Morgunblaðið - 25.01.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR 6
STOFNAÐ 1913
20.tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 25. JANUAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Miðstjóm-
arfundur
ákveðinn
Moskvu, Reuter.
MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna, tilkynnti í gær í
ræðu að miðstjórn kommúnista-
flokksins kæmi saman til fundar
á þriðjudag.
Fundi þessum hefur verið frestað
í tvo mánuði. Búist er við að Dinm-
ukhamed Kunayev, sem þegar
hefur verið vikið úr embætti flokks-
formanns í Asíulýðveldinu Kazakhst-
an, verði nú formlega vikið úr
stjórnmálaráði flokksins.
Hundur-
inn var
samsekur
Chicago, AP.
MAÐUR einn rændi skyndi-
bitastað í Chicago-borg í
gær og naut við það dyggr-
ar aðstoðar bolabíts, sem
með var í fðr. Ræninginn
brá sér aukinheldur í
þjónslíki meðan á ráninu
stóð og hitaði samloku fyrir
einn viðskiptavininn.
Að sögn lögreglu ruddist
maðurinn inn á skyndibitastað-
inn og sigaði hundinum á
manninn sem var á næturvakt.
Hundurinn læsti hvössum tönn-
um sínum í læri mannsins og
ræninginn særði hann hnífi. Því
næst læsti hann starfsmanninn
inni í heroergi einu og skipaði
honum f.ð afklæðast.
í þá mund sem ræninginn
hafði náð 170 dollurum úr pen-
ingakassanum vatt maður einn
sér inn á staðinn og pantaði sér
samloku. Ræninginn útbjó hana
samviskusamlega og jók þar
með ránsfenginn um tvo dali.
Því næst tók ræninginn á rás
ásamt hundinum. Báðir voru
handteknir nokkrum mínútum
síðar.
FERÐ AN FYRIRHEITS
Morgunblaðið/Rax
Kosningar í V-Þýskalandi:
Helmut Kohl talinn
öruggur sigurvegari
Bonn, AP.
VESTUR-Þjóðveijar ganga í
dag að kjörborðinu og er búist
við því að kjósendur láti efna-
hag sinn ráða hvernig þeir
veija atkvæðum sínum. Helmut
Kohl kanslara er spáð stórsigri
í kosningunum.
í síðustu skoðanakönnun All-
ensbach-stofnunarinnar kom fram
að flokkur kristilegra demókrata
(CDU) og bróðurflokkur hans í
Bæjaralandi (CSU) nytu 44 pró-
senta fylgis og fijálsir demókratar
(FDP) 10,4 prósenta fylgis. Þessir
tveir flokkar starfa nú saman í
samsteypustjóminni í Bonn.
í könnuninni var því spáð að
jafnaðarmenn fengju 35,3 prósent
atkvæða. Það væri minnsta fylgi,
sem þeir hafa notið síðan árið
Grænlendingar íhuga málshöfð-
un á hendur grænfriðungum
- sem sögðu uppstoppað náhveli vera útflutning á hvalkjöti
Kaupmannaliöfn. Frá N. J. Bruun, Grænlandsfréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKA landsstjórnin er
að íhuga að höfða skaðabótamál
á hendur grænfriðungum og öðr-
um umhverfisverndarfélögum,
sem borið hafa Grænlendinga
upplognum sökum. Er þetta haft
eftir Moses Olsen, sem fer með
fiskveiðimál í landstjóminni.
Forsaga málsins er sú, að í fyrri
viku skýrðu grænfriðungar svo frá,
að Grænlendingar hefðu brotið lög
með því að flytja 1100 kíló af hval-
kjöti til Japans. Kæmi það fram í
japönskum innflutningsskýrslum en
Grænlendingar hafa aðeins leyfi til
að veiða hval til eigin nota.
Landsstjómin hefur nú upplýst,
að 1100 kílóin voru í líki uppstopp-
aðs náhvelis, sem var sent til Tókýó
og notað sem nokkurs konar ein-
kénnismerki á grænlenskri vöru-
sýningu. Voru öll leyfi í lagi auk
þess sem náhvelið verður flutt aftur
í þjóðminjasafnið í Nuuk að sýning-
unni lokinni.
Landsstjómin segir, að grænfrið-
ungum hefði verið í lófa lagið að
spyrjast fyrir.
"f
1961. Flokkur græningja hefur
9,6 prósenta fylgi samkvæmt
könnuninni.
í annarri könnun, sem Emnid-
stofnunin gerði, er kristilegu
flokkunum spáð 48 prósenta fylgi,
jafnaðarmönnum 37 og frjálsum
demókrötum og græningjum 7
prósentum hvomm.
Stjóm Kohls hefur haft forystu
frá upphafi kosningabaráttunnar.
Stjórnarandstaðan hefur ekki get-
að fundið mál til að setja á oddinn
í kosningunum og er búist við því
að efnahagsmál ráði úrslitum.
Helsti styrkur Kohls er lítil sem
engin verðbólga og stöðugur hag-
vöxtur.
Aukin spenna færðist þó í kosn-
ingabaráttuna vegna mannrána í
Beirút. Tveimur Þjóðveijum var
rænt þar snemma í síðustu viku
og á fostudag tóku mannræningj-
ar tvo menn, sem talið er að séu
vestur-þýskir. Talið er að mönnum
þessum hafi verið rænt til að
þrýsta á stjómina í Bonn og neyða
hana til að framselja ekki mann,
sem handtekinn var í Frankfurt
og sakaður er um flugrán og
morð, til Bandaríkjanna. Kohl
hefur haldið neyðarfundi með ráð-
hermm sínum og ráðgjöfum til
að móta stefnu í málinu.
V opnasölumálið:
Vangoldnir
reikningar
Washington, AP.
EMBÆTTISMENN í varnarmála-
ráðuneyti Bandaríkjanna sögðu í
gær að reikningar þeir sem ráðu-
neytið sendi bandarísku leyniþjón-
ustunni vegna vopnasölunnar til
íran hefðu verið 2,6 milljónum
dala lægri en efni stóðu til.
Robert Sims, talsmaður vamar-
málaráðuneytisins, sagði í gær að
leyniþjónustunni myndi brátt verða
sendur nýr reikningur fyrir Tow-
flugskeytin, sem seld vom til íran.
Sagði hann mistökin hafa komið til
vegna þess að starfsmenn, sem gengu
frá vopnasendingunum, hefðu ekki
vitað hvert vopnin ættu að fara eða
hver myndi greiða fyrir þau. Enn-
fremur vom tvær mismunandi gerðir
Tow-flugskeyta seldar til íran og
höfðu starfsmenn mglað saman verði
þeirra.