Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 38. tbl. 75. árg.__________________________________SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987_______________________________Prentsmiðja Morgimblaðsins barátta BARATTAN um fæðuna er margvísleg. Stór selur er daglegur gestur { Reykjavíkurhöfn. í stað þess að afla sér fæðu með hefðbundnum hætti þiggur hann líf sviðurværi sitt af gjöfulum sjómönnum, sem kasta að honum fiski á leið til hafnar. Það eru hins vegar fleiri, sem girnast fiskinn. Mávinum þykir ekki verra að fá glænýja, aðgerða ýsu i gogginn og er því meðbiðill selsins til matarins. Á meðfylgjandi myndum má sjá hvar mávurinn hefur fengið vænan skammt í gogginn, en selurinn horfir sorgbitinn og svangur á „þjófinn". Líbanon: Vistir til flóttamanna Mannskæð átök í E1 Salvador San Salvador, AP. SKÆRULIÐAR kommúnista kváðust í gær hafa fellt 25 her- menn úr stjórnarher E1 Salvador í bardaga um þorpið Delicias de Concepcion um 1G0 kílómetra norðaustur af höfuðborginni San Salvador. Talsmaður hersins staðfesti að barist hefði verið af hörku um þorp- ið í tæpar átta klukkustundir. Sagði hann 150 skæruliða hafa freistað þess að taka þorpið á sitt vald og að herinn hefði hrundið árás þeirra. Hann kvað sjö stjómarhermenn og ellefu skæruliða hafa fallið í átök- unum. Skæruliðar kváðust á hinn bóg- inn hafa fellt 25 hermenn og sært 24. Þá skýrðu þeir einnig frá því að þyrla úr flugher landsins hefði verið skotin niður. Undanfarin sjö ár hafa skærulið- ar átt í bardögum við stjómarher- inn, sem nýtur stuðnings Bandaríkjastjómar. Skömmu eftir áramót blésu þeir á ný í herlúðra og boðuðu stórauknar árásir á stöðvar hersins. Róm: Ræningjar myrða þrjá lögregluþjóna Róm, Reuter. ÞRÍR lögregluþjónar voru skotn- ir til bana i Róm í gær þegar tilraun var gerð til að ræna póstbíl. Talsmaður lögreglu sagði að lög- regluþjónamir hefðu verið í för með póstbílnum. Tveir þeirra hefðu beð- ið bana samstundis og einn látist af sárum sínum á sjúkrahúsi. Víðtæk leit er hafin að árásar- mönnunum. Ekki er vitað hvað þeir voru margir. Grúsía: 80farastí illviðrum Moskvu, AP. RÚMLEGA 80 manns hafa týnt lífi í vetur í Sovétlýðveldinu Grúsíu vegna snjóbylja, skriðu- falla og flóða, að því er sagði í Prövdu, málgagni sovéska kommúnistaflokksins, í gær. Tæplega 3000 fjölskyldur hafa misst heimili sín. í frétt blaðsins var ekki fjallað ítarlega um veðurfar að undanfomu en fram hefur komið að síðasti mánuður var sá snjóþyngsti í Kákasus í 50 ár. Borgir og bæir einangruðust vikum saman af þess- um sökum. í frétt Prövdu sagði að rekja mætti rúmlega 80 dauðsföll til veðr- áttunnar og að flóð og skriðuföll hefðu borið með sér íbúðarhús, skólabyggingar og sjúkrahús. Einn- ig sagði að 197.000 hektarar ræktaðs lands hefðu spillst sökum þessa. Beirút, Reuter. ÞREMUR vörubifreiðum með 15 tonn af hveiti og 300 kg af mjólkurdufti var ekið inn í Bouij al-Barajneh-flóttamannabúðimar í Beirút skömmu eftir miðnætti í gær, að sögn sjónarvotta. Vopnaðar sveitir síta hafa setið um búðimar síðan í haust og Palestínumenn, sem þar dvelja, hafa mátt líða hungur. Mohammed Hassan Sattari, pólitískur ráðgjafí í íranska sendi- ráðinu í Beirút, var með í för þegar vistimar voru fluttar inn í flótta- mannabúðimar. Talsmaður Frelsissamtaka Pal- estínu (PLO) sagði að flutningamir hefðu gengið snurðulaust og ekki verið gerð tilraun til að stöðva flutningabifreiðimar. Læknir, sem starfar í búðunum, hefur greint frá því að menn hafí lagt sér rottu-, katta- og hunda- kjöt til munns til að seðja sárasta sultinn. „Næstum hver einasti maður í búðunum hefur borðað ketti eða hunda, asna eða rottur," sagði tólf ára gamall drengur, sem laumaðist út úr búðunum í skjóli myrkurs. Sítar hafa ekki hleypt blaðamönnum inn í Bouij al-Bar- ajneh til að staðfesta þessar fregnir. Þar hafast við þijátíu og fímm þúsund manns. Sítar hafa setið um búðimar í sautján vikur. Tilraunir vom gerðar til að flytja vistir til búðanna á föstudag, en þær fóru út um þúfur. Líbanskur lífvörður í íranska sendiráðinu var veginn þegar hann reyndi að ryðja tveimur sjúkrabifreiðum hlöðnum vistum leið inn í búðimar. Starfs- menn Sameinuðu þjóðanna neydd- ust til að skiija eftir tvær flutningabifreiðir við inngangmn að búðunum vegna þess að skotið var í hjólbarðana undir þeim. Samtökin Heilagt stríð (Jihad) sendu vestrænni fréttastofu í Beir- út tilkynningu í gær um að hætt væri við að semja um skipti á §ór- um gíslum, sem samtökin hafa í haldi, og 400 arabískum föngum í Israel. í tilkynningu Jihad, sem berst fyrir frelsun Palestínu, sagði að þessi ákvörðun hefði verið tekin vegna þess að Bandaríkjamenn hefðu ekki sýnt minnstu viðleitni til að bjarga lífi þriggja Banda- ríkjamanna og Indveija, sem samtökin hafa í haldi. Samtökin hótuðu ekki að taka gíslana af lífí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.