Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
Lítum áfram á Sturlu
sem fræðslustjóra á
Norðurlandi eystra
Ályktun fundar skólastjórn-
enda og stjórnar Bandalags
kennara í Norðurlandi eystra,
haldinn á Akureyri 14. janúar
1987, en fundurinn samþykkti
^eftirfarandi:
Við sendum forsætisráðherra,
Steingrími Hermannssyni, mótmæli
við framferði menntamálaráðherra,
Sverris Hermannssonar, og ein-
dregnar óskir um að hann létti af
okkur rangindum þeim sem hér
hefitr verið beitt.
Ennfremur samþykkir fundur-
inn:
1. Við lýsum fullum stuðningi við
ákvörðun fræðsluráðs Nl-eystra
um að ákveða formlega um skip-
an og rekstur fræðsluskrifstofu
- þrátt fyrir bréf menntamála-
ráðuneytisins dags. 10. og 13.
janúar 1987.
2. Við skorum á starfsfólk skól-
^ anna í umdæminu að sýna
samstöðu með störfum Sturlu
Kristjánssonar fræðslustjóra —
og fulltrúum okkar — með því
að fella niður kennslu nk. fostu-
dag 16. janúar og halda fundi
um það ástand sem nú hefur
skapast.
3. Við lítum svo á að okkur sem
höfum staðið að þeirri skóla-
stefnu sem nú er tekist á um
sé með bréfi ráðherra tilkynnt
um að henni sé hafnað.
.4. Við heitum á stjóm Fjórðungs-
sambands Norðlendinga að
snúast af fullri hörku gegn
rangsleitni Sverris Hermanns-
sonar, þar sem Sturla Kristjáns-
son fræðslustjóri er látinn gjalda
samþykktar skólamanna — sem
þingmönnum Ni-e/stra var falin
í hendur með fullum trúnaði og
aldrei hefur af okkar hálfu verið
„gefin út“ né „opinberuð".
5. Við mótmælum brottvikningu
Sturlu Kristjánssonar úr starfi
fræðslustjóra og gerum kröfu til
þess að uppsagnarbréf dags. 10,
jan. 1987 verði dregið til baka
þegar í stað — enda ávirðingar
þess tilhæfulausar. Við gerum
einnig kröfu til þess að raka-
laust áminningarbréf dags. 21.
ágúst 1986 verði afturkallað.
6. Við lýsum yfir fullum stuðningi
við Sturlu Kristjánsson fræðslu-
stjóra og fullyrðum að störf hans
og málsvöm fyrir skólahald í
umdæminu hafa verið í sam-
ræmi við þann skilning sem við
leggjum í grunnskólalögin.
Við munum áfram líta á Sturlu
Kristjánsson sem fræðslustjóra á
Norðurlandi eystra.
Sent forsætisráðherra Steingrími
Hermannssyni, Fjórðungssambandi
Norðlendinga og FYæðsluráði Norð-
uriands-eystra.
Sturla Kristjánsson á skrifstofu fræðslustjórans á Akureyri í gær.
Morgunblaðið/Fríða Proppé.
Fræðslustjórinn talinn hafa
ítrekað brotið trúnaðarskyldu
„Áætlanir úr okkar umdæmi hafa verið skornar
óeðlilega mikið niður,“ segja norðlenskir skólamenn
í UPPSAGNARBRÉFI menntamálaráðherra, Sverrris Hermamisson-
ar, til Sturlu Kristjánssonar eru færð þau rök fyrir brottvikningunni,
að hann hafi „sniðgengið fyrirmæli ráðuneytisins, varðandi fjármála-
lega umsýslu í fræðsluumdæminu og ítrekað brotið trúnaðarskyldu
þá er á yður hvílir sem starfsmanni ráðuneytisins, m.a. með fram-
ferði yðar i sambandi við útgáfu greinargerðar um málefni fræðslu-
umdæmisins, dagsettrar í nóvember 1986, sem gerð var opinber
áður en ráðuneytinu hafði verið veitt tækifæri til að kynna sér efni
hennar og koma á framfæri leiðréttingum og athugasemdum.“
Greinargerð sú sem nefnd er í menntamálaráðherra, var inntur
og
uppsagnarbréfínu var stfluð á al-
þingismenn Norðurlandskjördæmis
eystra og dagsett í nóvember 1986.
Hún var samin af nefnd manna sem
kjörin var á fundi skólastjóra og
yfirkennara á Norðurlandi eystra
ásamt formönnum skólanefnda og
fræðsluráði. í nefnd þeirri sem
samdi skýrsluna voru ásamt Sturlu
Kristjánssyni þeir Benedikt Sig-
urðsson, skólastjóri á Akureyri,
Sverrir Thorsteinsson, skólastjóri
Stórutjamarskóla, Trausti Þor-
steinsson, forseti bæjarstjómar á
Dalvík og skólastjóri þar í bæ og
Þráinn Þórisson, formaður fræðs-
luráðs umdæmisins.
