Morgunblaðið - 25.01.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ,. SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
Brosað í blíðunni
Morgunblaðið/Einar Falur
Icelandic Freezing Plants í Grimsby:
Fjórum sinnum minni
sala vegna fiskskorts
Annasöm
nótt hjá
lögreglu-
mönnum í
borginni
„NÓTTIN var afleit og úti-
lokað að lögregluvaktin
aðfaranótt laugardags hafi
komist yfir öll þau útköll með
eðlilegum hætti sem upp
komu,“ eins og varðstjórinn
í Reykjavík komst að orði í
samtali við Morgunblaðið í
gærmorgun.
Mikill drykkjuskapur var í
heimahúsum og í miðborginni
og honum samfara var mikið
um ólæti og rúðubrot víðsvegar.
Brotnar voru rúður á tveimur
stöðum í Austurstræti; í verslun
Hagkaups í Lækjargötu og í
húsi við Garðastræti. Einnig
voru brotnar rúður í Hótel Borg,
Rammagerðinni og í pylsuvagni
er stóð við Þórskaffí.
Tveir menn fundust með
skömmu millibili í Austurstræti,
annar þeirra meiddur á höfði
og hinn meðvitundarlítill. Þeir
voru fluttir á slysadeild. Þá
meiddist maður í átökum í veit-
ingahúsi í borginni svo flytja
varð hann á slysadeild og aðrir
tveir voru þangað fluttir, einnig
vegna meiðsla er þeir hlutu á
skemmtistöðum. Kveikt var í
rusli við Iðnaðarbankann, Fella-
görðum, en eldinn tókst að
slökkva áður en skemmdir hlut-
ust af. Þeir sem þar stóðu að
verki, náðust ekki. Þá var stöðu-
mælir skemmdur við Vallar-
stræti og tókst að ná
sökudólgunum.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta
sýningu fjögurra sjónvarpsþátta,
sem Arni Johnsen alþingismaður
hefur unnið fyrir Sjónvarpið og
ráðgert var að sýna í febrúar og
mars. Að mati útvarpsráðs þótti
óhæft að alþingismaður, sem
jafnframt er í framboði, sjái um
þáttagerð í sjónvarpi þegar
svona skammt er til kosninga.
Markús Á. Einarsson, útvarps-
ráðsmaður, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hingað til
hefði sú regia gilt að eftir að fram-
boðsfrestur væri útrunninn, mættu
frambjóðendur I aðalsætum ekki
koma fram í sjónvarpi, nema í kosn-
ingasjónvarpi og ef viðkomandi
gegndu einhveijum þeim skyldum,
sem krefðust þess. Miðað hefur
verið við mánuð hingað til.
Markús sagði að þessi mánaðar-
regla væri hinsvegar að ganga þeim
útvarpsráðsmönnum úr greipum
þar sem framboð væru nú birt mun
fyrr en tíðkast hefur áður. Út-
varpsráð hefur því falið útvarps-
stjóra að endurskoða þessar reglur
og koma með drög að nýjum regl-
um.
Markús sagði að lokum að það
ætti ekki að eiga sér stað að einn
ICELANDIC Freezing
Plants, dótturfyrirtæki SH I
Grimsby, sér fram á að verða
af um 60 milljóna króna sölu
af sextíu alþingismönnum gerðist
þáttagerðarmaður fyrir Sjónvarpið
síðustu mánuði fyrir kosningar.
„Ætli við stæðum þá ekki uppi með
aðra 59 alþingismenn í viðbót sem
vildu líka gerast þáttagerðarmenn
fyrir sjónvarp."
i janúarmánuði vegna skorts
á fiski, aðallega flökum, að
heiman, sem seldur er beint
til viðskiptavina. Skorturinn
stafar fyrst og fremst af
verkfalli sjómanna, en verk-
fall undirmanna á kaupskip-
um getur einnig haft slæm
áhrif að sögn Ólafs Guð-
mundssonar, forstjóra fyrir-
tækisins. Hugsanlegt er talið
að einhver viðskipti geti
tapazt vegna þessa.
