Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1987
Mirming:
Rann veig Þorsteinsdóttir
hæstaréttarlögmaður
Fædd 6. júlí 1904
Dáin 18. janúar 1987
Rannveig Þorsteinsdóttir hæsta-
réttarlögmaður og fyrrverandi
alþingismaður er látin. Hún var
mjög sterkur persónuleiki sem
ávann sér traust, vinsemd og virð-
ingu þeirra sem hún átti samskipti
við. Það er því sjónarsviptir að þess-
ari gáfuðu dugnaðarkonu, en
minningarnar munu lifa.
Árið 1985 brast þrek og heilsa
Rannveigar og var hún búin að
dvelja liðlega eitt og hálft ár á
Reykjalundi er hún lést. Hún mun
því hafa verið hvíldinni fegin.
Rannveig Þorsteinsdóttir til-
heyrði aldamótakynslóðinni síðustu
þegar þröngt var í búi hjá flestum
Islendingum. Hún lét samt ekki
aftra sér að brjótast til mennta
tæplega tvítug í Samvinnuskólan-
um og lauk þaðan námi með
ágætum. En kjarkurinn og löngunin
til æðri mennta bjó áfram með
henni og varð að óstöðvandi afli.
Eftir um tuttugu ára skeið hélt hún
því áfram að mennta sig og lauk
lögfræðiprófi 1949 og varð síðan
hæstaréttarlögmaður 1952.
Það var fátítt í þá daga að konur
hæfu æðra nám og lykju því á full-
orðinsaldri. Til þess þurfti góðar
gáfur, áræði og úthald þar sem
vinna varð fyrir sér með náminu.
En Rannveig var einstök dugnaðar-
kona bæði í námi og starfi.
Rannveig vann mikið að félags-
málum. Hún var mjög félagslynd
að eðlisfari og starfsöm, og vegna
vinsælda og dugnaðar valdist hún
til fjölmargra trúnaðarstarfa. Hún
hóf störf sín á þessu sviði í ung-
mennafélagshreyfingunni og var
mörg ár í stjórn Ungmennafélags
íslands. Hún var í stjórn og síðar
formaður Ungmennafélags Islands.
Hún var í stjórn og síðar formaður
Kvenfélagasambands íslands,
formaður Félags framsóknar-
kvenná, formaður í Félagi íslenskra
háskólakvenna og Kvenstúdentafé-
lags íslands. Rannveig sat á Alþingi
1949—1953 en áður var hún búin
að gegna starfi þingritara um ára-
bil. Hún var dómari í verðlagsdómi
Reykjavíkur, sat sem varafulltrúi á
Ráðgjafaþingi Evrópuráðsins. Þá
sat hún í happdrættisráði Háskóla
Íslands, útvarpsráði, yfirskatta-
nefnd o.fl. sem hér verður ekki upp
talið.
Rannveig var mjög áhugasöm
um félagsmál og réttindi kvenna
og var þar sem sjálfskipuð til for-
ustu. Á málflutningsskrifstofu
hennar áttu konur vísan stuðning,
enda vann hún að málefnum kvenna
af sínum alkunna dugnaði.
Ég á því láni að fagna að hafa
þekkt Rannveigu í nærfellt þijátíu
ár eða frá því að hún gekk til fylg-
is við samtök soroptimista. Þegar
soroptimistahreyfingin barst hing-
að til lands árið 1959 gerðist hún
stofnfélagi í Soroptimistaklúbbi
Reykjavíkur sem var formlega
stofnaður það ár. Það var áreiðan-
lega engin tilviljun að Rannveig
gerðist félagi í Soroptimistaklúbbi
Reykjavíkur, fyrsta soroptimista-
klúbbnum hérlendis. Þjónustuhug-
sjónin við þá sem eru minnimáttar
féll vel að skapferli hennar. En sem
kunnugt er tilheyra soroptimista-
klúbbarnir hinum svonefndu þjón-
ustuklúbbum, hverra meginmark-
mið er að láta gott af sér leiða og
veita stuðning þeim sem verr eru
settir í þjóðfélaginu.
Rannveig var mjög virk innan
soroptimistasamtakanna og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum bæði inn-
an klúbbsins og hjá Soroptimista-
sambandi íslands.
