Morgunblaðið - 29.01.1987, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.01.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987 23 UM SKBPASÖLUR eftir Björn Dag- bjartsson Verðlag á gömlum skipum, sem gengið hafa kaupum og' sölum að undanförnu hér innanlands, hefur verið nokkuð til umræðu að undan- förnu. Umræðan hefur einkum snúist um tvö atriði málsins þ.e. að þegar skip er selt frá ákveðnu svæði þá minnkar alla jafna sá afli sem landað er á svæðinu og svo hitt að verðlag á þessum skipum er mun hærra en verið hefur. Orsök- ina fyrir hvoru tveggja telja sumir vera kvótakerfið svokallaða og finna því nú enn meira til foráttu Laugar- gerðisskóli: Brunavarnir í besta lagi Borg í Miklaholtshreppi EITT AF því sem skylt er að hafa í fullu lagi á stóru og mann- mörgu heimili eru brunavarnir. í Laugargerðisskóla hafa verið gjörðar þær endurbætur á húsa- kynnum skólans sem Brunamála- stjórn hefur óskað eftir að gjörðar væru. A þriðjudag komu menn frá Brunamálastjórn í Laugargerðis- skóla og kynntu nemendum og starfsfólki þau viðbrögð sem fólk þarf að sýna ef eldur kemur upp í slíku húsi. Gekk þetta allt ljómandi vel og voru komumenn ánægðir með viðbrögð fólks og aðbúnað í skólanum siálfum. Páll. Borgarráð: Kirkjugarðs- gjald2,l% SAMÞYKKT var á borgarráðs- fundi í gær að kirkjugarðsgjald yrði 2,1% af aðstöðugjaldi og útsvari. Það mun vera sama hlut- fall og í fyrra. HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. AÓstoÓum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. Vökvamótorar = HÉÐINN = VÉLAVER2LUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR- ÞJÓNUSTA en áður. Á undanförnum vikum eru það einkum Suðurnesjamenn sem bera sig illa undan skipasölum, áður voru það Snæfellingar, þar áður Skagamenn o.s.frv. Annars staðar á landinu fjölgar skipum og útgerð virðist blómstra. Á þessu er sjálf- sagt engin einhlít skýring en það er ekki víst að allir séu sammála um það hvar hennar sé að leita. Suðurnesj avandinn Því er ekki að neita að töluverð tilfærsla hefur orðið á skipum milli landshluta að undanfömu. Suður- nesjamenn munu hafa séð á eftir einum 5 togurum á fáum misserum en fiskveiðifloti Norðurlands eystra hefur stækkað um 3.500 tonn á svipuðu tímabili. Það er alltof mikil einföldun að kenna eða þakka kvótakerfinu um þessar tilfærslur, þó að núgildandi fiskveiðistefna hafi e.t.v. valdið því að einstakir útvegsmenn hafi hætt útgerð fyrr en ella. Einhvern veginn finnst mér að vandi sjávarútvegs á Suðurnesjum sé ekki alveg ný bóla. Árið 1979 var fiskiðnaður á Reykjanesi í sér- stakri gjörgæslumeðferð hjá Framkvæmdastofnun. í þá daga voru 24 frystihús á Reykjanesskaga sunnan Hafnarfjarðar og vanda- málið var sem fyrr og nú hráefnis- skortur eða vöntun á skipum. Skip voru útveguð með ýmsu móti, m.a. Júlíus Geirmundsson sem var á leið- inni til Noregs en stöðvaðist hjá Kaupfélaginu í Keflavík. Þrátt fýrir allar björgunarað- gerðir hefur nokkuð sigið á ógæfuhliðina fyrir fiskiðnaði Suður- nesja síðan þetta var, sem m.a. má rekjatil áranna 1980—'83. Ogþrátt fyrir samdrátt í sjávarútvegi verða menn ekki mikið varir við atvinnu- leysi á þessu svæði, sem er hið eina svæði þar sem fólki fjölgar fyrir utan Reykjavík. Samkeppni um vinnuafl virðist töluverð á Suðurnesjum og and- rúmsloftið ekki sérlega vinsamlegt fiskvinnslu. Það