Morgunblaðið - 15.02.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.02.1987, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987 IBM-skákmótið sett á miðvikudag: „Ég hef aðeins les- ið um svona mót“ - segir Jóhann Hjartarson, en fimm af tíu stigahæstu skákmönnum heims verða meðal þátttakenda STERKASTA skákmót sem haldið hefur verið á íslandi verður sett á Hótel Loftleiðum næstkom- andi miðvikudag og taflmennskan hefst síðan fimmtudaginn 19. febrúar. Þetta er IBM-skák- mótið, og þar taka þátt 12 stórmeistarar, þar af fimm af tíu sterkustu skákmönnum heims sam- kvæmt skákstigalista Alþjóða skáksambandsins. Mótið er i 14. styrkleikaflokki, meðalskákstig keppenda eru 2582 og varla er raunhæft að gera ráð fyrir að haldin séu sterkari mót en sem svar- ar einum styrkleikaflokki ofar, það er f 15. flokki. Morgunblaðið heimsótti íslensku skákmennina §óra til að athuga hvemig þeim gengi að undirbúa sig fyrir komandi átök. Dauðafærin misnotuð „Það verður vonandi gaman að taka þátt í mótinu, þótt ég viti ekki fyrirfram hvernig mér kemur til með að ganga. Ég er nýbúinn að taka þátt í móti í Hollandi sem varð hálf endasleppt hjá mér, en ég vil nú líkja taflmennsku minni þar við knattspymulið sem tapar vegna þess hvað það misnotar mörg dauðafæri," sagði Helgi Ólafsson. Á mótinu í Hollandi tefldi Helgi við þijá af skákmönnunum sem keppa á IBM mótinu, þá Short, Korchnoi og Ljubojevic, og tapaði þar fyrir Short og Korchnoi. Helgi taldi samt að þau töp sætu ekkert í honum á IBM-mótinu og fyrri viðureignir skákmanna skiptu engu máli. Undirbúningur skákmanna fyr- ir mót skiptir miklu máli og Helgi sagði að það væri nauðsynlegt að taka upp vísindaleg vinnubrögð við hann. „Það má til dæmis segja að ég hafí getað sjálfum mér um kennt fyrir mótið í Hollandi. Við slógum slöku við eftir Ólympíu- mótið í haust, sérstaklega við líkamsþjálfun, en ég hef bætt úr því síðan með því að synda." Helgi sagðist engu vilja spá um úrslit IBM-mótsins. Samkvæmt stigum ættu íslensku keppendum- ir að verða í neðstu sætunum, „en það að svona sterkt mót er haldið hér er til marks um þær fram- farir sem hafa orðið í skák á íslandi. Svona mót hefði ekki ver- ið hægt að halda hér á landi fyrir 10 árurn," sagði Helgi ólafsson. Hef aðeins lesið um svona mót „Hingað til hef ég aðeins lesið um svona sterk mót svo ég veit í rauninni ekkert að hveiju ég geng,“ sagði Jóhann Hjartarson. „Þetta er miklu sterkara mót en ég á að venjast, því þótt ég hafí teflt á sterkum lokuðum mótum hafa þau ekki verið í líkingu við þetta svo ég get alveg eins átt von á að verða skotinn í kaf.“ Jóhann sagðist því ekkert vera sérlega bjartsýnn, vona það besta, en árangurinn færi alveg eftir því hvemig „stuðið" væri. Jóhann sagðist ekki vita almennilega hvort hann væri vel uppiagður fyrir mótið. „Maður veit það aldr- ei fyrirfram því þótt menn stúderi mikið fyrir mót getur það hrein- lega haft öfug áhrif þegar á hólminn er komið og það er ekki hægt að vita neitt um slíkt fyrir- fram,“ sagði Jóhann. Hann sagðist þó reyna að und- irbúa sig með því að rannsaka skákir, sérstaklega þeirra sem keppa á mótinu, og á borðinu fyr- ir framan hann lágu haugar af skákbókum og blöðum sem eftir var að pæla í gegnum. Ekkí nóg- að kunna mest í Sikileyjarvörn „Það er fyrst og fremst stór- Jón L. Ámason í skrifstofu sinni. íslensku skákmennirnir hafa allir tekið tölvuna i sína þjónustu, bæði við skriftir og skákrannsóknir. Jóhann Hjartarson á kafi í skákbókastaflanum á skrif- borðinu sínu. kostlegt tækifæri að keppa á þessu móti, en ég hef aldrei áttað mig á því fyrr en á hólminn er komið og jafnvel ekki fyrr en eft- ir mót, hvemig formi ég var í hveiju sinni,“ sagði Jón L. Ama- son þegar