Morgunblaðið - 29.01.1987, Síða 56

Morgunblaðið - 29.01.1987, Síða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987 Pílukast: Opna breska meistaramótid • Ægir Ágústsson og Tómas Bartlet tóku þátt í opna breska meist- aramótinu í pílukasti fyrr í þessum mánuði. UM TVÖ þúsund keppendur tóku þátt í Breska opna meistaramót- inu í pílukasti sem fram fór í byjun janúar. Þarna voru samankomnir margir af bestu atvinnumönnum heimsins ásamt upprennandi pílukösturum vfða að úr heimin- um. Mót sem þetta verður að ganga hratt fyrir sig og byggir upp á hreinni útsláttarkeppni. í fyrstu umferðum eru aðeins spil- aðir 5 ieggir, sá vinnur sem fyrr sigrar 3 leggi . Þegar nálgast úr- slitin lengjast leikirnir í 3 lotur (set) og hver lota eru 3 leggir. Enginn vafi er á að Bretlandseyj- ar hafa á að skipa jafnbestu spilurum heims. Kannski ekki und- arlegt þegar á það er litið hversu gífurlegra vinsælda pílukastið nýt- ur meðal almennings í Bretlandi. Það er eitt vinsælasta sjónvarps- efnið hvað snertir íþróttir, ásamt billiard, og slær meira að segja V knattspyrnuna út, og er þá mikið sagt. Bestu atvinnumenn þessarar greinar eru meðal tekjuhæstu íþróttamanna heimsins, og sýnir það glöggt hversu miklir peningar eru í þessari íþrótt, enda er það aðalástæðan fyrir því að pílukast er ekki ólympíugrein. íslendingar tóku nú í fyrsta sinn þátt í þessu móti og mættu tveir íslenskir keppendur til leiks. Ægir Ágústsson drógst á móti John Dunn, pílukastara frá Birmington og vann sá breski 1:3 í fyrsta legg voru þeir nokkuð jafnir að stigum og komast á sama tíma í úttekt. Dunn er fyrri til að hitta tvöföldun (double). í öðrum legg fylgdust þeir einn- ig að í stigum og komast í útgang á svipuðum tíma. Taugar Ægis virðast of þandar, honum mistókst kast sem skili hann eftir með 14 stig (tvöfaldan 7), mjög óvenjulegt hjá Ægi þar sem hann nær yfirleitt að komast út á fyrstu þrem pílun- um. Eftir nokkra erfiðleika náði John Dunn tvöföldun og vann legg- inn. í þriðja legg náði Dunn nokkru forskoti og komst fyrr í útgang. Nákvæmni hans geigaði og Ægir . náði honum og fékk strax tvöföld- un. Spennan virðist ná yfirtökum á Ægi í fjórða legg, stigin urðu langt fyrir neðan hans venjulega meðal- skor. John Dunn komst fyrr í úttekt og vann þar með leikinn. Tómas Bartlett drógst á móti Jeff Foster frá Bretlandi. Jeff Fost- er er nokkuð þekktur pílukastari, hefur skemmtilegan kaststíl og er sterkur spilari. í fyrsta legg náði hann 180 stigum og fylgdi því fast eftir með góðum leik. Tómas var yfirvegaður og kastaði mjög' vel, náði m.a. 120, 140 og 100 stigum niður og ekki að sökum að spyrja. Hann fór út á fyrstu pílu. Tómas spilaði alla leggina vel • Sigurvegarinn í einliðaleik. og fékk gott skor, en það dugði hreinlega ekki gegn Jeff Foster. Hann fór alltaf út á fyrstu pílu. Efnilegur spilari sem gæti náð langt. [ parakeppninni drógust Ægir og Tómas á móti atvinnumönnun- um Bob Philipps og Alan Larkham frá Englandi. Ægir spilaði fyrst við Alan Lark- ham og náði stórkostlegri byrjun, 180 stigum. Stigin voru sem hér segir: Ægir Larkham 180 121 41 46 100 100 60 120 45 66 4-75 eftir •i-48 eftir Ægir átti 75 stig eftir og var nálægt því að klára leikinn en mistókst og skildi eftir 30 stig (tvö- faldan 15). Tómas spilaði við Bob Philipps. Philipps var töluvert á undan í út- tekt en lenti í erfiöleikum með að hæfatvöföldun. Loks þegarTómas var að komast í útgang kláraði Philipps leikinn með tvöföldum 2. Andstæðingar Ægis og Tómas- ar voru ekki af lakari kantinum. Þarna mættu þeir hreinlega ofjörl- um sínum, sem sannast best á því að þeir Philipps og Larkham höfn- uðu í 9. sæti í parakeppninni. Úrslit urðu þessi á meistaramót- inu: 8 manna úrslit 1) Bob Anderson vannTommy Wilson 2—0 2) Mike Gregory tapar fyrir Cliff Lazarenko 1-3 3) Robert Widdows tapar fyrir Dave Whitcombe ................... 