Það var mjög gott að vinna með
Rannveigu og notalegt að vera í
návist hennar. Hún var gædd þeim
góða hæfileika að eiga auðvelt með
að átta sig á kjarna hvers máls.
Hún var fljót að setja sig inn í
málin og fundvís á farsæla lausn
en þetta kom sér vel í erilsömu lög-
mannsstarfi. Rannveig naut álits
bæði innan lögmannastéttarinnar
sem og hjá þeim sem nutu starfa
hennar á lögmannsskrifstofunni
sem hún rak um árabil.
Á gleðistundum var hún hrókur
alls fagnaðar og lét oft hnyttiyrði
fjúka. Nú þegar hún er horfin yfir
móðuna miklu leita margar góðar
minningar á hugann. Hennar aðal
var drengskapur og heiðarleiki.
I dag kveðjum við systurnar i
Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur
Rannveigu Þorsteinsdóttur hinstu
kveðju. Við þökkum henni af alhug
samfylgdina, öll störfin í þágu sam-
taka okkar, ógleymanlegar sam-
verustundir í starfi og leik á liðnum
árum og holl ráð í hveiju máli.
Við sendum systkinum hennar,
ættingjum og vinum hugheilar sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
Rannveigar Þorsteinsdóttur.
Halldóra Eggertsdóttir
Kveðja frá Kvenfélaga-
sambandi Islands
í dag kveðja vinir og samferða-
menn Rannveigu Þorsteinsdóttur
hæstaréttarlögmann, sem lést 82
ára gömul þann 18. janúar sl. eftir
langa vanheilsu.
Með henni hverfur af sjónarsvið-
inu svipmikil atorkukona, braut-
ryðjandi íslenskra kvenna í sókn
þeirra til aukinnar menntunar og
þátttöku í þjóðmálum.
Það taldist til stórtíðinda árið
1946 að rúmlega fertug skrifstofu-
stúlka lauk stúdentsprófí við
Menntaskólann í Reykjavík, hafði
raunar tekið gagnfræðapróf ári
fyrr, sem líka var óvanalegt. Þessi
kona var Rannveig Þorsteinsdóttir.
Hún hvarf þá frá öruggu starfi sem
bréfritari hjá Tóbaksverslun Is-
lands, en þar hafði hún unnið í 12
ár. Á þessum árum voru námsskil-
yrði fyrir fullorðið fólk allt önnur
en þau urðu síðar og eru nú, þegar
ESAB
Rafsuðutæki
vír og
fylgihlutir
Nánastallt til
rafsuöu.
Forysta ESAB
ertrygging
fyrirgæðum
og góðri þjónustu.
Allartækni-
upplýsingar
eru fyrirliggjandi
ísöludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SELJAVEGI 2,
SlMI24260
ESAB
svo er búið í haginn, að flestir, sem
hug hafa á, geta hafið langskóla-
nám fram eftir öllum aldri og námið
er lagað að þeirra aðstæðum, að
vinnu og jafnvel búsetu. Þessu var
ekki til að dreifa árið 1946. En
Rannveig lét ekki sitja við stúdents-
prófið eitt. Hún lauk embættisprófi
í lögum árið 1949. Ein kona hafði
áður lokið því prófi hérlendis, frú
Auður Auðuns. 10 árum síðar fékk
Rannveig réttindi til málflutnings
fyrir hæstarétti, fyrst íslenskra
kvenna. Lögmannafélag Islands
gerði hana síðar að fyrsta heiðurs-
félaga sínum. Hún rak málflutn-
ingsskrifstofu í Reykjavík árin
1949—74, en þá var heilsu hennar
mjög farið að hraka.
Svo aftur sé vikið að námsárum
Rannveigar er athyglisvert, að ein-
mitt á þeim annasama tíma gerist
hún mikilvirkur þátttakandi í fé-
lagsmálum kvenna og það á fleiri
en einum vettvangi.
