Morgunblaðið - 04.03.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Litlar klíkur
Nú er hinu árlega Norðurlanda-
ráðsþingi nýlokið og eitthvað
virðist ganga hægt með sjónvarps-
hnattasamstarfið, gott ef Sverrir
Hermannsson menntamálaráðherra
er ekki andvígur aðild íslands að því.
í þetta sinn er ég hjartanlega sam-
mála Sverri. Hið samnorræna
menningarfaðmlag gæti í fyllingu
tímans þrengt að fijálshuga lista-
fólki. Öðru máli gegnir um Norræna
kvikmyndasjóðinn sem ég bind miklar
vonir við þótt þar hafi menn ekki
þorað að stíga til fulls skrefið í átt
til norræns kvikmyndavers er gæti
keppt við Hollywood en sá er hér rit-
ar lagði þá hugmynd fram hér í
blaðinu í greinaflokki fyrir nokkrum
árum og hlaut bágt fyrir meðal ann-
ars í Þjóðviljanum. Annars á Eiður
Guðnason heiðurinn af því að hafa
hrundið Norræna kvikmyndasjóðin-
um af stokkunum.
Ástæða þess að ég minnist hér á
hið samnorræna sjónvarpshnatta-
samstarf er finnsk kvikmynd:
Kuutamoprinssi/Mánskenprinsen eða
Tunglskinsprinsinn, sem sýnd var í
ríkissjónvarpinu síðastliðið mánu-
dagskveld. Ekki vantaði svo sem að
umbúðimar utan um þetta verk væru
glæsilegar svona einsog utanum ný-
móðins auglýsingakvikmynd þar sem
brellumar varpa ljóma á vöruna. En
ekki var andagiftinni fyrir að fara.
Handritið hugmyndasnautt þrátt fyr-
ir tilburði til að búa til geimaldaræv-
intýri. Leikstjómin var sum sé heldur
litlaus og reynt af fremsta megni að
hægja á atburðarásinni þar til kvótinn
var tæmdur. Slíkur leikur með kvik-
myndavélar og myndbandstól á máski
heima á kvikmyndaskólum en svo er
almenningi ætlað að hafa gaman af
öllu saman. Hinum ríkisreknu kvik-
myndagerðarmönnum stendur ef til
vill á sama um hvort hinn almenni
áhorfandi nýtur myndarinnar eður
ei. Þeir vita sem er að hin menningar-
lega hástétt lofar og prísar hveija
þá kvikmynd er skartar „listrænni"
myndatöku og sækir efnið í „félagas-
legan veruleika" eða hina „menning-
arlegu arfleifð".
Ég óttast satt að segja slík viðhorf
til kvikmyndalistar. Ef rís á Norður-
löndum gulltryggður markaður fyrir
„listrænar formúlumyndir" fjár-
magnaðar af almannafé er viðbúið
að flinkir kerfiskallar; kvikmynda-
fræðingar, stjómarmenn í kvik-
myndastofnunum, ríkisreknir
kvikmyndagerðarmenn, menningar-
sinnaðir þingmenn og hirðmenn
þeirra, myndi einskonar „æðstaráð"
er ræður í raun kvikmyndaframleiðsl-
unni. í frábærri grein er Kjartan
Guðjónsson myndlistarmaður ritaði
hér í blaðið síðastliðinn laugardag
lýsir hann innrás norrænu skrif-
fínnanna á hinn norræna myndlistar-
markað: Á Norðurlöndum hefur hin
síðari ár vaxið úr grasi ný stétt ætt-
uð úr háskólum með uppsafnaða
punkta í listfræði eða hliðstæðum
greinum, mikilvirkir menn í blaða-
skrifum og fundarsetum. Þeir voru í
gallabuxum ’68 en komnir með bindi
’78. Þeir hafa viðurværi sitt af því
að ijalla um verk sem aðrir hafa skap-
að, og má það kyrrt liggja, eitthvað
verða mennimir að sýsla. Er stundir
liðu fram óx þeim smám saman ás-
megin. Þeir fóru að fljúga milli
góðbúanna, höfuðborga Norðurlanda,
einkum SAS-landanna, með dag-
peninga uppá vasann og halda
huggulega fundi, allir þekktust, þetta
var ein fjölskylda. í upphafi voru
listamenn hafðir með, sem héldu jafn-
vel að þeir réðu einhveiju en voru
fljótlega teknir á klofbragði Qármála
og prósentusnakks, sem þeir botnuðu
lítið í. Áður en þeir vissu hvaðan á
þá stóð veðrið voru allar nefndir full-
skipaðar listfræðilegum birókrötum,
fundarsamþykktir og nefndarálit
bunuðu eins og úr brunaslöngu. Þeir
fáu listamenn, sem eftir voru, hafa
annaðhvort gengið undir jarðarmen
skrifræðisins eða dregið sig í hlé.“
Ég verð víst að stoppa hér kæru les-
endur en hin fleygu lokaorð á Kjart-
an: Litlar klíkur í stórum iöndum
geta orðið ótrúlega voldugar.
