Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
13
V estmannaeyjar:
Vinnslustöð-
in hf. 40 ára
Vestmannaeyjum.
VINN SLU STÖÐIN í Vestmanna-
eyjum varð 40 ára þann 30.
desember síðastliðinn. Vinnslu-
stöðin hefur um árabil verið eitt
framleiðsluhæsta frystihús
landsins og einnig verið afkasta-
mikil i saltfiskverkun og síldar-
vinnslu. Á afmælisdaginn bauð
fyrirtækið öllu starfsfólki sinu
til veislu sem haldin var í hinu
vistlega mötuneyti Vinnslustöðv-
arinnar. Við þetta tækifæri var
fjölda fólks veitt viðurkenningar
fyrir langt og farsælt starf hjá
fyrirtækinu.
30. desember árið 1946 bar uppá
mánudag, en þann dag var stofn-
fundur Vinnslustöðvarinnar hald-
inn. Undirbúningur hafði þá staðið
yfir í rúmt ár frá því hugmyndin
að stofnun fyrirtækisins kviknaði á
aðalfundi hjá Lifrarsamlagi Vest-
mannaeyja. Stofnendur voru 105
útgerðarmenn í Vestmannaeyjum
og var Jóhann Sigfússon kosinn
fyrsti stjómarformaður félagsins.
Upphaflega hét fyrirtækið
Vinnslu- og sölumiðstöð fískfram-
leiðenda en á aðalfundi í desember
1959 var ákveðið að breyta fyrir-
tækinu úr samlagsfélagi í hlutafé-
iag og að það skildi heita
Vinnslustöðin hf.
Stefán Runólfsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í ræðustól
á afmælisfagnaðinum.
V ínnslustöðin veitti fjölmörgum starfsmönnum viðurkenningar fyrir
langt og vel unnið starf. Stefán Rúnólfsson afhendir hér þeim Jónu
Þorsteinsdóttur og Ingunni Júlíusdóttur ágrafinn silfurskjöld.
Hyg’g’st segja af sér þing-
mennsku eftir tvö ár
Stangast á viö lög, segir Siguröur Líndal prófessor
KVENNALISTINN í Reykjanesi
hefur ákveðið að Kristín Hall-
dórsdóttir, fyrsti maður á
framboðslista flokksins til AI-
þingis, silji aðeins tvö fyrstu ár
næsta kjörtímabils nái hún kosn-
ingu. Kristín sagði að meginregla
Kvennalistans væri að þingmenn
sifji í mesta lagi tvö kjörtimabil
á þingi. Hefði verið talið æskilegt
að nýta reynslu hennar áfram
um skeið en varamaður tæki
sæti eftir tvö ár. Sigurður Líndal,
prófessor við lagadeild Háskóla
Islands, telur að þessi fyrirætlan
stangist á við ákvæði stjórnar-
skrárinnar.
„Mér finnst gagnrýni á þessa
ákvörðun okkar undarleg. Ég tel
það heiðarlega framkomu við kjós-
endur að tilkynna þeim um fyrirætl-
un mína og get ómögulega skilið
hvað sé ólöglegt við að frambjóð-
andi lýsi því yfir að hann muni segja
af sér þingmennsku þegar kjörtíma-
bilið er hálfnað," sagði Kristín. Hún
taldi mörg fordæmi fyrir því að
menn settust inn á þing þótt vitað
væri að þeir myndu hverfa til ann-
arra starfa áður en kjörtímabilinu
lyki. Þannig hefðu tveir stjórnar-
liðar sagt af sér á þessu þingi og
gerst bankastjórar.
Sigurður sagði að í stjórnarskrá
og kosningalögum væri skýrt kveð-
ið á um að kjörtímabilið væri fjögur
ár. Það væri að sínu mati óeðlilegt
að frambjóðendur lýstu því yfir að
þeir hygðust hundsa þessi lög, þótt
í fljotu bragði virtist ekkert geta
komið í veg fyrir að þingmaður
segði af sér hvenær sem er. „Menn
hafa sett sér ákveðið kjörtímabil,
sennilega til þess að auka festu í
starfi þingsins og einnig vegna þess
að þingmenn þurfa að ávinna sér
nokkra reynslu í störfum þess. Ef
frambjóðendur ætla að fara að
stytta kjörtímabilið um helming
gætu þeir eins ákveðið að það yrði
eitt ár eða styttra og ég sé ekki
hvar það myndi enda,“ sagði Sig-
urður Líndal.
Morgunblaðið/Sigurgeir.
Vinnslustöðinni hefur löngum haldist vel á starfsfólki. Mennirnir í miöið, Stefán Guðmundsson og Sig-
urður Auðunsson hafa starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun þess, eða í 40 ár. Þeir Guðmundur Ásbjömsson
(t.v.) og Jóhann Vilmundarson (t.h.) hófu báðir störf á árinu 1952. Sigurbjörg Guðnadóttir sknfstofu-
stjóri hefur einnig starfað hjá fyrirtækinu frá 1952.
i
í tilefni 40 ára afmælisins ákvað stjórn Vinnslustöðvarinnar og færa Björgunarfélagi Vestmannaeyja,
Hjálparsveit skáta í Eyjum og Sjúkrahúsi Vestmannaeyja að gjöf 40 þús. krónur hveiju um sig. Fulltrú-
ar frá þessum aðilum veittu gjöfunum móttöku á skrifstofu fyrirtækisins.
Vinnslustöðin er með athafna-
pláss sitt í Friðarhöfn, svo til á
bryggjukantinum. Fyrirtækið hefur
í gegnum árin vaxið og siglt farsæl-
lega í gegnum þann ólgusjó sem
fiskvinnslufyrirtæki á íslandi hafa
oft þurft að beita uppí. í dag er
fyrirtækið stærsta og afkastamesta
fiskvinnslufyrirtækið í Eyjum, hef-
ur mörg undanfarin ár tekið til
vinnslu 12-17 þúsund lestir af fiski.
Síðustu árin hefur Vinnslustöðin
verið annað eða þriðja framleiðslu-
mesta frystihúsið innan SH og í
hópi mestu saltfiskframleiðenda.
Þá hefur fyrirtækið ávallt fylgst vel
með allri þeirri öru framþróun sem
átt hefur sér stað í þessari atvinnu-
grein og verið fljótt að tileinka sér
allar nýjungar á því sviði.
Frá stofnun hafa sex menn gegnt
stjómarformennsku í íélaginu: Jó-
hann Sigfússon 1946-1959, Sig-
hvatur Bjarnason 1959-1975,
Guðlaugur Stefánsson 1975-1976,
Sigurður Óskarsson 1976-1986 og
Bjarni Sighvatsson sem tók við for-
mennsku á aðalfundi skömmu fyrir
afmælið. Framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar er Stefán Run-
ólfsson. — hkj.
DULUÐ AUSTURLANDA.
Kynnist Filippseyjum af eigin raun.
PARADÍS Á JÖRÐU. NÝR HEIMUR.
Ótrúlega fjölbreytt mannlíf.
3 VIKUR. Brottför 6. febrúar.
Heimkoma 25. febrúar.
Á heimleiðinni verður dvalið í anddyri Asíu
HONG ftONG dagana19-23 febrúar-
Vesturgötu 5. Reykjavík.
s. 17445.