Morgunblaðið - 15.01.1987, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.01.1987, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987 Skýrslan um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips: Misskilningur, mótsagnir og villandi og rangar ályktanir segja bankastjórar Utvegsbankans BANKASTJÓRAR Útvegsbank- ans halda því fram, að skýrslan um viðskipti bankans við Haf- ■skip, sem birt var í nóvember á siðasta ári, sé á margan hátt byggð á misskilningi og ályktan- ir, sem þar eru dregnar, mót- sagnakenndar, villandi og sumpart rangar. Þetta kemur fram í ýtarlegum athugasemdum við skýrsluna, sem bankastjórarnir Lárus Jónsson, Ól- afur Helgason og Halldór Guðbjarn- arson hafa sent viðskiptaráðherra og bankaráði Útvegsbankans. Skýrslan, sem bankastjórarnir gagnrýna, var samin af þriggja manna nefnd, sem Hæstiréttur til- nefndi í samræmi við samþykkt Alþingis í desember 1985. Skýrslan var birt 10. nóvember s.l. og er í henni að finna gagnrýna úttekt á viðskiptum Hafskips og Útvegs- bankans. Þar kemur m.a. fram það mat, að hagsmunagæslu Útvegs- bankans, hvað viðskiptin við Hafskip varðaði, hafí verið mjög ábótavant. Bankastjórar Útvegsbankans fínna að því, að enginn nefndar- manna hafi sérþekkingu á banka- málum eða reynslu á því sviði. Þeir segja, að við tilnefningu í nefndina hljóti Hæstiréttur að hafa tekið mið af því, að nefndinni var ekki ætlað að kveða upp dóma. Þar hafi hins vegar orðið misbrestur á og nefndin farið út fyrir verksvið sitt með bolla- Ieggingum um ábyrgð og skyldu bankastjóra og bankaráðs til að segja af sér meðan á rannsókn við- skipta bankans og Hafskips stóð. Bankastjóramir draga fram ýmis dæmi um mótsagnir í skýrslu nefndarinnar. Þeir benda t.d. á, að á einum stað í skýrslunni sé talið að eina höfuðorsök gjaldþrots Haf- skips megi rekja til Atlantshafssigl- inga fyrirtækisins, sem hófust 1984. Aftur á móti segi á öðrum stað í skýrslunni: „Hafskip hefði væntanlega orðið gjaldþrota þótt Atlantshafssiglingar hefðu ekki komið til...“ Annað dæmi um mót- sögn er tekið af umsögn nefndar- innar um bankaeftirlitið. Bent er á, að í skýrslu nefndarinnar sé bankaeftirlitið gagnrýnt fyrir að hætta afskiptum af Hafskip og Útvegsbankanum í kjölfar alvar- legra athugasemda á árinu 1979, en það gerði ekki úttekt hjá bankan- um á tímabilinu 1980-1985, einmitt á þeim tíma sem skýrsluhöfundar telji aðfinnsluverðastan í viðskipt- um bankans og fyrirtækisins. Þrátt fyrir þetta segi nefndin, að þegar á heildina sé litið, hafí bankaeftirlit- ið sýnt bæði skarpskyggni og vandvirkni í þeim athugunum, sem það hafi gert. Að því er fundið í athugasemdum bankastjóranna, að í skýrslu nefnd- arinnar er hvergi minnst á ábyrgð löggilts endurskoðanda, sem áriti reikninga Hafskips á mjög afdrátt- arlausan hátt. Bent er á, að samkvæmt lögum séu löggiltir end- urskoðendur opinberir sýslunar- menn og beri ábyrgð sem slíkir. „Bankastjórnin hlaut að taka mark á áritun löggilts endurskoðanda á reikninga félagsins," segir orðrétt. Þá segja bankastjórarnir, að í skýrslunni komi fram villandi upp- lýsingar um þróun viðskipta Hafskips við Útvegsbankann, sérs- taklega á tímabilinu 