Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 55

Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987 55 Reykbindindisnámskeið Er ekki of langt gengið? Þið í top 10 finnst ykkur ekki of langt gengið? Það var auglýst í Morgunblaðinu að það ætti að vera svaka skemmt- iatriði í „top 10“ á gamlárskvöld. Meðal annarra áttu að koma fram Ragnhildur Gísladóttir, Egill Ólafs- son, leynigestur, tíksusýningarfólk og einnig átti að vera flugeldasýn- ing. Þetta plataði mig og fleiri til að koma en ekkert af þessu var nema tveir dansar. Ætlið þið að nota þetta sama bragð í lok þessa árs? Hugsið ykkur um tvisvar áður en þið auglýsið eitthvað sem ekki er staðið við. Arnheiður Hjálniarsdóttir Þakklæti Krabbameinsfélagsins Fyrrum reykingamaður skrif- ar: Ég er einn þeirra fjölmörgu sem hafa orðið þeirrar ánægju aðnjót- andi að sækja námskeið Krabba- meinsfélagsins í reykbindindi. Ég var einn af 25 sem byijuðu á nám- skeiði fyrir rúmu ári. Við höfum haldið sambandi síðan og héldum upp á ársafmæli hópsins fyrir nokkru. Af þeim 25 sem hófu leik- inn mættu 15 í afmælishófið og 2 boðuðu lögleg forföll. Þetta þýðir með öðrum orðum að 17 stóðu uppi en það gerir 68% og geri aðrir bet- ur. A afmælisfundinum var mér falið að skrifa þessar línur og þakka Krabbameinsfélaginu hjálpina og hvetja aðra sem enn reykja til að sækja þessi námskeið. Þau eru bæði fróðleg og skemmtileg og koma ótrúlega víða við. Baráttu- kveðjur. „Fáðu þér lögfræðing“ í bók sinni íslenzkur aðall segir Þórbergur Þórðarson frá manni nokkrum, sem þekktur varð í átt- högum rithöfundarins fyrir eftirfar- andi „afrek“: „Hann vann Einarsmálið fyrir Suðursveitunga gegn Mýramönnum, og litlu síðar vann hann þetta sama Einarsmál fyrir Mýramenn gegn Suðursveit- ungum“. Þetta minnir mig á mál, sem mjög var til umræðu á síðasta ári, þ.e.a.s. endurteknar hækkanir tannlækna á gjaldskrám stéttarinn- ar, og voru þó taxtar þeirra ærnir fyrir. Þarna keyrði svo úr hófi, að opinberir aðilar, — t.a.m. Reykjavíkurborg — neyddust til að grípa í taumana, og urðu tannlækn- ar þá að geifla á saltinu og endur- greiða fúlgur fjár. Um þessar mundir höfðu margir Gott lagaval á Bylgjunni Ég er mikill aðdáandi Bylgjunn- ar. Eg hlusta á hana alla virka daga stanslaust frá kl. 17 til kl. 24 á miðnætti. Hallgrímur Thorsteins- son er frábær. Það er gaman að heyra hjá honum lög með Woody Guthric o.fl. sem aldrei heyrast í ríkisútvarpinu. Þorsteinn J. og Vil- borg eru líka með gott lagaval. Sérstaklega vil ég þakka Vilborgu fyrir lögin með Easterhouse, lmper- ial o.fl. rokkurum sem aðrir spila ekki í sínum þáttum. Ég er viss um að þessi góða breidd í lagavali Bylgjunnar á sinn þátt í því að Bylgjan er fimmfalt vinsælli en rás 2 sem spilar sömu Iögin allan daginn. Þess vegna finnst mér skrýtið að Bylgjan sé allt í einu farin að ráða til sín á færibandi þá skallapoppara á rás 2 sem minnst er hlustað á þar miðað við Bylgjuna, skv. hlustendakönn- un. Ég er dauðhræddur um að það eigi eftir að minnka bilið milli rásar- innar og Bylgjunnar. S.E. einstaklingar borgað tannlæknum samkvæmt hærri töxtunum, og því voru tannlæknar spurðir, hvort þar yrði ekki um endurgreiðslur að ræða. Eftir margítrekaðar fyrir- spurnir til lögfræðinga þeirra, sem tannlæknar sögðust hafa haft samráð við, og til siðanefndar tann- lækria (hvorugur svaraði) og síðan til stjórnar Tannlæknafélagsins, svaraði síðastnefndi aðilinn og svar- ið