Morgunblaðið - 04.03.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
Persaflóastríðið:
Harðir bardag-
ar nærri Basra
Nikósíu, AP.
IRANIR kváðust hafa unnið Basra í írak í hörðum bardögum ingu IRNA, hinnar opinberu
glæsta sigra nærri borginni á mánudag og i gær. í tilkynn- fréttastofu írana, sagði að 1.200
írakar hefðu fallið eða særst.
Iranir kváðust hafa náð hernað-
arlega mikilvægu svæði suðvestur
af Fiskivatni, sem er stöðuvatn
gert af manna höndum, um 10 kíló-
metra austur af Basra. í tilkynn-
ingu IRNA í gær sagði að bardagar
geisuðu enn og að hersveitir þeirra
hefðu yfirhöndina. Herstjórn íraka
gaf ekki út tilkynningu um átök.
Þetta er önnur stórsókn Irana
nærri Basra frá því á fimmtudag
er þeir skýrðu frá því að sókninni
„Karbala 5“ sem hófst fyrir sex
vikum vaeri lokið. Um síðustu helgi
sögðust íranir hafa brotist í gegn-
um varnir íraka við Basra til að
hindra hugsanlega gagnsókn
þeirra.
Vestrænir leyniþjónustumenn
telja að 25.000 íranskir hermenn
og um 10.000 írakar hafi fallið í
„Karbala 5“, sem hófst 9. janúar
síðastliðinn.
Spænskir embættismenn
óttast aukin hryðjuverk
SPÆNSKIR embættismenn
kváðust í gær óttast að dauði
eins leiðtoga aðskilnaðarhreyf-
ingar Baska myndi leiða til
valdabaráttu innan samtak-
anna og aukinna hryðjuverka.
Domingo Abasolo, helsti leið-
togi aðskilnaðarhreyfingar Baska
lést í bílslysi í Alsír þann 27. febr-
úar. Abasolo hafði dvalist þar í
útlegð um nokkurt skeið. Hann
tók við stjórn vopnaðara sveita
Baska árið 1975. Abasolo átti
vísan stuðning eldri manna innan
samtakanna en margt þykir benda
til þess að hann hafi misst tökin
á ungliðunum á síðustu mánuðum.
Dagblaðið El País sagði í frétt
í gær að spænskir embættismenn
óttuðust nú mjög að dauði Aba-
solo myndi leiða til valdabaráttu
innan hryðjuyerkasamtaka Baska
milli ungliða og eldri manna.
Aðskilnaðarhreyfing Baska
hefur myrt um 600 manns, eink-
um her- og lögreglumenn, frá því
samtökin hófu vopnaða baráttu
árið 1968.
Grænland:
Hjólreiðamenn virða fyrir sér sprunguna, sem myndaðist í jarð-
skjálftanum mikla á Nýja-Sjálandi á mánudag. Eins og sjá má, er
vegurinn sundurskorinn af sprungunni, sem var um 2 km löng. Eigna-
tjón af völdum jarðskjálftans er metið á 300-400 millj. ísl. kr.
Thule-búar krefjast bóta
Kaupmannahöfn, frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgfunblaðsins.
SVEITARSTJÓRN Thule á norðvesturhluta Grænlands
hefur ritað Poul Schliiter, forsætisráðherra Danmerkur,
bréf þar sem þess er krafist að skipuð verði nefnd til að
skera úr um ágreining varðandi bandaríska herstöð þar.
Herstöð Bandaríkjamanna í ekki verið svarað.
Thule var reist árið 1953. íbúar Árið 1959 gerðu íbúar Thule þá
Jarðskjálftarnir á Nýja-Sjálandi:
svæðisins voru neyddir til að flytj-
ast frá heimkynnum sínum.
Bandarikjamenn reistu hús fyrir
fólkið 180 kílómetrum norðar en
þau reyndust hin mesta hráka-
smíð. Þess hefur verið farið á leit
við Bandaríkjamenn að þeir reisi
ný hús en þeirri bón hefur enn
kröfu á hendur Banadríkjamönn-
um að þeir greiddu bætur vegna
nauðungarflutninganna. Þetta mál
er einnig óleyst. Arið 1985 féllust
Bandaríkjamenn á að minnka her-
stöðvarsvæðið og fengu þá íbúarnir
hluta sinna fornu veiðisvæða til
baka.
Nær tveggja km löng
sprunga klauf jörðina
Wellington, Reuter, AP.
JARÐSKJÁLFTAR héldu enn
áfram á norðurhluta Nýja-Sjá-
lands í gær í kjölfar jarðskjálft-
ans mikla þar í fyrradag. Sá
skjálfti mældist 6,25 stig á Rich-
ters-kvarða og olli tjóni á
Danny Kaye látinn
Los Angeles, AP.
BANDARÍSKI skemmtikraft-
urinn Danny Kaye, sem um
langt skeið var „sérlegur sendi-
herra barnahjálpar Sameinuðu
þjóðana", lést snemma í gær
74 ára að aldri. Hann fékk
hjartaáfall. Kona hans Sylvia
og dóttir hans Dena voru með
honum við andlátið.
Greint var frá því á mánudag
að Kaye lægi fyrir dauðanum.
Honum var leyft að fara af sjúkra-
húsi í síðustu viku eftir þriggja
vikna legu.
Kaye fæddist í New York og
kom hann fyrsta sinni fram á
þriðja áratugnum í hlutverki
trúðs. Skrípalæti hans vöktu at-
hygli og lék hann á Broadway,
fékk hlutverk í Hollywood og hélt
tónleika.