Ólafur M.
Jóhannesson
Rás 1:
Mamma í uppsveiflu
■■■■ Síðastliðinn
Stöð tvö:
Opin lína
9 03 mánudag byij-
aði Ármann Kr.
Einarsson, rithöfundur,
lestur sögu sinnar
„Mamma í uppsveiflu”, en
hún hlaut viðurkenningu í
bamabókasamkeppni Máls
og Menningar í tilefni
barnaárs 1979.
I sögunni kynnumst við
Bergi, 12 ára strák, og
bekkjarfélögum hans í 6,
bekk H.B., Hallberu, kenn-
ara þeirra, og síðast en
ekki síst Geira, nýja
stráknum í bekknum, en
eftir að hann kemur breyt-
ist allt.
Hildur bekkjarsystir
þeirra týnir rándým heyrn-
artæki og bekkurinn ásamt
kennaranum ákveður að
reyna að halda skemmtun
til þess að safna fyrir nýju
tæki. Bergur og Geiri fá
augastað á gömlu pakkhúsi
í Steinahverfinu, sem til
stendur að rífa. Fyrst þarf
að standa í stappi við eig-
andann og borgaryfirvöld,
en áður en langt um klíður
er sigurinn unninn, æfíng-
ar hefjast af fullum krafti
og leikhúsið Músarholan er
í þann veginn að hefja
Ármann Kr. Einarsson.
störf. En einmitt þá fer
mamma Geira í uppsveiflu
og hætta er á að öll þessi
fyrirhöfn sé til einskis.
Sagan verður lesin upp
í 21 lestri.
■i Eftir fréttir á
00 Stöð tvö gefst
áhorfendum
stöðvarinnar kostur á að
hringja inn í beinni útsend-
ingu og spyija umsjónar-
mann þáttarins eða gest
hans spjömnum úr um
hvað sem er.
í kvöld sér Bryndís
Schram um þáttinn og hún
ætlar fjalla um það hvort
konur hafi vanmetakennd
á sviði atvinnurekstrar.
Fyrir skömmu var einmitt
haldið e.k. námskeið um
það hvernig konur gætu
haslað sér völl á þessu
sviði, en þær hafa til þessa
verið eftirbátar karla, þó
svo að þær leiti í síauknum
mæli út á vinnumarkaðinn.
Annað kvöld mun Dr.
Jón Ottar Ragnarsson sitja
í sjónvarpssal og svara
spumingum áhorfenda um
stöðina, dagskrá hennar og
starf.
r
UTVARP
2
MIÐVIKUDAGUR
4. mars
6.46 Veöurfregnir. Bæn
7.00 Fréttir
7.03 Morgunvaktin
Jón Baldvin Halldórsson og
Jón Guöni Kristjánsson.
Fréttir eru sagöar kl. 7.30
og 8.00 og veöurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru lesn-
ar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
9.00 Fréttir
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Mamma í upp-
sveiflu" eftir Ármann Kr.
