Morgunblaðið - 04.03.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
Hrafninum Gregorí sleppt. Morgunblaðið/Bemhard
Reykholtsdalur:
Hrafninn flýgur aftur
Kleppjárnsreykjum.
ÞAÐ verða fleiri fyrir óhöppum en mennirnir. Hrafn nokkur kom
heim að Dalbæ hér í sveit, var hann vængbrotinn og illa á sig
kominn en honum var bjargað í
bundin upp.
Tók Gregorí, en það var hrafn-
inn nefndur, kæti sína aftur og
gréri vængur hans furðu fljótt.
Eftir nákvæma skoðun og nokkr-
ar flugæfmgar var Gregorí sleppt.
Ekki fór hann langt því honum
líkaði vistin vel og nú heldur hann
hús, gefinn matur og vængurinn
sig hérna í kringum húsin á
Kleppjárnsreykjum. Eru íbúarnir
beðnir að henda til hans því sem
af borðum þeirra fellur. Gamalt
máltæki segir: „Guð launar fyrir
hrafninn".
- Bernhard
Mýsnar hafa ákveð-
ið að bregða
- segir Þorsteinn Pálsson um þing-
flokk Framsóknarflokksins
„ÉG þekki ekki til vinnubragða
innan þingflokks Framsóknar-
flokksins, en mér sýnist á öllu
að mýsnar hafi ákveðið að
bregða á leik eftir að kötturinn
stökk inn fyrir Kremlarmúra,"
sagði Þorsteinn Pálsson, fjár-
málaráðherra, varðandi ummæli
Páls Péturssonar í sjónvarpsvið-
tali á mánudagskvöld, en þá
sagði þingflokksformaðurinn að
nægir peningar væru til hækkun-
ar á launalið bænda, hvað sem
liði hvatvíslegum ummælum fjár-
málaráðherra um annað.
Þorsteinn sagði að þegar ríkis-
stjóminni hafi verið kynnt fyrir-
huguð hækkun landbúnaðarvara
hafí allir verið sammála um að
kanna þyrfti málið betur.
„Steingrímur Hermannsson óskaði
eftir að ákvörðun um hækkun yrði
frestað og bar það undir mig,“ sagði
Þorsteinn. „Það varð síðan að sam-
komulagi milli mín og landbúnaðar-
ráðherra að óska eftir því við
kjararannsóknarnefnd, að hún
skýrði niðurstöður kjarasamning-
áleik
anna í vetur, þannig að unnt væri
að hafa það til hliðsjónar við mat
á því hvað gæti talist eðlileg launa-
hækkun við núverandi aðstæður.
Það hafa ekki verið fluttar tillögur
um að auka niðurgreiðslur og menn
eru sammála um að nota frestinn
til að btjóta málin til mergjar. Ég
hef hins vegar sagt að það eru
ekki til peningar, hvorki til niður-
greiðslna eða annarra útgjalda.“
Ríkisútvarpið:
Fjórir nýir frétta-
menn á hljóðstofu
*
Arni Snævarr í stað Margrétar Hein-
reksdóttur á sjónvarpið
FJÓRIR nýir fréttamenn hafa
verið ráðnir á fréttastofu hljóð-
varps. Fastráðnir hafa verið þeir
Broddi Broddason og Már Jóns-
son og lausráðnir þeir Jóliann
Hauksson og Guðmundur Árna-
son.
Fyrirhugað er að Broddi taki
síðan við fréttamagasín-þætti Rás-
ar 2, sem mun væntanlega hefjast
í þessum mánuði samhliða 24-tíma
útsendingu Rásar 2. Unnið hefur
verið að endurskipulagningu Rásar
2 á undanförnum mánuðum og er
gert ráð fyrir að útvarpsráð leggi
blessun sína yfir tillögurnar á næsta
fundi sínum.
Margrét Heinreksdóttir hefur nú
látið tímabundið af starfi frétta-
manns á sjónvarpi þar sem hún
skipar nú sæti á framboðslista fyrir
næstu Alþingiskosningar. Við starfi
hennar tekur Árni Snævarr, sem
verið hefur fréttamaður á Bylgjunni
frá byrjun. í sumar mun hann síðan
gegna starfi sumarafleysinga-
manns á fréttastofu sjónvarps.
Þá hefur Olafur Þórðarson verið
ráðinn sem fulltrúi léttrar tónlistar
RUV. Verið er að ganga frá ráðn-
ingu tíu fastráðinna starfsmanna á
Rás 2, sem hafa munu umsjón með
dagskránni að mestu leiti. Hingað
til hafa allir starfsmenn Rásar 2
verið lausráðnir. Þijátíu og einn
sótti um fastráðningu.
Tveir sendi-
herrar skipaðir
HELGI Ágústsson og Þorsteinn
Ingólfsson hafa verið skipaðir
sendiherrar í utanríkisþjón-
ustunni, Helgi frá 1. júní nk. að
telja og Þorsteinn frá 1. mars sl.
Þorsteinn Ingólfsson er fastafull-
trúi íslands við alþjóðlegu stofnan-
irnar í Genf. Hann tók við því starfi
af Hannesi Hafstein.
