Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987
25
md(VTi((
FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1,
SÍMAR 28388 - 28580
í öruggum höndum hjá
OTCHMT1«
Sumaráætlun ATLANTIK er
komin út. Sextán síðna litprent-
aður bæklingur með myndum og
upplýsingum auk fjögurra síðna
verðskrár. Við bjóðum þér bækl-
inginn á skrifstofunni og í dag,
sunnudag, frá eitt til fimm, á ferða-
kynningu Reisuklúbbsins á Hótel Esju.
Páskaferðir. Því ekki að hrista
af sér vetrardrungann í hrífandi ferð til
fjalllendis Sviss 11 .-20. april? Þar býðst
glæsileg gisting á Axenfels, nýju einkar
vönduðu hóteli. Öll herbergi með síma,
sjónvarpi og útvarpi, miníbar, svölum og
baði.
Páskaferðtil Mallorka.
Vinnudagarnir eru fáir sem tapast og á
þessum tíma þráir fólk sólaryl. íslenskur
fararstjóri tekur á móti farþegum við kom-
una. Flogið til Palma 15. apríl og ueim-
leiðis er haldið þann 29. april. Verðdæmi:
Hjón með tvö börn. Kr. 22.000 á fjöl-
skyldumeðlim.
Á Mallorka bjóóum við upp á
fjögur hótel. Royal Playa de Palma, Roj-
al Jardin del Mar, Royal Sa Coma og
Royal Torrenova. Allt gististaðir í sér-
flokki. Til þess að taka eitt dæmi um
aðbúnað má skoöa Royal Jardin del
Mar. Allar íbúðir hótelsins hafa svalir að
sjó, eldhús, baðherbergi, stofu og svefn-
herbergi. Á hótelunum er auk þess
skemmtidagskrá sex daga vikunnar. Á
næstu grösum eru klúbbar, veitingastað-
ir, þjónustufyrirtæki, dansaðstaða og
aðstaða til hvers kyns íþróttaiðkana.
Verðdæmi fyrir hjón með tvö börn í þrjár
vikur í júlí: Kr. 28.300 á fjölskyldumeðlim.
Umboð a Islandi fyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL
Það koma allir brosandi heim
Brottfarir til Mallorka i sumar:
apríl 15. 29.
maí 23.
júní 1. 13. 22.
júlí 4. 13. 25.
ágúst 3. 15. 24.
sept. 5. 14. 26.
okt. 5.
Sumarhús viö sjó. Enn bjóðum við vinsælar
ferðir í Weissenhauser - Strand sumarhúsin við strendur
Eystrasaltsins norðuraf Hamborg. íþrótta- og tómstundaað-
staða er með því besta sem gerist í Evrópu. Golf, tennis,
keiluspil, billjard. Frá húsunum er stutt til Kaupmannahafn-
ar með börnin í Tívolí eða á Strikið. Enn styttra er í Hansaland
sem er feikistórt leiktækja-, skemmtana- og útivistarsvæði
í nágrenninu. islenskur fararstjóri á staðnum svarar öllum
spurningum. Flogið er beint til Hamborgar. Tekið á móti
farþegum og ekið á áfangastað. Hægt er að velja um tvo
kosti og báða góða. Sumarhús fyrir 2-8 eða íbúð i þriggja
hæða íbúðarbyggingu á svæðinu. Verðdæmi fyrir hjón með
tvö börn í hálfan mánuð: Kr. 20.900 á fjölskyldumeðlim.
Siglingar, sérgrein Atlantik . Skrifstof-
an hefur einkaumboð fyrir hið óviðjafnanlega skipafélag
Royal Caribbean. Sé markmiðið munaður og viðurgerningur
á heimsmælikvarða er sigling með Royal Caribbean rétti
kosturinn. Unnt er að velja milli siglinga í 7-1 7 daga með
ólíkum áfangastöðum. Lúxusferð. Verð frá kr. 71.000 á
mann.
Heillandi heimsborgir. Vinsældir stórborg-
arferða aukast stöðugt. Við bjóðum upp á flug og bíl til
Hamborgar, Amsterdam, Lúxemborgar, Kaupmannahafnar,
Glasgow, Rómar, Parísar og London. Verðdæmi Hamborg:
Fimm saman í bíl í viku. Kr. 14.400 á mann.
Rútuferðir. Notaleg ferð um Norður-Þýskaland. í
ferðinni er meðal annars farið í borgarskoðanir í Hamborg,
Bremen og Hannover. Ferðir 4.-14. júní og 27. ágúst - 6.
september.
Myndræn ferð um Mið-Evrópu. Heillandi ferð um fögur
fjallahéruð og skóga. Flogið er til Frankfurt og þaðan ekið
áfram. Meðal áfangastaða eru Heidelberg, Freiburg, Svarti-
skógur, Tyrol hérað, Innsbruck, Vínarborg, Múnchen og
Núrnberg. Ferð 2. - 23. ágúst.
Barnaafsláttur.