Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
35
Sverrir Hermannsson,
menntamálaráðherra:
Sturla er ekki fær um
að stjóma skólahaldinu
Skólastjórar við upphaf fundarins i Lundaskóla á Akureyri síðdegis í gær.
Morgunblaðið/Fríða Proppé.
Einhugur á fundi skólastjórnenda og stjórnar Banda-
lags kennara í Norðurlandskjördæmi eystra í gær:
Skora á starfsmenn sína að
leggja niður kennslu á morgun
Fræðsluráðið tók yfir stjórn fræsluskrifstofunnar og
hundsar beiðni ráðuneytisins um breytta stjórnun
„ÞAÐ HEFUR verið stöðugur
stríðsrekstur gegn mér að norð-
an og því haldið fram að ég hefði
horn í siðu þessa fræðsluumdæm-
is og mér hefur verið núið þvi
um nasir hvað eftir annað að ég
vilji ekki veita peningum i sér-
kennslu barna sem eiga við ýmis
vandamál að etja,“ sagði Sverrir
Hermannsson menntamálaráð-
herra í gær þegar Morgunblaðið
leitaði álits hans á atburðarásinni
eftir að Sturlu Kristjánssyni var
vikið frá störfum.
„Ég endurtek, að það er fádæma
ósvífni að halda því fram að ég vilji
ekki láta kenna bömum sem eiga
bágt, þetta mál snýst ekki um það
fyrst og fremst og ég reyndi að
láta þessar blóðugu yfirlýsingar um
mig ekki hafa áhrif á ákvörðun
mína. Ég kannaði allar hliðar þessa
máls vandlega og þetta er niður-
staðan: Sturla Kristjánsson er ekki
fær um að stjóma skólahaldinu.
Ég viðurkenni að þetta var mér hið
versta verk, að víkja manni frá
störfum, en skyldan bauð mér að
framkvæmda þetta svona. Ég var
orðinn sannfærður um að við næð-
um engum tökum á skólamálum
umdæmisins með þessari stjóm
hans.“
Steingrímur Sigfússon, einn al-
Sjónvarp
Akureyri
DAGSKRÁ Sjónvarps Akureyri I
kvöld, fimmtudagskvöld, er svo-
felld:
Kl. 20.30 Teiknimyndir.Glæfra-
músin og Villi Spæta.
Kl. 21.10 íþróttir.íþróttaþáttur í
umsjón Heimis Karlssonar. Þáttur-
inn kemur frá Stöð 2.
Kl. 22.30 Bjargvætturinn (The
Equlizer) Robert McCall er bjarg-
vætturinn, og tekur að sér ýmis
verkefni til hjálpar náunganum.
Kl. 23.15 Hitchcock. Hér hafa
stuttar sögur meistarans gamla
verið færðar I kvikmyndabúning.
Kl. 00.00 Dagskrárlok.
„ÉG HEF lltið kynnt mér þetta
mál og býð eftir að ráðherra geri
betur grein fyrir því og þeim
ástæðum sem hann hefur fyrir
brottvikningu Sturlu,“ sagði Ingv-
ar Gíslason, alþingismaður og
fyrrverandi menntamálaráðherra.
„Ég finn hins vegar á viðtölum við
ýmsa norðanmenn, að Sturla Krist-
jánsson hefur víðtækan stuðning og
þeim norðanmönnum finnst að verið
sé að ráðast á ákveðna skólastefnu
Norðlendinga. Ég hef grun um að
ráðherra hafi lagt til atlögu við fleiri
en Sturlu með þessum aðgerðum
sínum," sagði Ingvar Gíslason.
Kolbrún Jónsdóttir:
Sverrir ætti að
líta sér nær
„MÉR FINNST þetta óskiljanleg
ákvörðun hjá menntamálaráðherra.