Fyrir þennan tíma hafði hún
starfað mikið í ungmennafélögun-
um, þeim góða skóla félagshyggju
og mannræktar. Hún var m.a. fé-
lagi í Umf. Velvakanda hér í
Reykjavík, en það félag starfaði af
krafti framundir 1940 og stóð t.d.
fyrir svonefndum farfuglafundum
með skemmtidagskrá og dansi í
Kaupþingssalnum. Margir rosknir
ungmennafélagar minnast þeirra
funda með ánægju og þar með
þeirra systkina Rannveigar og Ól-
afs. Rannveig var einnig félagi í
skíðadeild Ármanns, en þar var
Ólafur bróðir hennar formaður í
mörg ár. Á þeirri tíð var rudd braut
í Jósefsdal og byggður þar skíða-
skáli Ármanns. Þar stjórnaði
Rannveig eldhúsinu í nokkur ár af
dugnaði og skörungsskap. Hún
unni óbyggðum og útilífi, ferðaðist
mikið á yngri árum og var gagn-
kunnug landi sínu og þjóð. Rann-
veig átti sæti í stjórn Ungmennafé-
lags Islands í mörg ár og
þingskrifari var hún á alþingi árin
1942—48, svo að reynsla hennar í
félagsstörfum var staðgóð þegar
hún hóf fyrir alvöru afskipti af fé-
lagsmálum kvenna. Hún var ein
þeirra, sem undirbjuggu stofnun
Félags framsóknarkvenna í Reykja-
vík árið 1945, var þar í laganefnd
og síðar mikil driffjöður þess félags
og formaður þess í 13 ár. Þá var
hún formaður Kvenstúdentafélags
íslands og Félags háskólakvenna
frá 1949-57.
Vorið 1947 vann hún fyrstu störf
sín fyrir Kvenfélagasamband ís-
lands, var ritari á landsþingi þess.
Hún átti síðan sæti í stjórn sam-
bandsins frá því ári og til 1963, var
formaður frá 1959—63.
Þegar skoðuð er saga Kvenfé-
lagasambandsins frá þessum árum
fer ekki milli mála, að Rannveig
hefur gengið þar að verki af dugn-
aði, ósérhlífni og atorku, en þeir
eiginleikar voru jafnan áberandi í
fari hennar. Jafnframt var hún frá-
bærlega glöggskyggn og fljót að
átta sig á aðalatriðunum í ólíkustu
málum. Auk stjórnarstarfanna hjá
KÍ tók hún að sér skrifstofuhald
samtakanna og afgreiðslu Hús-
freyjunnar allmörg ár. Skrifstofan
var raunar til húsa hjá lögfræði-
skrifstofu hennar allt til 1967,
þegar húsakynnin á Hallveigarstöð-
um voru tekin í notkun. Má með
sanni segja að grunnurinn að skrif-
stofunni, svo og að Leiðbeininga-
stöð húsmæðra, hafi verið lagður á
stjómar- og formannsárum Rann-
veigar.
Á þessum árum samþykkti Al-
þingi lögin um orlof húsmæðra, en
þar kom Kvenfélagasambandið
mjög við sögu. Fleiri lagabálkar
voru sendir stjórn sambandsins þá
sem oftar, má þar til nefna frv. til
laga um launajafnrétti og breyting-
ar á lögum um almannatryggingar.
Kom lögfræðiþekking og skarp-
skyggni Rannveigar þar að góðum
notum. Um þetta leyti var einnig
unnið að samræmingu á lögum og
starfsháttum aðildarfélaga KÍ og
samdi Rannveig þá ásamt Svövu
Þórleifsdóttur handbókina Félags-
mál og fundarstjórn, sem KÍ gaf
út og enn er í góðu gildi og mikið
notuð. Á þessum árum hófst líka
það góða samstarf, sem enn er
milli KI og krabbameinsfélaganna
á landinu og á þessum árum jókst
KCLLatex
TAKTU HLUT1NA FÖSTUM TÖKUM
KCL Latex gúmmíhanskarnir eru
afar hentugir þar sem hreinlætið
er í fyrirrúmi.
Þeir eru þunnir en sterkir og verja
hendurnar gegn skrámum,
óhreinindum, sterkum efnum og
annarri óáran sem þær geta
komist í tæri við í daglegu az
eldhúsamstri, við
hreingerningar o.þ.u.l.
KCL Latex hanskarnir eru búnir
sérstökum gripfleti í lófanum
sem gerir þér kleift aö taka
hlutina föstum tökum.
Farðu vel með hendurnar þínar
- notaðu KCL Latex gúmmí-
hanska.
K.RlCHTERhf.