Meðal kvikmynda hans eru
„Eftirlitsmaðurinn“ frá 1948,
„Leyndarlíf Walters Mitty“ frá
1946, „Hans Christian Andersen“
frá 1952 og „Hvít jól“ frá 1954.
Margrét Danadrottning aðlaði
Kaye árið 1983 fyrir leik hans í
hlutverki H.C. Andersens í söng-
leik frá Hollywood. Sagði Dana-
drottning að rauðhærði,
rauðbirkni leikarinn hefði fært
börnum um allan heim gleði og
hamingju.
Kaye fékk Emmy-verðlaun fyr-
ir sjónvarpsþátt sinn „The Danny
Kaye Show“ árið 1963 og besta
bamaþáttinn árið 1975. Honum
voru veitt sérstök Óskarsverðlaun
í viðurkenningarskyni árið 1954.
Danny Kaye.
Hann var einnig sérlegur sendi-
herra bamahjálpar Sameinuðu
þjóðanna í þijátíu ár og fékk fyr-
ir það viðurkenningu árið 1984.
Hann stjómaði mörgum helstu
symfóníuhljómsveitum heims,
söng eitt sinn fyrir Elísabetu II
Bretadrottningu og var honum
veittur hinn gullni tónsproti
bandarískra symfóníuhljómsveita
fyrir störf sín í þágu tónlistarinn-
ar. Kaye lærði aftur á móti aldrei
að lesa nótur.
Árið 1981 kom hann fram með
fílharmóníuhljómsveitinni í New
York. Gekk hann inn á sviðið með
Rputcr
fangið fullt af tónsprotum og
sagði fiðluleikurum fyrir verkum
með því að sveifla fæti. Hann
stjómaði „Býflugunni" eftir
Rimsky Korsakov með flugna-
spaða.
Kaye fæddist 18. janúar árið
1913. Hann giftist konu sinni
Sylvia Fine árið 1940 og eignuð-
ust þau dóttur, Denu, árið 1946.
Sylvia Fine Kaye, framleiðandi,
textahöfundur og tónskáld, samdi
mörg af lögum manns síns og tók
hún einnig þátt í að framleiða
kvikmyndir hans og sjónvarps-
þætti.
mörgum stöðum. Mikill ótti greip
um sig á meðal fólks á þessum
slóðum og 3000 íbúar bæjarins
Kawerau sáu þann kost vænstan
að yfirgefa heimili sín að sinni.
Tveggja manna er saknað og 25
manns að auki slösuðust meira
eða minna í jarðskjálftanum.
Lýst var yfir neyðarástandi þegar
í stað og er það enn við lýði. Jarð-
skjálftarnir í gær fundust á all stóru
svæði og mældust fjórir þeirra um
4,5 stig á Richter. Svo mikil er jarð-
skjálftavirknin þarna samkvæmt
frásögn sérfræðinga, að allt að
fimm jarðskjálftar mældust þarna
í gær á hveijum 10 mínútum.
Líklegt þykir þó, að jarðskjálfta-
virknin verði með svipuðum hætti
og oftast gerist, þegar stórir jarð-
skjálftar eiga sér stað. Þá má gera
ráð fyrir, að jarðskjálftar haldi
áfram á þessu svæði í eina eða tvær
vikur en úr þeim dragi á þeim tíma
bæði að því er varðar tíðni og styrk.
Það er þó alls ekki unnt að útiloka,
að annar jarðskjálfti jafn harður
eða jafnvel enn harðari en sá fyrsti
eigi sér stað. Það er harðasti jarð-
skjálfti, sem komið hefur á Nýja-
Sjálandi í 19 ár.
Gengi gjaldmiðla
London, AP.
GENGI Bandaríkjadollars hækk-
aði gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum Evrópa að enska pundinu
undanskildu. Gullverð breyttist
litið.
í London kostaði sterlingspundið
1,5613 dollara (1,5558) en annars
var gengi hans þannig að fyrir hann
fengust:
1,8310 vestur-þýsk mörk
(1,8290), 1,5415 svissneskir frank-
ar (1,5380), 6,0950 franskir
frankar (6,0885), 2,0680 hollensk
gyllini (2,0650),1.301,50 ítalskar
lírur (1.300,25), 1,33375 kanadískir
dollarar (1,3310) og 156,60 jen
(153,42).
Óveður í Hollandi
Amsterdam, Reuter.
VEÐUR kólnaði skyndilega í Holl-
andi á mánudag, rafmagnslaust
varð víða og samgöngur riðluðust.
Allt flug lá niðri þ.á m. þyrluflug
til olíuborpallanna í Norðursjó. Mik-
ið var um óhöpp vegna veðursins
og sagði lögregla að þrír hefðu lát-
ist í umferðaslysum er ættu rætur
að rekja til ísingar á vegum. Am-
stel áin flæddi yfir bakka sína
skammt frá Amsterdam og olli
nokkrum skemmdum. í allan gær-
dag var unnið á viðgerðum á
rafmagni og því að koma sam-
göngum í venjulegt horf.
Frakkland:
Bændur hertaka skrifstofur
Pontivy, Frakklandi, Reuter.
UM 300 franskir svínaræktabænd-
ur, er voru að mótmæla lækkandi
verði á svínakjöti, lögðu undir sig
bæjarskrifstofumar í bænum Pon-
tivy í vesturhluta Frakklands, í
nokkrar klukkustundir í fyrrinótt.
Lögregla var kölluð á staðinn, en
ekki kom til átaka. Eftir viðræður
yfirvalda og bænda yfirgáfu þeir
síðarnefndu skrifstofumar og eng-
inn var handtekinn. í síðustu viku
efndu svínaræktabændur á þessu
svæði til mótmæla og trufluðu þá
samgöngur.