Morgunblaðið - 15.01.1987, Page 6

Morgunblaðið - 15.01.1987, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987 Framtíðin Ipistlinum í gær minntist ég á nýj- an þátt á Stöð 2 er nefnist í eldlínunni. Jón Óttar Ragnarsson stýrir þættinum og tekur á beinið „áhugaverða“ fólkið í samfélagi voru. I pistlinum varpaði ég fram þeirri getgátu að raáski væri alltaf verið að ræða við sama fólkið í íjölmiðlun- um er gæti bent til þess að fjölmiðla- spyrlum þætti almenningur ekki áhugaverður. Vitna ég beint í pist- ilinn: Er endilega víst að þetta fræga fólk sé „áhugaverðara" en maðurinn á götunni? Hvernig stendur til dæmis á því að ekki voru kvaddir til í sjón- varpssal verkamenn við höfnina að ræða Dagsbrúnarsamningana? Nú vill svo til að í hádegisfrétta- þætti Bylgjunnar í fyrradag er rætt ítarlega við Dagsbrúnarmann Pál Valdimarsson, starfsmann Raf- magnsveitu Reykjavíkur, en Páll hefir gagnrýnt samningana og greiddi þeim ekki atkvæði. Fannst mér mjög áhugaverð lýsing Páls á verkalýðs- forystunni og skipulaginu hjá Dagsbrún er hann líkti við skipulagið í N-Kóreu. Eitthvað er vist skipulag- ið að breytast en Páll sagði frá því að í fyrra hefði stjómarmaður í Dags- brún valið sér eftirmann (svona eins og hinn ástkæri leiðtogi Kim II- Sung). Fréttamönnum er sum sé ekki alls vamað og eru fyrrgreind vinnu- brögð fréttamanna Bylgjunnar til mikillar fyrirmyndar í anda slagorðs- ins: Færum valdið til fólksins! Annars hafði ég víst lofað því í gærdagspistlinum að ræða á næst- unni um viðfangsefni þessa fyrsta Návígis Stöðvar 2 sem var fyjlmiðla- byltingin á íslandi. Mættu þrír sómamenn í gestastofu Jóns Óttars að ræða það mál, þeir Einar Sigurðs- son útvarpsstjóri Bylgjunnar, Ingvi Hrafn fréttastjóri ríkissjónvarpsins og Kjartan Gunnarsson formaður útvarpsréttamefndar. ViðhorfEinars Einar Sigurðsson lagði áherslu á gildi afþreyingarefnis ljósvakamiðl- anna. Er ég honum innilega sammála um að þegar fólk kemur heim þreytt að kveldi að afloknum löngum og ströngum vinnudegi er ekki bara pláss í miðtaugakerfinu fyrir há- menningarlegt efni. Einhvemtíman verða menn jú að slaka á. Hér hvarfl- ar hugurinn til Stöðvar 2 sem mér fínnst persónulega oft hafa boðið uppá prýðis afþreyingu og ósköp er nú notalegt að skipta yfír á bíómynd- imar á Stöð 2 og suma framhalds- þættina þegar endursýnda efnið streymir fram á ríkissjónvarpsskerm- inn. Ég vildi gjaman geta horft fram hjá þessum endursýningum en því miður, myndimar tala sínu máli. ViðhorfKjartans Kjartan Gunnarsson kom víða við á eldlínunni og hreyfði við heilasellun- um með frumlegum athugasemdum til dæmis varðandi fréttastofu ríkis- Qölmiðlanna er ég minntist á í gærdagspistlinum. Og ekki gleymdi Kjartan að minnast á Ijósleiðaranetið er Póstur og sími er nú af stórhug að leggja heim á hvem bæ á landi voru. Undirritaður hefir kannað möguleika þessa nets og sambæri- legra boðveita og er ekki í nokkrum vafa um að samtenging boðveitukerf- is Pósts og síma muni valda hér stórkostlegri byltingu í flölmiðlun. Því til sönnunar birti ég hér bút úr auglýsingu frá risafyrirtækinu AT & T er lýsir svolítið inn í framtíð ljós- vakamiðlunarinnar en þessi auglýs- ing birtist í The Economist 14.