Morgunblaðið - 25.01.1987, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
t
Sonur okkar og bróðir,
GUÐMUNDUR JÖKULL JENSSON,
lést af slysförum 15. janúar síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Flugbjörgun-
arsveitina í Reykjavík.
Valgerður Hallgrímsdóttir
Jens A. Guðmundsson
Margrét Jensdóttir
Hallgrímur Jónas Jensson
Laufey Jensdóttir
t
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÁSMUNDAR VILHJÁLMSSONAR,
múrarameistara,
fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 27. janúar kl.
15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeir sem vilja minnast hins látna
láti líknarstofnanir njóta þess.
Hólmfriður Ásmundsdóttir,
Sigrún Ásmundsdóttir Pang,
Svanhvít Ásmundsdóttir,
Vilhjálmur Ásmundsson,
Örn Ásmundsson,
Þorbjörn Ásmundsson,
Guðrún Ásmundsdóttir,
Kristinn Danfelsson,
Jack Pang,
Þorvaldur Ingibergsson,
Marfa Sigursteinsdóttir,
Margrét Sigurðardóttir,
Magnús Þorkelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn,
ERLENDUR DAGUR VALDIMARSSON,
Vatnsstfg 4,
verður jarðsunginn mánudaginn 26. janúar frá Fossvogskapellu
kl. 10.30.
Hjördís Oddgeirsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
LÁRUS KRISTÓFER EYJÓLFSSON,
húsgagnasmfðameistari,
Lækjartúni við Vatnsveituveg, Reykjavík,
verður jarðsunginn mánudaginn 26. janúar kl. 13.30 frá Bústaða-
kirkju.
Ragna Pétursdóttir,
Guðrún Lárusdóttir J., Arne Jonasson,
Pétur E. Lárusson,
Þórunn E. Lárusdóttir, Jakob Jakobsson
og barnabörn.
+
PÁLÍNA ÞORLEIFSDÓTTIR,
saumakona,
Jökulgrunni 1b,
sem lést 17. janúar sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 26. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Ragnar Veturliðason,
Helga Þorleifsdóttir,
Elfsabet Óskarsdóttir,
Óskar Ingvarsson,
Pálfna Ingvarsdóttir.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, sonar,
tengdasonar og bróður,
HLÖÐVERS EINARSSONAR,
yfirvélstjóra,
Flúðaseli 90.
Kristfn Káradóttir,
Sigurður Helgi Hlöðversson,
Hlfn Hlöðversdóttir,
Vilborg Einarsdóttir, Einar Runólfsson,
Aðalheiður ísleifsdóttir, Kári Söebeck Kristjánsson,
Atli Einarsson,
Eygló Einarsdóttir,
Friðbjörg Einarsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og jarðarför föður
okkar og afa,
ANDRÉSAR G. ÞORMAR.
Andrea Þormar, Ólafur Þormar,
Birgir Þormar, Kristfn Inga Þormar,
Gunnar Þormar, Sveinbjörn Þormar.
Lárus Eyjólfs-
son — Minning
Fæddur 12. ágúst 1907
Dáinn 15. janúar 1987
Mig langar að minnast Lárusar
Eyjólfssonar, sem lést 15. þ.m. 79
ára að aldri, eftir tæplega tveggja
mánaða sjúkrahúsvist.
Þegar ég rifja upp kynni mín af
honum koma upp í hugann aðeins
góðar minningar. Kynni okkar hóf-
ust þegar ég var 10 ára. Var ég
þá um árabil tíður gestur á heimili
hans. Ekki minnist ég þess að hann
væri með hávaða eða einhveijar
aðfinnslur við okkur krakkana held-
ur þvert á móti. Ég minnist hans
með bros á vör, talandi við okkur
í gamansömum tón. Ekki alls fyrir
löngu spurði ég hann hvort hann
myndi ekki fara að hætta að vinna
og taka það rólega. Hann var farinn
að stinga mjög við og ágerðist það
hið síðari árin. Hann svaraði á þá
leið að það væri mest dútl sem
hann væri að fást við. Hann væri
svo heppinn að vinnuveitendur hans
leyfðu sér að „dútla" að vild og
ynni hann hálfan daginn.
Eftir 30 ára kynni af Lárusi á
ég aðeins ánægjulegar minningar
um hann sem ekki munu gleymast,
um hlýtt viðmót alla tíð, dugnað
°g tryggð við sína nánustu og í
starfi.
Ég bið Guð að blessa Rögnu,
börn þeirra og barnabörn, og votta
þeim öllum innilega samúð mína.
Stella
Hann afi Lárus er dáinn. Með
nokkrum orðum langar okkur til
að minnast hans og þakka honum
fyrir þær stundir sem við áttum
saman.
Ófáar ferðir kom afí upp í Kóngs-
bakka að hjálpa til. Alltaf var hann
tilbúinn að smíða og gera við fyrir
okkur og heimilið. Gaman er að
eiga alla þessa hluti eftir hann til
minningar. Eins var það þegar við
komum í Lækjartún, hann var alltaf
tilbúinn að spila við okkur og höfð-
um við öll gaman af.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
ömmu á þessari stundu og hjálpa
henni að halda hugrekki og dugn-
aði eins og hún hefur hingað til
sýnt.