1984 og fram til gjaldþrots. Engin tilraun sé gerð til að bijóta upphæðir til mergjar. Tölum sé þannig stillt upp, að les- andi skýrslunnar fái þann skilning að bankastjórnin hafi ausið fé í fýrirtækið síðustu árin. Þetta sé ekki rétt. Fjögur meginatriði skýri hækkun skulda Hafskips við Út- vegsbankann. í fyrsta lagi hafí gengisbreytingar haft í för með sér miklar hækkanir útlána í krónutölu. í öðru lagi hafi vextir af lánum ekki verið greiddir og bæst við höf- uðstólinn með skuldbreytingarlán- um. í þriðja lagi hafi þurft að leggja út fé vegna greiðslu á ábyrgðum sem bankinn var í. í fjórða lagi hafí verið veitt fyrirgreiðsla vegna hlutafjársöfnunar, sem tryggð hafi verið með skuldabréfum vegna hennar. Skuldir Hafskips við Út- vegsbankann hafi numið 269,9 milljónum króna í árslok 1983 og 653,3 milljónum kr. á gjaldþrots- degi 6. desember 1985. I hækkun- inni, sem er um 383,4 milljónir kr., vegi gengisbreytingar þyngst. Þær nemi 186,4 milljónum króna, vextir og kostnaður vegna skuldbreytinga 47,5 milljónum kr., ábyrgðir 52,3 milljónum kr., skuldbreyting inn- lends láns 16 milljónum kr. og lán vegna hlutafjáraukningar 78,9 milljónum kr. Bankastjórarnir fjalla einnig um veð bankans og verðmæti skipa Hafskips og gagnrýna umfjöllun nefndarinnar um þau atriði. Þeir minna á, að alþjóðlegir stórbankar hafi tapað gífurlegum fjárhæðum vegna verðfalls á kaupskipum og rekja dæmi þess. „Spyija má hvaða ríkisbankakerfi eða óbankalegum sjónarmiðum er hægt að kenna um stórfelld útlánatöp þessara banka?“ segja þeir. Og bæta síðan við: „At- hygli vekur að nefndin minnist ekki á þessi „bankaslys“ í nágrannalönd- unum, _sem eru af sama toga og áfall Útvegsbankans vegna Haf- skips.“ I niðurlagi athugasemda sinna vísa bankastjórar Útvegsbankans á bug þeim ummælum í skýrslunni, að vísvitandi blekkingar af hálfu Hafskipsmanna hafi aðeins að hluta til getað valdið mistökum banka- stjóra Útvegsbankans. Um þetta segja þeir m.a. orðrétt: „Engum blöðum er um það að fletta, að nákvæmari upplýsingar af hálfu stjómenda og endurskoðanda Haf- skips, um ástand og horfur á tímum algjörra umskipta í rekstri félags- ins, hefðu skipt sköpum um ákvarð- anir bankastjómarinnar um fyrrgreind áramót [þ.e. 1984-1985]. í raun gátu engar að- gerðir hagdeildar eða annarra starfsmanna bankans afhjúpað þessi umskipti, ef vísvitandi blekk- ingum var í raun beitt af hálfu Hafskipsmanna." Friðrik Sophusson: Víða hægt að treysta og styrkja byggð úti á landi - en annars staðar verður að láta undan "r,m “s l,nd °e "ekír Þá hing „ÞETTA ER óheillavænleg þró- un, sem við sjálfstæðismenn höfum áhyggjur af og ræddum m.a. ýtarlega á flokksráðsfundi í haust. En það er hins vegar spurningin, hvernig á að bregð- ast við. Ég hygg, að viðbrögð, sem eru í þeim dúr að ríkisstjórn- in eigi í stórum stíl að fara að senda fjármuni út um landið, séu nú ekki besti kosturinn í stöð- unni,“ sagði Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á frétt hér í blaðinu á laugardaginn, þar sem fram kemur, að á árunum 1984-1986 hefur fólki á höfuðborgarsvæð- inu fjölgað meira en sem nemur heildarfjölgun landsmanna og fækkun orðið úti á