Morgunblaðið - 29.01.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
Könnun á tómstundum unglinga:
Meirihlutinn heldur
sig heima um helgar
Fimmti hver eyddi þar aldrei heilu kvöldi
i
KÖNNUN á frístundum og
áhugamálum unglinga var gerð
í apríl í fyrra á vegum íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkur
og voru niðurstöður hennar
kynntar í gær. Þá kom fram að
meirihluti unglinga dvelur heima
hjá sér eða hjá vinum eða vinkon-
um á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Langflestir unglingar
eru heima hjá sér um miðnætti
bæði kvöldin. Spurningar voru
Iagðar fyrir alla nemendur 7.,
8. og 9. bekkjar grunnskóla
Reykjavíkur hinn 14. apríl sl. og
síðan var þriðji hver nemandi úr
hverri bekkjardeild valinn. Sá
þriðjungur myndaði úrtakið, eða
rúmlega 1000 manns.
Könnunin skiptist í fjóra þætti,
tómstundir, tómstundir á föstu-
dags- og laugardagskvöldum,
áhugamál unglinga og þáttaka í
starfi félagsmiðstöðva. Hvað fyrsta
þáttinn varðar reyndust 80% ungl-
inganna hafa einu sinni eða oftar
verið mest allt kvöldið úti með vin-
um eða vinkonum þá viku sem
könnunin náði til. Tveir þriðju hlut-
ar unglinganna var 1-5 sinnum úti
og fímmti hver unglingur hafði
aldrei eitt heilu kvöldi heima þessa
viku. Þá hafði þriðjungur ungling-
anna farið með foreldrum sínum í
leikhús, kvikmyndahús, á skíði eða *
annað 1-2 skipti í vikunni. Þriðjung-
ur fór á æfingu hjá íþróttafélagi
og voru strákar þar fleiri en stelp-
ur. Þriðjungur stundaði vinnu utan
skólatíma og þar voru stelpumar í
meirihluta. Mestu ræður þar að
stelpur stunda bamapössun oftar
en strákar.
Eins og áður sagði er meirihluti
unglinga heima hjá sér eða vinum
sínum á föstudags- og laugardags-
kvöldum og meirihluti er heima á
miðnætti bæði kvöldin. Strákar eru
mun meira heima við en stelpur,
en nær allir sem fóm á vínveitinga-
hus eða krá vom stelpur og þær
VEÐUR
Heímild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
IDAGkl. 12.00:
Morgunblaðið/Bjami
Niðurstöður könnunar á tómstundum unglinga í Reykjavík voru
kynntar í gær. Það gerðu m.a. þeir Júlíus Hafstein, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur og
Gísli Arni Eggertsson, æskulýðsfulltrúi. A myndina vantar tvo starfs-
félaga Einars við könnunina, þá Ómar H. Kristmundsson og Finnboga
Gunnlaugsson.
vom lengur úti en strákarhir. Þá
var munur á árgöngum, því ungl-
ingar í 7. bekk fóm oftar í bíó en
eldri krakkar, sem á hinn bóginn
stunda partý meira og dveljast leng-
ur úti.
Þegar spurt var um helstu
áhugamál svömðu flestir að það
væm íþróttir, eða 46,6%. Næst kom
tónlistin, sem 32,2% merktu við.
Nokkur munur er á áhugamálum
eftir kynjum. Strákár merktu helst
við íþróttir, kvikmyndir, myndbönd,
vélhjól og tölvur, en stelpumar
höfðu meiri áhuga á fötum og tísku,
dansi, ferðalögum og útivist og
gæludýrum. Tónlist og hesta-
mennska höfða hins vegar jafnt til
beggja kynja. Trúmál, stjómmál,
skák og skátastarf eiga ekki upp á
pallborðið hjá unglingum.
Rúmlega helmingur unglinga
sögðust sækja félagsmiðstöðvar að
einhverju leyti. Þriðjungur kvaðst
koma þangað hálfsmánaðarlega eða
oftar og rúmur fimmtungur viku-
lega eða oftar. Mikill munur var á
aðsókn eftir fjarlægð frá félagsmið-
stöðvum. Það kom fram að fasta-
gestir félagsmiðstöðvanna em
virkir í tómstundum. Auk þess að
mæta a.m.k. vikulega í félagsmið-
stöð reyndist þessi hópur tiltölulega
mikið úti á kvöldin, hitta vini sína
oftar í heimahúsum, stunda flestar
íþróttir á eigin vegum, eyða frekar
tímanum í leiktækjasal eða sjoppu
og vera lengur úti en aðrir hópar.