hann var spurður hvemig honum litist á IBM-mótið. Jón sagðist undirbúa sig með því að fara yfír helstu skákir þeirra sem tefla á mótinu og reyna sjálfur að rifja upp mannganginn, eins og hann orðaði það. „Þetta em hinsvegar skákmenn sem em svo frægir að það liggur við að það þurfi ekki sérstakan undir- búning fyrir mótið, því maður hefur stúderað þá suma síðan maður byijaði að tefla. Og það skiptir raunar mestu máli að vera sálfræðilega tilbúinn í slaginn. Það vinnur enginn mótið þótt hann kunni mest í Sikileyjar- vöm,“ sagði Jón. Þegar Jón var spurður að því hveija hann teldi sigurstrangleg- asta á mótinu sagði hann að þeir gætu í rauninni allir unnið ef sá gállinn væri á þeim. Þó yrðu Korchnoi og Short ömgglega erf- iðir og þeir hefðu sýnt það á mótinu í Hollandi að þeir em í góðu formi, en þar skiptu þeir með sér fyrstu verðlaununum. Hefði kosið meiri undirbúning „Ég er alveg sæmilega stemmdur þótt ég hefði kosið að geta undirbúið mig betur," sagði Margeir Pétursson en hann er eini keppandinn á IBM-skákmótinu fyrir utan Agdestein sem ekki hefur líf8viðurværi sitt af skák- Það eru ekki skákbækur lieldur reikningar sem þekja skrifborð Margeirs PéturssonAr í Búnað- arbankanum. Og tölvan þar er ekki notuð til skákrannsókna, að því best er vitað. Helgi Ólafsson við skákborðið í vinnustofu sinni. inni. Margeir vinnur sem lögfræð- ingur á innheimtudeild Búnaðar- bankans. „Það kemur vafalaust til að há mér að hafa ekki fengið nægan tíma til undirbúnings," sagði Mar- geir. „Ég sat þó mikið við stúder- ingar fyrir og á jólamótinu í Hastings, sem kann að vera ein skýringin á slökum árangri mínum þar, en ég var þá með IBM-mótið í huga. Síðan fór ég á helgarskákmót um síðustu helgi til að liðka mig.“ Margeir viðurkenndi að það væri ekki vænlegt til árangurs að stunda önnur störf með skákinni, og hann ætti ekki raunhæfa möguleika á að ná hærra á skák- stigalistanum nema að fara alfarið í atvinnumennsku. Slíkt sé þó ekki á dagskrá eins og er. Þegar Margeir var beðinn að meta stöðu annarra keppenda á mótinu, benti hann á það sem dæmi um styrkleika mótsins að þar kepptu fímm af 10 stigahæstu stórmeisturum heimsins að við- bættum Jan Timman, sem var þriðji stigahæsti skákmaðurinn fyrir fáum árum en er nú í 16. sæti. Margeir benti einnig á að meðal keppenda væru tveir af efnilegustu skákmönnum heims- ins þessa stundina, Nigel Short og Simen Agdestein. Short er aðeins 21 árs gamall en er samt 7.-8. stigahæsti skákmaður heims, og Agdestein er 19 ára en hefur samt náð sér í 2560 stig. „Það verður gaman fyrir áhorf- endur að fylgjast með þessum mönnum því þeir eiga eftir að vera á toppnum næstu áratug- ina,“ sagði Margeir Pétursson. Morgunblaðið/Þorkell Jón Benediktsson, forstöðumaður dúnhreinsunarstöðvar SÍS á Kirkjusandi, með eitt af kópaskinnunum sem seld hafa verið til Grænlands. 500 vorkópaskinn seld til Grænlands BÚVÖRUDEILD SÍS hefur selt 500 vorkópaskinn til Grænlands. Kaupandinn er sútunarverksmiðja og verða skinnin notuð í hátíða- klæðnað kvenna. Skinnin verða send til Grænlands f næstu viku. Magnús Friðgeirsson fram- kvæmdastjóri búvörudeildarinnar sagði að deildin hefði verið að reyna að finna markaði fyrir kópaskinn að nýju en lítið gengið. Salan til Græn- lands væri fyrsti sölumöguleikinn sem komið hefði upp, en Grænland væri síðasti staðurinn þar sem mönn- um hefði dottið í hug að leita fyrir sér með sölu selskinna. Sagði Magn- ús að vorkópur islenska landselsins væri eftirsóttur, á Grænlandi hefði skinn hans hlotið sess sem efíii í hátíðarklæðnað kvenna, en lítið væri um landsel við Grænland. Magnús sagði að 1.500 krónur fengjust fyrir skinnið, og væri það heldur lágt verð. Ekki vissi hann um hvort framhald yrði