var t.d. eftirtektar- vert að beitingamenn á þessu svæði einu fóru í verkfall um daginn ein- mitt þegar línuafli var að hálfu utan kvóta. Fjölmiðlaglamrið í kringum þennan sérstaka vanda sjávarút- vegs Suðumesja leysir hann ekki. Þeir sem í greininni starfa verða að hafa trú á framtíðinni. Ef betri störf bjóðast og annar atvinnu- rekstur gefur meira af sér þá er ekkert við því að segja. Þessu er ekki þannig varið á Norður- landi. Þar hefur fólk trú á sjávarútvegi og á auk þess ekki í mörg önnur hús að venda. En það, að Suðurnesjamenn hafi farið eitthvað ver út úr kvótakerfinu en Norðlendingar er einfaldlega ekki rétt. Verðlag á gömlum skipum Fyrir nokkmm misserum var ekki óalgengt að skuldir, sem hvfldu á fiskiskipum, væm yfir trygginga- verðmæti og hugsanlegt söluand- virði væri svo langt þar undir. Dæmið hefur nú heldur betur snú- Björn Dagbjartsson „Samkeppni um vinnu- af 1 virðist töluverð á Suðurnesjum og and- rúmsloftið ekki sérlega vinsamlegt fiskvinnslu. Það var t.d. eftirtektar- vert að beitingamenn á þessu svæði einu fóru í verkfall um daginn ein- mitt þegar línuaf li var að hálfu utan kvóta.“ ist við. Þannig er söluverðmæti gamalla skipa ótrúlega hátt um þessar mundir, oft miklu hærra en tryggingaverðmætið. Fyrir þessu em nokkrar ástæður. I fyrsta lagi em nýir aðilar að kaupa sér aðgang að fiskimiðunum, menn sem ekki hafa átt skip áður em að kaupa kvóta með skipum. Það er bannað að flytja inn skip nema önnur jafnstór fari út í staðinn og í þriðja lagi er það því miður enn til í dæminu að lánafyrirgreiðsla til byggðarlaga og einstakra fyrir- tækja sé ekki í takt við raunvemleg rekstrarlögmál. Allt þetta hleypir verði á skipum upp. Ef menn græða á skipasöl- um er sjálfsagt að skattleggja þann gróða að fullu, en ég fæ- ekki séð að nein voðaleg óhæfa sé á ferðinni þó að verð skipa hækki. Það er vottur þess að öll- um er ljóst að frjáls og óheftur aðgangur að íslandsmiðum er ekki lengur fyrir hendi. Þrátt fyrir allar þessar bremsur og hindranir heldur fiskiskipastóll- inn áfram að stækka þó að hægt hafi vemlega á hin allra síðustu ár. Það er eins og menn geti ekki skil- ið það að endumýjun flotans verður að gerast með því að gömlu skipin hverfi úr veiðunum og að nýju skip- in eigi ekki að vera stærri en hin. Það er alveg sama hvaða kerfi við hefðum til fiskveiðistjórnun- ar ef við viðurkenndum bara að flotinn mætti ekki stækka þá hækkar það verð á skipum eitt sér. Höfundur er annar af alþingis- mönnum Sjálfstæðisflokks fyrir Norðurlandskjördæmi eystra. Höfum opnað eftir breytingar glæsilega og rúmgóða verslun ...og í dag verður Erla Ásgeirs- dóttir milli kl. 15 og 18 með kynningu á Husqvarna saumavélum, þar á meðal nýj- asta undrinu í saumavélalínunni Prisma 990. Á sama tíma verður sýni- kennsla í notkun Husqvarna og Sanyo örbylgjuofna. Komið og smakkið á Ijúffengum mat úr örbylgjuofni. PC/XT Kynnum einnig hina frábæru einkatölvu sem hentar jafnt í heimilisbókhaldinu sem fyrirtækinu. Verð aðeins frá krónum 39.500,- stgr. Ferðafæki IW-9711. ....... MW-705. MW-211 1...... MW-250 ■■•7.443,- -8.397,- ■10.522,- ■17.078,- VHR-1100.. HágæðamyndbándsVækj:'07'315’' >.s. -löfum ávallt heitt á könnunni. Verið velkomin. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 91 35200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.