Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Göngnseiða-
markaður-
inn í Noregi
að lokast?
Á FUNDI um fiskeldismál, sem
haldinn var á vegum Ewos hf. á
Hótel Esju I jgærmorgun, kom
það fram hjá Asmund Wandsvik,
markaðsstjóra Ewos hf. í Nor-
egi, að útlit er fyrir að fljótlega
taki fyrir innflutning á göngu-
seiðum til Noregs. Wandsvik
sýndi fram á að mikil offram-
leiðsla væri í uppsigiingu og
gæti markaðurinn jafnvel lokast
þegar á þessu ári.
Wandsvik sagði að framleiðsla
Norðmanna á gönguseiðum yrði
fljótlega 5 til 10 sinnum meiri en
kvíaeldið þarfnaðist og væru því
litlar líkur á innflutningi þar í ár
og alls ekki í framtíðinni. Urðu tölu-
verðar umræður um þetta mál á
ráðstefnunni og virtist þessi fullyrð-
ing Norðmannsins koma íslenskum
fískeldismönnum á óvart.
Það kom einnig fram á ráðstefn-
unni að útlit væri fyrir stórlækkun
á gönguseiðaverði í Noregi. Var
talið að það yrði 8—12 krónur
norskar, en opinbert verð hefur
verið 20—25 krónur, og allt að
helmingi hærra á svörtum markaði.
Hassolía
send með
Herjólfi
LÖGREGLAN í Vest-
mannaeyjum komst fyrir
sendíngu af hassolíu, sem
send var með Herjólfi frá
Reykjavík til Eyja fyrr í
vikunni.
Hassolían var send í pakka og
við yfírheyrslur hjá lögreglunni í
Vestmannaeyjum viðurkenndi
móttakandi pakkans að hafa átt
von á sendingunni. Fíkniefnalög-
reglan í Reykjavík hafði síðan
hendur í hári sendandans og hefur
hann við yfírheyrslur viðurkennt
sinn þátt í málinu. Að sögn fíkni-
efnalögreglunnar var hér um lítið
magn að ræða og er málið upplýst.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
VERTIÐARB ATARISANDGERÐI
Viðræður um sölu á ærkjöti til Sovétríkjanna:
280 milljónir í útflutn-
ingsbætur með kj ötinu
ÓNIÐURGREITT heildsöluverð þeirra 2.000 tonna af kindakjöti sem
rætt er um að selja til Sovétríkjanna er 360 milljónir kr., miðað við
að það sé allt ærkjöt, eða 180 krónur kOóið. Verði af þessum út-
flutningi og fáist 20% skilaverð sem búist er við, þarf að greiða
280—290 miHjónir kr. í útflutningsbætur með kjötinu, að sögn Sigurð-
ar Þórðarsonar skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins. Fyrir kjötið
fást um 70 milljónir kr. eða 35 krónur á hvert kíló.
Talið er að hægt sé að selja Sov-
étmönnum um 1.500 tonn af
ærkjöti, en það er kjöt sem failið
hefur til vegna fækkunar á sauðfé
landsmanna, og offramleiðslu.
Sovétmenn vilja hins vegar fá 2.000
tonn af kjöti, verði af samningum,
og er rætt um að selja þeim 500
tonn af dilkakjöti með ærkjötinu.
Einnig hefur komið til tais að selja
þeim nautakjöt. Framleiðnisjóður
landbúnaðarins mun taka á sig að
greiða um helming útflutnings-
bótanna því hann tók ábyrgð á því
kjöti sem féli til vegna sauðfjár-
fækkunarinnar í haust.
Benedikt Jónsson sendiráðsritari
í Moskvu sagði að Sovétmenn væru
áhugasamir um kaup á kindakjöt-
inu. Hins vegar þyrfti miklu betri
undirbúning heima áður en hægt
væri að ræða frekar við þá um
þessi viðskipti. Sagði Benedikt ekki
ólíklegt að Sovétmennimir myndu
óska eftir fundi með viðkomandi
íslenskum aðilum þegar þeir hefðu
fengið fullnægjandi upplýsingar.