0—2 4) Steve Cusick vann Jonathan Overton 2-0 1) Bob Anderson — Tommy Wilson 2—0 Anderson vinnur fyrstu lotu 2—0. Fær m.a. 180 stig í fyrsta legg og fer út á 17 pílum. í öðrum legg nær Anderson mjög háum stigum (skorum) og klárar á aðeins 12 pílum. í seinni lotu nær Tommy Wilson að vinna einn legg á móti tveimur hjá Anderson (2—1). Nokkuð ör- uggur og sanngjarn sigur hjá Bob Anderson. 2) Mike Gregory — Cliff Lazar- enko (Big Cliff) 1—3 Fyrstu lotu sigrar Gregory 2—1, aðra lotu sigrar Lazarenko 2—0. JOHN LOWE er einn af frægustu pflukösturum heims, hefur staðið í eldlfnunni í fjölda ára. Hann hefur ólíkt mörgum öðrum at- vinnumönnum viðrað þá skoðun sína að alþjóðlegu opnu meist- aramótin væru ekki byggð upp með þarfir atvinnumanna i'huga. Við náðum stuttu spjalli við þennan margfalda meistara rétt áður en keppnin byrjaði og spurð- um hann hvert álit hans væri á keppni sem þessari. „Hreinskilnislega þá eru al- þjóðamót eins og British Open og aðrar opnar meistarakeppnir ekki fyrir mig. Hérna eru um 1.400 áhugamenn og 100 atvinnumenn. I mínum augum eru þetta ekki keppnir heldur eins og happ- drætti. Það hefur marg sýnt sig að erlendar þjóðir komast varla með tærnar þar sem við Bretarnir höfum hælana. í svo stórum keppnum höfum við atvinnumennirnir ekki eins mik- Þriðju lotu nær Lazarenko að sigra glæsilega, fer út á aðeins 11 pílum í seinni legg. Stig 140 140 140 þref. 19 og tvöf. 12 (Snilldarlega leikið.) Gregory veitti Lazarenko harða keppni og var oft á undan á tvö- földum (double) en eftir glæsilegan lokakafla hjá Lazarenko átti hann sigurinn skilinn. 3) Robert Widdows — Dave Whitcombe 2—0 Fyrri lota fór 2—0 fyrir Whitcombe. Seinni lotuna vann Whitcombe einnig 2—1. Nokkuð sanngjarn sigur Whitcombe, en ekki eins léttur og hann lítur út fyrir að vera því Widdows fylgdi vel eftir í stigum. 4) Steve Cusick — Jonathan Overton 2—0 Báðar loturnar vann Cusick ör- ugglega 2—0. Jonathan Overton vann það afrek að vinna sjálfan meistarann, Eric Brostow, 3—1 í milliriðlum og sló hann þar með út úr keppninni. Þetta voru ein óvæntustu úrslitin á mótinu því Overton er unglingameistari og til- tölulega óþekktur. Steve Cusick átti ekki í miklum vandræðum með Overton og vann eins og áður segir nokkuð örugg- lega. 4 manna úrslit 1) Bob Anderson vann Cliff Laz- arenko 2—1. 2) Dave Whitcombe tapar fyrir Steve Cusick 0—2 1) Bob Anderson — Cliff Lazar- enko 2—1. Fyrstu lotu vann Lazarenko 2—1, aðra lotu vann Anderson 2—0, þriðju lotu vann Anderson 2—1. Lazarenko byrjaði mjög vel og vinnur sanngjarnt fyrstu lotu þrátt fyrir að Anderson hafi tekið einn legg á aðeins 15 pílum. í upphafi annarrar lotu nær Laz- arenko einnig forystu og er fyrr á úttekt en Anderson gerir sér lítið fyrir og fer út á 121 stigi. (Þref. 17, einf. 20 og kýraugað (Bulls Eye).) Alltaf jafn glæsilegt að sjá menn klára leiki á miðjunni. Þriðja lota er hnífjöfn. Lazar- enko nær að vinna einn legg. Hann inn tíma til upphitunar fyrir leiki eins og áhugamennirnir. Við þurf- um að gera svo margt annað en að spila pílukast. T.d. að árita millj- ónir eiginhandaráritana, stilla okkur upp fyrir þúsundir af mynda- tökum og helst að tala við flesta á staðnum. Ef maður vill ekki gefa eiginhandaráritun eða tala við fólk þá er maður talinn ómerkilegur eða hreinlega leiðinlegur. Hér er fólk sem er að bóka okkur um allan heim, í sýningar, boð og ýmislegt. Stóru, opnu meistaramótin eru meiri auglýsing og atvinnutæki- færismarkaður fyrir mig heldur en keppni. Hvort sem ég vinn eða verð sleginn út úr þessari keppni skipt- ir ekki máli, því ég geri mér ekki háar vonir um sigur. í raun geri ég mér aldrei neinar vonir um sig- ur í mótum fyrr en ég er allavega kominn í 16 manna úrslit, þá fyrst sé ég möguleika og get farið að einbeita mér fyrir alvöru. reyndi að fara út á kýrauga en mistókst og hitti ytri miðjuna (25 stig). Ekki virtist þetta hafa mikil áhrif á þennan stórvaxna spilara því hann tók létt einfaldan 9 og fór út á tvöföldum átta. Með góðum og einbeittum leik nær Anderson