Ólafur Guðmundsson sagði í
samtali við Morgunblaðið, að í
janúar á síðasta ári hefði sala
flaka og annarra fískafurða
beint frá íslandi numið 1,5 millj-
ónum punda eða um 90 milljón-
um íslenzkra króna. Hins vegar
væri fyrirsjáanlegt að vegna
skorts á þessum vörum að heim-
an yrði salan í janúar nú aðeins
um 400.000 pund eða 24 milljón-
ir króna. Ólafur sagði, að fisk-
réttaverksmiðjan væri enn í
gangi og sala unninna fískafurða
svipuð og í sama mánuði í fyrra,
en samdráttur undir mánaða-
Þrír umsækjendur voru um
stöðu skólastjóra í Lækjarskóla. I
fræðsluráði hlaut Bjöm Ólafsson
atkvæði Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags, sem eiga þrjá fulltrúa,
en Ellert Borgar atkvæði Sjálf-
stæðisflokksins sem á tvo fulltrúa.
Þegar niðurstaða fræðsluráðs lá
fyrir dró Ellert umsókn sína til
baka og skipaði ráðherra Bjöm í
stöðuna.
„Bjöm hefur starfað sem yfír-
kennari skólans um árabil og sýnt
það í hvívetna að hann er góður
starfsmaður," sagði Guðmundur
Ámi. „Með honum mæltu kennar-
ar skólans og skólastjóri. Það
mótin væri fyrirsjáanlegur,
fengist hráefni ekki að heiman.
Vegna þessarar stöðu legði fyrir-
tækið nú áherzlu á fískkaup frá
öðmm löndum en íslandi og
gæti það bjargað einhveiju.
hefði ekki verið forsvaranlegt að
sniðganga mann með slíka yfír-
burða reynslu. Mér er ekki
kunnugt um hversvegna Ellert
fræðslustjóri ákveður nú að hverfa
frá störfum og mér er ákaflega
sárt um að missa svo færan starfs-
mann.“
Guðmundur Ami var spurður
hvers vegna fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins hefði sagt sig úr fræðslu-
ráði, en það er meðal þeirra atriða
sem tíunduð eru í áðumefndri
bókun sjálfstæðismanna. Þetta
er einfaldlega röng staðhæfing.
Maðurinn situr enn í ráðinu “
sagði Guðmundur Ámi.
Söngleikur byggð-
ur á Atómstöðinni
Stokkhólmi. Frá Ásdísi Haraldsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÖNGLEIKURINN „Lítil eyja í hafinu“, sem byggður er á Atóm-
stöðinni eftir Halldór Laxness verður frumsýndur á litla sviði
Dramatiska Theatem í Stokkhólmi laugardaginn 31. janúar næst-
komandi.
Söngleikinn skrifaði Hans Alfr-
edson eftir þýðingu Peters Hall-
berg á Átómstöðinni. Hans
Alfredson er einnig leikstjóri og
auk þess hannaði hann búninga.
I helstu hlutverkum eru Lena
Nyman sem leikur Uglu, Sven
Lindberg sem leikur organistann
og Búa Árland og Harriet Anders-
son, sem leikur frú Árland og
Kleópötru. Lena Nyman er eini
leikarinn sem fer aðeins með eitt
hlutverk. Aðrir leikarar leika allir
tvær persónur, oftast andstæður.
Hans Alfredson sagði á blaða-
mannafundi á föstudaginn að ef
til vill væri ekki rétt að kalla
„Litla eyju í hafínu“ söngleik, en
tónlist er í hávegum höfð í verk-
inu. Tónlistin er flutt af hljóm-
sveitinni „Jazz Doctors“, en
söngtextar eru eftir Hans Alfred-
Uppselt er á frumsýninguna og
næstu sýningar.
Útvarpsráð mælir
gegn sjónvarpsþátt-
um Árna Johnsen
Fræðslusljóri hefur
ekki getið um ástæðu
fyrir uppsögn sinni
- segir Guðmundur Arni Stefánsson
bæjarstjóri í Hafnarfirði
GUÐMUNDUR Ámi Stefánsson bæjarsíjóri í Hafnarfirði seg-
ist ekki geta skilið að uppsögn Ellerts Borgar Þorvaldssonar
fræðslustjóra standi í tengslum við veitingu skólastjórastöðu
í Lækjarskóla. f frétt blaðsins í gær staðfestir Ellert að stöðu-
veitingin sé ástæða uppsagnar hans. Einnig hafa fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði haldið þessu fram. Segir í
bókun sem þeir gerðu á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku að
„foringjar meirihlutans“ hafi hrakið Ellert úr starfi. „Hann
Iét ekki getið um ástæður fyrir uppsögn sinni og ég get ekki
séð að þessi mál séu tengd," sagði Guðmundur Arai.