Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
29
Ástralíubikarinn:
Dennis Conner
vinnur annan sig-
ur sinn í röð
Fremantle, AP.
Bandaríska skútan Stars &
Stripes kom öðru sinni á undan
nýsjálenzku skútunni New Zea-
land í mark í undanúrslitum
Ameríkubikarsins (America’s
Cup) og er staðan í áskorenda-
flokki keppninnar því 2-0 fyrir
Dennis Conner, skipstjóra Stars
& Stripes.
Stars & Stripes kom í mark í gær
1 mínútu og 36 sekúndum á undan
New Zealand, en í fyrradag var
Stars & Stripes 80 sekúndum á
undan. Heyja þessar tvær skútur
einvígi um annað úrslitasætið og
hlýtur sú skúta það sem verður
fyrri til að vinna fjögur einvígi. í
gær óskaði Chris Dickson, skip-
stjóri New Zealand, eftir frídegi í
dag til þess að finna svar við vel-
gengni Conner. Þriðja einvígið
verður því háð á morgun, föstudag
og hið fjórða á laugardag. Haldi
Conner áfram sigurgöngu sinni
gæti hann því tryggt sér úrslita-
sæti strax um helgina, en loka-
keppnin hefst síðan 31. janúar nk.
Siglingaleiðin í gær var 24,5
sjómílur og lauk Stars & Stripes
henni á þremur stundum, 11 mínút-
um og 10 sekúndum. Keppnishring-
urinn er jafnan um 25 sjómílur og
skiptist í átta leggi. New Zealand
var einni sekúndu á undan yfir rás-
markið eftir að rásmerki var gefið,
en við fyrstu bauju, eftir um fjög-
urra sjómílna siglingu upp í 20
hnúta vind var Stars & Stripes með
38 sekúndna forystu. Þá var beitt
undan vindi og minnkaði New Zea-
land bilið í 18 sekúndur. Á þriðja
kaflanum jókst forskot Stars & Stri-
pes aftur í 35 sekúndur og hélst
sá munur þar til á sjötta áfanga
leiðarinnar, en þá bætti Conner
hálfri mínútu við forskot sitt og
sneri við sjöttu bauju með 1:06
mínútu forskot.
Dennis Conner hefur sagt að
skúta sín hefði lítið að gera í New
Zealand í taktískri keppni í litlum
byr, þegar aðstæður byðu upp á
stöðugar vendingar. Helzta von sín
væri að vindur blesi kröftuglega. Á
þriðjudag mældist vindurinn 26
hnútar og 20 í gær.
Þá var fyrsta siglingaeinvígið í
flokki veijenda í gær en í þeim
flokki keppa eingöngu ástralskar
skútur. Kookaburra III varð 29 sek-
úndum á undan Australia IV, skútu
Allans Bond, sem sjónvarpsáhorf-
endur kannast við. Það kemur hins
vegar í hlut dómnefndar keppninnar
að úrskurða hvoru megin vinning-
urinn hafnar því skipstjórar beggja
skútanna hafa kært hvorn annan
fyrir að hafa rangt við er þær rák-
ust saman rétt áður en rásmerki
var gefið.
Keppni Kookaburra III og Austr-
alia IV var jöfn og geysihörð.
Árangur Kookaburra þykir ótrúleg-
ur því um miðbik leiðarinnar varð
Frakkland:
ísland í ríkis-
sjónvarpinu
París. Frá Torfa Túliníus, fréttaritara Morvunblaðsins.
Nú í vikunni er verið að senda
út þáttaröð um Island sem
franska útvarpsstöðin France
Culture hefur látið gera.
Höfundarnir eru þeir Jacques
Munier og André Mathieu og heita
þættirnir „L’Islande: les noces du
feu et de la glace“, eða „ísland,
brúðkaup íss og elda“. Þættirnir
fjalla um íslenska menningu í
víðasta skilningi, tunguna, bók-
menntirnar, fjölmiðla, kvikmyndir
og þjóðareinkenni Islendinga. Þeir
eru sendir út milli klukkan hálfníu
og níu á morgnana alla þessa viku.
