Morgunblaðið - 15.02.1987, Síða 44
MÖRÖUNBLAÖIÐ/ StÍNÍrtÍDÁGtíR 15; PÉÉftÖÁR 1987
NÝTT UNDRATÆKI í HLJÓMFLUTNINGI
Byltingarkennd
breyting hefur átt sér
staðá
hljómflutningssviðinu,
eftir að geislaspilarinn,
sem fyrir ekki svo löngu
virtist draumórakennd
hugmynd, er orðinn að
nýjasta tækniundri
heimilisins.
Hvað er geislaspilari?
Hér er um að ræða
algjörlega nýja tækni á
þessu sviði, en hún
byggir á meðhöndlun
stafrænna merkja
(digital) í tölvutæku
formi og notkun á
laser-geisla.
Geislaplötur taka stöðugt meira rými í hljómplötuverzlunum.
9 iq
m
■Si
Það má fara á milli laga og
fram og til baka innan einstakra
laga og breyta afspilunarröð leift-
ursnöggt, án þess að skemma
plötuna. Þar með er úr sögunni
vandamálið að giska á upphaf eða
endi lags með því að færa hand-
virkt tónarm á hefðbundnum
plötuspilara. Allar aðgerðir geisla-
spilarans, svo og afspilaður og
óspilaður tími, eru sýndar á raf-
eindastýrðu ljósaborði.
Geislaplötu þarf ekki að snúa
við, þ.e. tónlistin er öll á annarri
hliðinni og þar komast fyrir
60—70 mínútur af tali eða tón-
list. Þetta kemur sér vel þegar
t.d. um er að ræða löng tónverk
eða safnplötur. Þvermál geisla-
plötu er aðeins 12 cm og er
geymsla og meðhöndlun því auð-
veld.
Geislaspilara má framleiða svo
smáa, að þeir eru litlu stærri en
platan sjálf. Hér opnast því sá
möguleiki að nota sömu plötumar
í ferðatæki og bíltæki.
Yfir 7000titlar
til á geislaplötum
Nú er nær öll tónlist, sem gefin
GEISLASPILARINN
Geislaplatan
Hver er munurinn á hinni
gömlu, góðu hljómplötu og nýju
geislaplötunni? Á hefðbundnu
hljómplötunni strýkst nál við
plastyfirborð plötunnar og slítur
og rýrir tónupplýsingar hennar
við hverja einustu afspilun. Þetta
þýðir, að gæði plötunnar minnka
með árunum og oft eyðileggjast
þær gjörsamlega. Geislaplatan er
aftur á móti gerð úr plasthúðaðri
álþynnu, sem geymir tónlistina
og þolir mun meira hnjask en
gamla hljómplatan. Tónlistin er
lesin af plötunni með laser-geisla,
og er því ekki um neinn núning
að ræða.
Á geislaplötunni skiptast á hol-
ur og sléttir fletir, sem geislinn
les sem plús og mínus eða raunar
einn og núli. Upplýsingamar em
skráðar inn í minni geislaspilarans
og berast þaðan að magnara
hljómtækjasamstæðunnar.
Hljómiistin er í raun skráð sem
tölur á geisiaplötuna og er því
hverfandi hætta á bjögun. Ef t.d
lítið magn upplýsinga vantar, m.a.
vegna óhreininda á yfirborði
geislaplötunnar, getur geislaspil-
arinn reiknað út hvaða upplýsing-
ar skortir út frá gildum beggja
vegna við gapið og brúað það með
réttum tónum, þannig að tónlistin
verður samfelld.
Nákvæmni í aflestri
Öfugt við gamla fyrirkomulag-
ið, byrjar geislaspilarinn að lesa
með geislun innst á plötunni og
er snúningshraðinn þá nálægt 500
snúningum á mínútu. Það dregur
úr hraðanum sem utar kemur og
er hann yst u.þ.b. 200 snúningar.
Þetta gerir það að verkum, að
tækið les ætíð jafn mikið í einu,
hvar svo sem geislinn er á plöt-
unni. Á hefðbundna plötuspilaran-
Philips hefur haft forystu um
þróun geislaspilara í
samvinnu við japanska
fyrirtækið Sony.
um hefur ætíð verið erfiðast að
halda nákvæmum snúningshraða.
í geislaspilaranum er upplýsing-
um safnað í réttri röð í tölvuminni
og þær sendar með hámákvæmu
millibili til magnarans. Skiptir
engu máli hvort upplýsingamar
skráist inn í bunu eða smá
skömmtum. Ekki skiptir öllu máli
lengur að snúningshraði spilarans
sé hámákvæmur, því sömu hljóm-
gæðin skila sér ávallt til hlustand-
ans. Magnari hljómtækjasam-
stæðunnar meðtekur tónupplýs-
ingar frá geislaspilaranum, sem
breytt hefur verið úr stafrænu
formi yfir í hefðbundið tónform,
með svonefndum „digital/ana-
log“-breyti.
N otkunarmöguleikar
„Það sem skiptir notendur
hljómtækja og unnendur góðrar
hljómlistar mestu máli, er tón-
gæðin við afspilun og varanleiki
tónlistarinnar á viðkomandi
hljómplötu," segir Þórólfur Áma-
son, framleiðslustjóri Neseo, sem
býr yfir mikilli þekkingu á þessu
sviði. „Yfirburðir geislaplötunnar
og geislaspilarans em ótvíræðir
þegar þessi atriði em skoðuð.
Ekkert slit verður við afspilunina
og platan hljómar raunvemlega
eins vel í fyrsta og tíu þúsundasta
skiptið. Það sem meira er, að smá
rispur, fingraför eða kusk hafa
engin áhrif og heyrast hvorki sem
suð né smellir. Sumir hafa t.d.
reynt að hoppa á plötunni í götu-
skóm, en tóngæðin hafa samt
ekki minnkað."
er út á hljómplötum af stómm
útgáfufyrirtækjum, einnig gefin
út á geislaplötum. Það sem auð-
veldar þessa útgáfu er að allir
hljómtækjaframleiðendur og
hljómplötufyrirtæki urðu upphaf-
lega ásátt um sameiginlegan
framleiðslustaðal og þannig var
forðað sams konar stríði og því
sem átti sér stað í upphafi mynd-
bandstækjabyltingarinnar.
Smásöluverð geislaplötu er nú
u.þ.b. 70—80% hærra er á venju-
legum plötum. Þrátt fyrir það er
reiknað með mikilli verðlækkun á
næstu ámm, þegar framboð og
eftirspurn eftir þessari nýju tækni
margfaldast miðað við það sem
nú er.
Sala á geislaspilumm á Vestur-
löndum er nú þegar orðin mjög
mikil og á næstu 2—3 ámm á hún
augljóslega eftir að margfaldast.
Nesco hefur látið
framleiða geislaspilara
undir eigin vörumerki í
Suðaustur-Asíu og selur
á Norðurlöndum og í
Bretlandi.
[