Morgunblaðið - 15.01.1987, Page 7

Morgunblaðið - 15.01.1987, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987 Rekstur bæjarsjóðs Sauðarkróks í járnum: Sýnist að árið 1987 muni verða 7 Fróóleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! ENDURSKOÐUNAR- SKRIFSTOFA Hef flutt skrifstofu mína á Grandagarð 9. Síminn er 622940. Dýri Guðmundsson, löggiltur endurskoðandi. okkur erf itt - segir Snorri Björn Sigurðsson REKSTUR bæjarsjóðs Sauðár- króks verður fyrirsjáanlega erfiður á þessu ári þar sem sjóð- urinn er að greiða upp skuldir sem stofnað hefur verið til á undanförnum árum, fyrirtæki sem bæjarsjóður er stór hluthafi í hafa verið rekin með stórtapi, og útsvarstekjur sveitarfélagins munu sennilega lækka að raun- gildi vegna þess að tveir af þremur togurum Útgerðarfélags Skagfirðinga voru frá hálft árið vegna bilana og því þurfti að loka frystihúsum. Bæjarstjóri Sauðárkróks er samt bjartsýnn á að bærinn nái að vinna sig út úr erfiðleikunum. „Mér sýnist að árið 1987 verði okkur býsna erfitt,“ sagði Snorri Sigurður Björnsson, óperusöngvari og framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Sinfóníuhljóm- sveit Islands Björn Sigurðsson bæjarstjori á Sauðárkróki í samtali við Morgun- blaðið. „Vegna togarastoppsins, og í framhaldi af því stoppsins í frysti- húsunum, sýnist mér að launa- greiðslur fiskvinnsluhúsanna verði óbreyttar á milli ára og lækki hjá Útgerðarfélagi Skagfirðinga og þetta hefur auðvitað bein áhrif á útsvarstekjur bæjarins. Síðan er bærinn stór hluthafi í Steinullar- verksmiðjunni, sem og útgerarfé- laginu og þegar kallað er eftir hlutabréfaaukningu er auðvitað leitað til bæjarins. Bærinn hefur síðan haft mjög erfiða rekstrarstöðu. Hann skuldaði allt of mikið og stór hluti skuldanna var skammtímaskuldir og vanskil. En við erum að vonast til að kom- ast út úr þessum erfiðleikum með aðhaldsaðgerðum,“ sagði Snorri Björn. Snorri sagði að þótt Sauðarkrók- ur hefði verið eini staðurinn á Norðurlandi vestra þar sem örlítil fólksfjölgun varð á milli ára, væri Ijóst að mjög væri þrengt að lands- byggðinni yfir höfuð og þegar við bættist að á Norðurlandi vestra væri mesta lágiaunasvæði landsins segði það sig sjálft að ástandið væri ekki nógu gott. „En ef einhver staður á landinu á að dafna hefur Sauðárkrókur mjög góða aðstöðu,“ sagði Snorri. „Við búum við góðar samgöngur í sjó, lofti og á landi; það er ljóst að við höfum eina ódýrustu hitveitu á landinu; hér er fjölbrautarskóli, önnur þjónustustarfsemi er nanast öll til reiðu, og því gerir margt það fýsilegt að búa hér ef launin gætu hækkað. Svo mér finnst við ekki þurfa að kvíða framtíðinni ef þessi þróun á landsbyggðinni gengur ekki allt of langt," sagði Snorri Björn Sigurðsson. Námskeiðaáætiun S/36 skjánotkun 19. jan. OPUS fjárhagsbókhald 23. feb. Frum fjárhagsbókhald 20. jan. ÓPUS viðskiptamannabókhald 24. feb. WordPerfect 22-23. jan. ÓPUS birgðabókhald (1/2 dagur) 25. feb. Frum viðskiptamannabókhald 26.jan. ÓPUS sölukerfi (1 /2 dagur) 25. feb. Frum sölukerfi 27.jan. ÓPUS innflutningskerfi 26. feb. Grunnnámskeið 29. jan. WordPerfect 2.-3. mars Stýrikerfi 1 (DOS) 30. jan. Word 4.-5. mars Multiplan 3.-4. feb. Grunnnámskeið 11. mars S/36 stýrikerfi 10. feb. Stýrikerfi 1 (DOS) 12. mars WordPerfect frh. 12.-13. feb. Stýrikerfi 2 (DOS) 13. mars Grunnnámskeið 18.feb. Lotus 123 17.-19. mars Stýrikerfi 1 (DOS) 19.feb. dBase III+ 25.-27. mars Námskeiðin eru haldin í húsnæði okkar á Nýbýlavegi 16, Kópavogi. Kennt er 6 klst. á dag, frá 9 til 12 og 13 til 16. Þátttakendum er boðinn hádegisverður í mötuneyti okkar. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 641222 GÍSLI J. JOHNSEN Sigurður Björnsson endurráð- inn fram- kvæmdastjóri SIGURÐUR Björnsson hefur ve- rið endurráðinn framkvæmda- sjóri Sinfóníuhljómsveitar Islands til næstu fjögurra ára. Sigurður hefur verið fram- kvæmdastjóri hljómsveitarinnar frá árinu 1977. Að sögn Ólafs B Thors, stjórnar- formanns Sinfóníuhljómsveitarinn- ar tóku ný lög um hljómsveitina gildi árið 1982. I þeim er kveðið á um að framkvæmdastjóri skuli ráð- inn til fjögurra ára í senn. Fyrri stjórn réð Sigurð í framkvæmda- stjórastarfið 1. janúar 1983. Sú ráðning rann út í lok desember 1986. Hann var síðan endurráðinn með einróma samþykki núverandi stjórnar í ársbyrjun 1987. I lögunum frá 1982 er ekki kveð- ið á um að starfið skuli auglýst. Hinsvegar er kveðið á um að endur- ráðning framkvæmdastjóra sé heimil og eru engin takmörk fyrir því hversu oft. Að sögn Ólafs B. Thors lá beinast við að ráða Sigurð og þótti ekki ástæða til að auglýsa starfið að þessu sinni. Ef svo er, þá eigum við einn sl MAZDA 323 Station er framdrifinn nægu rými fyrir fjölskylduna og Verð frá aðeins 377 þúsund krónum með 1300 cc vél og 430 þúsund krónum með 1500.cc vél í GLX útgáfu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.