Morgunblaðið - 25.01.1987, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
3
Ný tegund skelfiskplógs
talin valda byltingu
Blönduós:
Blönduósi.
Á BLONDUÓSI býr maður einn ásamt fjölskyldu sinni sem Einar
heitir og er Jóhannesson og er ættaður úr Garðinum. Undanfar-
in ár hefur hann fengist við að þróa og smíða nýja gerð af
skelfisksplógum sem segja má að hafi valdið byltingu við skelfisk-
veiðarnar.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Einar Jóhannesson stendur hér við skelfiskplóg sinn sem hann
hefur þróað og smíðað.
Skelfískplógur sá sem Einar
smíðar er svokallaður tvByrðings-
plógur og er frábrugðin öðrum
skelplógum að því leiti að veiða
má með honum frá báðum hliðum
og skiptir þá ekki máli hvernig
plógurinn lendir í sjónum. Að sögn
Einars er þessi eiginleiki skelplógs-
ins mikilvægur því plógar sem
veiða einungis með annarri hliðinni
(skíðisplógar) verða oft fyrir
skemmdum lendi þeir öfugt á botn-
inn og fer þá oft mikill tími í
viðgerðir þannig að tíminn við veið-
amar verður oft lengri en þyrfti
að vera. Einnig er losunarbúnaður-
inn á pokanum ákaflega einfaldur
og auðveldur viðureignar.
Sl. sumar var gerð athugun á
veiðihæfni tveggja skelplógsgerða
og var skelplógur Einars annar
þeirra. Niðurstöður þeirrar athug-
unar bentu til að afli á sóknarein-
ingu var 11,8% meiri í Blönduós-
plóginn jafnframt var meðalþungi
skelja heldur meiri. Norðmenn
hafa sýnt plóggerð Einars mikinn
áhuga og hafa boðið honum út til
Noregs til að kenna mönnum með-
ferð plógsins.
Einar Jóhannesson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hugmynd-
ina að þessari skelfískplóggerð
hefði hann fengið í viðskiptum
sínum við skelfiskveiðimenn í
gegnum árin. Þó svo að þessi skel-
fiskplógur sé fyrst og fremst
notaður við hörpudiskveiðar þá
heldur Einar því fram að með smá
lagfæringu megi nota þennan plóg
við kúfiskveiðar. Einar segir að
nóg sé af kúfisk í flóanum en
menn velti því fyrir sér hvemig
ná mætti kúfisknum. „Menn verða
að hafa hraðar hendur í þessu
máli. Við verðum að nýta kúfiskinn
og jafnvel öðuskelina til að mæta
samdrættinum í rækjuveiðunum á
Húnaflóa."
Einar Jóhannesson hefur stund-
að þessa framleiðslu lengst af
heima í bílskúr hjá sér en nýlega
hefur hann fengið bráðabirgðaað-
stöðu hjá verktakafyrirtæki í
iðnaðarhúsnæðinu Votmúla. Einar
sagði að hann og eiginkona hans
Guðrún Sigurðardóttir ynnu mest
við þessa framleiðslu en þegar
mest væri að gera þá væm þetta
4-5 aðilar sem ynnu að plóggerð-
inni. Guðrún sér um að raða
hringjunum í pokann en það er
mikið þolinmæðisverk. Einar segir
ennfremur að það taki um það bil
viku að framleiða einn plóg en
framleiðnin þyrfti að aukast til að
ná upp hagkvæmninni en til að svo
megi verða þarf að koma til aukið
fjármagn. Einar hefur fjármagnað
allar tilraunir við skelfiskplóginn
af eigin fé en telur að til þyrfti
að vera aðili sem tæki þátt í
áhættunni sem óneitanlega fylgir
svona tilraunastarfsemi. „Kannski
er þessi aðili til en það er ansi
erfitt að slást við kerfið. Maður
þarf þekkingu á því sviði og ég
hef ekki haft tíma til að standa í
því.“
Einar Jóhannesson sagði enn-
fremur þegar hann var inntur eftir
því hvort iðnráðgjafar sem starfað
hafa á Norðurlandi vestra hefðu
ekki verið honum innan handar.
„Vissulega hafa þeir verið hjálp-
legir, en þeir hafa bara staðið svo
stutt við í starfí og verið famir
þegar þeir vom að komast inn í
málið.“
Þótt Einar hafí barist fyrir þess-
ari hugmynd sinni í mörg ár og
kannski stundum við lítinn skilning
þá er hann bjartsýnn á framhaldið.
— Jón Sig.
VALKOSTIR:
1.17 daga dvöl á hinu glæsilega 5
stjörnu hóteli, RECIFE PALACE í
RECIFE, einni helstu baðströnd
heims.
UM AÐ GERA
AÐ VERA
FUÓTUR TIL
2. 11 daga dvöl í Recife. 1 dagur í
höfuðborginni Brasilíu. 5 dagar í Rio
de Janeiro.
3. Ferðir um Brasilíu að eigin vild.
Útsýn útvegar flugfarseðil, sem gildir
til allra helztu borga Brasilíu
aðeins
kr. 10.750
Austurstræti 17,
sími 26611
BROTTFÖR 13. MARS
Þú færð sjaldan slíkt tilboð.
Það verður dekrað við Brasilíu-
farana þetta árið.
Dvalið er á glæsilegustu hótel-
um á hveijum stað.
RECIFE:
Hotel Recife Palace ★ ★ ★ ★ ★
BRASILÍA:
Hotel Nacional ★ ★ ★ ★ ★
RIO DE JANEIRO:
Rio Palace ★ ★ ★ ★ ★