Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
9
atlSK*’1 floWa
«9»
á
Flokkur gSSL-
Sælt er sameiginlegt
skipbrot
Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, var árla á fótum í gærmorgun, enda
átti hann erindi við almenning á Bylgjunni,
til að spjalla um niðurstöður síðustu skoð-
anakönnunar DV um fylgi stjórnmálaflokk-
anna. Það vakti athygli að svör flokksfor-
mannsins vóru ríkari af kæti yfir lakari
útkomu Alþýðuflokks (en í næstu könnun á
undan) en hryggð yfir hliðstæðu „tapi" Al-
þýðubandalagsins. Staksteinar fjalla um
þessi viðbrögð í dag.
Fylgi Alþýðu-
flokksrýrnar
Samkværat síðustu
skoðanakönnun DV um
fylgi stjómmálaflokka
hafa stjómarflokkamir,
Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur,
styrkt stöðu sína, einkum
Sjálfstæðisflokkurinn. Á
það er þó að líta að Sjálf-
stæðisflokkurinn fær
yfirleitt hærra hlutfall i
skoðanakönnunum en
kosningum, svo þessar
niðurstöður kunna að
vera „sýnd veiði en ekki
gefin". Eini stjómarand-
stöðuflokkurinn, sem
gildnar í könnuninni, em
Samtök um kvennalista.
A-flokkar svokallaðir,
Alþýðubandalag og Al-
þýðuflokkur, fá lakari
niðurstöðu en í næstu
könnun á undan. Al-
þýðubandalag er með
12% fylgi í stað 13,4% í
desembermánuði síðast-
liðnum (17,3% i síðustu
kosningum) og Alþýðu-
flokkur 19% í stað 26,4%
(11,7% í síðustu kosning-
um).
Skýring formanns Al-
þýðubandalagsins á
meginniðurstöðu þessar-
ar könnunar, þ.e. að
stjómarflokkamir
styrkja stöðu sína, var sú,
að fjölmiðlar hafl talið
þjóðinni trú um að góðæ-
rið væri ríkisstjóminni
að þakka (væntanlega i
bland við hagstæðar ytri
aðstæður). Hann leit ekki
í eigin barm eða flokks
síns í leit að skýringu,
að þvi er stöðu Álþýðu-
bandalagsins varðar.
Kátur eftir at-
vikum
Formaður Alþýðu-
bandalagsins var Iiress
og kátur, eftir atvikum,
í morgunsár Bylgjunnar.
Hann var svo kátur yfir
bakslagi eða afturkippi
Alþýðuflokksins að spyr-
ill sá ástæðu til að inna
hann sérstaklega eftir
þvi, hvort meint tap
„bróðurflokksins" væri
þvilikt kátínuefni. Dró
þá flokksformaðurinn i
land, en nóg var þegar
sagt til að opinbera, hvað
honum bjó í btjósti.
En hvað hefur gerzt
sem veikir stöðu Alþýðu-
flokksins? Það skyldi þó
aldrei vera allt talið um
— og líkumar á — ,jafn-
aðarstjóm", ef A-flokkar
koma vel út úr komandi
kosningum, þ.e. mögu-
leikinn á nýrri vinstri
stjóm verðbólgu, við-
skiptahalla, gengissigs
og erlendra skulda. Spor-
in 1978-1983 hræða.
Afstaða Alþýðuflokksins
í borgarstjóm Reykjavik-
ur og nánast málefnaleg-
ur samruni við
Alþýðubandalagið (at-
kvæðafæluna) hefur
opnað augu fólks fyrir
þessari hættu.
Alþýðubanda-
lagið
og varaar- og
öryggismálin
Formaður Alþýðu-
bandalagsins var sérs-
taklega spurður að þvi,
hvort meint fráhvarf
flokksins frá því sem
Staksteinar kalla einang-
runarstefnu í utanríkis-
málum [„ísland úr NATO
— herinn burt“] hafi ýtt
róttæku vinstra fylgi frá
honum. Flokksformaður-
inn þvertók fyrir það.
Stefnan væri óbreytt.
Hinsvegar væri styrk-
leiki flokksins til að
fylgja stefnunni eftir
ónógur.
