Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987 59 syni, blikksmið, Óskari heitnum í Sæbjörgu og Vilhjálmi Heiðdal. Þetta var öflugur kvintett, en dugði samt ekki til að ráða við vandamál vandamálanna. Það þurfti fræðsluna og félagsandann. Og Steinar nam fræðin jafnt og þétt — og honum óx ásmegin í orrustunni. Hann veitti Víðinesi, hjúkrunarheimilinu, for- stöðu á fjórða ár og kom mörgum út í lífíð, sem var talið vel af sér vikið á þeim tíma. Það var sérstakt tíma- bil þar í Víðinesi — með blæ, segja þeir, sem þar gistu. Og þá hlaut Steinar reynslu ofan á persónulega reynslu — hafði fyrir framan sig öll flölbreytilegustu afbrigði alkóhól- isma daginn út og daginn inn eins og í tilraunaglasi. Steinar er afar nákvæmur maður í hugsun, minnir á háakademískan mann frá Heidel- berg, en þó ekki bundnari þessari nákvæmni sinni en svo, að mannleg- ur skilningur vegur mest á vogar- skálunum. Og enda þótt hann sé harðlínumaður málefnalega og láti engan komast upp með moðreyk, hvorki eftirrennara sína hjá SAA né viðmælendur né fífl, sem eru að vandlæta og skrifa í blöðin af ill- gimi, vanalega nafnlaust, er hann gróflega víðsýnn. Hann er með víðan sjóndeildarhring — smbr. það, að hann afskrifar engan alkóhólista. Hann hefur glögg dæmin til að styðj- ast við frá Víðinesi forðum daga. Eftir að Víðinesi sleppti hélt hann áfram sporgöngunni í orðsins fyllstu merkingu, smbr. reynslusporin tólf plús erfðavenjumar tólf. Blái kross- inn var á hans vegum — einkafram- tak — hann var leiðbeinandi, skrifaði ótal bæklinga, gaf úr blaðið Snepil- inn og hann hafði áhrif sem fræðari og leiðbeinandi. Þetta var töluvert áður en SÁÁ kom til skjalanna, en fyrir þá átti hann eftir að starfa um hríð, m.a. á Sogni — og hann þótti þar eins og alltaf hörkutól, en í góðri merkingu — hann meira að segja rak tvo kollega sína, leiðbeinendur, fyrir leti og sérhlífni og eitthvað annað — ekki í ósvipuðum stíl og gerðist er Sverrir ráðherra (að vest- an) rak fræðslustjórann, píslarvott- inn í Norðuramtinu. Það skapaði aðhald sem betur fer — að minnsta kosti á tímabili. Steinar er enginn patentlausnarmaður og rekur enga aumingja-pólitík ellegar ástundar listina að þóknast eins og sumum stjómendum og leiðbeinendum er tamt að gera. Hann Ieggur áherzlu á karlmennskuna í andlegum skiln- ingi — mannmennsku — eins og Kjarval meistari nefndi svo, og gild- ir slíkt jafnt fyrir konur sem karla, sem eru að leitast við að gera sig að skítskárri manneskjum eftir að þau eru hætt að drekka. Slíkt gerist aldrei — næstum aldrei — nema með skilyrðislausri hlýðni við prógramið, þ.e. sjálfsögun og ræktun sjálfvirð- ingar, sem er eitt aðalatriði í mannræktinni. Steinar fór á sjálf sín vegum til Birmingham í Englandi og þaðan til Skotlands til að kanna og kynna sér meðferðarstofnanir — og ennfremur var hann í skóla fyrir leiðbeinendur í Minnesota í Bandaríkjunum. Hann hefur yfimáttúrulega kunnáttu í galdrafræðum, sem fjalla um alkó- hólisma — og trúlega er hann alltaf að læra meira og meira