Morgunblaðið - 15.02.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 15.02.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987 39 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Ágæti stjömuspekingur. Ég er fædd 27.11. 1966 kl. 14.20 og þætti vænt um ef þú sæir þér fært að birta stjömukort mitt og segja mér um hinar ýmsu hliðar persónuleika míns, svo og hvaða starfssvið gætu hent- að mér. Með fyrirfram þökk.“ Svar: Þú hefur Sól og Venus í Bogmanni, Tungl og Rísandi merki í Nauti, Merkúr í Sporðdreka, Mars í Meyju og Steingeit á Miðhimni. Ihaldssöm útgáfa Það að vera svo sterkt Naut auk Bogmannsins táknar að þú ert róleg og íhaldssöm útgáfa af Bogmanni, þarft öryggi, varanleika og jarð- festu í líf þitt. Sveifla Þar sem þessi merki eru ólík er hins vegar líklegt að það geti tekið þig tíma að átta þig á þessu og finna jafn- vægi. Sú hætta er alltaf fyrir hendi þegar ólík merki mæt- ast að öðru er afneitað, a.m.k. á tímabilum og sveifl- ast er milli ólíks athafna- mynsturs. Eitt árið afneitar þú kannski ábyrgð og ert á ferð og flugi, en situr hið næsta í rósemi heima við og prjónar. LífsglöÖ Sólin er fyrst og fremst tákn- ræn fyrir lífsorku og grunn- eðli. Það táknar að þú þarft hreyfingu og flölbreytileika til að viðhalda lífsorku og -gleði, þarft að geta ferðast, safnað þekkingu og víkkað sjóndeildarhring þinn. í grunneðli þínu ert þú síðan létt, bjartsýn, jákvæð og ftjálslynd. FriÖsöm Tunglið er táknrænt fyrir tilfinningar, lundarfar, dag- lega hegðun og heimili. Það táknar að þú þarft, þrátt fyrir fjölbreytileikann, að hafa örugga undirstöðu, eiga gott heimili og fást við hag- nýt og uppbyggileg mál. Þú hefur rólega lund, ert frið- söm og að öllu jöfnu yfir- veguð. Starf Starf þitt þarf að sameina þessa tvo þætti, vera fjöl- breytilegt, sem getur þýtt að þú þarft að skipta um fag eða áherslur nokkrum sinn- um á ævinni, en jafnframt hagnýtt og öruggt. Það gæti t.d. táknað einhvers konar flármálasýslu, eða störf fyrir traust fyrirtæki sem er í inn- eða útflutningi, og þar sem margt fólk er samankomið. Vandvirk Merkúr í Sporðdreka táknar að hugsun þín litast af til- fmningum, er dul og kryfj- andi. Mars í Meyju táknar að þú ert nákvæm og vand- virk í starfi og vilt fást við hagnýt mál. JarÖbundin Kort þitt er blanda af eldi og jörð, eða athafna- og lífsorku og því áþreifanlega og jarðbundna. Það mætti því kalla þig athafnamann og segja að það eigi best við þig að starfa í athafnalífínu og þar sem mikið er að ger- ast. Ævintýramaöur í heild má segja að þú sért jákvæð og bjartsýn mann- eskja, ert róleg og yfirveguð á yfírborðinu en eirðarlausari og ævintýragjamari undir niðri. Þú ert vinsamleg í fasi og hegðun, vilt vera sjálf- stæð og prófa ýmislegt, en vilt samt hafa fætuma á jörðinni. Þú ert jarðbundinn ævintýramaður. GARPUR GAKPUR EK S&IL EN pKEVrrjl? CxS SB5IR Mí> >TeiNPÍ'|?: y.q W V/P lír, f L/NNUMf Tr / NÆTT / A ' >\ - ♦ A/h'r em /weftiappa í epn/m/ | TOMMI OG JENNI UOSKA þó HEFBIR Atr AÐ t/EEA gET EG GEICr AF PVI j frÓÓSSé SE|NN_AÐ r-r/ / FERDINAND Heyrðu, þú hægir á þér! Ertu að verða gamall? Svo sannarlega. Ég er fimm mínútum eldri en þegar ég fór af stað! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Vestur var höfundur sagna og opnaði á einum spaða. Næsta ákvörðun hans var að velja út- spil gegn fjórum hjörtum suðurs: Norður ♦ 64 ♦ G65432 ♦ 53 ♦ ÁD6 Suður ♦ ÁG10 ♦ ÁKD87 ♦ K87 ♦ 54 Hvemig viltu spila? Utspilið bendir til að austur eigi laufkónginn. Og þar með hlýtur vestur að eiga það sem úti frýs í hinum litunum. Svo það er stór hætta á að tapa spil- inu, gefa einn slag á hvom svörtu litanna og tvo á tígul. Besti möguleikinn er einfald- lega að leyfa laufgosanum að eiga fyrsta slaginn. Það þarf meira en lítið slunginn spilara til að yfírdrepa gosann með kóngnum til að spila tígli, og við skulum treysta því að austur fínni ekki þá vöm. Norður ♦ 64 ♦ G65432 ♦ 53 ♦ ÁD6 Vestur Austur ♦ KD987 .. + 532 ▼10 II V9 ♦ AD42 ♦ G1096 ♦ G103 ♦ K9872 Suður ♦ ÁG10 VÁDK87 ♦ K87 ♦ 54 Vestur spilar væntanlega áfram laufí. Það er drepið á ás og laufdrottning trompuð hátt. Næst er trompi spilað tvisvar og endað inni á gosa blinds. Þá er tímabært að spila spaða á tíuna og leggja upp. Vestur verður alltaf að gefa tíunda slag- inn. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega mótinu í Sochi í Sovétríkjunum sl. haust kom þessi staða upp í skák sovézka stórmeistarans Vaganjan, sem hafði hvítt og átti leik, og enska alþjóðlega meistarans Hodgsoon. Svartur lék síðast 15. Rc6 — a5? r Ww A'wm jt mrn * WL mk 1 n m 16. Bxf7! - Kxf7, 17. Hxh6 - Bxf3, 18. gxf3 og svartur gafst upp. Svetozar Gligoric frá Júgóslavíu sigraði óvænt á mót- inu ásamt hinum frægu Sovét- mönnum Vaganjan og Beljav- sky. Þeir hlutu 8 Vz v. af 13 mögulegum, en næstir komu Sovétmennimir Tal og Razuvajev með 8 v.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.