, en faðir hennar, Þorkell
Einarsson, var frá Eyvakoti á Eyr-
arbakka. Þau reistu þar bú, sem
þá var kallað á Hólnum, en síðar
var gefíð nafnið Fagurlyst og tald-
ist til Þurrabúða.
Séra Jes A. Gíslason komst svo
að orði í blaðinu Víði um heimili
þeirra Jósefs og Guðrúnar í af-
mælisgrein um Jóhann Þ. Jósefsson
fimmtugan: „Á fagurri hæð, þar
sem góð er útsýn og fyrrum var
víðsýni, stóð vagga hans hér í Eyj-
um. Þar bjuggu góðkunnir foreldrar
hans, Jósef og Guðrún. Jóhann átti
hér til góðra að telja. Faðir hans
var mesti dugnaðarmaður og skar-
aði fram úr samtíðarmönnum sínum
fyrir vitsmuna sakir. Ungur kynnt-
ist ég þessu góðfræga heimili, því
þangað var mér komið til náms í
þeirri grein sem þá var á fárra
manna færi hér að veita tilsögn í.
Skólar voru þá hér engir. En Jósef
var maður svo vel sjálfmenntaður
í ýmsum greinum og sérstaklega í
reikningi, að hann stóð þar jafnfæt-
is, ef ekki framar, þeim bestu hér
og þótt víðar væri leitað."
Jósef lærði siglingafræði hjá
dönskum stýrimanni, er hann var
við veiðar á einni af jöktunum, sem
komu að vorlagi með vörur til sel-
stöðuverslananna dönsku í Eyjum.
Þetta voru 150—200 smálesta segl-
skip, sem voru svo send á þorskveið-
ar með handfærum yfír sumarið.
Siglingafræðin lá vel fyrir langafa
mínum, enda hafði hann þegar
nokkra þekkingu á gangi himin-
tungla og var leikinn í reikningi.
Jósef kenndi síðar Sigurði Sigur-
finnssyni, skipstjóra í Vestmanna-
eyjum, siglingafræði og ef til vill
fleirum. Sigurður kenndi formönn-
um í Vestmannaeyjum siglinga-
fræði og var skipaður af
Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja
til að prófa þá í greininni, sem tók-
ust formennsku á hendur. Guðjón
Ármann Eyjólfsson, skólastjóri
Stýrimannaskólans, telur því Jósef
og lærisvein hans, Sigurð Sigur-
fínnsson, meðal frumkvöðla í
kennslu sjómannafræða hér á landi.
Sigurður varð síðar hreppstjóri í
Vestmannaeyjum og landskunnur
maður.
Jósef lagði stund á sjósókn, sem
var aðalatvinna hans, sem og fugla-
tekju, sem þá var þýðingarmikil
atvinnugrein. Hann varð skipstjóri
á þilskipinu Josephine, sem var ein-
möstruð jakt og haldið var úti til
hákarlaveiða. Stundaði hann há-
karlaveiðamar árum saman á þessu
skipi, en veiðisvæðið var frá Reykja-
nesi til Austurhoms að jafnaði.
Hárkarlatíminn var frá mars til
septemberloka.
Fuglatekjan var dijúg til búbæt-
is, en þó að jarðabændur einir ættu
rétt til fuglaveiðanna, fengu samt
þeir þurrabúðarmenn, sem áhuga
höfðu, að fara í eftirleit á haustin
eftir lok hinna reglulegu fuglaveiða.
í slíkar ferðir fór Jósef oft með
góðum árangri, því að hann var
mjög áræðinn og heppinn bjarg-
maður eða ijallamaður, eins og þeir
menn eru oftast nefndir í Eyjum.
Milli vertíða stundaði Jósef mest
seglasaum, en brá sér stundum á
sjó á smáferju sem svo voru þá
kallaðar. Hann fórst 38 ára að aldri
í einum slíkum róðri á feræringi
suðvestur af Bjarnarey. Að sögn
Sigurðar Sigurfinnssonar, hrepp-
stjóra, var sjór nokkuð úfinn er
þessi atburður átti sér stað og dálít-
ill kaldi á austan. Báturinn var lítið
eða ekkert fískaður en hvolfdi í
sátri á færum. Drukknuðu þar fjór-
ir menn, en tveir komust af.
IV
Jósef og Guðrún áttu þijá syni,
Guðjón, Gísla og Jóhann Þorkel.
Guðjón Jósefsson (f. 2. ágúst
1875, d. 21. júní 1923) bjó í Vest-
mannaeyjum og var fiskmatsmað-
ur. Kona hans var Guðrún
Árnadóttir af Keldnaætt frá Hurð-
arbaki í Flóa. Þau voru barnlaus.
Sonur Guðjóns var Jósef, sjómaður.
Gísli Jósefsson var fæddur 30.
okt. 1878. Hann fluttist til Kanada
þar sem hann stundaði fískveiðar á
Winnipegvatni. Hann lést þar vestra
ókvæntur og bamlaus. Jóhann Þ.
Jósefsson lét síðar reisa bróður
sínum legstein í Winnipeg.
Jóhann Þ. Jósefsson var fæddur
17. júní 1886 og var því á fyrsta
ári er faðir hans fórst. Hann ólst
upp hjá móður sinni og stjúpföður,
Magnúsi Guðlaugssyni frá Fífl-
holtshjáleigu í Landeyjum, en
Magnús tók við búsforráðum hjá
Guðrúnu og varð síðari maður
hennar. Um Magnús skrifaði Jó-
hann, að hann hefði reynst sér sem
besti faðir í einu og öllu. Jóhann
gerðist fyrirvinna móður sinnar eft-
ir að stjúpfaðir hans drukknaði.
Hann átti ekki kost á langri skóla-
göngu en varð sálfmenntaður
maður svo að til var tekið. Sérstak-
lega var tungumálakunnáttu hans
við brugðið. Hann rak með öðrum
verslunar- og útgerðarfyrirtæki í
Vestmannaeyjum um áratuga
skeið. Hann var kjörinn í fyrstu
bæjarstjóm Vestmannaeyja 1918
og sat í henni til 1938. Hann var
alþingismaður Vestmannaeyinga
1923—1959, ljármála- og atvinnu-
málaráðherra 1947—1949 og
atvinnumálaráðherra 1950.
Jóhann var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Svanhvít Ólafsdóttir
(fædd 3. nóv. 1893 d. 13. ágúst
1916). Eftirlifandi kona hans er
Magnea Þórðardóttir (f. 10. okt.
Myndin sýnir Guideon, sem var gerður út frá Vestmannaeyjum á síðustu öld.
i