Morgunblaðið - 11.01.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
39
1901) sjómanns í Reykjavík Þórðar-
sonar. Þau áttu þrjú böm, dætumar
Svönu Guðrúnu og Ágústu, móður
greinarhöfundar, og son, Ólaf, flug-
stjóra. Ólafur fórst með flugvélinni
Glitfaxa 31. janúar 1951. Unnur
hét dóttir Jóhanns, sem hann átti
áður en hann kvæntist. Unnur ólst
upp á heimili föður síns. Hún veikt-
ist er hún var við nám í Þýskalandi
og dó tvítug að aldri. Jóhann Þ.
Jósefsson lést í Hamborg 15. maí
1961 á leið heim af þingi Evrópu-
ráðsins í Strasbourg.
V
Jóhanni Þ. Jósefssyni var kunn
sú skoðun margra þeirra, sem til
þekktu, að séra Jón Þorvarðarson
hefði verið afí hans. Fleiri ástæður
hafði Jóhann til að ætla, að svo
væri, m.a. orð uppeldissystur Jós-
efs, Þuríðar í Hvammi. Þuríður
kunni að segja Jóhanni ýmislegt af
föður hans, ekki síst frá æsku hans
og uppvexti. Hafði Þuríður eftir
foreldmm sínum, fósturforeldrum
Jósefs, og taldi ótvírætt, að séra
Jóhann Þorvarðarson hefði verið
faðir Jósefs.
Sömu skoðun tjáði Jóhann Ólafs-
son, brúarsmiður, ömmu minni eftir
lát afa míns. Svo hafði sagt honum
móðir hans, Helga María Þorvarð-
ardóttir, en hún var hálfsystir séra
Jóns Þorvarðarsonar.
Auk munnlegra upplýsinga ligg-
ur fyrir skjalfest heimild um faðemi
Jósefs. Heimildin er prestsþjónustu-
bók Holts undir Eyjafjöllum
1816—1878, og er hún varðveitt í
Þjóðskjalasafni. Ömmi minni hug-
kvæmdist að afa mínum látnum að
grafast fyrir um, hvað hún hefði
að geyma.
Jósefs er tvisvar getið í kirkju-
bókinni, þ.e. við skím og fermingu.
Jósef var skírður í kirkjunni í Holti
daginn sem hann fæddist. I dálkinn
„Bamsins fulla nafn“ færði séra
Þorvarður nafnið Jósef Valdason.
Fyrir neðan reit hann fangamarkið
J.Þ. í sviga. í dálkinn „Foreldranna
Nöfn, Stand og Heimili" reit séra
Þorvarður stafína JÞor en hafði
strikað yfir, reit þvínæst nafn Valda
Ketilssonar, bónda í Gerðakoti, ekk-
ils, svo og nafn Þorgerðar Guð-
mundsdóttur, ógiftrar vinnukonu í
Holti. Meðal guðfeðgina bamsins
tilgreindi séra Þorvarður son sinn,
Hannes Þorvarðarson.
Jósef var fermdur í Holti íjórtán
vetra gamall árið 1862, og hafði,
eins og áður er getið, alist upp að
Indriðakoti í fóstri hjá sæmdarfólk-
inu, sem þar bjó. Þegar séra
Þorvarður færði nafn fermingar-
piltsins í kirkjubókina tiltók hann
nöfn fósturforeldra Jósefs, Jóns og
Amdísar, í tilætlaðan dálk og vott-
aði ágæta kunnáttu hans og
hegðan. Loks jók hann við orðunum:
„Kjörsonur Valda Bónda Kjetilsson-
ar“.
Skímar -og fermingarskýrslur
séra Þorvarðar í Holti verða ekki
misskildar. I prestsþjónustubókinni
staðfestir séra Þorvarður Jónsson,
að sonur hans, séra Jón Þorvarðar-
son, var faðir Jósefs.
Ekkert liggur fyrir um ástæður
þess, að Jón var ekki tilgreindur
sem faðir bamsins. En sýnt er, að
embættisframa hins upprennandi
prests hefði verið teflt í tvísýnu,
yrði uppvíst, að hann væri faðirinn.
Má ætla, að í ljósi þessa hafi séra
Þorvarður fengið Valda bónda til
að leyfa, að hann yrði skrifaður
fyrir drengnum.
Kirkjubókarfærslur séra Þor-
varðar bera með sér, að hann var
hugsi yfir málinu. Hann firrti son
sinn vandræðum en gerði það á
kostnað móður og bams. Hann leit-
aðist þó við að tryggja, að hið sanna
kæmi í ljós um faðemi Jósefs, enda
gekk hann ekki að því gruflandi,
að fyrr eða síðar yrði kirkjubókinni
lokið upp og vitnisburður hans sjálfs
yrði opinber.
Þorgerður og Jón höfðu þekkst
nokkur ár þegar Jósef fæddist.
Þorgerður (f. 18. mars 1822, d. 1.
júní 1866) var frá Efstadal í Laug-
ardal þar sem foreldrar hennar,
Guðmundur Hansson og Sigríður
Jónsdóttir, bjuggu um áratuga
skeið. Séra Þorvarður fékk Miðdal
í Laugardal árið 1841. Þorgerður
gerðist vinnukona á prestssetrinu í
Miðdal, en starf á góðu heimili var
mikill og góður skóli fyrir ungar
stúlkur á þessum tíma. Hún fluttist
með fjölskyldunni þegar séra Þor-
varði var veitt Holt undir Eyjafjöll-
um vorið 1847. Árið eftir að Jósef
fæddist var hún send í burtu frá
Holti og fluttist þá að Eyvindar-
hólum. Hún fór til Vestmannaeyja
1857 og bjó þar ógift til æviloka.