var, að viðkomandi skyldi fá sér lögfræðing (?). (Innan sviga mætti raunar skjóta því hér að, að þetta var sama svarið og kona nokkur fékk, sem hlunnfarin hafði verið af fasteignasölu, (sbr. grein í dálkum Velvakanda) sem sagt: fáðu þér lögfræðing). — Kannski við sem borguðum hækkuðu reikningana hjá tannlæknum ættum að leita til Guðmundar Yngva Sigurðssonar? Þá kæmi kannski upp sama staða og hjá manninum, sem Þórbergur Þórðarson sagði frá forðum. Vinsamlegast, Sigríður Jónsdóttir, Æsufelli 2, Rvík. Ég má til að rita á blað þakk- læti mitt fyrir þáttinn „í dagsins önn“ sem fluttur var af Hildi Torfadóttur í ríkisútvarpinu 12.jan. sl.. Mér finndist gott ef hann yrði endurtekinn til dæmis á Bylgjunni þar sem unga fólkið hlustar mest á hana. En þessi þáttur er mjög góður fyrir unga fólkið sem lifir bara fyrir hraða og nútíð og má varla Vera að því að vera til. Bréfin frá pabba til dóttur sinnar voru alveg frábær og góð til um- hugsunar, reyndar fyrir flesta aldurshópa. Svo vil ég þakka ríkisútvarpinu fyrir gott dagskrár- efni yfírleitt. Bylgjunni næ ég ekki og á rás 2 er of mikið af lögum spilað nema þegar Svavar Gests sér um þætti. Honum ber að þakka sitt framlag. Svo mætti Jónas koma aftur, hans þættir voru líka frábærir. Sveitakona úr Olfusi s.o.s. Getur þú hjálpað mér? Ég er að leita að fötum, sem ég sakna frá því um miðjan nóvember síðastlið- inn. Ég skildi þau eftir i húsi við Langholtsveg, í kjallara, en þau eru þar ekki lengur. Ég er að leita að hvítum einföldum kjól, svörtu silki- hálsbindi og bleiku dressi; buxum og jakka, sem er fóðrað. Ég fékk þessi föt að láni, og vil skila eigand- anum þeim aftur. Ég væri þér þakklát ef þú veist hvar þessi föt eru niðurkomin eða gætir gefið mér einhveija vísbendingu um þau. Eg er í síma 71238. Kolfinna Rímnatal er stór- merkilegt rit í Velvakanda sunnudaginn 18. janúar er minnst á að Soffía nokk- ur hafí hringt og viljað komast í samband við einhvern sem kynni rímurnar um Þorstein uxafót. Ég held að ekki séu margir nú orðið sem kunna rímur utanað, og ekki kann ég snefil af þessu, en vil beina Soffíu svolítið áleiðis, ef hana lang- ar að kynna sér þessar rímur. Árið 1966 gaf Rímnafélagið út Rímna- tal, sem að ég tel stórmerkilegt rit og hlýtur að hafa kostað gífurlegan undirbúning. Þar er gerð grein fyr- ir öllum rímum sem hafa borist til Landsbókasafnsins, að mér skilst einnig þær sem aldrei hafa náð því að vera prentaðar. Þessum greinargerðum er raðað í stafrófsröð eftir söguhetjum rímnanna og lendir Þorsteinn Uxa- fótur að sjálfsögðu nokkuð aftar- Iega. Rímurnar um hann eru ortar af Árna Böðvarssyni sem útskrifað- ist úr Hólaskóla 1732, gerðist síðan bóndi og bjó lengst af á Ökrum á Mýrum. Hann orti margar fleiri rímur. Rímurnar af Þorsteini hafa tvisv- ar verið prentaðar, í bæði skiptin í Kaupmannahöfn, fyrst 1771 og svo 1858. Þær eru sjálfsagt til á Lands- bókasafninu. Kveðja, Magnús Jónsson r r A GOÐU VERÐI - VIFTUREIMAR AC Delco Nr.l BÍLVANGUR SF HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 KROSSVIÐUR T.d. vatnslímdur og vatnsheldur - úr grenl, birki eða furu. SPÓNAPLÖTUR T.d. spónlagðar, plast- húðaðar eða tilbúnar undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu Verðl' SPARIÐ PENINCA! - Smíðið og sagið sjálf! Pið fáið að sníða niður allt plötuefni hjá okkur I stórri sög - ykkur að kostnaðarlausu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.