Við kveðjum nú afa með söknuði
og vonum að honum líði vel.
Systkinin i Kóngsbakka
Palína Þorleifs-
dóttir - Minning
Fædd 8. nóvember 1903
Dáin 17. janúar 1987
Pálína var systir ömmu minnar.
Mjög náin tengsl voru milli móður
minnar og hennar og þegar ég
fæddist, á afmælisdegi Pálu
frænku, þótti móður minni sjálfsagt
að láta mig bera nafn hennar.
Þegar ég hugsa til baka til
bernskuáranna koma fljótt upp í
hugann minningar um öll fötin sem
Pála saumaði og gaf okkur systkin-
unum; ennfremur heimsóknir okkar
til hennar, sem voru ófáar, og alltaf
er mér jafnminnisstæður súkkulaði-
ilmurinn sem barst á móti manni.
Heimsóknir til hennar voru líka
sérstakar að því leyti að hún átti
ekki venjuleg barnaleikföng, heldur
tók hún styttur og önnur djásn nið-
ur úr hillum og fékk okkur í hendur.
Pála frænka var eins og þetta litla
dæmi sýnir mjög barngóð og einkar
umhyggjusöm og natin við þau.
Mín börn nutu þess í ríkum
mæli ekki síður en ég sjálf sem
barn. Það gerðist t.d. ósjaldan þeg-
ar hún kom inn á mitt heimili að
hún hvarf með bömunum inn í
þeirra herbergi og ræddi við þau
um hugarefni.
Pála frænka var mjög sterkur
persónuleiki, einkar næm og við-
kvæm, en átti mjög auðvelt með
að taka létt á erfíðleikum sínum
sem kom glögglega í ljós þegar
sjóndepra fór að gera henni erfítt
fyrir með aldrinum.
Pálina fæddist 8. nóvember 1903
í Garðakoti í Svarfaðardal í Eyja-
firði. Foreldrar hennar voru Björg
Jónsdóttir og Þorleifur Baldvinsson
+
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS GÍSLASONAR,
prentara,
Ásgarði 135.
Oddur J. Guðjónsson,
Lisa K. Guðjónsdóttir,
Gísli Guðjónsson,
Axel G. Guðjónsson,
Sólveig Guðjónsdóttir,
Hanne Gíslason,
Pia Guðjónsson,
Þorbjörn Guðmundsson,
Gunnlaug H. Ragnarsdóttir,
Jóhanna Garðarsdóttir,
BörkurJóhannesson
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur,
INGVELDAR SVANHILDAR PÁLSDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Eygló Gísladóttir,
Ingólfur Gi'sli Þorsteinsson,
Vignir Páll Þorsteinsson,
tengdabörn, barnabörn, barna-
barnabörn og systkini hinnar látnu.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
LOFTEYJAR KÁRADÓTTUR,
Freyjugötu 25.
Aðstandendur.
Kveðjuorð
Lárus Eyjólfsson, húsgagnasmið-
ur, lést í Landakotsspítala þann 15.
þ.m. eftir nokkra vikna legu, 79
ára að aldri.
Lárus lærði snemma húsgagna-
smíði hjá Björgvin Hermannssyni,
húsgagnasmíðameistara, og vann
að iðn sinni alla tíð síðan, og síðustu
18 árin hjá Gamla kompaníinu.
Lárus var maður hógvær og ljúf-
ur, sem jafnan gekk glaður og reifur
að sínu starfi. Hann var vandvirk-
ur, vinnusamur og góður félagi.
Sjíks manns er gott að minnast.
Við starfsfélagar Lárusar þökk-
um honum samfylgdina og vottum
konu hans og öðrum ástvinum okk-
ar dýpstu samúð.
Minning um góðan dreng yljar
lengi.
Vinnufélagar
og var hún ein af fímm systkinum.
Eftir lifír yngsta systkinið, amma
mín, Helga Þorleifsdóttir.
Pálína ólst upp í Svarfaðardal,
en fluttist ung til Akureyrar. Síðar
fluttist hún til Reykjavíkur, þar sem
hún vann við ýmiss störf, en aðal-
lega við fatasaum.
Hún giftist aldrei, en árið 1970
hóf hún sambúð með Ragnari Vet-
urliðasyni og bjuggu þau saman nú
síðast að Jökulgrunni lb í
Reykjavík. Ragnar reyndist Pálu
mjg vel og ekki síður okkur sem
hann tók opnum örmum frá fyrstu
tíð.
Með þessum orðum vil ég þakka
Pálu frænku alla þá ást, umhyggju
og styrk sem hún hefur gefið mér
og minni fjölskyldu í gegnum árin.
Pála
Blömastofa
Fríðfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opíð öll kvöld
til kl. 22,- éínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.