-20. júní 1986: í framtfðinni ætti að verða mögulegt að senda 10 miljón samtöl eða — 10.000 stafræn sjón- varpsboð — á sama andartaki í gegnum einn ljósleiðara. Ef af- kastageta eins ljósleiðara yrði fullnýtt ætti að verða mögulegt að flytja til minnishólfs heimilisins á einni sekúndu kvikmyndina Á hverfanda hveli. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / SJÓNVARP Rás 1: Sólrún Bragadóttir Einsöngnr í útvarpssal ■H í kvöld verður 50 einsöngur í út- varpssal á dagskrá Skúlagötuút- varpsins. Það er sópransöngkonan Sólrún Bragadóttir sem syngur fyrir útvarpshlust- endur í kvöld, en undirleik- ari hennar er Jónas Ingimundarson. Sólrún mun syngja eitt lag frá hverju Norðurland- anna, en auk þess lög eftir Chausson. Sólrún stundaði nám Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskólann í Reykjavík, en árið 1982 hélt hún til Bandaríkjanna, þar sem hún stundar nám við tónlistardeild Indiana- háskóla. Þaðan lýkur hún magistersprófí á þessu ári. í fyrra vakti Sólrún mikla athygli í Indiana, þegar húnfór með hlutverk Donnu Önnu í óperunni Don Giovanni aftir Mozart. Þá hefur hún haldið fjöl- marga tónleika, bæði hér heima og í Bandaríkjunum, auk þess sem hún hefur sungið inn á hljómplötu. Síðar í vetur mun Sólrún syngja aðalhlutverkið í óperu eftir Rimsky-Korsa- koff, þega hún verður frumflutt í Indiana. Frá haustinu 1987 er hún svo ráðin til tveggja ára sem fyrsti sópran við óperuna í Kaiserslautem í Vestur- Sólrún Bragadóttir, sópransöngkona. Þýskalandi. Þar mun hún Mímíar í La Bohéme eftir m.a. syngja hlutverk Puccini. z UTVARP 1 FIMMTUDAGUR 15. janúar 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. — Jón Baldvin Halldórsson, Sturla Sigurjónsson og Lára Mart- einsdóttir. Fréttir eru sagöar kl. 7.30 og 8.00 og veöur- fregnirkl. 8.15. Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. 0.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barn- anna: „Hanna Dóra" eftir Stefán Jónsson. Ragnheiöur Gyöa Jónsdóttir les (9). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesiöúrforustugreinum dagblaöanna. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Morguntónleikar. a. Tríó í Es-dúr K. 498 eftir Wolfgang Amadeus Moz- art. Jack Brynner, Patrick Ireland og Stephen Bishop leika á klarinettu, víólu og píanó. b. Julian Lloyd Webber og Clifford Benson leika á selló og píanó Rondó í C-dúr op. 37 nr. 7 eftir Luigi Boccher- ini, fyrsta þátt úr Sellósón- ötu op. 102 nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven og Gavotte nr. 2 í D-dúr op. 23 eftir David Popper. c. „Auf dem Strom" eftir Franz Schubert. Robert Tear syngur. Neill Sanders og Lamar Crowson leika með á horn og píanó. d. Allegro og Adagio í As- dúr op. 70 eftir Robert Schumann. Neill Sanders og Lamar Crowson leika á horn og píanó. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn — Efri árin. Umsjón Anna G. Magnúsdóttir og Guöjón S. Brjánsson. 14.00 Miðdegissagan: „Menningarvitarnir" eftir Fritz Leiter. Þorsteinn Ant- onsson les þýðingu sína (10). 14.30 Textasmiðjan. Lög við texta Iðunnar Steinsdóttur. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Landpósturinn. Frá svæðisútvarpi Reykjavíkur og nágrennis. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. Stjórn- andi: Sigurlaug M. Jónas- dóttir. