Morgunblaðið - 15.01.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 15.01.1987, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987 Kazakhstan: Eitur ly fj aneyt- endur handteknir Moskva, Reuter. SOVÉSKA lögreglan hefur handtekið 43 meðlimi eiturlyfja- hrings, sem aðsetur hafði í Kazakhstan-lýðveldinu í Asíu, að sögn opinberra yfirvalda. Blaðið Sotsialisticheskaya Ind- ustria hafði frétt þessa á þriðjudag eftir háttsettum lögregluforingja í Kazakhstan. Sagði hann að hinir handteknu hefðu haft skotvopn undir höndum og um 50 kg af hassi hefðu fundist í fórum þeirra. Vildi hann halda því fram, að þessi hópur hefði tekið þátt í mótmælaaðgerð- um gegn nýsettum leiðtoga kommúnistaflokksins í Kazakhstan í höfuðborg lýðveldisins, Alma Ata, um miðjan desember og hefði fólkið æst aðra upp á móti valdhöfunum. Að undanfömu hefur mikið verið rætt um vandamál er stafa af eitur- lyfjanotkun í Sovétríkjunum og vakti það töluverða athygli er Alex- ander Vlasov, innanríkisráðherra, upplýsti fyrir skömmu, að skráðir eiturlyfjaneytendur í landinu væru 46.000. Skipbrotsmanna leitað við Portúgal 100 ár ífangelsi hver AP/Símamynd Þrír mafíuforingjamir voru dæmdir í hundrað ára fangelsi hver fyrir margslungna glæpastarf- semi. Dómar voru kveðnir upp yfir þremenningunum í New York á þriðjudag. Foringjarnir eru (f.v.) Carmine „Junior“ Persico, Antliony „Tony Ducks“ Corallo og Anthony „Fat Tony“ Salerno. Lissaboti. Reuter. PORTÚGALSKT herskip fann : gær þijá mannlausa gúmmí Gengi gjaldmiðla Dalurinn snarlækkar London, AP. BANDARÍKJADALUR snarféll í verði á evrópskum gjaldeyris- mörkuðum í gær. Fregnir um aukningu í smásöluverzlun í Bandaríkjunum breytti þar engu um. Gullúnsan hækkaði í verði um 9 dollara. Vestur-þýzkir spákaupmenn voru sammála um það að eina von dalsins væri samræmd íhlutun seðlabanka margra ríkja með bandaríska seðlabankann í broddi fylkingar. íhlutun af því tagi er hins vegar talin ólíkleg. Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, sagði að Bandaríkjastjóm byggist við því að dalurinn lækkaði frekar í verði. Stjórnin hefði hins vegar ekki ákveðið neinar aðgerðir til að snúa þróuninni við. Sérfræðingar segja helztu ástæð- una fyrir falli dalsins þá að hvergi sæust nein batamerki í bandarísku efnahagslífí. Breytti engu þótt skýrt hefði verið frá því í gær að 4,4% aukning hefði orðið í smásöluverzl- un í Bandaríkjunum í desember. Dalurinn féll um þrjá pfenninga gagnvart vestur-þýzka markinu og kostaði 1,84 mörk miðað við rúm- lega tvö mörk fyrir mánuði. Brezka pundið kostaði 1,4985 dali í gær miðað við 1,4910 dali í fyrradag. Gengi annarra gjaldmiðla var á þá ieið að fyrir dalinn fengust: 1,8400 vestur-þýzk mörk (1,8730) 1,5562 svissn. frankar (6,2725) 2,0775 holl. gyllini (2,1170) 1.316,75 ítalskar lírur (1.334,00) 1.3663 kanad. dalir (1.3673) í Tókýó fengust 153,80 jen fyrir dalinn miðað við 156,00 í fyrradag. í London féll dalurinn frekar gagn- vart jeninu þar sem hann var skráður á 153,95 jen. björgunarbáta og skipsbát, sem tilheyrðu flutningaskipi frá Filippseyjum, Testarosa, er sökk undan strönd Portúgal í fyrra- dag. Talsmaður hersins sagði, að ekki hefði fundist neinn skip- veiji á lífi. Talsmaður portúgalska hersins sagði að herflugvél hefði vísað her- skipinu að gúmmíbjörgunarbátun- um og hefðu flugmennimir einnig komið auga á tvo aðra báta er virt- ust vera mannlausir. Testarosa, er var á leið til Ántwerpen með jám- grýti, lenti í slæmu veðri í fyrradag undan ströndum Portúgal og lét vita af því að skipið ætti í erfíðleik- um. 30 manna áhöfn var um borð. Fjöldi skipa tekur þátt í leitinni að skipbrotsmönnunum og var í gær spáð batnandi veðri á leitarsvæðinu. Svíar auka fjárveit- ingar til vamarmála Stokkhólmi, AP. SAMKOMULAG hefur orðið á milli sænsku stjórnarinnar og Fijálslynda flokksins um 6,2 milljarða sænskra króna auka- Filippseyjar: Laurel gagnrýn- ir lokun dagblaðs Manila Filinnspvium AP Manila, Filippseyjum. AP. V ARAFORSETI Filippseyja, Salvador Laurel, er andvígur Júgóslavía: Rekinn fyrir að berja söngvara Belgrað. Reuter. JÚGÓSLAVNESKUR lögreglu- maður hefur verið rekinn úr starfi fyrir að beija óperusöngv- ara af þeirri ástæðu, að honum þætti svo gaman að lúskra á söngvurum, að því er dagblaðið Politika sagði frá í frétt í gær. Blaðið sagði, að lögreglumaður- inn, Dragan Jevtic að nafni, hefði dregið óperusöngvarann Goran