Ein ástæðan fyrir uppsögninni er Bögð
8Ú, að fræðslustjóri hafi farið fram
úr fjárhagsáætlunum, en það er nú
ekkert einsdæmi að menn fari fram
úr slíkum áætlunum. Sverrir ætti að
þingismanna kjördæmisins, hefur
hótað að leggja fram vantrausttil-
lögu á Sverri Hermannsson,
menntamálaráðherra, á Alþingi.
Hvemig lýst Sverri á það?
„Það eru nú kosningar framund-
an og ýmsar bumbur barðar sem
annars lægju utan garðs.
Steingrímur sagðist reyndar, í við-
tali í útvarpinu held ég, aðeins vera
að íhuga að leggja fram vantraust.
Ég skora hins vegar á alþýðubanda-
lagsmanninn Steingrím Sigfússon,
að hysja upp um sig og láta verða
alvöru úr þessari hótun sinni. Já,
ég mana hann,“ sagði menntamála-
ráðherra.
Sverrir Hermannsson telur frá-
leitt að það sé sök Menntamálaráðu-
neytisins að skólum hefur verið
lokað á Norðurlandi eystra vegna
fjárskorts. Hann segir allt stefna í
það, að rekstur skóla í umdæminu
árið 1986 komi til með að fara 12
milljónir fram úr áætlunum.
„Ástæðan er sú, að fræðslustjórinn
hefur gefið út miklu fleiri stöðugildi
en gert er ráð fyrir í áætlunum."
Norðanmenn hafa bent á að
grunnskólalögin segi fyrir um
ákveðna starfsemi í skólum sem
kosti einfaldlega meira en síðan er
veitt til reksturs skóla. „Já, það eru
ótal lög í landinu," segir Sverrir
Hermannsson. „Ég get t.d. bent á
lög um Kvikmyndasjóð, en allt frá
setningu þeirra laga hefur ekki ve-
rið hægt að veita fé í þann sjóð
eins og til stóð og skýr lagaákvæði
eru um. Það dettur samt engum í
hug að veita meira fé til kvikmynda-
gerðar en fjárveitingar leyfa. Menn
verða að taka mið af staðreyndum
og stjóma eftir því.“
Flestir þeir skólar sem stöðvast
hafa vegna fjárskorts, eða þar sem
það hefur legið við, eru í strjálbýli
og yfirleitt í fámennum og illa staeð-
um sveitarfélögum. Tólf milljóna
reksturshalli gæti orðið þessum
sveitarfélögum þungur baggi ef þau
þyrftu að borga hann. „Nei, auðvit-
að endar með því að ríkið borgar
þessar skammarskuldir, fátæk
sveitarfélög geta ekki risið undir
þessu, það er alveg ljós. Og Sturla
Kristjánsson ætlar sér sjálfsagt að
verða einhver frelsishetja í byggða-
pólitíkinni fyrir norðan út á þetta,“
sagði menntamálaráðherra.
líta sér nær í þeim málum, því 30.
september var aðalskrifstofa hans
ráðuneytis búin að fá 7,9 milljónir í
aukafjárveitingar vegna greiðsluerf-
iðleika. Ég get því ekki séð að þessi
rök hans fyrir brottvikningunni stand-
ist,“ sagði Kolbrún Jónsdóttir, al-
þingismaður Alþýðuflokks á
Norðurlandi eystra.
„Ég er einnig mjög hissa á því að
greinargerð um skólamál á Norður-
landi eystra, sem stfluð var sem
trúnaðarmál til okkar alþingismanna
kjördæmisins, sé notuð sem átylla
fyrir brottrekstri. Ekkert I þessari
greinargerð gefur tilefni til slíkra
aðgerða.
Þetta er mjög alvarlegt mál og ég
l(t á það sem aðför að landsbyggð-
inni.“
Koibrún' bætti því við að ef skoðuð
væru fjárlög næsta árs kæmi í ljós
að hækkun til grunnskóla næmi
22,2%, en hins vegar hækkuðu fram-
lög til aðalskrifstofu Menntamála-
ráðuneytis um 38,4%. „Þetta sýnir
kannski hug ráðherrans til mennta-
mála í landinu," sagði Kolbrún.