Halldór Ibsen, framkvæmdastj óri Útvegsmannafélags Suðurnesja:
Oendanleg fjölgun smábáta
Kerfið býður heim spillingu og óréttlæti, sem verður að lagfæra
MIKIL fjölgun fisklbáta undir 10 lestum að stærð veldur mönnum
viða um land verulegum áhyggjum. Halldór Ibsen, framkvæmda-
stjóri Útvegsmannafélags Suðumesja, segir þessa þróun mjög
varasama. Oryggi þessara báta sé ábótavant, frjálsræðið í veiðun-
um og stærðarmörkin bjóði heim alls konar svindli og að auki
sé svokölluðum frístunda-fiskimönnum heimil nánast óheft sókn
í þorskinn á kostnað þeirra, sem hafa af veiðunum fulla atvinnu.
Árið 1985 íjölgaði smábátunum Morgunblaðið, að þessi smábáta-
um 116 og 105 á síðasta ári.
Samkvæmt reglum um veiðar
smábátanna er þeim heimil óheft
sókn nema ákveðinn dagaflölda í
kringum jól, páska og verzlunar-
mannahelgina.
Halldór sagði í samtali við
floti virtist stækka óendanlega og
meirihluti þeirra, sem litlu bátana
keyptu, virtist vera menn á fullum
launum í annarri vinnu, sem hefðu
nær óheft fijálsræði til sóknar í
þorskinn á kostnað annarra. Það
alvarlegasta í þessu dæmi væri
það, að fjölgun bátanna væri óheft
og í gangi alls konar svindl varð-
andi mælingar á stærð þeirra. Það
væri verið að byggja stálbáta, sem
yrðu mældir 9,9 brúttólestir að
stærð, þar sem þeir væru að ein-
hveiju leyti opnir, en hefðu að
öllu jöfnu mælzt allt að 17 lestir.
Þá mætti taka dæmi um einn
bát, sem væri allur opinn og
mældur 9,9 lestir, en hefði annars
mælzt 29 lestir. Ætlunin væri að
setja gám um borð í bátinn og
físka í hann. Síðan yrði gámurinn
einfaldlega hífður í land og sendur
utan en annar settur um borð.
Þar sem gámurinn væri laus,
mældist hann ekki með í stærð
bátsins.
„Þetta kerfi býður upp á spill-
ingu og óréttlæti og það verður
að endurskoða á þessu ári. Enn-
fremur verður að endurskoða
viðmiðunarmörkin í kvótakerfínu.
Syóm Útvegsmannafélags Suð-
umesja hefur sent stjóm LIÚ bréf,
þar sem óskað er eftir því að þessi
mál verði tekin upp við stjóm-
völd,“ sagði Halldór Ibsen.
Tilraunaveið-
ar á krabba út
af Skagaströnd.
Skagaströnd
TILRAUNAVEIÐAR á krabba
hafa staðið yfir að undanförnu
héðan frá Skagaströnd. Einn bát-
ur, Helga Björg HU 7, stundar
veiðamar, en þær eru kostaðar
af þremur fyrirtækjum í sjávar-
útvegi hér; Skagstrendingi,
Hólanesi og Rækjuvinnslunni.
Ólafur Einarsson, fiskifræðingur
og útibússtjóri Hafrannsóknastofn-
unar í Ólafsvík, hefur eftirlit með
tilraunaveiðunum. Að hans sögn
ganga veiðamar þokkalega, en of
snemmt er að segja til um niðurstöð-
ur. Þær liggja ekki fyrir fyrr en eftir
nánari úrvinnslu Hafrannsókna-
stofnunar.
Ástæða þess að rannsóknimar
heQast einmitt nú er sú að bátar
hér eru um þessar mundir að ljúka
við að veiða upp rækjuskammta sína,
en eins og kunnugt er hefur rækjan
að mestu horfíð af miðunum í Húna-
flóa og kemur það mjög illa niður á
afkomu rækjusjómannanna.
ÓB