Morgunblaðið - 15.01.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1987
39
GJALDSKRÁ
FYRIR SÍMA-
ÞJÓNUSTU
eftir Guðmund
Björnsson
í tengslum við nýgerða kjara-
samninga og afgreiðslu fjárlaga
hafa nú undanfarið farið fram mikl-
ar umræður um gjaldskrár opin-
berra þjónustufyrirtækja og þá
stefnu stjórnvalda að hækkanir á
opinberri þjónustu í heild verði ekki
umfram almenna verðlagsþróun í
landinu.
Meðal þeirra þjónustufyrirtækja
sem ekki hafa fengið umbeðnar
gjaldskrárhækkanir nú nýverið er
Póst- og símamálastofnunin og
ætla ég af þeim ástæðum í fáeinum
orðum að víkja að þeim breytingum
á gjaldskrá fyrir símaþjónustu sem
átt hafa sér stað undanfarin ár.
Gjaldskrá fyrir símaþjónustu inn-
anlands hafði ekki hækkað frá 1.
ágúst 1983 til 1. jan. 1987. Þann
1. júlí 1985 varð hins vegar veruleg
lækkun á nokkrum helstu þjónustu-
liðum hennar. Má nefna að þá
lækkaði afnotagjald fyrir síma úr
575 kr. í 530 kr. eða um 7,8%,
verð fyrir umframskref lækkaði úr
1,35 kr. í 1,20 kr. eða um 11,1%
og afnotagjald fyrir telexþjónustu,
þ.e. númer í stöð og bæjarlínu, úr
6.668 kr. í 1.725 kr. eða um 74,1%.
Að meðaltali var þessi lækkun um
9%.
1. jan. sl. hækkaði gjaldskrá fyr-
ir símaþjónustu að meðaltali um
10%. Þannig hækkaði afnotagjald
fyrir síma í 585 kr. og gjaldið fyrir
umframskref í 1,32 kr. Hækkunin
er þó ekki meiri en svo að gjaldskrá-
in er nú nokkurn veginn sú sama
og 1. ágúst 1983 eða fyrir 41 mán-
uði og er því um mikla raunlækkun
að ræða.
Gjaldskrárbreytingar fyrir síma-
þjónustu milli landa eru nær
Guðmundur Björnsson
„Ég tel hins vegar stór-
varasamt að leg-gja út á
þá braut að fjármagua
dagiegan rekstur opin-
berra þjónustufyrir-
tækja, eins og Pósts og
síma, með erlendum
lántökum enda rekstri
þessara fyrirtækja og
uppbyggingu þá stefnt
í bráða hættu.“
eingöngu háðar breytingum á gengi
og samningum milli símastjórna um
breytingar á gjöldum, ýmist til
hækkunar eða lækkunar. Aðrar for-
sendur eru því fyrir verðlagningu
símaþjónustu milli landa heldur en
innanlands.
Talsímaþjónusta til útlanda
hækkaði 10. jan. sl. um 11% að
meðaltali þrátt fyrir um 20% hækk-
un á gengi SDR frá síðustu gjald-
skrárbreytingu. Var hækkunin
þannig verulega lægri en breyting
á gengi SDR, vegna samkomulags
flestra símastjóma um lækkun á
ákveðnum liðum í kostnaðargrund-
velli. Hækkanir hafa því orðið á
símtölum til útlanda á þessu tíma-
bili, þótt ekki séu þær stórvægileg-
ar. Sem dæmi má nefna að
sjálfvirkt símtal í 1 mínútu til Norð-
urlandanna, sem kostaði í sept.
1983 29 kr., kostaði í lok síðasta
árs 34 kr. og hækkaði 10. jan. sl.
í 38 kr. Það hefur því aðeins hækk-
að um 31% á 40 mánuðum. 1 mín.
símtal til Englands sem kostaði í
sept. 1983 35 kr. kostar nú 43 kr.
og hefur því aðeins hækkað um 23%
á tímabilinu og 1 mín. símtal til
Bandaríkjanna, sem kostaði 65 kr.
í sept. 1983, kostar nú eftir hækk-
unina 85 kr. og hefur því hækkað
um 31% á tímabilinu. Söluskattur
er innifalinn í fyrrnefndum milli-
landagjöldum.