að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum. 2) Dave Whitcombe — Steve Cusick 0—2. Báðar loturnar nær Cusick að vinna 2—1. í fyrri lotu nær Whitcombe að sigra fyrsta legg á 15 pílum. Seinni tvo leggina vinnur Cusick og klárar þann síðari með útgöngu á 100 stigum (þref. 20 og tvöf. 20). Seinni lotan var mjög jöfn og gat farið á hvorn veginn sem var. Steve Cusick kom á óvart í þessari keppni með frábærum árangri. Þess má geta að Dave Whitcombe er 6. stigahæsti pílu- kastari í heiminum og því ekki svo lítið afrek að vinna hann. Lokaúrslit Bob Anderson frá Surrey, Eng- landi vann Steve Cusick frá Lancashire, Englandi 2-1. Fyrstu iotuna vann Anderson 2—0, aðra lotu vann Cusick 2—1, þriðju lotu vann Anderson 2—0. Fyrstu lotuna vinnur Anderson nokkuð örugglega. Cusick fylgdi þó vel á eftir, veitti góða sam- keppni. í fyrsta legg annarrar lotu byrjar Cusick á 177 stigum. Hann er ótrú- lega viss á þreföldum 19. í stað Kannski er rangt af mér að segja þetta, en ég efast um að margir af bestu atvinnumönnunum nái að komast í 16 manna úrslitin í þessu móti. Því við erum svo vanir að vera valdir/raðaðir í úrslitin. Vanalega höfum við heilan dag til að undirbúa okkur og einbeita fyrir einhvern ákveðinn leik og til- tekinn mótherja. Þá getum við gengið að hlutunum vísum og gert okkar áætlanir. í alþjóðakeppnum er þessu ólíkt háttað. Ég get ná- kvæmlega ekkert undirbúið mig. Maður fær að vita með mjög stutt- um fyrirvara við hvern á að leika. Ef þú vinnur þann leik þarftu kannski að bíða í fimm tíma eftir næsta leik, sem er óhentugt fyrir mig miðað við hvernig ég byggi mig upp fyrir og í keppnum. Hér þurfum við að byrja í fyrstu umferð og fara í gegnum allar umferðir til að komast í úrslit. Persónulega kysi ég að vera settur í 32 manna úrslit og byrja þar. Af hverju ætti þess að reyna við 180 kastar hann síðustu pílunni á þrefaldan 19. Hann nær töluvert á undan Ander- son í úttekt og klárar á tvöf. 9. Annan legg vinnur Anderson, fer út á 62 stigum (10, 20 og tvöf. 16). Bob Anderson vinnur síðustu lotuna nokkuð örugglega og lýkur seinni leggnum á aðaeins 13 pílum. Bob Anderson sýndi stórgóða takta í þessari keppni og átti skilið að taka við MFI — British Open- bikarnum. Hann er íþróttamaður sem heldur góðu jafnvægi og er laus við sveiflukenndan árangur. Hann vann t.a.m. Winmau World- keppnina í desember sl. og er nú oröinn stigahæsti atvinnumaður- inn í heiminum, er kominn fram úr kempunni frægu Eric Bristow. (BDO Men's British Ranking Syst- em). Steve Cusick kom á óvart með því að komast þetta langt í keppn- inni. Cusick er atvinnumaður sem hefur ekki látið mikið á sér bera til þessa. Hann er mjög rólegur spilari og virðist eiga við litla taugaspennu að stríða. Englendingar hafa í dag á að skipa fjölda ungra og stórefnilegra pílukastara og mega gömlu meist- ararnir hafa sig alla við til að halda sínu striki. Það kemur best í Ijós á því að hinir heimsþekktu spilarar Eric Bristow og John Lowe voru slegnir út í milliriðlum af lítt þekkt- um efnilegum pílukösturum. Greinarhöfundur er form. ÍPF, Óðinn Helgi Jónsson. ég, eftir 15 ára atvinnumennsku, að þurfa að fara í gegnum allan skóginn aftur? Ég hef þegar gert það margsinnis. Ég er ekki að kvarta heldur að- eins að gefa í skyn að við getum alls ekki ábyrgst að við verðum enn inni í myndinni þegar kemur að 16 manna úrslitunum. Ég er aðeins að tala fyrir mig persónulega og engan annan. Þessi keppni hefur líka sína kosti. Keppendur koma alls staðar að úr Evrópu og fá tækifæri til að sanna sig. Þessi keppni er bara ekki byggð upp eins og ég vil spila pílukast. — Hvern telur þú eiga mögu- leika á að sigra British Open? „Það er erfitt að geta sér til um það, en Bob Anderson hefur verið að gera góða hluti undanfarið. Það kæmi mér ekki á óvart að hann næði efsta sætinu yfir stigahæstu pílukastara heimsins eftir þetta mót.“ Grein: Óðinn Helgi Jónsson Svona mót ekki fyrir mig

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.