á þessum við- skiptum við Grænland. Jákvæðir þættir en jafn- framt vissar efasemdir - segir Haraldur Henrýsson, forseti SVFÍ, um til- lögu að nýrri stjómstöð leitar- og björgnnarmála „STJÓRN Slysavamafélagsins hefur ekki fjallað um þingsálykt- unartillögu Árna Johnsens og fleiri um sérstaka nýja stjómstöð vegna björgunar og leitar. Hún mun hins vegar gera það, vafa- laust með jákvæðu hugarfari. í henni felast vissir jákvæðir þætt- ir, en jafnframt vakna ýmsar spumingar um framkvæmd,“ sagði Haraldur Henrýsson, for- seti Slysavaraafélags íslands, I samtali við Morgunblaðið. Haraldur sagði, að í tillögunni fælist jákvæð viðleitni til að tengja saman á farsælan hátt störf opin- berra aðila og ftjálsra félagasam- Bifreið valt á Sóleyjargötu BIFRF.IÐ valt á homi Sóleyjar- götu og Skothúsvegar í gærmorg- un. Engin slys urðu á fólki. Slysið varð með þeim hætti að þegar ökumaður hugðist stöðva bif- reiðina við ljós á gatnamótunum, virkuðu ekki hemlamir á öllum hjól- um og bifreiðin valt. Brotist inn í Hvít- árskála Hvannatúni f Andakfl. BROTIST var inn I Hvítárskála í Borgarfirði aðfaranótt föstu- dags og stolið vamingi að verðmæti um 50 til 60 þúsund króna. Það var áberandi við innbrotið, að þjófurinn olli ekki skemmdum umfram það sem þurfti til að kom- ast inn. Hann braut rúðu við hlið aðaldyra en þaðan gat hann ekki opnað hurðina og braut þá rúðu í hurðinni. Stolið var nokkrum myndbönd- um, á annað hundrað pökkum af sígárettum, allt af gerðinni Wins- ton, nokkru magni af sælgæti og nokkrum kössum af öli. Verðmæti þýfísins er að minnsta kosti 50 til 60 þúsund krónur. Lögreglan í Borgamesi rannsakar málið. Hér um slóðir eru gripdeildir sem þessar svo til óþekktar. D.J. taka á vettvangi leitar- og björgunarmála. Hins vegar vöknuðu ýmsar spumingar í kjölfar tillögunn- ar. Ráð væri fyrir því gert að sett yrði upp sérstök ný stjómstöð, sem virtist krefjast talsverðs mannafla og þar með kostnaðar. Yfír stjóm- stöðinni yrði síðan sérstök fram- kvæmdastjóm og Ioks sérstakt ráð yfír henni. Það liti því út fyrir að þetta yrði talsvert bákn og hugsan- lega þungt í vöfum. Jafnframt væri gert ráð fyrir stjómstöð fyrir leit í lofti, á landi og sjó og því vaknaði spuming um gildandi samkomulag um leit á landi, sem fæli í sér ákveðna skipun leitarstjóma í sam- vinnu við lögreglu. Hann hefði vissar efasemdir um að nauðsynlegt væri að slá þessu öllu saman í eina stjóm- stöð. „Við viljum skoða þetta með jákvæðu hugarfari og stjóm SVFÍ mun gera það,“ sagði Haraldur Henrýsson. „Ég fagna þvi að þessi tillaga er komin fram og fari til umfjöllunar eins og framsögumaður óskaði í alls- heijamefnd Alþingis. Ég vísa annars til ágætrar framsöguræðu Áma um þetta mál og jákvæðrar afstöðu ann- arra, sem þama tóku til máls. Til (dæmis Guðrúnar Agnarsdóttur, sem sat í 9 manna nefnd þingmanna; öryggismálanefnd sjómanna, og vitnaði sérstaklega í 15. atriði sam- þykktar nefndarinnar, þar sem sagt er að forræði Slysavamafélags Is- lands í sjóbjörgunarmálum mætti ekki skerða enda væri áratuga hefð fyrir því starfi. Það er líka mikil- vægt að þau ráðuneyti, sem um þessi mál §alla, komi sér saman um niðurstöðu í þessu máli,“ sagði Hannes Hafstein, framkvæmdastióri SVFÍ. Fundað í kjara- deilu yfirmanna VIÐRÆÐUR í kjaradeilu yfir- manna á farskipum og útgerða þeirra standa yfir um þessar mundir. Fundi á föstudag lauk án árangurs, en fundir hófust aftur í gær. Viðræðumar hafa til þessa að mestu snúizt um breytingar á vinnutilhögun, en um helgina var búizt við því að farið yrði að ræða launaliði kjarasamningsins. Yfír- menn hafa ekki boðað til verkfalls og deilunni hefur ekki verið vísað til sáttasemjara.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.