A þessu tímabili hefur gengi
uppgjörsgjaldmiðilsins hækkað um
68%, en af því má sjá að um allveru-
lega raunlækkun á símtölum til
útlanda er að ræða.
Ef gerður er samanburður á
breytingum afnotagjalds síma og
verði fyrir umframskref annarsveg-
ar, en það eru þau símagjöld sem
vega þyngst hjá öllum almenningi,
og nokkrum þjónustugjöldum og
vísitölum hinsvegar, kemur í Ijós
að hækkanir á símagjöldum eru
verulega lægri en á þessum gjöld-
um. Ef tekin eru sl. 5 ár, sjá mynd
1, þá hefur lánskjaravísitala, sem
er samsett úr framfærsluvísitölu og
byggingarvísitölu, hækkað um
415%, launavísitala um 338%, gengi
SDR um 421%, áskrift dagblaðs um
400%, húshitun í Reykjavík um
675% og afnotagjald sjónvarps um
377% meðan skrefagjaldið hefur
hækkað um 193% og afnotagjaldið
um 204%.
Ef aðeins eru teknar verðbreyt-
ingar sl. 3 ár þá er munurinn enn
meiri, sjá mynd 2, en þar kemur
fram m.a. að meðan lánskjaravísi-
talan hefur hækkað um 85%,
launavísitalan um 110%, afnota-
gjald sjónvarps um 84% og húshitun
í Reykjavík um 78% hefur afnota-
gjald fýrir síma aðeins hækkað um
2% og verð á umframskrefi lækkað
um 2%. Geri aðrir betur.
Eg valdi einnig að taka til saman-
burðar í báðum tilvikum áskriftar-
verð dagblaða, en í þeirri miklu
samkeppni sem er á fjölmiðlamark-
aðinum lifa ekki nema vel rekin
fyrirtæki sem halda rekstrarkostn-
aði og þjónustugjöldum sínum í
lágmarki.
Það er ljóst á þessum saman-
burði að framlag Pósts og síma til
baráttunnar gegn verðbólgunni er
óumdeilanlegt og mættu ýmsir aðil-
ar líta sér nær í því sambandi. Þar
sem t.d. lánskjaravísitalan er sam-
sett úr mörgum þáttum er ljóst að
ef einstakir liðir hækka minna en
vísitalan hafa aðrir liðir hækkað
meira, þar sem vísitalan sýnir vegið
meðaltal þessara hækkana í heild.
Nú kann einhver að spyrja hvern-
ig það sé hægt að hækka gjaldskrá
fyrir símaþjónustu á þessu tímabili
ekki meira en raun ber vitni?
Eins og kunnugt er hefur verð-
bólgan gengið allverulega niður,
vextir hafa lækkað, gengjð hefur
verið stöðugra en áður, arðsemi
fjárfestinga hjá stofnuninni undan-
farin ár er að koma í ljós ásamt
aukningu viðskipta í flestum þjón-
ustugreinum. Auk þess hefur
hagræðingu verið beitt í rekstri.
Þá hafa aðflutningsgjöld af íjárfest-
ingaefni verið felld niður og munar
um minna. Allt á þetta sinn þátt í
því að unnt hefur verið að halda
gjaldskrárhækkunum hjá stofnun-
inni niðri undanfarin ár. Margt af
þessu á auðvitað einnig að koma
til góða í öðrum rekstri og endur-
speglast í gjaldtöku einkafýrirtækja
á sama hátt og hjá opinberum fyrir-
tækjum.
Um síðustu áramót var þó svo
komið að nauðsynlegt var að hækka
gjaldskrá fyrir simaþjónustu nokk-
uð. Við lokaafgreiðslu fjárlaga hafði
verið metið, að til að endar næðu
saman hjá stofnuninni greiðslulega,
vegna áætlaðs greiðsluhalla 1986
upp á 170 millj. kr., og vegna árs-
ins 1987, að gjaldskrá fyrir síma-
þjónustu þyrfti að hækka um 16%
l.jan. 1987 oggjaldskrá fýrirpóst-
þjónustu um 26% frá 1. febr. Þetta
var eftir að biýnar fjárfestingar hjá
stofnuninni höfðu verið skornar nið-
ur í 462 millj. úr rúmum 600 millj.
kr. Við það var m.a. gengið svo
hart fram að búast má við númera-
skorti á vissum stöðum á landinu
síðari hluta þessa árs. Þá er rétt
að hafa í huga að gjaldforsendur
fjárlaga eru að venju í veikara lagi.