„Rógsplagg um
menntamálaráðherra“
Þegar Sverrir Hermannsson,
var
eftir þessari greinargerð, sagði
hann hana fyrst og fremst vera
„rógsplagg um menntamálaráð-
herra".
Greinargerðin er samin vegna
þess að lagt hafði verið fram fjár-
lagafmmvarp á Alþingi og „virðist
ljóst að áætlaðar fjárveitingar til
skólahalds í umdæminu koma ekki
til með að hrökkva svo að skóla-
starf geti gengið ótruflað og með
eðlilegum hætti allt þetta skólaár.
Ef að vanda lætur mun það bitna
á skólum í dreifbýli sem hafa heima-
vist eða eru með daglegan akstur
- eins og þegar hefur átt sér stað.“
Einnig er bent á í þessari greinar-
gerð, að menntamálaráðuneytið
hafí „ekki samþykkt sérkennslu í
almennum grunnskólum hér í um-
dæminu í svipuðu hlutfalli
Reykjavík".
Fræðslustjórum er ætlað að
áætla skiptingu nemenda i deildir
og nemendafjölda í einstök-
um árgöngum og önnur þau atriði
sem hafa áhrif á kennsluþörfina. í
greinargerðinni er kvartað undan
því að „ráðuneyti menntamála vé-
fengi þetta úrskurðarvald og
viðurkenni ekki þörf fyrir viðbótar-
kennslukvóta. . .“
Starfsfólk fræðsluskrifstofunnar:
Af ellisdómur um skóla-
stefnu Norðlendinga
STARFSFÓLK Fræðsluskrifstofu
Norðurlands eystra hefur sent frá
sér eftirfarandi ályktun vegna
brottvikningar Sturlu Kristjáns-
sonar fræðslustjóra frá störfum:
„Á undanfömum 10 árum hefur
mikil uppbygging átt sér stað á
Fræðsluskrifstofu Norðurlands
eystra. Uppbygging þessi hefur ein-
göngu miðað að því að þjóna skólum
umdæmisins á þann hátt, sem lög-
gjafinn ætlaðist til með setningu
laga um grunnskóla árið 1974. Ötul-
asti forgöngumaður þessa starfs
hefur verið Sturla Kristjánsson, í
nánu samráði við fræðsluráð um-
dæmisins og starfsfólks skrifstof-
unnar.
Starfsfólk Fræðsluskrifstofunnar
kom saman til fundar í morgun
vegna þeirrar stöðu, sem upp er
komin þegar menntamálaráðherra
hefur vikið Sturlu fyrirvaralaust úr
starfi.
Við höfum í bréfi til ráðherra
mótmælt þessari aðgerð hans, og
lýst þeirri skoðun okkar, að þau
vinnubrögð, sem hann hefur viðhaft
í máli þessu og alþjóð hefur orðið
vitni að, séu á engan hátt réttlætan-
leg.
Þær ástæður, sem ráðherra hefur
tilgreint fyrir þessu gerræði, sýnast
léttvægar og of almennar til að geta
staðist sem málefnaleg rök fyrir
jafnalvarlegri aðgerð og brottvikn-
ing háttsetts embættismanns er.
Það er skoðun starfsfólks, að
ákvörðun ráðherra um brottvikningu
Sturlu, sé áfellisdómur á þá skóla-
stefnu, sem allir aðilar, er málið
varðar hér í umdæminu, hafa verið
sammála um. Þannig varði þetta
mál ekki einungis Sturlu Kristjáns-
son og Sverri Hermannsson, heldur
sé hér um að ræða ýmsar grundvall-
arspumingar varðandi skólahald í
landinu öilu. Þetta varðar því alla
skólamenn, foreldra og nemendur.
Starfsemi Fræðsluskrifstofunnar
hefur grundvallast á samvinnu
starfsfólksins með Sturlu Kristjáns-
son sem oddamann, og ábyrgðarað-
ila fyrir rekstrarlegri framkvæmd
þeirrar stefnu, sem lög gera ráð
fyrir. Með brottvikningu Sturlu hef-
ur starfsemin því lamast og óvissa
ríkir um, hvað við tekur. Við höfum
í bréfí okkar til ráðherra lýst, hvað
við teljum nauðsynlegt að gerist
næst. Þangað til eru aðstæður slíkar,
að okkur er gert ókleift að sinna
störfum okkar af þeirri ábyrgð og
fagmennsku sem við öll teljum nauð-
synlegt. Ábyrgðinni á þessari stöðu
mála lýsum við á hendur ráðherra."
Kennarar í Menntaskólanum á
Akureyri hafa einnig ályktað um
málið:
„Fundur haldinn í Kennarafélagi
Menntaskólans á Akureyri miðviku-
daginn 14. janúar 1987, lýsirundrun
sinni og vanþóknun á þeirri harka-
legu ákvörðun menntamálaráðherra
að víkja Sturlu Kristjánssyni,
fræðslustjóra, úr starfi. Jafnframt
krefst fundurinn þess að ráðherra
gerir ítarlega grein fyrir ástæðum
brottrekstrarins á opinberum vett-
vangi."