Helgi Ágústsson hefur starfað
við sendiráð íslands í Washington.
Hann hefur störf sem skrifstofu-
stjóri í utanríkisráðuneytinu hinn
1. júní nk,, en því starfi gegndi
áður Olafur Egilsson, sendiherra í
London.
Sorphreinsun:
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Á vestanverðu Grænlandshafi er 993
millibara smálægð sem hreyfist lítið og önnur álika skammt norður
af landinu, en um 550 kílómetra suður af Vestmannaeyjum er 990
millibara vaxandi lægð sem þokast norður.
SPÁ: í dag verður suðlæg átt um mestallt landið, víðast kaldi.
Sunnanlands og vestan verða skúrir eða él, og líklega slydda norð-
antil á Vestfjörðum fram eftir degi. Rigning verður á norðausturlandi
árdegis, en styttir upp síðdegis. Hiti 1 til 6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Austlæg eða suðaustlæg átt og frostlaust víðast
hvar. Víða rigning eða slydda um sunnan- og austanvert landið,
og líklega él á annesjum norðanlands og á Vestfjörðum.
FÖSTUDAGUR: Austan- eða norðaustanátt með snjókomu eða
slyddu norðanlands og á Vestfjörðum, en suðvestanátt og él sunn-
anlands. Hiti um eða yfir frostmarki.
N: y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10
stefnu og fjaðrirnar • V
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * v
Léttskýjað / / / / / / / Rigning
/ / / - "
Hálfskýjað .5 5
* / * / * / * Slydda 5 oo
Skýjað / * /
* * * 4
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * 'rc
10 gráður á Celsius
Þokumóða
Súld
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 3 alskýjað
Reykjavik 4 rigning
Bergen -3 snjókoma
Helsinki -13 skýjað
Jan Mayen -10 snjóél
Kaupmannah. -9 léttskýjað
Narssarssuaq -15 þokaígr.
Nuuk -8 heiðskírt
Osló -11 léttskýjað
Stokkhólmur -10 hálfskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 26 mistur
Amsterdam -3 léttskýjað
Aþena vantar
Barcelona 17 léttskýjað
Berlin -6 hálfskýjað
Chicago -2 heiðskirt
Glasgow 6 skýjað
Feneyjar 4 alskýjað
Frankfurt -6 skýjað
Hamborg -5 hálfskýjað
Las Palmas vantar
London 2 skýjað
LosAngeles 12 alskýjað
Lúxemborg -5 léttskýjað
Madrid 19 léttskýjað
Malaga 27 mistur
Mallorca vantar
Miami 17 alskýjað
Montreal -8 snjókoma
NewYork 1 skýjað
París -2 alskýjað
Róm 17 léttskýjað
Vin -9 skafrenn.
Washington 8 úrk.igr.
Winnipeg -14 ísnálar
Reykjavík hefði
getað sparað 14
millj. með útboði
HEFÐI Reykjavíkurborg notið
sömu kjara og Garðabær, að
undangengu útboði á sorphreins-
un fyrir árið 1985, hefði kostnað-
urinn við hreinsunina numið 14
milljónum kr. minni upphæð en
hún gerði. Sorphreinsunin er á
vegum borgarinnar sjálfrar, en
í Garðabæ sá einkaaðili um
hreinsunina að undangegnu út-
boði á verkinu.
Þetta kom m.a. fram í ræðu Jó-
hanns Bergþórssonar forstjóra á
Viðskiptaþingi Verzlunrráðs ís-
Norrænt lög-
fræðingaþing
NORRÆNT lögfræðingaþing
verður haldið í Helsingfors dag-
ana 19.-21. ágúst.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að fylla út þátttökueyðublöð
hjá frú Erlu Jónsdóttur hæstarétt-
arritara, skrifstofu Hæstaréttar,
fyrir 31. mars nk. og greiða þátt-
tökugjöld.
lands á Hotel Sögu í gær, en Jóhann
flutti erindi sem hann kallaði: „Op-
inber þjónusta og verklegar
framkvæmdir".
Jóhann lýsti þessu svo í ræðu
sinni: „Ýmis atriði til útboða má
einnig telja til, svo sem sorphreins-
un, sem boðin hefur verið út með
góðum árangri. Til dæmis nam
kostnaður vegna sorphreinsunar í
Reykjavík á íbúa árið 1985 827
krónum, en í Garðabæ samkvæmt
útboði 675 krónur. Hefðu sömu
tölur gilt í Reykjavík hefði sparnað-
ur numið tæpum 14 milljónum
króna.“
Heildarkostnaður við sorphreins-
un í Reykjavík árið 1985 nam kr.
74.271.875 ogvoru íbúarþá 89.769
talsins. í Garðabæ nam kostnaður-
inn aftur á móti 4.070.452 kr. en
íbúar þar voru 6.032 kr. Jóhann tók
fram, að auk þessara tölulegu upp-
lýsinga mætti geta þess, að byggð
í Garðabæ væri mun dreifðari en í
Reykjavík og því ætti það að vera
tiltölulega dýrara að vinna verkið
þar.