Séra Jón Þorvarðarson fæddist
26. ágúst 1826 og var sonur séra
Þorvarðar og fystu konu hans,
Önnu Skúladóttur stúdents að
Stóruborg Þórðarsonar. Hann var
tekinn í Bessastaðaskóla 1843, varð
stúdent úr Reykjavíkurskóla 1849,
og lauk prófi úr prestaskóla 1851.
Hann fékk Breiðuvíkurþing árið
eftir, Hvamm í Norðurárdal 1854,
Garða á Akranesi 1858 og Reyk-
holt 1862, sem hann hélt til ævi-
loka. Hann var prófastur í
Borgarfjarðarsýslu 1859—1866.
Hann kvæntist árið 1850 Guðríði
Skaftadóttur. Þijú böm þeirra kom-
ust upp. Þessi hálfsystkini Jósefs
voru: Anna, átti Sigurð hreppstjóra
Ólafsson á Hellulandi, séra Skafti
á Hvanneyri og Guðný, átti Gunnar
að Lóni Ólafsson alþingismanns að
Ási Sigurðssonar. Séra Jón Þor-
varðarson lést fertugur að aldri 6.
nóv. 1866.
Séra Þorvarður Jónsson, sem svo
mjög kemur við þessa sögu, var
fæddur 1798, sonur séra Jóns Þor-
varðarsonar, prests á Breiðabólstað
í Vesturhópi, og konu hans, Helgu
Jónsdóttur. Eins og áður er sagt
fékk séra Þorvarður Miðdal 1841
og Holt undir Eyjaijöllum 1847.
Hann fékk Prestbakka á Síðu 1862
og þjónaði til æviloka. Hann var
þríkvæntur. Böm séra Þorvarðar
og Önnu Skúladóttur sem upp kom-
ust, auk séra Jóns, voru Skúli
alþingismaður og bóndi að Berghyl
í Hrunamannahreppi og Hannes
bóndi að Haukagili í Vatnsdal. Séra
Þorvarður lifði séra Jón, son sinn,
og lést á sjötugasta og öðm aldurs-
ári 1869.
VI
I bókarkaflanum um föður sinn
segir Jóhann Þ. Jósefsson, að á
uppvaxtarárum sínum hafi hann oft
orðið þess var og notið þess hjá
mörgum hve faðir hans hafði verið
vinsæll og geðþekkur allri alþýðu
og drengskaparmaður í hvívetna.
Hann segir móður sína hafa dáð
föður sinn lífs og minningu hans
að honum liðnum. Hafi henni orðið
tíðræddast um ástríki hans gagn-
vart henni og bömunum og drengi-
lega framkomu í einu og öllu. Er
hann spurði hana eitt sinn um þeirra
fyrstu kynni, sagði hún, að hann
hefði þá fyrst gengið í augu sér,
er hann, að henni ásjáandi, skarst
í leik og rétti hlut manns eins, sem
gárangamir austur þar lögðu í ein-
elti með ertingum.
Afi minn segir föður sínum hafi
verið svo lýst af þeim, er hann
þekktu, að hann hafi verið „í minna
meðallagi á hæð, þrekvaxinn, nokk-
uð gildur. Kvikur á fæti, vel limaður
og snar í hreyfíngum. Fimur, fót-
viss og bjargmaður hinn besti.
Einarður í fasi og glaðvær. Hann
var trúmaður, hispurslaus og stillti
skap sitt vel, þótt skapmaður væri,
gat verið harður í hom að taka við
stórbokka, en mildur fátækum og
vildi rétta hlut þeirra, er minnimátt-
ar vora. Hann var í einu orði sagt
atgervismaður til sálar og líkama
og á undan sinni samtíð í mörgum
efnum."
VII
Atvikin höguðu því svo, að Jósef
naut hvorki umhyggju móður sinnar
né föður í æsku. Hann var sviptur
réttu faðemi og kenndur við ókunn-
an mann. En skylt er að hafa það
heldur er sannara reynist, og því
hæfir að gera heyrinkunnugt nú,
hver faðir Jósefs var. Jósef Valda-
son var Jónsson.
Höfundur ei hagfræðingur og
starfarnú lyá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum í Washington.
------1
LAUSN A
GEYMSLUVANDA
SKRIFSTOFUNNAR
Ef þú vilt hafa allt í föstum
skorðum þá ættirðu að kynna þér
kosti Pas kerfisins. Með Pas er leikur einn að hafa röð og reglu
á skrifstofunni. Kerfið byggir á lausum einingum og þú veiur
og setur saman einingar eftir eigin þörfum. Samstæðan sem
hér er sýnd hefur geysilega mikið rými og kostar aðeins kr.
48.000.- Með Pas getur þú byrjað smátt en verið fyrirhyggju-
samur samt sem áður, því stöðugt er hægt að bæta við einingum.
Einingar Pas kerfisins eru; bakkar kr. 377.- og kr. 363.-, möppur
kr. 410.-, skúffur kr. 445.-
✓ ..... """p
31
j i i :i. 1
CT. ... ” - *■* ...
ÓKEYPIS SENDINGARÞJÓNUSTA
OG REYNSLUTÍMI.
Ef þú hefur áhuga á að kynna þér kosti Pas þá sendum við þér
samstæðu og þú getur haft hana til reynslu
án þess að vera skuldbundinn til að kaupa
hana. Þessi þjónusta er þér ( byrjað smáttog I
algjörlega að kostnaðarlausu.
Söludeild. Sími 83366 Höfðabakka 3