Morgunblaðið - 25.01.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987 63
9 Einar Þór Jónsson
Sláumst
stundum
heima
EINN af strákunum í byrjenda-
flokk Gerplu í júdó er þegar
kominn með gula beltið, en það
or Eyjólfur Þór Jónsson. „Ég œfði
einu sinni og fékk þá gula beltið,
sfðan hœttu eiginlega allir að œfa
og óg hætti þá bara líka. Sfðan
byrjaði óg að æfa aftur þegar
þetta námskeið byrjaði," sagði
hann þegar hann var spurður
hvers vegna hann væri sá eini f
hópnum sem hefði náð gulabelt-
isgráðunni.
Þrátt fyrir að hafa hætt að æfa
um tima datt Eyjólfur ekki alveg
úr æfingu því eldri bróðir hans er
í júdó og takast þeir oft á júdó-
brögðum. „Við sláumst stufndum
heima, en mamma er nú ekkert
hrifin af því. Hún er sérstaklega
hrædd um að ef við erum að slást
inní stofu munum við brjóta allt
og bramla," sagði Eyjólfur um
þessi heimaslagsmál.
Ekki fannst Eyjólfi neitt erfitt að
oá gula beltinu á sínum tíma og
sagðist hann hafa verið alveg af-
slappaður fyrir prófið. Hins vegar
sagði hann að það gæti orðið erfið-
ara að ná svarta beltinu, eins og
hann stefnir að með tíð og tíma.
Til þess sagðist hann þurfa að æfa
vel og lengi. „Það er eiginlega ekki
nóg að æfa þrisvar í viku eins og
við gerum, allavega æfir Bjarni
Friðriksson örugglega miklu
rneira," sagði Eyjólfur að lokum.
Fékk gallann
i jolagjof
- segir Örn Þórisson
JÓDÓMENN klæðast sérstökum
búningum við æfingar og keppni
og þar er Örn Þórisson engin
undantekning. „Ég fékk gallann
minn í jólagjöf en áður æfði ég
bara í íþróttagalla. Það er miklu
betra að vera í júdógalla því það
er ekki eins vont að detta f honum
og svo er hann bara miklu liprari.
Eins og vera ber setur Örn
markið hátt í íþrótt sinni og stefnir
á að ná svarta beltinu þó að það
taki um 4—5 ár að hans sögn. Til
þess að það geti orðið þarf hann
að æfa vel og reglulega en þar sem
hann er einungis 10 mínútur að
labba á æfingar ætti það ekki að
vefjast fyrir honum.
Blaðamaður bað Örn að skýra
út fallæfingarnar og sagði hann
þá: „Þegar við lendum eigum við
að lenda með fæturna út og á ská
og slá hendinni um leið niður. Ef
maður gerir þetta rétt meiðir mað-
ur sig ekki neitt og þess vegna
veröum við að gera fallæfingarn-
ar.“
• Örn Þórisson
„ Morgunblaðið/Ámi Sæberg
® Hafðu þetta og vertu svo ekki með neina stæla við mig. Þeir eru
®kki beint árennilegir júdókapparnir þegar þeir eru f ham og fullum
skrúða.
Morgunblaðiö/Einar Falur
• Guðmundur Guðmundsson afhendir Jóni A. Ingvarssyni, besta manni mótsins í 4. flokki, verðlaunin
veglegu.
Landsbankamótið í körfubolta:
Haukar unnu í
báðum flokkum
ÞANN 29. desember efndi útibú
Landsbankans f Breiðholti til
Landsbankamóts í körfuknattleik
í sameiningu við körfuknattleiks-
deild Hauka. Keppendur voru úr
4. og 5. flokki og var fyrrverandi
formaður körfuknattleiksdeildar
Hauka, Kristinn Guðnason, feng-
inn til að skipuleggja mótið.
Alls voru 3 lið úr hvorum flokki
sem tóku þátt í mótinu en það
voru lið Hauka, ÍR og ÍBK. Leikinn
var einföld umferð í hvorum flokki
og hófst fyrsti leikurinn klukkan
11 um morguninn.
Haukar unnu í 5. flokki
Fyrsti leikur mótsins var leikur
Hauka og ÍR í 5. flokki og var stað-
an jöfn framan af en lið Hauka
náði síðan yfirhöndinni og vann
leikinn sannfærandi, 41:26. (BK og
ÍR léku næsta leik í þessum flokki
og var sá leikur mjög jafn og
spennandi. ÍR náði að sigra í leikn-
um, 42:32.
Síðasti leikurinn í flokknum var
á milli Hauka og ÍBK og var það
leikur kattarins að músinni. Yfir-
burðir Hauka voru miklir og urðu
lokatölurnar, 54:19, þeim í vil.
Jafnt í 4. flokki
Keppnin í 4. flokki var mjög jöfn
og skemmtileg. Fyrsti leikurinn var
á milli Hauka og ÍR. ÍR-ingarnir
byrjuðu vel og voru yfir lengst af
í fyrri hálfleik. Rétt fyrir leikhlé
náðu Haukar að komast yfir og
héldu þeir forystu sinni út leikinn
sem endaði 63:50. Næsti leikur
var á milli ÍBK og (R og var hann
ekki síður spennandi en Keflvíking-
ar höfðu betur og unnu leikinn,
64:50. Seinasti leikurinn milli
Hauka og ÍBK ’var því hreinn úr-
slitaleikur. Keflvíkingarnir voru
mjög óheppnir í leiknum og Hauka-
menn nýttu sér það vel og náðu
að vinna leikinn nokkuð örugglega,
65:43, og þar með mótið.
Stjörnulið valin
Eftir mótið var öllum þátttak-
endum boðið til veislu þar sem
Morgunblaöið/Einar Falur
• Besti maður mótsins f S. flokki, Brynjar K. Sigurðsson, ÍR, með
viðurkenningu sfna.
fram fór verðlaunaafhending, valin
voru stjörnulið hvors flokks og
bestu menn. í 5. flokki voru Björg-
vin K. Sigurðsson, Bjarni Ágústs-
son og Steinar Hafberg úr
Haukum, Brynjar Sigurðsson úr ÍR
og Kristinn Jónasson úr (BK valdir
í stjörnuliðið. Þorvaldur Hennings-
son og Jón A. Ingvarsson úr
Haukum, Indriði úr ÍR, Kristinn og
Nökkvi Jónsson úr ÍBK urðu þess
heiðurs aðnjótandi að mynda
stjörnulið 4. flokks.
Brynjar K. Sigurðsson, ÍR, var
valinn besti leikmaður 5. flokks en
Jón A. Ingvarsson hlaut þá útnefn-
ingu í 4. flokki.
Bjarni Magnússon bankastjóri
sagðist vonast til að mót þetta
gæti orðið árlegur viðburður því
það er mál manna að mjög vel
hafi til tekist.