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónskáldatími. Leifur Þórarinsson kynnir. 17.40 Torgiö — Menningar- mál. Umsjón: Óðinn Jóns- son. Tilkynningar. 18.46 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. 19.45 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 20.00 Leikrit: „Mikið er gott að vera kominn heim" eftir Ólaf Ormsson. Leikstjóri: Hallmar Sigurösson. Leik- endur: Sigurður Karlsson, Margrét Ákadóttir, Jóel Finnsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Róbert Arn- finnsson, Helga Bernhard, Helgi Björnsson og Kári Halldór. 20.45 Einsöngur í útvarpssal. Sólrún Bragadóttir syngur íslensk og erlend lög. Jónas Ingimundarson leikur með á píanó. 21.16 Samtal náttúrunnar og (slendings. Halldór Þor- steinsson segir frá ítalska Ijóðskáldinu Giacomo Leo- pardi og les þýðingu á þætti eftir hann í óbundnu máli. Lesari með Halldóri: Andrea Oddsteinsdóttir. 21.45 Skólakór Seltjarnarness syngur íslensk og erlend lög SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 16. janúar 18.00 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Babies) — 25. þátt- ur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 18.25 Stundin okkar — Endur- sýning Endursýndur þáttur frá 11. janúar. 19.00 Á döfinni 19.10 Þingsjá 19.25 Fréttaágrip á táknmáli 19.30 Spítalalíf (M*A*S*H) Fimmtándi þáttur. Banda- rískur gamanmyndaflokkur sem gerist á neyðarsjúkra- stöð bandarlska hersins í Kóreustríðinu. Aðalhlutverk: Alan Alda. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingarogdagskrá 20.35 Unglingarnir í frumskóg- inum 21.05 Sá gamli (Der Alte) — Lokaþáttur. Þýskur sakamálamynda- flokkur. Aöahlutverk Siegfri- ed Lowitz. Þýðandi Þórhallur Eyþórsson. 22.05 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Gunnar E. Kvaran. 22.35 Seinni fréttir 22.40 Landnemalíf (Shane) — Bandarískur vestri frá árinu 1963. Leik- stjóri George Stevens. Aðalhlutverk Alan Ladd, Jean Arthur, Van Heflin og Jack Palance. Aðkomumað- ur skerst I leikinn þegar stórbokki einn reynir að hrekja landnema af jörðum þeirra með yfirgangi. Þýð- andi Trausti Júlíusson. 00.45 Dagskrárlok fM STÖD7VÖ FIMMTUDAGUR 15. janúar 17.00 Myndrokk. Sýnt er úr nýjustu kvikmyndunum, og myndrokki við myndirnar. Stjórnandi er Súní. 18.00 Teiknimynd. Glæfra- músin (Dangermouse). 18.30 (þróttir. Umsjónarmað- ur er Heimir Karlsson. 19.30 Fréttir. 19.55 Ljósbrot. Kynntir eru ýmsir dagskrárliöir á Stöð 2 ásamt því að stiklaö er á því sem er að gerast í menn- ingarlífinu hverju sinni. Umsjón annast Valgerður Matthíasdóttir. 20.15 Bjargvætturin (Equaliz- er). Bandarískur sakamála- þáttur. 21.05 Gúlagið. Bandarisk kvik- mynd með David Keith og Malcolm McDowell í aðal- hlutverkum. (þróttafréttarit- ari og fyrrum ólympíumet- hafi er ásamt konu sinni í Moskvu og er beöinn fyrir skjalaflutning til Banda- ríkjanna. KGB kemst í spiliö og hann er dæmdur til Síberíuvistar. Fréttaritarinn ungi hefur þó ekki í hyggju að eyöa ellinni þar og tekur að gera ráðstafanir. 22.40 Öryggisvöröurinn (The Guardian). Bandarísk kvik- mynd með Martin Sheen og Louis Gosset jr. í aöal- hlutverkum. (búar fjölbýlis- húss í New York ráða öryggisvörð til þess að reisa rönd við glæpamennsku í húsinu. Hann ávinnur sér traust íbúanna þrátt fyrir harðneskjulegar aðferðir. Einn íbúanna grunar þó að ekki sé allt með felldu og grennslast fyrir um fortíð kauða. Leikstjóri er David Greene. 