Má búast við að tekjuþörfin hafí
verið vanmetin þannig að þær áætl-
anir sem gerðar voru um gjald-
skrárhækkanir eru í lágTnarki.
Eftir að fjárlög höfðu.verið sam-'
þykkt á þessum grundvelli gerðist
það, að ríkisstjómin lét því miður
undan þrýstingi aðila vinnumarkað-
arins varðandi opinberar gjaldskrár
og var nú ákveðið, að gjaldskrá
fyrir símaþjónustu skyldi aðeins
hækka um 10% að meðaltali þann
1. jan. sl. Það í reynd gerir lítið
betur en að vinna upp áætlaðan
greiðsluhalla ársins 1986. Hvemig
er svo ætlunin að afla viðbótartekna
fyrir árið 1987? Jú, enn einu sinni
á að brúa þörfina fyrir gjaldskrár-
hækkanir með lántökum og mí?
ætla að nauðsynlegt verði að taka
a.m.k. 150 millj. kr. að láni í þessum
tilgangi. Þá hefur verið tekið tillit
til væntanlegra hækkana á póst-
burðargjöldum.
I sjálfu sér er ekki óeðlilegt að
hluti af íjárfestingum sé fjármagn-
aður með lánsfé sérstaklega ef
fjárfestingar eru umfram eðlilegar
afskriftir. Ég tel hins vegar stór-
varasamt að leggja út á þá braut
að fjármagna daglegan rekstur op-
inberra þjónustufyrirtækja, eins og
Pósts og síma, með erlendum lán-
tökum enda rekstri þessara fyrir-
tækja og uppbyggingu þá stefnt í
bráða hættu.
Hér býr sjálfsagt að baki velvilji
ríkisstjórnarinnar og jákvæð af-
staða til nýgerðra kjarasamninga,
en er tæplega hugsað til enda. Stað-
reyndin er sú að lántökur í fyrr-
neftidum tilgangi koma símnotend-
um í koll síðar í hækkuðum
þjónustugjöldum, því af lánum þarf
að greiða bæði vexti og lántöku-
kostnað. Auk þess er það ekki
gæfulegt fyrir efnahagslífið í
landinu að opinber fyrirtæki og
reyndar ríkissjóður líka séu rekip
með halla og allra síst á þenslutím-
um og spuming hvort það er ekki
of dýru verði keypt ef það á að
vera grundvöllur vinnufríðs í
landinu.
Höfundur er aðstoðarpóst- og
símamálastjóri.
AQ
PŒ
8IgfflSp
Aðalfundur Félags ísl. stórkaupmanna
verður haldlnn flmmtudaglnn 29. janúar
nk. á Hótel Sögu, ráðstefnusal A, og
hefst kl. 10.30.
DAGSKRÁ SKV. FÉLAGSLÖGUM:
1. Fundarsetning.
2. Ræða formanns, Torfa Tómassonar.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Lagöir fram endurskoöaöir reikningar
félagsins.
HADEGISVERÐUR:
Dr. Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Kaupþings
hf., flytur erindi um þróun fjármagnsmarkaðar og
erlend áhrif og svarar fyrirspurnum.
5. Fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár og ákvörðun árgjalda.
6. Greint frá starfsemi Lifeyrissjóðs verslunarmanna og Fjár-
festingarsjóös stórkaupmanna.
7. Kosning formanns.
8. Kosning þriggja stjórnarmanna.
9. Kosning tveggja endurskoöenda og tveggja til vara.
10. Kosið í fastanefndir.
11. Ályktanir.
12. Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til aÖ fjölmenna og skrá þátttöku sina
áskrifstofu F.Í.S. isima 10650eöa 27066fyrirld. 12.00miö-
vikudaginn 28.janúarnk.
FÉLAG ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA