Morgunblaðið - 25.01.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.01.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987 Ung kona á gjörgæslu Morgunblaðið/Ingvar UNG kona slasaðist alvarlega er hún varð fyrir bíl á Suðurlandsbraut um klukkan átta á föstu- dagsmorgun. Konan var á leið yfir götuna er hún varð fyrir bílnum sem ók í austur. Hún hlaut alvarlega höfuðáverka og beinbrot og var flutt á gjörgæsludeild Borgarspítlans. Að sögn lækna er hún ekki í lifshættu og var á batavegi þegar síðast spurðist í gær. Bifreiðin sem hér um ræð- ir er notuð til að flytja járn og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er hún útbúin sérstökum grindum til þeirra flutninga. Ekki er talið að sá útbúnaður hafi byrgt ökumanni sýn né átt þátt í slysinu oggerði bifreiðaeftirlitsmaður, sem kom á slysstað, enga athugasemd við þennan útbúnað að sögn lögreglu. Áfengisneyslan jókst um 4,16% árið 1986 Neysla sterkra vína jókst á kostnað léttra vína Útgerðarfélag Akureyringa: Harðbakur aflaði 5.230 lest- ir 1986 Hrímbakur var með hæst meðalverð á kíló Akureyri TOGARAR Útgerðarfélags Akureyringa öfluðu á síðasta ári alls 19.816 lesta, sem er 119 lestum meira en árið áð- ur. Brúttóaflaverðmæti var 377,7 milljónir króna. Aflan- um var öllum landað innan lands. Fyrirtækið flutti alls út eða seldi 6.225 lestir á ár- inu ojg voru birgðir þá 201 lest. A árinu áður voru fluttar utan 5.525 lestir og birgðir í árslok þá voru 1.040 lestir. Útgerðarfélagaið gerir úr 5 togara og var útgerð þeirra með svipuðum hætti og árið áður, þó með þeim breytingum að Hrímbakur var nú að veiðum allt árið, en aðeins haustmánuð- ina árið áður. Svalbak var hins vegar haldið minna úti á síðasta ári en árið áður og við það breyt- ist hlutfall þessara skipa veru- lega í heildaraflanum. Afli annarra skipa var svipaður milli áranna. Kaldbakur aflaði alls 4.435 lesta á árinu 1986 (4.791) að verðmæti 85,1 milljón króna á 288 veiðidögum. Meðalverð á kíló var 19,18 krónur. Svalbakur aflaði alls 3.481 lestar (5.045) að verðmæti 66,5 milljónir króna á 223 veiðidögum. Meðalverð á kíló var 19,11. Harðbakur var með 5.230 lestir (4.965) að verð- mæti 96,6 milljónir króna á 291 veiðidegi. Meðalverð á kíló 18,48. Sléttbakur var með 3.524 lestir (3.909) að verðmæti 63,7 milljónir króna á 282 veiðidög- um. Hrímbakur var með 3.146 lestir (988) að verðmæti 65,8 milljónir á 263 veiðidögum. Með- alverð 20,92 krónur. Öllum aflanum var landað á Akureyri. Útgerðarfélagið seldi eða flutti utan 6.225 lestir af freð- fiski, 7 lestir af skreið, 826 lestir af saltfiski og 41 af hertum fisk- hausum. í öllum tilfellum var um aukningu að ræða frá fyrra ári, en birgðir af frystum físki í árslok voru minni nú en árið áður. ÁFENGISNEYSLA íslendinga jókst um 4,16% á siðasta ári og er nú rúmlega það sem hún var á árinu 1984, samkvæmt tölum yfir sölu Áfengisverslunar rikis- ins. Meðaltalsneysla sérhvers íslendings 15 ára og eldri var 4,50 alkóhóllítrar, en var á árinu 1985 4,32 alkóhóllítrar. Það var 3,14% minnkun frá árinu 1984, þegar neyslan var 4,46 lítrar alkóhóls. Neyslan hefur ekki á þessum áratug verið meiri en var á síðasta ári. Athygli vekur að að neyslan á sterkum vínum eykst um 7,95%, úr 7,92 lítrum í 8,55 lítra, á sama tíma og neyslan á léttum vínum minnkar um 5,69%. Hún er árið 1986 9,28 lítrar, en var á árinu 1985 9,84 lítrar. í þessum tölum er ekki tekið til- lit til þess áfengis, sem ferðamenn og áhafnir skipa og flugvéla taka með sér inn í landið, né messuvíns, en notkun þess nam 817,6 ltrum á síðasta ári eða 130,82 lítrum alkó- um 1,67% á árinu 1986 frá árinu áður samkvæmt sölutölum frá Áfengisverslun ríkisins og sama gildir um vindlareykingar. Pípureykingar minnkuðu um 18,41%. hols. Sterk vín eru öll vín með meiri áfengisstyrkleika en 22%. Af rauðvíni seldist mest af Val- policella, 131.372 lítrar, og Piat de Beaujolais, tæpir 50 þúsund lítrar, og af hvítvíni, Liebfraumilch Anh., rúmir 150 þúsund lítrar. 230.914 flöskur seldust af Brennivíni, rúm- lega 115 þúsund af kláravíni, 258 þúsund af Smimoff vodka og og tæplega 152 þúsund af Icy vodka. Sala á vindlingum nam 430.494 mille, en einingin mille jafngildir 50 pökkum af sígarettum. Sala vindlinga allt árið 1985 var 434.867 mille. 14.445 mille seldust af vindl- um, en 14.420 árið 1985. Eitt mille jafngildir eitt þúsund vindlum. 23.183 kíló seldust af reyktóbaki, en 28.193 árið 1985. Half and Half og Prince Albert eru vinsælust reyktóbaksins, en Winston selst mest af vindlingun- um. London Docks og Fauna seljast mest af vindlum. Tveir eiiis bflar lentu í árekstri - áeinastaðnum þar sem ekki var hægt að mætast TVEIR bílar sömu gerðar, ná- kvæmlega eins á litinn, jafn gamlir og jafn mikið eknir, rák- ust saman á hringveginum á móts við Leifsstaði í Landeyjum í Rangárvallarsýslu í fyrra mán- uði, á eina staðnum á þessum slóðum þar sem ræsi gegnum veginn þrengir hann svo ekki er hægt að mætast. Bílamir tveir voru af gerðinni Mitsubishi Pajero. Þeir voru báðir silfurgráir á Iitinn með röndum sem voru á sömu stöðum á báðum bílun- : um, og bflamir vom skráðir á ' svipuðum tíma og báðum hafði verið ekið svipaðan kílómetrafjölda, eða um 3000. Eini munurinn var sá að annar bfllinn var með bensínvél en hinn með díselvél, og annar bfllinn var með X—númeri og hinn með U—númeri. Þegar bflamir mættust þama á hringveginum var orðið skuggsýnt og hvorugur bflstjóranna sá stikur I með endurskinsmerkjum sem merktu breidd ræsisbrúarinnar, enda lækk- uðu báðir ljósin í þann mund sem þeir voru að mætast. Bílamir komu að brúnni á sama andartaki og lentu beint framan á hvomm öðmm. Ökumenn og farþegar í bílunum sluppu án teljandi skaða, en bílamir skemmdust mikið. „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið einstök tilviljun allt sam- an,“ sagði Sveinn ísleifsson lögreglu- varðstjóri á Hvolsvelli í samtali við Morgunblaðið. Sveinn bætti því við að síðan þetta gerðist hefðu verið sett upp umferðarmerki sitt hvom megin við ræsið til að vara við því að vegurinn þrengist á þessum stað. Kvosin orð- in að Miðbæ UM NOKKURT SKEIÐ hefur það tíðkast að nota orðið „Kvos“ um hluta af miðbæ Reykjavíkur. „Kvosarskipulagið" eða „deili- skipulag að Kvosinni" hafa t.d. verið mikið í umræðunni undan- farin misseri. En nú blasir við að þeir, sem eru vanir að nota orðið Kvos, þurfi að temja sér notkun orðsins „Miðbær" i stað þess. Forsaga þessa máls er sú, að á