Morgunblaðið - 29.01.1987, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 29.01.1987, Qupperneq 3
+ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987 3 skilmálum margra aðila sem keppast um sparifé þitt má oft sjá í smáa letrinu útskýringar á mikilvægum atriðum. Séu þessi atriði ígrund- uð vandlega koma kostir spariskírteina ríkis- sjóðs ótvírætt í Ijós hvað varðar öryggi, einfald- leika og góða ávöxtun. Tökum nokkur dæmi um atriði sem hafa áhrif á raunverulega ávöxtun sparifjár þíns. Eignaskattur: Spariskírteini ríkissjóðs eru eignaskattsfrjáls hjá fólki utan atvinnurekstrar, en það eru önnur verðbréf ekki. Eignaskattur er nú á bilinu 0,95% til 1,2%. Stimpilgjald: Spariskírteini ríkissjóðs eru stimpilfrjáls en ef þú kaupir bréf ávöxtunarsjóða þá greiðir þú í reynd 0,5% stimpilgjald. Innlausnargjald: Ef þú selur spariskírteini þitt fyrir gjalddaga greiðir þú söluaðilum þóknun, sem getur lægst verið 0,75%. Hjá flestum ávöxtunarsjóðum greiðir þú innlausnargjald þegar þú innleysir verðbréf þín sem getur verið allt að 3% en þú greiðir ekkert innlausnargjald þegar þú innleysir spariskírteini ríkissjóðs á gjalddaga. Auk þess getur þú selt spariskírteini ríkissjóðs hvenær sem er í gegnum Verðbréfaþing íslands, en ávöxtunarsjóðir áskilja sér rétt til að fresta inn- lausn telji þeir ástæðu til. Viljir þú finna út raunávöxtun sparifjár þíns skaltu ekki gleyina að taka tillit til þessara þátta. < ‘cn —i 2 t Spariskírteini ríkissjóðs: Að vandlega athuguðu máli er augljóst að spari skírteini ríkissjóðs eru um margt vænlegasti kosturinn. Ríkissjóður tryggir þér góða raun- ávöxtun og öryggi spariskírteina ríkissjóðs er ótvírætt því að baki þeim stendur öll þjóðin. Sala spariskírteina ríkissjóðs stendur nú yfir í Seðlabanka íslands og á öðrum hefðbundnum sölustöðum. RIKISSJOÐUR ISLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.