eins og all- ir, sem era í prógramminu af lífí og sál. Einhver nefndi þessa kunnáttu hálfgerð djöflafræði. Og þá er gott að minnast orða Galdra-Lopts, sem sagði: „ ... en ef maður kynni nógu mikið, þá hefði djöfullinn ekki lengur vald yfír manninum". Þekking er eitt af einkunnarorðunum innan AA að viðbættum hugtökum eins og þroski og bati, svo að nokkuð sé nefnt. Þau hjónin Jósíana og Steinar hafa búið á nokkram stöðum í borg- inni og nú síðast á Lindargötunni í gamla hverfínu þeirra og una sér þar með ágætum. Þau bjuggu áður upp til flalla í Breiðholti og með fullri virðingu fyrir því umhverfí virðast þau njóta sín enn betur við þessa gömlu eðalgötu, Lindargöt- una. Steinar er völundur og leikur allt í höndunum á honum. Hann hefur breytt íbúðinni í litla paradís, smíðar og smíðar og lagfærir. Og ekk má gleyma tölvunni hans, sem hann sit- ur við lon og don og skrifar sínar bækur á, svo að þær koma nálega fullskapaðar úr heila höfundar og tölvunnar. Hann hefur ritað nokkrar t KJ /I W I bækur um þessi viðkvæmu mál, alkóhólismann. íslenzkir vesalingar kom út 1972, Furðuheimar alkóhól- ismans kom út 1984, en við lestur þeirrar bókar er óhætt að segja, að rejmslusporin tólf plús erfðavenjum- ar tólf skýrist að mun og íklæðist holdi og blóði og taugakerfí, jafnvel hormónum, sem að sjálfsögðu gefa kraft. Þetta er bók þrangin lífi, en vandlesin á köflum og minnir sum- staðar á töframátt þann, sem felst í mötram Indveija. Og nú er komin út bókin 365 afréttarar fyrir almenn- ing, afskaplega elskuleg bók, og það skemmtilega við bókina er, að hún er sérkennileg. Og nú í dag, sem er fímmtándi febrúar, er ekki úr vegi að birta kafla úr bókinni, til- einkaðan deginum. Fyrirsögn: Von og trú: „Ég hélt ég gæti hætt að drekka hjálparlaust. En það tókst ekki. Þá kom AA inn í líf mitt og flutti mér von. AA flutti mér líka neista trúar á eitthvað annað en sjálfan mig. Verið gat, að þama hafí lausnin legið — ég fór að vona í aðra átt en áður, ég fór að vona, að kannski gæti guð hjálpað mér. Lengra náði trú mín ekki. Hún var bara von. Þess vegna fór ég á hvem AA-fund- inn eftir annan. Vonin dró mig þangað. Ég var orðinn þreyttur á sjálfum mér, en þóttist vera þreyttur á einhveiju öðra. Smám saman opnaðist það svo fyrir mér, að ég var eitthvað meira heldur en bara fyllibytta. Ég átti framtíð. Von mín hafði orðið að vera- leika. Án þess að ég tæki eftir því. Von mín var orðin að vissu, vissan að trú." Ef til vill era viðbótarorðin neðst á sfðunni athyglisverðust í þessum kafla úr nýjustu bók Steinars, sem var að koma út, en þau era svohljóð- andi: „Þegar ég gerði mér Ijóst, að guðsneistinn er samofinn mannin- um, þá fann ég trú.