Einarsson. Höfundur les (3).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesiö úr forustugreinum
dagblaöanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir
10.10 Veöurfregnir
10.30 Úr fórum fyrri tiöar.
Umsjón: Ragnheiöur Vigg-
ósdóttir
11.00 Fréttir
11.03 islenskt mál
Endurtekinn þáttur frá laug-
ardegi sem Jón Aöalsteinn
Jónsson flytur.
11.18 Morguntónleikar:
a. Konsert i D-dúr fyrir
trompett, óbó, fagott og
strengi eftir Francesco
Biscogfi. Maurice André,
Maurice Bougue og
Maurice Allard leika meö
Kammersveitinni í Heil-
bronn; Jörg Faerber stjórn-
ar.
b. Brandenborgarkonsert
nr. 6 í B-dúr eftir Johann
Sebastian Bach. Jean
Francois Paillard stjórnar
kammersveit sinni.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Börn
og skóli. Umsjón: Sverrir
Guðjónsson.
14.00 Miðdegissagan: „Áfram
veginn", sagan um Stefán
íslandi. Indriöi G. Þorsteins-
son skráöi. Sigriöur Schiöth
les (8).
14.30 Noröurlandanótur. Dan-
mörk.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Vestfjöröum. Umsjón: Finn-
bogi Hermannsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá
16.15 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir
17.03 Síödegistónleikar
a. Sinfónískur dans op. 64
nr. 4 eftir Edvard Grieg. Sin-
fóníuhljómsveitin i Björgvin
leikur; Karsten Andersen
stjórnar.
b. Fiölukonsert nr. 2 i d-
moll eftir Henryk Wieniaw-
ski. Itzhak Perlman og
Filharmóníuhljómsveit
Lundúna leika; Seiji Ozawa
stjórnar.
17.40 Torgiö — Nútímalífs-
hættir. Umsjón Steinunn
Helga Lárusdóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir
19.30 Tilkynningar. Fjölmiöla-
rabb. Bragi Guömundsson
flytur. (Frá Akureyri.)
20.00 Ekkert mál. Bryndís
Jónsdóttir og Siguröur
Blöndal sjá um þátt fyrir
ungt fólk.
20.40 Mál mála. Siguröur
Jónsson og Siguröur Kon-
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
4. mars
18.00 Úr myndabókinni — 44.
þáttur. Barnaþáttur meö
innlendu og erlendu efni.
Umsjón: Agnes Johansen.
Kynnir: Sólveig Hjaltadóttir.
19.00 Múrmeldýrafjall (Mar-
mot Mountain). Bresk
dýralifsmynd tekin í Týról.
Þýöandi og þulur: Óskar
Ingimarsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Spurt úr spjörunum
Spyrlar: Ómar Ragnarsson
og Kjartan Bjargmundsson.
Dómarar: Baldur Her-
mannsson og Friörik Ólafs-
son.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 I takt viö tímann. Rland-
aöur þáttur um fólk og
fréttnæmt efni. Umsjónar-
menn: Jón Hákon Magnús-
son, Elísabet Þórisdóttir og
Ólafur H. Torfason. '
21.35 Leiksnillingur
Master of the Game
Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur í sex þáttum,
geröur eftir skáldsögu Sidn-
ey Sheldons. Aðalhlutverk:
Dyan Cannon, Harry Haml-
in, lan Charleson, Donald
Pleasence, Cliff De Young
og Cherie Lunghi.
Þetta er ættarsaga sem
spannar eina öld. í fyrstu
þáttunum er fylgst meö
ættfööurnum sem auögast
á demöntum í Suöur-Afríku.
Ung að árum tekur Kate,
dóttir hans, viö fjölskyldufyr-
irtækinu og stjórnar því meö
haröri hendi um sjötiu ára
skeiö. Þýöandi: Guöni Kol-
beinsson.
22.45 Nýjasta tækni og
visindi. Efni: Visnu/mæöi-
rannsóknir á Keldum, tölvu-
setningu, sykursýki og
næfurrollurnar i Hólmgaröi.
