Morgunblaðið - 15.01.1987, Síða 50

Morgunblaðið - 15.01.1987, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987 Þijú stórhneyksli eftirJens íKaldalóni Það gaf heldur á að líta eða hitt þó heldur á fyrsta kvöldi nýja árs- ins 1987 er maður í miklum fögnuði opnaði sjónvarpið til uppörvunar og sálubótar eftir allar kveðjur gamla ársins með flugeldaskotum og fagn- aði kvöldinu áður. Þulurinn varar mann við að bömunum blessuðum sé ekki aetluð sú munaðarkvöld- stund að horfa á það, sem útdeila ætti til sálarheilla og skemmtunar þetta fyrsta kvöld ársins 1987 og á skjánum blasa við manni tvær allsberar manneskjur í öllum þeim svæsnustu klámstellingum, sem út kunna einir að færa okkar háþróuðu listskapendur, þar sem með opin ginin, svo sem soltnir gauksungar í hreiðri sínu gapa á móti maðki sér til saðningar í gráðugum hama- gangi, sleikja hvert annað. Slíkur óþverri gat ekki nokkrum siðuðum manni orðið til annars en sárinda og kvalar á helgri kvöldstund ný- byrjaðs árs og enda alla daga haft á því skömm, fyrirlitningu og ama, og í framhaldi af því mikla fári, sem loksins hafði um sig gripið meðal siðgæðispostula þessarar þjóðar, að nýbúið var að hirða hundruð eða þúsundir klámmynda hjá hinum ýmsu myndbandaleigum, að fæst- um datt í hug að slíkum óþverra sem þessum yrði sjónvarpað til ynd- isauka út um allar byggðir þessa lands og mikið að ekki var sent út á sjálfa jólanóttina. En hvað á svo að gera við bless- uð bömin og unglinga á meðan allur djöfulskapurinn blasir við á skján- um ef ekki mega þau horfa á það sem í boði er? Á að binda fyrir augu þeirra eða setja þau í ein- hvem gapastokk sér til afþreyingar um sjálfa nýárshelgina eða hvað? Jens i Kaldalóni I x. Opið aila virka daga fra kl. 8:00 - 18:00 Laugardaga fra kl. 9:00 - 12:00 Inniaðstaða fyrir alla bíla 'u inii.iU'HiALhU. NÝOG BETRIINNIAPSTAÐA FYRIR RAFGEYMA- ÞJONUSTUNA PÓLAR HF. CHLOR1DE Einholti 6, s. 18401,105 Reykjavík. TREYSTU CHLORIDE • OKKAR REYNSLA ER ÞÍN TRYGGING Áratuga reynsla Pólar hf. hefur 35 ára reynslu í sölu rafgeyma og þjónustu við bifreiðaeigendur. Okkar reynsla er þín trygging. Ókeypis þjónusta Við yfirförum rafgeymi bifreiðarinnar þér að kostnaðarlausu og bendum á hvað betur má fara. Chloride rafgeymar Chloride verksmiðjurnar hafa löngum verið í fararbroddi framleiðenda á rafgeymum. Chloride rafgeymar hafa sérstakt kaldræsiþol og þola ótrúlega vel mikið álag. Chloride Ultra Start rafgeymar Vökvalausu rafgeymarnir frá Chloride heita Ultra Start. Þeir hafa reynst sérstaklega vel við íslenskar aðstæður og eru sannkallaðir þrumuræsar á köldum vetrardögum. Inniaðstaða fyrir alla bíla Nú getum við tekið stóra jafnt sem litla bíla í hús, til viðhalds og endurnýjunar á rafgeymum þeirra. Og auðvitað kitlar það forvitni þeirra og spennu, að mega ekki sjá það sem sjónvarpið á að gleðja landslýðinn með og ekki síst á þeim dögum og stundum, sem ástæða væri til að ætla, að ekki bæri þetta háþróaða menningartæki okkar á borð fyrir landslýð allan, það sem allir mættu ekki sjá. Það er ekki svo mikið um skemmtiatriði víðast út um landsbyggð alla, að hægt sé að skipta íjölskyldunni með góðu móti í margar einingar eða stía henni í sundur, þar sem forboðnar klám- og kjaftamyndir eiga að prýða huga manns og heimili, en jafnvel þótt fullorðnir séu býður þeim við að horfa á og vita í ná- lægð sinni jafnógeðfelldan ófögnuð og þarna var á borð borinn. Ég vil svo sannarlega segja eins og mað- urinn, að nóg væri komið af klámmyndum á árinu, sem var að líða, þótt ekki væri fitjað uppá slíkum óþverra á nýársdagskvöldi. Nú veit ég ekkert hver hefur staðið fyrir því að sjónvarpa þess- ari ógeðslegu mynd — en hitt er víst — að hafí sá er þar réð nokkra mannlega siðgæðistilfínningu til að bera — þá á hann að segja af sér því starfi hið snarasta og biðja landsfólkið fyrirgefningar á van- hæfni sinni til að gera góða hluti, því fleirum en mér bauð við óþverr- anum. Annað Það þarf ekki að segja lands- mönnum frá hinu svokallaða okurmáli, svo kunnugt er það orðið í tilveru líðandi árs og ekki skal ég fara hér að kryija það mál til mergj- ar, sem þó svo sannarlega væri ástæða til að gera frá mörgum raunhæfum sjónarhomum. En hér og nú, þegar æðsti dómstóll lands- ins dæmir þessa gerð alla á lögmætan hátt vegna þess, að hann hafí ekkert það í höndum sér sem til sakar megi eftir dæma þá menn, sem hlut eiga að máli, þá verður manni á að hljóðna í einskonar tómarúmi tilverunnar og þá horf- andi á æðstu menn þjóðarinnar klagandi hver annan í vanhæfni gerða sinna, sem handhafar valds- ins til að láta lög og reglur þessa lands vera í gildi. Það mætti langt mál um þetta rita, sem þó hér verður látið hjá líða nú. En ef að þeir menn, sem nú og áður gapa mest um frelsi og fijálsa vexti, gerðu sér nokkra minnstu grein fyrir því hve stórt mál hér er um að ræða og byggðu á einhverri reynslu af þeim áhrifum sem óheft vaxtaokur getur haft, og hefur haft á afkomu einstakl- inga og fyrirtækja, og hvað vaxta- okur hefur lamað og kollvarpað allri starfsemi til lífsins bjargar undan- fama áratugi, sem svo liggja fyrir um ótal dæmi, þá get ég ekki hald- ið, að ekki hugsuðu sig tvisvar um, áður en mæltu með óheftum og fijálsum vöxtum. Ég sagði einhvern tímann í blaða- grein, að þótt þessi ríkisstjórn hefði ekkert annað gert en að lækka þá okurvexti, sem hér hafa ríkt undan- fama áratugi, þá hefði það eitt og sér orðið það heljarstökk til betri vegar allri athafnastarfsemi þjóðar- innar, að til straumhverfa mætti kalla, enda hefur sú reynslan orðið. En nú gapa okkar ágætustu for- svarsmenn út í koldimma nóttina í þenkingum sínum, hvað hafí eigin-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.