“ Og það er guðsneisti í verkum og athöfnum Steinars. í vændum er enn nýrri bók eftir hann, sem heitir: „Þú getur hætt að drekka", og sú bók geymir lausnarstein fyrir margan í bardaganum við sjálfan sig. Sjálfur segir hann í „Leyndardómar alkóhól- ismans": „Þegar af mér rann eftir þessa vikudvöl á Bláa bandinu taldi ég mig hafa sigrað flöskuna. En eftir eins eða tveggja ára vera í AA-samtökunum fór ég að skilja, að til lítils væri barizt, ef ég ekki sigraði sjálfan mig. Það tók mig mörg ár að skilja, að flaskan væri saklaus, en ég sá seki." Þetta er sá lífstónn, sem felst í hugsanalínu Steinars Guðmundsson- ar og er rauði þráðurinn í skrifum hans og ræðum. í tilefni af afmælinu era Steinari og konu hans og fjölskyldu sendar hugheilar kveðjur og hamingjuóskir vegna dagsins. Böm þeirra hjón- anna: Hansína á ísafirði, gift Krist- jáni Jónassyni, forstjóra Djúpbátsins og forseta bæjarstjómar; Margrét, sem lézt í fyrra, var áður gift Ein- ari Magnússyni frá Búðum á Snæfellsnesi, en sfðari maður hennar er Baldur Pálmason, rafvirki frá Akureyri; þau bjuggu úti í Kaup- mannahöfn; Anna, gift Gísla Snorra- syni frá Ésjubergi á Kjalamesi; Magnús, deildarstjóri hjá Samvinnu- tryggingum í Hafnarfirði, giftur Eygló Guðjónsdóttur frá Dalvík; Þórdís, sem lézt ársgömul. Ef til vill hefði sumum þótt til hlýða nú að sæma Steinar heiðurs- merki eða orðu eða einhverskonar vegtyllu vegna afreka hans. Til fróð- leiks er freistandi að geta þess vegna þess hve oft er talað um frama í ræðu og riti, að þá er til stóð, að Bill Wilson skyldi sæmast doktors- tign við Princeton-háskólann, afsagði hann það með ölhi. Hann lagði til þær forsendur, að hann teldi það óráð og það mundi skaða hug- sjónina að líta á hana sem leið til frama og aðstöðu, sbr. það, að ætla sér að verzla með dygðina og að verzla með vináttuna. Ef hann þæði doktorsnafnbótina, stóð hann fast á því, að slíkt yrði sér og AA til minn- kunnar. Steinar hugsar eflaust nákvæm- lega eins og Bill, hvað þetta atriði varðar. Og á meðan Steinar og fleiri slíkir gefa þennan tón innan samtak- anna, má góðs vænta af áhrifum hugsjónarinnar i samfélaginu. Að Hæðardragi, Steingrímur St.Th. Sigurðsson. Gl'vl íJi ALÍ WIWD TÁKN ÁSTARINNAR - DULÚÐ AUSTURLANDA - ÖNNUR VERÖLD. Við skoðum eitt af sjö undrum veraldar; Taj Mahal grafhýs- ið — tákn ástarinnar — grafhýsi Ghandis, Rauða virkið o.fl. o.fl. undir frábærri fararstjórn Sigurðar A. Magnússonar. m 3 ‘V? Prjár vikur. Brottför 30. mars. Helstu viðkomustaðir: Delhi, Sriangar, Jaipur, Agra, Varansi, Calcutta og Kashmir héruðir Fá sæti laus Ferdaskrifstofan arandi Vesturgötu 5. Reykjavík. s. 17445. Útsalan hefst á morgun í Sportval Þeir sem til þekkja vita hvað við meinum með útsölu Vörulækkun sem vekur athygli Upphitunarbuxur kr. 350, Sundbolir kr. 990,- Sundskýlur kr. 290,- Verð áður kr. Nú Úlpa 2.490,- 990,- Skíðabuxur 3.675,- 1.990,- Skíðagallar 4.510,- 2.990,- Skíðagallar 6.900,- 4.900,- Skíðagallar 10.175,- 6.900,- Skíðapeysur 6.990,- 5.995,- Henson-galli 3.490,- 1.990,- Adidas-skór 1.490,- 990.- Don Cano 5.670,- 2.990,- Gönguskíði 2.580,- 1.890,- Henson-galli 3.300,- 990,- Don Cano-anorakkur 5.960,- 3.990,- Moon Boots 1.250,- 890,- Skíða-stretch-buxur 3.789,- 2.490,- Sendum í póstkröfu HHHSportvalh \v Laugavegi 116 við Hlemm, Símar 26690 og 14390
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.