Morgunblaðið - 25.01.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
59
kvæmt samþykktum, jafngildi 14,1
milljóna Bandaríkjadala í dönskum
krónum. Stofnfé (framlag) skiptist
þannig: Danmörk 2,7 milljón dala,
Grænland 0,1 m. dala, Færeyjar
0,1 m. dala, Finnland 2,7 m. dala,
ísland 0,4 m. dala, Noregur 2,7
m. dala og Svíþjóð 5,4 m'. dala.
Stofnféð greiðist samkvæmt sér-
stakri greiðsluáætlun á árabilinu
1987-1995.
Sjóðurinn veitir lán og ábyrgðir
með sömu skilmálum og bankar.
„Þegar aðstæður mæla með því
má veita lán og ábyrgðir á hagstæð-
ari kjörum en bankakjörum", segir
í 4. grein samþykkta. „Styrki og
skilyrt lán má einungis veita af
heildarhagnaði sjóðsins". Þar segir
og: „I starfsemi sjóðsins skal jafhan
stefnt að sanngjarnri skiptingu
lánsfyrirgreiðslu milli Færeyja,
Grænlands og íslands. - Verkefni,
sem snerta fleiri en eitt hinna vest-
lægu Norðúrlanda eða fela í sér
samvinnu við önnur Norðurlönd,
skulu ganga fyrir öðrum'verkefn-
um“.
Stjóm sjóðsins skal skipuð sjö
mönnum, tilnefndum af ríkis- eða
landsstjómum aðila. Stjómin velur
formann úr sínum hópi og ræður
framkvæmdastjóra. Aðalskrifstofa
skal vera í Reykjavík en fulltrúar
í Þórshöfn í Færeyjum og Nuuk á
Grænlandi.
Samstarf við grannríki
Tillaga ríkisstjómarinnar, sem
fyrr er vitnað til, felur í sér heimild
Alþingis, ef samþykkt verður, til
að staðfesta fyrir Islands hönd
samning milli ríkisstjóma Norður-
landa um framangreint efni.
Þetta mál snýst aðeins um einn
af fjölntórgum þáttum norræns
samstarfs, sem treystist ár frá ári.
Þetta samstarf hefur ótvírætt gildi
fyrir aðildarríkin (og getur verið
fyrirmynd annara um samstarf
þjóða í milli), þó það sé ekki hafið
yfír gagnrýni fremur en önnur
mannanna verk.
Ríkin við Norður-Atlantshaf:
Grænland, Island, Færeyjar og
Noregur eiga margskonar saman-
slugna hagsmuni, m.a. vaðandi
nýtingu lífríkis í N-Atlandshafi (og
þá um leið vemdun þess, mengunar-
varnir ekki undanskildar), á sviði
varnar- og öryggismála, atvinnu og
viðskipta, félags- og menningar-
mála.
Samnorrænn byggða- eða þrón-
arsjóður fyrir „hin vestlægu
Norðurlönd" er ef til vill „lítið mál“
í augum sumra, en getur orðið
„stórt" í tímans rás. Það er einn
þáttur hagsmuna-, vináttu- og
menningartengsla norrænna þjóða,
sem ástæða er til að leggja vaxandi
rækt við.
Þetta mál gæti og ýtt undir
marktækari stefnumörkun í
byggðaþrón hér heima fyrir en ver-
ið hefur til staðar til þessa. Fátt
er mikilvægara fyrir fullbyggt ís-
land, ef það á að vera markmiðið.
Og byggist ekki rétturinn til lands-
ins m.a. á nýtingu þess?
Mánudagsmyndin í
Regnboganum:
Heim fyrir
miðnætti
MÁNUDAGSMYNDIN í Regn
boganum að þessu sinni er „Heini
fyrir miðnætti". í aðalhlutverk-
um eru James Aubrey, Alison
Elliot og Richard Todd. Höfund
ur, framleiðandi og leikstjóri ei
Peter Walker.
Myndin fjallar um Mike Beres-
ford, ungan efnilegan lagasmið
sem verður ástfangin af Virginii
Wilshire, en það eru ýmis Ijón
veginum, t.d. það að stúlkan ei
aðeins 14 ára gömul. Mike á yfíi
höfði sér ákæru fyrir að vera me<
henni, en ekki er það þó allt.
Verkfræðingafélag íslands boðar til ráðstefnu:
Forsendur virkjunar á Nesjavöllum
Verkfræðingafélag íslands boð-
ar til ráðstefnu um virkjun
jarðhita á Nesjavöllum miðviku-
daginn 28. janúar. Yfirskrift
ráðstefnunnar verður: „Er þörf á
Nesjavallavirkjun ?“ í frétt frá
félaginu kemur fram að hér sé
um að ræða þátt i viðleitni stjórn-
ar þess til að skapa málefnalega
umræðu um tæknilega hlið slíkra
mannvirkja. Vonast stjórnin til
þess að félagið öðlist sess sem
hlutlaus og áreiðanlegur um-
sagnaraðili um málefni á sérsviði
verkfræðinga.
Á ráðstefnunni munu fulltrúar Hita-
veitu Reykjavíkur og Orkustofnunar
fjalla um forsendur þess að Nesja-
vellir eru taldir fysilegur virkjunar-
kostur. Einnig verða haldin erindi
um samrekstur hita- og rafveitna,
húshitunarspá og arðsemismat í op-
inberum framkvæmdum. Ráðstefn-
unni lýkur með pallborðsumræðum
þorra frummælenda og fleiri sem
umræðuefninu tengjast. Öllum sem
áhuga hafa á málefninu, innan Verk-
fræðingafélagsins eða utan þess, er
boðin þáttaka í ráðstefnunni.
(■
VJterkurog
k/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Nýttu tækifærið !
Notaðu afsláttarávísunina.
Sparaðu 10.000,-kr.
Mitsubishi farsíminn
kostar án ávísunar
kr. 89.800,- afb.
eða kr. 86.800,- stgr.
r----1 ____
en með afsláttarávísuninni aðeins
kr. 79.800,- afb. eða
76.800,-kr. stgr
Klippa hér
—--------------------------------------------------------------------:----------------.----------r .7
Radióbúðin hf.
Skipholti 19 súni 29800
KR
10.000,-
Grelöið gegn
tókka þessum
Handhafa.
Krónur Tfu þúsund krónur til greiðslu upp í Mitsubishi farsíma °/oo'
P:S: Aðeins er hægt að nota eina ávísun fyrir hvem Mitsubishi farsíma og ekki sem útborgun.
Greiðslukiör útborgun eftirstöðvar
Eurokredit 0 kr. á 11 mán.
Skuldabréf 19.000,-kr. 6-8 mán.
SKIPHOLTI
SÍMI 29800