Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987 Punkturínn °pin?bst KRISTINN GUÐNASON HF. Suðurlandsbraut 20. Sími 686633. Kathryn Jewel Thorne, Katie Webster. Þungavigtarblús Blús Árni Matthíasson í árdaga blúsins varð til eitt afbrigði hans sem fékk heitið barrelhouse eða boogie woogie blús. Upprunann rekur þetta blúsaf- brigði til hóruhúsa og svertingja- knæpa, þar sem mestu máli skipti að hafa uppi einhverja tónlist, þótt ekki væri hún ætíð fögur. Þeir sem léku á píanóin, því ótækt þótti að notast við gítar, voru margir af fremstu jass- og blús- spilurum þessara ára, enda gaf þetta spilirí oft vel í aðra hönd. Nefna má menn eins og Jelly Roll Morton, Big Maceo Merry- weather, Roosewelt Sykes, Little Brother Montgomery o.fl. o.fl. Tónlistin var oft töluverður grautur, enda tóku menn upp al- þýðustef og viðlíka sem gekk manna á milli og suðu saman úr því ýmist blús eða jass, eftir því sem við átti. Boogie Woogie varð heiti á einskonar píanóspili sem ekki verður reynt að lýsa hér, en þeir eru margir sem segjast spila og spila boogie woogie blús Ein þeirra er Katie Webster. Katie Webster er rétt innan við fimmta tuginn og hefur spilað á píanó með mörgum stómúmerum í blús og soul. Þar má nefna Lightnin’ Slim, Slim Harpo og Otis Redding. Rætur hennar erú því þar og það heyrist vel á Charly plötunni Pounds of Blues, sem mér barst í hendur fyrir skömmu. Þar er þó píanóið stutt af þéttri rythmasveit og góðum gítarleik (gustuk hefði verið að geta gítarleikarans, því hann á það til að stela senunni einstaka sinnum). Blúsinn er góður, hvort sem um er að ræða lög annarra eða hennar eigin. Katie er óbangin við að takast á við fræg lög eins og The Things That I Used To Do sem var e.k. vörumerki Guitar Slim (menn muna kannski frekar eftir útgáfu Stevie Ray Vaughan á plötu hans Couldn’t Stand the Weather) og gerir það vel. Píanó- leikur hennar er fyrsta flokks og stundum vel það. Laginu gefur og gildi að hún er ófeimin við að flétta inn í lagið textabrotum sem heyrst hafa víðar, þ. á m. eitt sem Slim Gaillard tók upp með Charlie Parker hjá Savoy forðum. Best eru þó þau Iög sem hún annað- hvort semur eða útsetur frá grunni, enda leggur hún mest af sér í þau. Bestu blúsamir eru Worry My Life No More og Pounds of Blues. Stórskemmtilegt er líka lagið Katies Blues, þar sem hún tekur fyrir blúskarla ýmsa, þá Johnny Taylor, B.B King, Bobby Blue Bland, Jimmy Reed og John Lee Hooker, hermir eftir þeim, en allt í góðu. Ekki get ég stillt mig um að nefna Trouble Blues eftir Charlie Brown, sem hún spilar einkar skemmtilega. Þar einmitt kemur fram þróunin frá j'ump" blúsnum og boogie woogie yfir í hálfgerðar soul-ballöður. T\ö NYÞREP úr beinhöröumperimgum Kjörbókin hefur tryggt sparifjáreigendum hæstu ávöxtun sem fáanleg hefur verið af óbundnu sparifé. Og nú bætum við enn um betur. Þegar innstæöa hefur legið á Kjörbókinni í 16 mánuði hækka vextirnir allt frá innleggsdcgi í 20,9% og aftur að loknum 24 mánuðum í 21,5%. Vaxtaþrepin gilda frá 1. jan. 1987. Við minnum á aðra helstu kosti Kjörbókarinnar: Háir vextir lagðir við höfuðstól tvisvar á ári. lnnstæöan cr algjörlega óbundin. Ársfjóðungslegur samanburður við ávöxtun 6 mánaða verötryggðra rcikninga tryggir hagstæðustu kjör. Ef ávöxtun verðtryggðu reikninganna reynist hærri er greidd uppbót. Hún greiðist einnig ofan á 16 og 24 mánaða vaxtaþrepin. Vaxtaleiðrétting við úttekt reiknast eingöngu af úttektarupphæðinni, þó ekki af vöxtum síðustu tveggja vaxtatímabila. Úttektir lækka ekki vextina á þeirri fjárhæð sem eftir stendur. í Landsbankanum er stöðugt haft auga með öllum hræringum á vaxtamarkaðnum. því að Kjörbók- inni er ætlaö að vera í fararbroddi. Ársávöxtun á Kjörbók varð 20,62% árið 1986, sem jafngildir verðtryggð- um reikningi með 5,51% nafnvöxtum. Taktu næstu tvö skref í beinhörðum peningum. jy Landsbanki íslands Banki allra landsmanna siu ivo míi L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.