SAMSTAÐA virðist fullkomin
meðal skólamanna I Norður-
landskjördæmi eystra gegn
brottvisun menntamálaráðherra
á fræðslustjóra umdæmisins,
Sturlu Kristjánssonar. Þá er mik-
il ólga meðal almennings hér á
Akureyri vegna máls þessa. Á
fjölmennum fundi skólastjóra,
yfirkennara og stjórnar Banda-
lags kennara í kjördæminu
sídegis í gær var samþykkt sam-
hljóða harðorð ályktun með
beiðni til forsætisráðherra um
að hann aflétti uppsögninni. Þá
lýsti fundurinn yfir stuðningi við
ákvarðanir fræðsluráðs umdæm-
isins frá því fyrr í gær þess
efnis, að hundsa bréf ráðuneytis
um nýja skipan á stjórn fræðslu-
skrifstofunnar og auk þess
skorar fundurinn á skólamenn
að sýna samstöðu og fella niður
kennslu á morgun föstudag, en
nota tímann til að ræða málin.
Niðurlag ályktunarinnar er svo-
hljóðandi: „Við munum áfram
líta á Sturlu Kristjánsson sem
SteingTÍmur J.
Sigfússon:
Rannsóknarnefnd Al-
þingis ætti að rannsaka
málið
„ÞETTA ER yfirgengileg valdníðsla
af hálfu ráðherra og öll vinnubrögð í
þessu mali eru alveg forkastanleg,"
sagði Steingrímur J. Sigfússon, al-
þingismaður Alþýðubandalagsins.
„Það er verið að hengja Sturlu Krist-
jánsson fyrir það eitt að hafa staðið
framarlega í breiðfylkingu norð-
lenskra skólamanna. Stefna skóla-
manna á Norðurlandi virðist fara
svona í taugar menntamálaráðherr-
ans. Það sem verra er, er að þessi
brottvikning Sturlu er ekki eina málið
af þessu tagi í ráðherratíð Sverris
Hermannssonar, skemmst er að
minnast brottreksturs Siguijóns
Valdimarssonar, framkvæmdastjóra
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.“
Steingrímur vildi minna á að það
væri mjög alvarlegt mál þegar opin-
ber starfsmaður væri rekinn og til
fræðslustjóra á Norðurlandi
eystra."
Fundahöld hér á Akureyri hófust
þegar snemma í gærmorgun með
fundi starfsfólks fræðsluskrifstofu
umdæmisins, en skrifstofunum var
lokað vegna fundahalda í gær.
Fræðsluráð kom síðan saman til
fundar kl. 14 og stóð sá fundur
yfir þar til á sjöunda tímanum í
gærkvöldi. Formaður frasðsluráðs-
ins, Þráinn Þórisson, setti fundinn
með þeim orðum, að efni fundarins
væri aðeins eitt, þ.e. rangsleitnin
sem þeir hefðu verið beittir með
uppsögn fræðslustjórans. Hann
sagði ennffemur, að honum liði eins
og hann væri viðstaddur jarðarför
en ekki að setja fund.
Fulltrúar í fræðsluráði ræddu við
starfsmenn fræðsluskrifstofunnar
og m.a. var rætt við Úlfar Björns-
son skrifstofustjóra en Úlfari var
afhent í fyrradag bréf frá deildar-
stjóra menntamálaráðuneytis þar
sem þess var farið á leit við hann
að hann gegndi starfi fræðslustjóra
þar til nýr fræðslustjóri tæki við
þess þyrftu að liggja æmar ástæður,
afglöp eða afbrot, og hann kæmi ekki
auga á slíkt í þessu tilviki.
„Skólamenn á Norðurlandi hafa
verið ákveðnir í því að láta það ekki
viðgangast að skólastarf þar sé ekki
metið til jafns við aðra landshluta og
mér finnst að í framhaldi af þessum
ásökunum ráðherra um óráðdeild í
fjármálum þyrfti að rannsaka að-
stöðumun landshluta til skólahalds."