landsbyggð- inni. „Þetta á sér rætur fyrst og fremst í því, að við eigum í vand- ræðum í landbúnaði og sjávarútvegi og höfum miðstýrt framleiðslutak- mörkunum í báðum þessum grein- um. Eg tel að það sé stórmál, að breyta þeim reglum sem við notum í þessum atvinnugreinum í almenn- ari reglur og síðan að gera fyrirtæk- in úti á landsbyggðinni betur í stakk búin til þess að fara í nýja starf- serni," sagði Friðrik. „Ég kysi, að sjá það í framtí- ðinni, að fjármunirnir sem verða til úti á landsbyggðinni ættu meiri möguleika á að verða þar eftir til þess að fara í nýjar greinar. Ég held, að það sé betri ráðagerð held- ur en að hugsa þetta, eins og því miður allt of margir gera í dag, í gegnum ríkisvaldið. Þær hugmynd- ir sem þaðan koma leiða ávallt til þess, að fólk verður háð ríkinu og finnur ekki það öryggi, sem það þarf á að halda til að geta búið að til Reykjavíkur, þar sem er stærri atvinnumarkaður o.s.frv." Friðrik sagði, að það væri ekki ólíklegt að þau sjónarmið sem hann talaði fyrir leiddu til þess að byggð- in í landinu breyttist. „Ég sé hins vegar enga ástæðu til að betjast gegn því, en ég tel að hún geti vel breyst í þá veru að víða úti á landi verði hægt að treysta og styrkja byggðina en annars staðar verður eðli málsins samkvæmt að láta und- an. Það er út í bláinn, að ætla sér að viðhalda byggð á öllum þeim stöðum þar sem byggð er nú.“ KKLttNl) Við heimsækjum vöggu vestrænnar menningar og skoðum m.a, Aþenu, Akropolis, Parþenon. Véfréttina í Delfí og eyna Krít. Farið verður í samráði við Grikklandsvinafélagið Hellas. Frábær fararstjórn Sigurðar A. Magnússonar. Örfá sæti laus. fr Ferðaskrifstolan aiandi Vesturgötu 5, Reykjavík, s. 17445. Steingrímur Hermannsson: Byggðastofnun falið að fylgjast með þróuninni „ÁSTÆÐURNAR fyrir þessu eru að mínu mati augljósar. Það hafa verið atvinnuerfiðleikar í land- búnaði og sjávarútvegi úti á landsbyggðinni. Þar hafa ekki skapast ný atvinnutækifæri," sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, þegar Morg- unblaðið leitaði álits hans á frétt hér í blaðinu á laugardaginn, þar sem fram kemur að fólksfækkun hefur orðið úti á landi á árunum 1984-1986. „Þetta er í rauninni það sama og gerðist á eifiðleikaárunum 1967-68,“ sagði forsætisráðherra. Hann minnti á, að sú þróun hefði snúist við og í nokkur ár verið meira um flutninga til dreifbýlisins en í þéttbýli. „Ég hef hins vegar meiri áhyggjur af þessu núna, því þá kom útfærsla landhelginnar tvi- svar sinnum til sögu og færði mikla björg í bú. Það er ekki um neitt slíkt að ræða nú.“ Steingrímur Hermannsson sagði, að Byggðastofnun væri ætlað það hlutverk að fyljast með þróun byggðar í landinu og leita leiða til að snúa núverandi framvindu við. Eitt af þeim verkefnum, sem stofn- unin ynni nú að, tengdist þessu mjög, en þar væri um það að ræða, að leita leiða til að hjálpa þeim frystihúsum úti á landi, sem eiga í erfiðleikum. Þá sagði forsætisráð- herra, að Byggðastofnun hefði einnig verið falið fyrir nokkru að fylgjast með áhrifum samdráttarins í landbúnaði á byggðaþróun. „Þessi mál eru í stöðugri skoðun,“ sagði Steingrímur Hermannsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.