fundi borgarstjómar í síðustu viku, þegar verið var að afgreiða reglugerð um bílastæðagjöld í Reykjavík, var samþykkt, með atkvæðum allra borg- arfulltrúa, tillaga frá Haraldi Blöndal, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að orðið „Kvos" yrði fellt úr reglugerðinni og í stað þess kæmi orðið „Miðbær". Það væri eldra og uppmnalegra. Morgunblaðið hafði samband við Davið Oddsson, borgarstjóra, út af þessu máli og spurði hann hvort að þetta þýddi að héðan í frá yrði alfar- ið stuðst við orðið Miðbæ i stað Kvosar. Davíð sagði svo vera. Hann liti svo á að þama hefði verið um stefnumarkandi ákvörðun að ræða af hálfu borgarstjómar. Samtök um kvennaathvarf senda blað inn á hvert heimili Vindlingareyking- ar minnka lítillega Vindlingareykingar minnkuðu RANNSÓKNIR Siguijóns Ólafssonar tannlæknis á kjálkabrotum kvennsjúklinga leiddu í ljós að 90% þeirra voru eftir ofbeldisverk karlmanns. Þetta er eínn af fróðleiksmolum sem nýútkomið kynn- ingarblað Samtaka um kvennaathvarf hefur að geyma. í blaðinu er sérstaklega fjallað um ofbeldi gegn börnum, sifjaspell og nauðganir. Þar er einnig að finna viðtöl við konur og börn sem dvalið hafa í Kvennaathvarfinu, starfsfólk og upplýsingar um skipulag samtakanna. Blaðinu verður dreift í 80.000 eintökum og það borið inn á hvert heimili á landinu. Efni þess var unnið af félögum í samtökunum undir ritstjóm Önnu Ólafsdóttur Bjömsson. Fyrirhugað er að gefa út upplýsingabæklinga um nauðg- anir og bamaofbeldi en ágóða af blaðinu „Kvennaathvarf" verður varið til að auka útgáfustarfsemi á vegum samtakanna. Rannsókn Siguijóns Ólafssonar náði yfir tíu ára tímabil og tók til 238 sjúklinga. f blaðinu er þess getið að 42% þeirra kvenna sem leituðu til kvennaathvarfsins á árinu 1985 voru með líkamlega áverka við komuna. Átta af hveij- um tíu konum sem leituðu athvarfs voru að flýja líkamlegt ofbeldi, en 85% þeirra andlegt ofbeldi. Við eftirgrennslan kom fram að ekki færri en 13% kvenn- anna hafði verið hótað lífláti. Rúmur þriðjungur þeirra sem dvelja í kvennaathvarfinu eru á aldrinum 36-50 ára og lítið eitt færri á aldrinum 26-35 ára. KVENNAATHVARF 21205 Harpa getur snú- ið til fyrri starfa HARPA Högnadóttir, starfsmaður íslensks markaðar í Chicago, er hvergi á sakaskrá og verður þar af leiðandi ekki sakfelld, að sögn Ingva S. Ingvarssonar, ráðuneytissljóra í utanríkisráðuneytinu. Harpa var, sem kunnugt er, handtekin daginn fyrir gamlaársdag í Chicago við vinnu sína, handjárnuð, fangelsuð og siðan send tills- lands vegna ófullnægjandi vegabréfsáritunar. „Við höfum leitað svara í sendi- ráði Bandaríkjanna hér á landi við þeim spumingum er Harpa bar fram og vildi fá skýringar á. Á fundi mínum með henni á föstudag í ráðuneytinu, taldi hún skýringam- ar fullnægjandi," sagði Ingvi. Hann sagði að ekkert væri því til fyrirstöðu að Harpa héldi aftur til Bandaríkjanna og starfaði þar áfram hjá íslenskum markaði. Hún þyrfti þó að gæta að því að fá rétta vegabréfsáritun næst. Vegabréfs- deild bandaríska sendiráðsins hér á landi hafði veitt Hörpu áritun til að starfa við stjómunarstörf, en ekki sem afgreiðslumaður, eins og hún reyndar varð. »»»■>' ‘Mir*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.