Það er þó tekið fram í niðurstöðun-
um að auðvitað séu ekki allir þeir
sem koma seint heim um helgar á
glapstigum, þótt þessi hegðan þyki
vera hættumerki. Það megi draga
þá ályktun að félagsmiðstöðvar nái
að verulegu leyti til þessa áhættu-
hóps.
Einar Gylfí Jónsson sálfræðing-
ur, samdi spumingalista könnunar-
innar í samvinnu við starfsmenn
íþrótta- og tómstundaráðs. Yfirum-
sjón með frumúrvinnslu og inns-
lætti gagna á tölvu hafði Finnbogi
Gunnlaugsson, en frekan tölvuúr-
vinnsla var í höndpm Ómars H.
Kristmundssonar. I lok skýrslu
sinnar segja höfundar að aimennt
sýni könnunin fremur jákvæða
mynd af meginþorra unglinga.
Samkvæmt henni séu unglingar í
Reykjavík iðnir við að sinna áhuga-
málum sínum, íþróttum, tónlist og
fjölmiðlum. Þeir séu mikið út á við
á virkum kvöldum og þá sé algeng-
ast að þeir séu að hitta félaga sína
í heimahúsum, fari í kvikmyndahús
eða dvelji á stöðum þar sem boðið
er upp á aðsöðu til tómstundaiðk-
ana. Fjörutíu prósent eru heima hjá
sér á föstudags- og laugardags-
kvöldum og meirihlutinn er kominn
heim á miðnætti. Þessar niðurstöð-
ur séu vissulega nokkuð á skjön við
þá neikvæðu umfjöllun sem ungl-
ingar hafí fengið í fjölmiðlum og
meðal almennings undanfarin ár.
VEÐURHORFUR IDAG:
Milli íslands og Skotlands er minnkandi 1016 millibara hæft en
milli Jan Mayen og Grænlands er heldur vaxandi 1000 millibara
lægö, sem þokast austur. Hiti breytist lítið.
SPÁ: í dag lítur út fyrir hæga suövestan- og vestanátt á landinu,
skýjað og lítilsháttar súld suðvestanlands, smáél á annesjum norð-
anlands en annars léttskýjað. Hiti verður nálægt frostmarki.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR OG LAUGARDAGUR: Vaxandi suðaustanátt, víða
slydda eða rigning sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu í
öðrum landshlutum. Hlýnandi veður.
TÁKN:
Q Heiðskírt
aLéttskýjað
Hálfskýjað
Skýiað
Alskýjað
^ Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-J0' Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
fT Þrumuveður
Vj m r
* W'
F V' *.
VEÐUR IfÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að fsl. tíma
hitl vefiur
Akureyri -2 léttskýjað
Reykjavík 1 þokalgr.
Bergen -3 snjóél
Helsinki -20 léttskýjað
Jan Mayen -4 alskýjað
Kaupmannah. -7 lóttskýjað
Narssarssuaq -5 snjókoma
Nuuk -5 snjókoma
Osló -10 skýjað
Stokkhólmur -12 léttskýjað
Þórshöfn 1 alskýjað
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 3 úrk. ígr.
Aþena 18 hélfskýjað
Barcelona 15 mlstur
Berlln 0 snjóél
Chicago -2 alskýjað
Glasgow 1 skýjað
Feneyjar þokumóða
Frankfurt -1 snjókoma
Hamborg 1 léttskýjað
Las Palmas vantar
London 6 léttskýjað
Los Angeies 13 skýjað
Lúxemborg -2 þokumóða
Madríd 13 súld
Malaga 17 súld
Mallorca 15 súld
Miami 8 heiðskfrt
Montreal -15 snjókoma
NewYork -9 léttskýjað
Parls -1 alskýjað
Róm 17 skýjað
Vín -1 skafrenn.
Washington -13 þokumóða
Wlnnipeg -14 fsnálar
Morgunblaðið/Bjami,
Geymslur Vöruflutningamiðstöðvarinnar eru að fyllast.
Vömflutningar á landi
aukast dag frá degi
Vöruflutningar á landi
hafa aukist mjög mikið und-
anfarnar vikur vegna verk-
falls háseta á kaupskipum.
Jóhann Ingimundarson hjá
Vöruflutningamiðstöðinni
segir að þessi aukning nemi
að minnsta kosti 30-40% og í
sumum tilfellum upp undir
helmingi samanborið við
flutninga áður á sama
árstíma.
Jóhann sagði að vöruflutning-
arnir virtust aukast dag frá degi.
Mesta aukningin væri á flutn-
ingum til Aust- og Vestfjarða,
en nú væri búið að loka vegum
á Vestfjörðum vegna aurbleytu.
Hann sagði að flutningar til
Norður- og Suðurlands hefðu
aukist minna til þessa, en væru
nú í örum vexti.