Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 54

Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987 ©1986 UmverMl Pres* Syndicate mv -AFBREIPíSLA Reglusemi. Já, svipað og heima hjá . . . Ákveðnar reglur sem gilda? — Já eiginlega þær sömu og heima hjá þér .. Með morgimkaffinu HÖGNI HREKKVISI // pAPBR. Svo <SA/WAN þEGAR H ANN RE'KST A VBSG/Mn! " Eflum umræðuna um eyðni - burt með tepruháttinn Ég er fyrrverandi nemandi í Fjöl- brautarskólanum í Breiðholti og er tengd nokkuð sterkum böndum við hann. Það snart því streng í brjósti mínu þegar sýnt var í sjónvarpinu um daginn að nemendur hefðu upp á sitt einsdæmi selt smokka með miðum á busaball. Þetta fannst mér svo góð áminning til okkar um að nota smokkinn að vart hefur verið hægt að gera betur. Ég varð því verulega hissa þegar skólameistari, í fréttatilkynningu í Morgunblaðinu á þriðjudaginn síðasta, lýsti yfir vanþóknun sinni á þessu athæfi. Þröngsýni hans var slík að hann lét úthýsa nemendum úr hátíðarsal skólans með fræðslufund. Hann lætur í veðri vaka að hann hyggist setja skemmtinefndina af og jafnvel að fella niður „Sæludagana". Ég er vægast sagt þrumulostin. Þetta finnst mér lýsa slíkri þröng- sýni skólameistara að ég á engin orð yfir. Ég hef alltaf haldið að umræðan um eyðni ætti að eflast en ekki að vera þögguð niður af yfirvöldum. Felix Fyrir ekki alls löngu gaf landlæknisembættið út bækling um eyðni, hann bar nafnið, veijumst eyðni notum smokkinn. Nemendur Fjölbrautarskólans í Breiðholti vildu minna á þetta en yfirvöld skól- ans virðast ekki alveg sátt við aðferðina sem notuð var. Að minnsta kosti staðhæfir bréfritari að skólameistari fjölbrautarskólans hafi tekið illa i þetta framtak. Smitast eyðni þá ekki einkum við samfarir? Eyfirðingar athugið Athygli Eyfirðinga, skal vakin á því, að ritstjórnarskrifstofa Morgunblaðsins, Hafnarstræti 85, Akureyri, tekur við bréfum og fyrirspurnum í Velvakanda. Kæri Velvakandi. Ég heyrði í útvarpinu um daginn að meinatæknar við Borgarspítal- ann byggðu launakröfur sínar meðal annars á því að þeir ættu að fá áhættuþóknun vegna hættu á að smitast af eyðni. Nú hafa sérfræðingar upplýst að eyðni smitist einkum við samfarir. Mig langar bara að spytja hvað gengur eiginlega á þarna í Borg- arspítalanum? - ót Víkverji skrifar Iþessum dálki hefur í nokkur skipti verið rætt um veit- ingahús, sem vakið hafa athygli umsjónarmanna hans. Astæða er til að bæta í þann hóp veitingahúsinu Pottinum og pönnunni við Nóatún. Víkverji borðar þar alloft og ætíð farið ánægður á braut enda matur og þjónusta til fyrirmyndar. Mikil aðsókn er að staðnum og ekki óalgengt að gestir þurfi að bíða eftir borði. Það er heldur hvimleitt fyrir gestina, bæði þá sem bíða og þá sem eru að borða. Ge- stirnir geta fengið það á til- finninguna að fólk bíði eftir því að þeir klári matinn! Blað- aúrklippa úr Chicago Times, sem Víkverji hefur undir hönd- um, gefur til kynna að útlend- ingar hafi einnig hrifist af þessum veitingastað. Þar ritar blaðamaður að nafni Marwin Weinstein um ísland og hælir Pottinum og pönnunni fyrir matinn. Segir blaðamaðurinn að ef Gorbachev og Reagan vilji fá ekta sjávarrétti sé þetta staðurinn! xxx orinn er genginn í garð. Nú til dags þykir enginn maður með mönnum ef hann situr ekki eitt eða fleiri þorra- blót. Þorramaturinn og blótin voru enduivakin í veitingahús- inu Nausti fyrir meira en 30 árum. Að þessu sinni er engan þorramat að fá í Nausti, þar hefur engin starfsemi verið í marga mánuði. En aðdáendur Naustins ættu að geta tekið gleði sína aftur því ungir veit- ingamenn hafa keypt staðinn og opna hann nú í vikunni. Vonandi hefja þeir þetta fræga veitingahús til vegs og virðing- ar á ný. Nýlega sendi Hagstofa ís- lands frá sér fréttatilkynningu um mannfjölda á íslandi 1. desember. Þar er ennfremur rakin sú byggðaþróun, sem orðið hefur undanfarin ár. Til- kynningin birtist í heild í Morgunblaðinu 10. janúar. Þriðjudaginn 20. janúar skrifar Sigurður Guðmundsson forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar mjög athygl- isverða grein hér í blaðið, þar sem hann túlkar tölur Hag- stofunnar og setur þær í samhengi svo að fólk geti gert sér grein fyrir því hvert stefnir. Og þróunin er augljós. Allt frá árinu 1981 hafa fleiri flutt frá landsbyggðinni til höfuðborg- arsvæðisins en flutt hafa þaðan út á landsbyggðina. í fyrra var þessi tilfærsla til höfuðborgarsvæðisins um 1100 manns og samtals frá árinu 1981 er tilfærslan tæp- lega 5500 manns eða sem samsvarar öllum íbúum Ár- bæjarhverfis eða öllum íbúum Akraness, ef dæmi er tekið af landsbyggðinni. I Reykjavíkurbréfi Morgun- blaðsins, sem birtist sunnu- daginn 25. janúar, er íjallað ítarlega um grein Sigurðar. Víkveiji ætlar ekki að fjalla frekar um þetta málefni hér en vill ítreka að þetta er mál sem allir áhugamenn um byggð á íslandi mega ekki láta fram hjá sér fara. Allar upplýs- ingar fá þeir með því að lesa þær greinar, sem drepið er á hér að framan. XXX A Igrein í Morgunblaðinu s.l. sunnudag er vakin athygli á þörfu máli, þ.e. að Alþingi móti á yfirstandandi þingi heildarstefnu í umhverfismál- um. Síðan 1978 hefur þetta mál verið til meðferðar þingsins án þess að það hafi tekið á sig rögg og afgreitt málið. Meng- unarhætta fer vaxandi og umferð um helstu ferða- mannastaði er þegar komin í hámark og hætta á óbætanleg- um spjöllum á landi ef ekki verður spyrnt við fótum, eins og Birgir Þorgilsson ferða- málastjóri og fleiri hafa rækilega bent á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.