Morgunblaðið - 15.01.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Tölvunarfræðingar/
Kerfisfræðingar
Óskum eftir að ráða starfskrafta í forritunar-
deild. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af
forritun með COBOL. Við leitum að starfs-
sömu fólki með góða framkomu sem unnið
getur sjálfstætt að fjölbreytilegum verkefn-
um. Starfið felst í þjónustu og ráðgjöf við
ört vaxandi viðskiptamannahóp ásamt þróun
og nýsköpun tölvukerfa. Við bjóðum góða
vinnuaðstöðu, ágætan starfsanda og laun í
samræmi við afköst og getu.
Skriflegar umsóknir sendist undirrituðum fyr-
ir 26. janúar.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál
og öllum umsóknum svarað.
Tölwumiðslöðin hf
Höföabakka 9. Sími 85933.
Ritvinnslukennarar
Óskum eftir að ráða kennara til að kenna á
námskeiðum ritvinnslukerfin „Orðsnilld" og
„Word“.
Kennaramenntun æskileg. Góð laun í boði.
Nánari upplýsingar í síma 686790.
Tölvufræðslan
Umbúða-
framleiðsla —
framtíðarstörf
Kassagerð Reykjavíkur hf. óskar eftir starfs-
mönnum til stillingar og keyrslu á iðnaðarvél-
um. Við leitum að traustum og heilsugóðum
mönnum sem vilja ráða sig í framtíðarstörf
hjá góðu og traustu fyrirtæki. Æskilegur ald-
ur 30-55 ára. Gott mötuneyti er á staðnum.
Þeir sem áhuga hafa á störfum þessum hafi
samband við Þóru Magnúsdóttur milli kl.
13.00 og 15.00. Fyrirspurnum ekki svarað í
síma.
Kassagerö Reykjavíkur hf.
KLEPPSVEGI33 - 105 REYKJAVÍK -S.38383
Sölustjóri — bókari
Útflutningsfyrirtæki á sjávarafurðum óskar
eftir að ráða í eftirtalin störf:
A) Sölustjóra: Nauðsynlegt er að umsækj-
andi hafi góða tungumálakunnáttu auk
staðgóðrar þekkingar á fiskvinnslu og fisk-
mörkuðum.
B) Bókara: Starfið felst í umsjá og upp-
færslu bókhalds, útborgun reikninga, auk
almennra skrifstofustarfa.
Upplýsingar er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 20. janúar merktar: „Abyrgð — 1992 “.
Garðbæingar
— atvinna
Starfsstúlkur vantar í áfyllingu og á kassa
hálfan eða allan daginn.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra.
Garðakaup,
Garðabæ.
Off setskeyti ngar-
maður
Óskum að ráða offsetskeytingarmann fyrir
einn af viðskiptavinum okkar. Umsækjandi
þarf að hafa reynslu á sviði litaskeytingar.
í boði er góð vinnuaðstaða þar sem vinna
4-5 menn.
Þeir sem hafa áhuga á þessu starfi sendi
okkur upplýsingar um nafn, aldur og fyrri
störf fyrir 21. þessa mánaðar. Fullum trún-
aði heitið.
Hvati f
Pósthólf 11024
131 Reykjavík
sími 91-72066
Rekstrarráðgjöf
Kostnaðareftirlit
Hönnun — Þróun
Útboð — Tilboð
Viöhaldskerfi
Verkskipulagning
Afgreiðslufólk
óskast nú þegar
1. Stúlkur heilan og hálfan daginn til
almennra afgreiðslustarfa.
2. Pilt til lagerstarfa.
3. Kjötafgreiðslumann.
Allar frekari upplýsingar eru gefnar í verslun-
inni Austurstræti 17.
Víðir.
Tækjastjóri
Viljum ráða vanan tækjastjóra til starfa í
Færeyjum.
Upplýsingar í síma 622700.
Istak,
Skúlatúni 4.
Fiskvinnsla í Hrísey
Óskum eftir að ráða starfsfólk til almennra
starfa sem fyrst.
Allar upplýsingar gefur verkstjóri í síma
96-61710.
Fiskvinnslustöð KEA,
Hrísey.
Top-10cíub
Unglingaskemmtistaðurinn Top-10 club
óskar að ráða fólk í eftirtaldar stöður: Fata-
hengi, dyravörslu, sjoppu, diskótek og
ræstingar.
Upplýsingar í dag í Ármúla 20 millí kl. 17.00
og 20.00.
Byggingavörur
Afgreiðslustörf
Hafnarfjörður
Afgreiðslumaður óskast til starfa nú þegar
í byggingavöruverlsun okkar.
Umsóknum skal skila á skrifstofuna eða í
pósthólf 208 fyrir 25. janúar.
Skipasmíðastöðin Dröfn hf.,
Strandgötu 75,
220 Hafnarfirði.
BESSASTAÐAHREPPUR
____ SKRIFSTOFA. BJARNASTÖÐUM SÍMI: 51950
221 BESSA S TA DA HREPPUR
Starfskraft
vantar við leikskóla og gæsluvöll Bessa-
staðahrepps, hálfan eða allan daginn.
Æskilegt væri að umsækjandi gæti hafið
störf sem fyrst.
Upplýsingar á skrifstofu Bessastaðahrepps
í síma 51950.
Sveitarstjóri Bessastaðahrepps.
Frá menntamálaráðuneytinu
Laus staða
Staða fræðslustjóra í Norðurlandsumdæmi
eystra er laus til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík
fyrir 15. febrúar nk.
Menntamálaráðuneytið,
14.janúar 1987.
Fiskvinnsla
Okkur vantar starfsfólk í allar deildir fisk-
vinnslu strax eftir verkfallslok.
Við höfum ágætis mötuneyti og verbúðir.
Hvernig væri nú að slá til og skella sér á
vertíð til Hornafjarðar.
Upplýsingar t síma 97-81200.
KASK, fiskiðjuver,
Höfn, Hornafirði.
Byggingaverka-
menn
Vantar nú þegar nokkra byggingaverkamenn.
Mikil vinna framundan.
Uppl. í símum 34788 og 685583 fimmtudag
og föstudag frá kl. 9.00-17.00.
(?S>Steiiiitakhf
byggingaverktaki,
Bíldshöfða 16— 112 Reykjavík.
Almenn
skrifstofustörf
Hugbúnaðarfyrirtæki óskar eftir áhugasöm-
um starfsmanni í fullt starf frá og með 1.
febrúar. Þarf að hafa bifreið til umráða.
Umsóknir með greinargóðum upplýsingum
sendist til auglýsingadeildar Mbl. merkt:
„H — 38“ fyrir 23. janúar.
Stýrimaður
Stýrimann vantar á Æskuna SF 140 á kom-
andi vetrarvertíð.
Upplýsingar í síma 97-81498.
Starfsfólk óskast
í þurrfiskverkun í Hafnarfirði. Hálfsdags störf
koma til greina.
Upplýsingar í síma 54871 eftir kl. 19.00.