Umsjónarmaöur: Siguröur
H. Richter.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
4. MARS
§ 17.00 Fyrstu skrefin (First
Steps). Ný sjónvarpskvik-
mynd frá CBS. Ung íþrótta-
kona (Judd Hirch) lendir i
bilslysi og lamast fyrir neöan
mitti. Hún er staöráðin í því
aö læra aö ganga á ný.
§18.30 Myndrokk.
19.00 Viökvæma vofan.
Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.000pin lina. Á milli kl.
20.00 og 20.15 gefst áhorf-
endum Stöövar 2 kostur á
aö hringja í síma 673888
og bera upp spurningar.
Stjórnandi ásamt einum
gesti fjallar um ágreinings-
eöa hitamál liöandi stundar.
20.16 Bjargvætturin. (Equ-
alizer). Grandalaus maöur
flækist inn í stórmál og
Bjargvætturinn er ráöinn til
aö bjarga lifi hans.
§21.05 Húsiö okkar. (Our
House). Gus gamli óttast
aö nú sé hans síöasta stund
aö renna upp.
§ 21.50 Einn skór gerir gæfu-
muninn. (One Shoe Makes
it Murder). Hörkuspennandi
mynd meö Robert Mitchum
og Angie Dickinson i aöal-
hlutverkum. Leikstjóri er
William Hale. Lögreglumaö-
ur rannsakar sviplegt
dauösfall konu. Er um sjálfs-
morö eöa morö aö ræöa?
§ 23.20 Tíska. Umsjónarmaö-
UrerHelga Benediktsdóttir.
23.50 Dagskrárlok.
ráösson fjalla um íslenskt
mál frá ýmsum hliöum.
21.00 Gömul tónlist.
21.20 Á fjölunum. Sjötti þáttur
um starf áhugaleikfélaga.
Sýning Leikfélags Fá-
skrúðsfjaröar, „Allir I verk-
fall". Umsjón Inga Rósa
Þóröardóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
MIÐVIKUDAGUR
4. mars
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meöal efnis: Plötupottur,
gestaplötusnúöur og get-
raun um íslenskt efni.
12.00 Hádegisútvarp meö
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Kliöur. Þáttur ( umsjá
Ólafs Más Björnssonar.
15.00 Nú er lag. Gunnar Sal-
varsson kynnir gömul og ný
úrvalslög.
16.00 Taktar. Stjórnandi:
Heiðbjört Jóhannsdóttir.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma.
Andrés Björnsson les 15.
sálm.
22.35 Hljóö-varp
Ævar Kjartansson sér um
þátt i samvinnu viö hlust-
endur.
23.10 Djassþáttur
Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok
17.00 Erill og ferill. Erna Arnar-
dóttir sér um tónlistarþátt
blandaöan spjalli við gesti
og hlustendur.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
reykjavík
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Héöan og þaöan. Frétta-
menn svæðisútvarpsins
fjalla um sveitarstjórnarmál
og önnur stjórnmál.
989
'BYLGJANj
MIÐVIKUDAGUR
4. mars
07.00—09.00 Á fætur meö
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist meö morgunkaffinu.
Siguröur litur yfir blööin og
spjallar viö hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Opin lína til
hlustenda, mataruppskrift
og sitthvað fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aöi með Jóhönnu Haröar-
dóttur. Fréttapakkinn,
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast meö því
sem helst er í fréttum, segja
frá og spjalla viö fólk.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síödegispoppið og spjall-
ar viö hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00-19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavík
síödegis. Hallgrímur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
19.00—21.00 Hemmi Gunn í
miðri viku. Létt tónlist og
þægilegt spjall eins og
Hemma einum er lagiö.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á miövikudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Ljúf
tónlist og fréttatengt efni.
Dagskrá í umsjá Braga Sig-
urössonar fréttamanns.
24.00—07.00 Naeturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur.
ALFA
KrlalUef ÉtrarptalM.
FM 102,9
MIÐVIKUDAGUR
4. mars
13.00 Tónlistarþáttur meö
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.