00.15 Dagskrárlok. undir stjórn Margrétar , son 0g Kristínar Ástgeirs- Pálmadóttur. dóttur. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- 23.00 Túlkun í tónlist. Rögn- undagsins. Orð kvöldsins. valdur Sigurjónsson sér um “•15 Veðurfregnir. þáttinn 22.20 Onnur saga — Chaplin 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. i sviðsljósinu. Þáttur í umsjá | Önnu Ólafsdóttur Björns- FIMMTUDAGUR 15. janúar 9.00 Morgunþáttur í umsjá Kristjáns Sigurjónssonar og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meöal efnis: Tónleikar helg- arinnar, Matarhorniö, tvennir tímar á vinsældalist- um og fjölmiölarabb. 12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist i umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Hingaö og þangað um dægurheima með Inger Önnu Aikman. 15.00 Sólarmegin. Tómas Gunnarsson kynnir soul og fönktónlist. (Frá Akureyri.) 16.00 Tilbrigöi. Þáttur í umsjá Hönnu G. Sigurðardóttur. 17.00 Hitt og þetta. Stjórn- andi: Andrea Guðmunds- dóttir. 18.00 Hlé. 20.00 Vinsældalisti rásar tvö. Gunnlaugur Helgason kynn- ir tíu vinsælustu lög vikunn- ar. 21.00 Gestagangur hjá Ragn- heiði Davíðsdóttur. 22.00 Rökkurtónar. Stjórn- andi: Svavar Gests. 23.00 Svifflugur. Hákon Sigur- jónsson kynnir Ijúfa tónlist úr ýmsum áttum. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 90,1 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5 Má ég spyrja? Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugs- son. 15. janúar 07.00—09.00 Á fætur með Siguröi G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar, gömul og ný. Tapað fundiö, opin lína, mataruppskrift og sitthvað fleira. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Fréttapakkinn, Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, segja frá og spjalla við fólk. Flóamarkaðurinn er á dag- skrá eftir kl. 13.00. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Pétur spil- ar síðdegispoppið og spjall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. Tónlistar- gagnrýnendur segja álit sitt á nýútkomnum plötum. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00—19.00 Hallgrímur Thorsteinsson I Reykjavík síðdegis. Þægileg tónlist hjá Hallgrími, hann lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk- ið sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00—21.30 Jónína Leós- dóttir á fimmtudegi. Jónína tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist að þeirra smekk. 21.30—23.00 Spurningaleikur Bylgjunnar. Bjarni 0. Guð- mundsson stýrir verölauna- getraun um popptónlist. 23.00—24.00 Vökulok. Frétta- tengt efni og þægileg tónlist í umsjá fréttamanna Bylgj- unnar. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upp- lýsingar um veöur. ALFA Krlstileg ítnrpwtM. FM 102,9 FIMMTUDAGUR 15. janúar 13.00—16.00 Hitt og þetta i umsjón John Hansen. 20.00-24.00 Blandaður þátt- ur í umsjón Magnúsar Gunnarssonar og Óla Jóns Ásgeirssonar. Alfa FM 102,9 er kristileg útvarpsstöð og er styrkt af kristnu fólki á íslandi og færum við öllum stuðnings- aðilum okkar bestu þakkir og óskir um gæfuríkt ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.