Sérkennsluþörf fjórfalt
meiri í umdæminu en
ráðuneytið viðurkennir
Það atriði greinargerðarinnar
sem menntamálaráðherra hefur
gramist hvað mest fjallar um sér-
kennslu þroskaheftra báma. Þar
segir: „Við leyfum okkur að mót-
mæla þeirri hugsun sem býr að
baki skerðingu á framlögum til
þeirra bama sem eiga litla mögu-
leika án aðstoðar. en em ekki fær
um að kreijast réttar síns.“ Seinna
í greinargerðinni telja nefndarmenn
að greind þörf fyrir sérkennslu í
umdæminu sé nær fjórfalt meiri en
ráðuneytið hefur samþykkt. Einnig
sjá nefndarmenn ástæðu til að taka
það fram, að „heimiluð stuðnings-
og sérkennsla er ekki framkvæmd
í sumum öðmm umdæmum -
a) vegna skorts á kennurum -
b) vegna skorts á sérfræðiþjón-
ustu.“
Menntamálaráðherra hefur látið
í ljós undmn sína á því að skóla-
hald á Norðurlandi eystra fari
ítrekað fram úr fjárhagsáætlunum
og er vikið nokkmm orðum að þessu
atriði í greinargerðinni. Bent er á
að meðalkennari á Norðurlandi
eystra sé nokkm dýrari en gerist í
öðrum deifbýlisumdæmum og er í
því sambandi vísað til þess að
starfsréttindi og starfsaldur hafi
mikil áhrif á launakostnað. í um-
dæminu em samkvæmt því fleiri
kennarar með starfsréttindi en al-
mennt gerist í dreifbýli.
Nefndarmenn kvarta undan með-
ferð menntamálaráðuneytisins og
segja: „Ekki má líta fram hjá því
að til margra ára hafa áætlanir um
kennslukostnað hlotið misjafna
meðferð hjá menntamálaráðuneyt-
inu - að því er virðist - eftir því
hvaðan þær hafa komið (sbr. beiðn-
ir um sérkennslu). Aætlanir úr
okkar umdæmi hafa verið skomar
óeðlilega mikið niður og er því und-
arlegt að sjá því haidið fram að
ástæðan fyrir því að ráðuneytið
samþykkti ekki viðbót miðað við
eldri áætlanir sé sú að farið hafi
verið fram úr áætlunum undanfar-
inna ára.“
Síðar í greinargerðinni spyija
nefndarmenn „hvort það sé á vald-
sviði einstakra starfsmanna innan
ráðuneytis að trufla skólahald eins
og endurtekur sig ár eftir ár og
koma í veg fyrir að veitt sé þjón-
usta sem forsendur eru fyrir og
fræðslustjóri hefur áætlað - ekki
síst ef vinnubrögð af þessu tagi
virðast aðeins snúa að einu um-
dæmi.“
Áminning' vegna
trúnaðarbrots
í uppsagnarbréfí ráðherra til
Sturlu Kristjánssonar er vísað til
bréfs Menntamálaráðuneytisins frá
21. ágúst s.l. „þar sem yður er veitt
áminning vegna trúnaðarbrots í
starfi. . .“ Áminning þessi er veitt
vegna blaðamannafundar sem boð-
að var til á Fræðsluskrifstofu
Norðurlandsumdæmis eystra 14.
ágúst „þar sem komið var á fram-
færi við fjölmiðla upplýsingum er
fram koma í gögnum, sem yður
voru send sem starfsmanni Mennta-
málaráðuneytisins vegna fjárlaga-
gerðar næsta árs.“
Niðurlagsorð áminningarbréfsins
eru:
„Ráðuneytið telur þá framkomu
yðar að veita fjölmiðlum framan-
greindar upplýsingar óhæfa og
ósamrýmanlega stöðu yðar sem
fræðslustjóra Norðurlandsumdæm-
is eystra. Með vísan til 2. mgr. 7.
gr. laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 38 er yður
vegna þessa hér með veitt alvarleg
áminning."
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að þessari áminningu hafi
verið formlega mótmælt af Félagi
fræðslustjóra og það talið á mis-
skilningi byggt að upplýsingar þær
sem minnst er á í bréfinu hafí verið
trúnaðarmál.
Það hefur áður gerst að opin-
berum starfsmanni sé vísað frá
störfum með líkum hætti og Sturlu
núna. Það er nær algild regla að
slíkum málum sé vísað til dómstóla.
Aldrei hefur það þó gerst, eftir því
sem heimildir Morgunblaðsins
herma, að maður hafí verið dæmdur
aftur inn í fyrra starf sitt. Hins
vegar hefur það borið við að mönn-
um hafa verið dæmdar skaðabætur
vegna slíkra uppsagna.
Félag fræðslustjóra hefur óskað
eftir fundi með menntamálaráð-
herra um brottvikningu Sturlu
Kristjánssonar frá störfum.