Steingrímur var spurður hvort
hann ætlaði að flytja vantrausttillögu
á menntamálaráðherra á Alþingi, eins
og hann gaf í skyn í viðtali við frétta-
mann Rikisútvarpsins. „Ég sagðist
myndu íhuga að flytja vantrausttil-
lögu eða gera aðrar svipaðar aðgerðir.
Ég er nú þegar búinn að óska eftir
utandagskrárumræðu um þetta mál
um leið og þing kemur saman. Eftir
að hafa kynnt mér ýmsa möguleika
til aðgerða hallast ég að því að flytja
tillögu um að þingið setji á fót rann-
sóknamefnd sem kanni þessi málsat-
vik öll. Þetta mál sýnir okkur vel
hversu staða einstaklinga er veik
gagnvart misbeitingu valds af þessu
tagi,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon.
eftir u.þ.b. fimm vikur. Fræðsluráð-
ið ogÚlfar sendu menntamálaráðu-
neytinu sitt hvort símskeytið í lok
fundarins í gær. Fræðsluráðið til-
kynnir í sínu skeyti að þeir mótmæli
harðlega bréfi ráðuneytis varðandr
skipan verkefna fræðslustjóra og
tilkynnir að það telji ráðuneytið
ekki geta mælt fyrir um verkefni
skrifstofunnar án atbeina fræðslu-
ráðsins. Úlfar tilkynnir ráðuneytinu
í sinu skeyti, að hann líti svo á að
það sé mál fræðsluráðs að ráðstafa
starfí sínu og því hafiii hann bréfi
ráðuneytis þar sem hann sé beðinn
að taka að sér störf fræðslustjóra
tímabundið.
Fræðsluráð sendi menntamála-
ráðherra bréf í lok fundarins þar
sem það lýsir m.a. yfir fullri ábyrgð
á störfum fræðslustjóra og tilkynn-
ir að það muni veita fræðsluskrif-
stofunni forstöðu á meðan það
ástand vari sem nú hafi skapast. í
fréttatilkynningu sem gefin varút í
lok fundarins segir m.a. að fræðslu-
ráð óttist, að þessi geðþóttaákvörð-
un ráðherra, eins og uppsögnin er
kölluð, kunni að stefna í tvísýnu
þeirri skólastefnu sem markvisst
hafí verið unnið að og mótuð er í
grunnskólalögum.
Mikill hiti var í mönnum á fundi
skólastjóra, yfirkennara og forustu-
manna kennara, en fundurinn hófst
kl. 16 í Lundaskóla hér á Akur-
eyri. Menn voru þar stóryrtir og
auk framantalinna atriða úr ályktun
fundarins heita þeir á stjóm Fjórð-
ungssambands Norðlendinga, „að
snúast af fullri hörku gegn rang-
sleitni Sverris Hermannssonar, þar*
sem Sturla Kristjánsson fræðslu-
stjóri er látinn gjalda samþykktar
skólamanna, sem þingmönnum
Norðurlands eystra var falin í hend-
ur með fullum trúnaði og aldrei
hefur af okkar hálfu verið „opin-
beruð". Þá gera þeir einnig kröfu
til þess að „rakalaust áminningar-
bréf verði afturkallað." Ályktunin
var í gærkvöldi send forsætisráð-
herra, Fjórðungssambandi Norð-
lendinga og fræðsluráði Norður-
lands eystra.
Menn ræða hér nokkuð um áhrií
þessa á stjómmálalífið hér í kjör-
dæminu. I viðtölum við formenn
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins
og fulltrúaráðs flokksins hér á Ak-
ureyri í gær kom fram, að mál þetta
verður tekið fyrir á fundum með
þingmönnum kjördæmsins strax á
næstu dögum.
Ingvar Gíslason:
Sturla hefur víðtækan stuðning