Alþýðubandalagið hef-
ur verið hluti af fjórum
aðildarríkisstjóraum að
Atlantshafsbandalaginu
og vamarsamningi við
Bandarikin. Þessi aðild
var óhjákvæmilegur
hluti af svokölluðum ráð-
herrasósíalisma, sem
verið hefur ær og kýr
Alþýðubandalagsins í
bláköldum raunveruleika
íslenzkra stjónunála. Ól-
afur Ragnar Grimsson
og hans armur í flokkn-
um hefur og lengi ýtt
undir það að þessi blá-
kaldi raunveruleiki
flokksins verði viður-
kenndur í orði — eins og
á borði, þ.e. að „einang-
mnarstefnan" verði
milduð í stefnumörkun
tU framtíðar.
Flokksformaðurinn
segir, þrátt fyrir allt, að
stefnan sé óbreytt. Vera
má, en hún er vafin inn
í óljósa fyrirvara í þágu
ráðherrasósíalismans,
því mjúkir em stólamir
i stjómarráðinu - og Ijú-
far minningar um völd
og vegtyllur.
Og hvað gerir til þó
örfáir „vinstri sósíalist-
ar“ skilji ekki muninn á
orðum og efndum? Eða
tali ofan í kafflbolla um
sérframboð? Slikir bollar
em þeirra einu áhey-
rendur. Þeir em líka svo
önnum kafnir við að tala
(og tala) að þeir mega
ekki vera að því að fylgja
eftir orðum sínum. Ráð-
herrasósíalisminn í fíla-
beinstumi Alþýðubanda-
lagsins þarf ekki að
óttast slíkan hégóma. Og
oft þarf að fóma peðum
í vel tefldri skák, til
dæmis framtíðarskák
hugsanlegrar .jafnaðar-
stjómar".
Míele-
Heimilistœki
annað er mála-
miðlun.
. [T1JÚHANN ÓLAFSSON & CO .
^4 1 43 Sundaboro - 104 R*yk]av(k - Síml 688688 W
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
13í0amazkaðulinn
Saab 900 Turbo 1982
40 þ.km. Grásans. Rafm. i rúöum, álfelgur,
sóllúga o.m.fl. Verð 520 þús.
Blazer II S-10 1984
Svartur, álfelgur, splittað drif, 5 gira, cruise
corttrol. Einn sá fallegasti. Verð 900 þus.
M. Benz 280 SE 1982 (83)
Grásans., ekinn aðeins 64 þ.km. ABS, sóll-
úga o.fl. aukahlutir. Dekurbíll. Verö 1190
þús.
Fiat Uno 45S 84
V.rauöur, 47 þ.km. V. 210 þ.
Volvo 244 DL 82
42 þ.km. Toppbill. V. 370 þ.
Suzuki Fox 82
Hvítur, 2 gangar af dekkjum o.fl.
Mazda 626 Coupé 80
2ja dyra, uppt.vél. v. 215 þ.
Subaru Hatsback 1.8 83
70 þ.km. 4x4. V. 330 þ.
M. Benz 309 (D) 84 sendib.
Aðeins 39 þ.km. V. 1100 þ.
V.W. Golf GTI (1.6) 79
Álfelgur o.fl. aukahl. V. 290 þ.
M. Benz 190 E 85
Aðeins 40 þ.km. m/öllu. V. 940 þ.
Chevrolet Malibu Classic 79
8 cyl. Vandaður bíll. V. 270 þ.
Mazda 323 (1.3) 85
10 þ.km. 5 dyra. V. 310 þ.
Toyota Camry (1.8) 85
22 þ.km. m/framdrifi. V. 530 þ.
Escort (þýskur) 1.1 85
Sóllúga o.fl. V. 395 þ.
Citroen CX Athena 81
Nýinnfl., 5 gíra, sóllúga. V. 385 þ.
Honda Civic 1500 86
7 þ.km. sóllúga o.fl.
BMW 318i 83
60 þ.km. Ýmsir aukahlutir. V. 445 þ.
Citroen GSA Special 86
13 þ.km. Grásans. V. 330 þ.
Fiat Panda 83
27 þ.km. V. 160 þ.
Citroen G.S.A. Pallas 84
28 þ.km. Gott lakk. V. 315 þ.
Oldsmobile Omega 80
2ja dyra, einstakur bíll. V. 290 þ.
Nissan Patrol 85
27 þ.km. 6 cyl. V. 890 þ.
B.M.W. 323i 85
V. 780 þ. Skipti á nýl. jeppa U.S.A.
Suzuki Pickup yfirb. 84
25 þ.km. Úrvalsbfll (4x4). V. 530 þ.
Ford Sierra 86
5 dyra. Skipti ódýrari.
Toyota Landcruser II 86
18 þ.km. Bensín. V. 820 þ.