í þeim koma fram ýmsir kunnir
íslendingar eins og Jónas Kristjáns-
son, forstöðumaður Stofnunar Áma
Magnússonar á Islandi, rithöfund-
amir Thor Vilhjálmsson, Jón Óskar
o.fl. Einnig er leikin íslensk tónlist
og lesnar ljóðaþýðingar.
Ungveijaland:
Skotárás á sendi-
herra Kólumbíu
Búdapest, Bogota, Kólumbíu, AP, Reuter.
SENDIHERRA Kólumbíu í Ung-
verjalandi, Enrique Parejo, varð
fyrir skotárás í Búdapest á
þriðjudagsmorgun og særðist
hann alvarlega.
Hin opinbera fréttastofa Ung-
vetjalands sagði að fimm byssukúl-
ur hefðu hæft sendiherrann, sem
varð fyrir árásinni er hann var að
koma út húsi sínu í Búdapest. Vitni
segja að maður nokkur hafi gengið
upp að sendiherranum og spurt
hann á spænsku, hvort hann væri
Parejo og skotið er svarið var já-
kvætt og síðan flúið á braut. Var
Parejo fluttur í skyndi á sjúkrahús
þar sem kúlurnar vom fjarlægðar
og er hann ekki talinn í lífshættu.
Ekki er vitað hver árásarmaðurinn
var, en ungversk yfirvöld segjast
hafa látið loka öllum landamærum
og sé árásarmannsins leitað ákaft.
Samtök er kenna sig við eitur-
lyfjasalann Hernan Botero Moreno
lýstu því yfir í Bogota, höfuðborg
Kólumbíu, eftir árásina, að þau
bæm ábyrgð á tilræðinu. Parejo
gegndi áður stöðu dómsmálaráð-
herra í stjórn Kólumbíu, tók við
árið 1984 er þáverandi dómsmála-
ráðherra var myrtur af eiturlyfja-
sölum og beitti hann sér þá m.a.
mjög gegn þeim er stunda sölu eit-
urlyfja. Höfðu honum borist
morðhótanir og er talið að hann
hafi m.a. verið skipaður í sendi-
herrastöðu í Ungveijalandi þar sem
hann var álitinn tiltölulega ömggur
þar.
Stars & Strípes fellir seglin er hún kemur í mark á undan New Zealand, sem sést í baksýn.
hún að sleppa belgseglinu, sem rifn-
aði. Við það missti hún ferð en tókst
síðan að vinna upp þriggja báts-
lengda forskot á fimmta áfanga
leiðarinnar. Tók Kookaburra fýrst
forystu við sjöttu bauju er siglt var
inn á sjötta og næst síðasta áfanga
leiðarinnar.
Sigur Stars & Stripes í gær er
11. sigur Dennis Conner í röð í
keppninni að þessu sinni. Árið 1983
tapaði hann sem kunnugt er
Ameríkubikarnum, en þá fór keppn-
in síðast fram. Var það fyrsti ósigur
bandarískrar skútu í keppninni í
135 ár. Fyrir ósigurinn 1983 hafði
Conner sigrað í keppninni tvisvar í
röð.
Ósigur New Zealand, sem er eini
báturinn í keppninni sem smíðaður
er úr trefjagleri, var þriðji ósigur
skútunnar í 40 lotum frá því keppn-
in hófst í október. Fyrir úrslita-
keppnina hafði New Zealand aðeins
tapað einu sinni. í öll skiptin hefur
hún lotið í lægra haldi fyrir Stars
& Stripes.
Á VILLER0Y & BOCH
FLISUM
Rýmum fyrir nýjum flísum, og seljum restar á tilboðsverði.
Nú er hægt að gera hagstæð kaup á hinum vinsælu Villeroy og
Boch vegg- og gólfflísum, með 15-50% afslætti.
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri.
RB.
BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.