Gligoric, sem starfar við Belgrað- óperuna, út úr bíl hins síðamefnda hinn 21. desember síðastliðinn og barið hann, svo að stórsá á söngvar- anum. Gilcoric sárbændi lögreglumann- inn um að beija sig ekki í höfuðið, þar sem hann væri söngvari. Jevtic svaraði þá: „Ég nýt þess að lúskra á söngvurum." Politica vitnaði í lögregluskýrslu vegna þessa atviks og sagði, að Jevtic hefði verið rekinn fyrir „al- varlegt brot á starfsskyldu og aga“. þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar að loka dagblaðinu Express, sem verið hefur gagnrýnið í garð Corazon Aquino forseta. Laurel sagði á fundi með starfs- mönnum Express á þriðjudag, að hann ætlaði að mótmæla þessari ákvörðun á ríkisstjómarfundi dag- inn eftir. Hann sagði, að lokun dagblaðs mundi „ónýta ávinning febrúarbyltingarinnar, . þegar fréttaflutningur var gefinn fijáls". Stjómamefnd á vegum forsetans yfirtók rekstur blaðsins snemma í þessum mánuði, þar sem eigandi þess sætir nú rannsókn vegna meintra auðgunarbrota í tíð Ferdin- ands Marcosar, fyrrverandi forseta. fjárveitingu til vamaramála á árunum 1987-1992. Tilgangurinn með aukafjárveit- ingunni er meðal annars að styrkja kafbátavamir við strendur Svíþjóð- ar til þess að koma megi í veg fyrir siglingar útlendra kafbáta í sænskri lögsögu. Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra og formaður Jafnaðarmanna- flokksins, fagnaði samkomulaginu við Fijálslynda flokkinn, sem er í stjómarandstöðu. Talsmenn hinna stjómarand- stöðuflokkanna, Hægri flokksins og Miðflokksins, sögðu aukafjárveit- inguna ekki nógu mikla. Hún mun hins vegar verða til þess að stofnað- ar verða tvær nýjar loftvamadeildir í hemum, JAS- og Viggen-orrustu- þotur verða búnar betri vopnum og hægt verður að auka heræfíngar. Jafnframt leyfír aukafjárveitingin fjölgun neðansjávarhljóðnema til að fylgjast með ferðum kafbáta, stækkun viðvömnarkerfís gegn kafbátum og meiri og betri þjálfun sérstakra kafbátaleitarsveita. Hótelbruninn á Puerto Rico: Brennumaðurinn var ekki einn að verki Innilega þakka ég öllum, sem glöddu mig d 85 ára afmœlinu 9. janúar sl. meö heimsókn- um, skeytum, kortum, gjöfum og símtölum. GuÖ blessi ykkur öll. Ingibjörg Jónsdóttir, Skálanesi. San Juan, Puerto Rico. AP. GÆSLUMAÐUR, sem hand- tekinn hefur verið og sakaður um að vera valdur að brunan- um mikla á Dupont Plaza- hótelinu í San Juan á gamlárskvöld, hefur að öllum líkindum ekki verið einn að verki. Einu útgöngudyrnar í spilasalnum á annarri hæð voru aðeins opnanlegar inn á við og komu þvi að engu gagni, þegar mannþröngin í salnum þusti að þeim. Hector Escudero Aponte, 35 ára gamall gæslumaður á hótel- inu, var handtekinn á þriðjudag og ákærður fyrir morð, íkveikju og skemmdarverk. Hann er hinn fyrsti, sem handtekinn er vegna þessa máls. Samkvæmt ákær- unni, sem lögð var fram fyrir rétti í San Juan, kveikti Escudero Aponte í hótelinu „í samráði við aðra og með samþykki þeirra". Embættismenn Bandaríkja- stjómar kváðust ekki trúa því, að brennumaðurinn hefði verið einn að verki, og Jerry Rudden, aðaltalsmaður bandarískra stjómvalda í málinu, sagði, að „í samráði við aðra“ merkti, að talið væri, að um samsæri hefði verið að ræða. Komið hefur í ljós, að einu útgöngudymar á spilasalnum á annarri hæð hótelsins, þar sem mannflest var, þegar kviknaði í, voru aðeins opnanlegar inn á við og komu því að engu gagni, þeg- ar mannfjöldinn flykktist að dyragættinni. Lík langflestra þeirra 96, sem fórust í brunanum, fundust inni í spilasalnum. Austur-Þýskaland: Njósnaramir út í kuldann Berlín, London, AP, Reuter. FORINGJAR í austur-þýsku öryggislögreglunni, sem vana- lega hafa það verk með höndum að njósna um landa sína og koma í veg fyrir „und- irróður", hafa nú verið kallað- ir út í kuldann og settir í snjómokstur. Neues Deutschland, málgagn kommúnistaflokksins, sagði frá því í gær, að foringjar í öryggis- lögreglunni ásamt hermönnum, lögreglu og öðrum ynnu nú að því að halda samgönguleiðum opnum og greiða fyrir flutningi matvæla og eldsneytis. Fljótin Havel og Saxelfur eru miklar flutningaleiðir en nú eru þau undir ísi og leggur jafnharðan og hann er brotinn af. í Vestur-Þýskalandi eru sömu vandræðin og sagði talsmaður vestur-þýsku jámbrautanna í gær, að víða um landið stæðu lestir fullar af kolum og ekki hægt að losa þær. Væru kolin frosin í einn kökk, sem ekkert ynni á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.